„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró

 

 

Fréttatilkynning frá Hundaræktarfélagi Íslands

 

Afrekshundur ársins!
 

Hundaræktarfélag Íslands hefur ákveðið að efna til samkeppni um val á afrekshundi ársins. Lesendum/hlustendum til glöggvunar er hér átt við hund sem með einhverjum hætti hefur komið að björgun manna og/eða dýra, liðsinnt fötluðum eða veikum einstaklingum eða verið til uppörvunar og hjálpar á einn eða annan hátt. Margar frásagnir eru til af hetjudáðum „besta vinar mannsins” sem hafa snortið hjörtu okkar.

Leitað er eftir tilnefningum í þessa samkeppni. Með tilnefningunni þarf að fylgja frásögn um hundinn og góðverk hans ásamt öðrum nauðsynlegum upplýsingum s.s. nafn hans, aldur, nafn eiganda, nafn sendanda, o.s.frv.
Ekki eru gerðar kröfur um að hundurinn sé hreinræktaður. Allar tilnefningar eru vel þegnar jafnvel þó langt sé um liðið. „Afrekshundur ársins” verður heiðraður á októbersýningu félagsins þann 3.-5. október nk.

Tilnefningar skal senda með pósti til skrifstofu HRFÍ, Síðumúla 15, l08 Reykjavík eða með tölvupósti, netfang: hrfi@hrfi.is
Skilafrestur er til 26. september nk.

Heimasíða hundaræktarfélags Íslands er www.hrfi.is

 

 

 

 

 

 

Veljum íslenskt
Veljum X-B
FYRIR ALLA

 

 

 

To be is to do
Sokrates
Do bee do bee do
Frank Sinatra

 

Viltu koma skoðun  þinni á framfæri, viltu að við látum þig vita þegar nýtt efni er sett inn á síðuna eða óskar þú eftir upplýsingum?
Sendu okkur tölvupós
t:

frettir@mosfellsfrettir.is