|
|
|
„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“ |
Innan íþróttafélaga í Mosfellsbæ er unnið frábært og óeigingjarnt starf sjálfboðaliða, foreldra, þjálfara, stjórnenda og starfsmanna. Starf félaganna er að mestu í miklum blóma og ætlum við framsóknarmenn að tryggja að svo verði áfram. Á krepputímum þarf að leggja megináherslu á að innra starf félaganna haldist blómlegt og vilja framsóknarmenn samráð við félög um rekstur og uppbyggingu íþrótta- og tómstundastarfs. Skuldir á íbúa Mosfellsbæjar hafa tvöfaldast á síðustu tveimur árum og nema um 800þús. á íbúa, veltufjárhlutfall var 0,7% 2009 en þarf að vera 8% ef vel á að vera. Fara verður mjög varlega í nýframkvæmdir því búið er að skuldbinda bæjarsjóð fyrir ýmsum framkvæmdum og fyrirhugaðar framkvæmdir gera það að verkum að skuldir stefna í ríflega 1 milljón á íbúa. Þessar áætlanir sníða rekstri íþróttamannvirkja og uppbyggingarstarfi mjög þröngan stakk. Á kvöldvöku Aftureldingar nýverið fór Haraldur Sverrisson bæjarstjóri undan í flæmingi þegar hann var inntur eftir því hvað liði byggingu anddyris, þjónustu- og félagsaðstöðubyggingar að Varmá sem núverandi bæjarstjórnarmeirihluti „gaf "Aftureldingu á 100 ára afmælinu. Undirritaður sagðist ekki ætla að gefa út innistæðulaus loforð í þessu efni en ef tækist að gera raunhæfa kostnaðar- og fjármögnunaráætlun ætti að ljúka þessu á næsta kjörtímabili. Huga þarf að gerð fimleikagryfju, bæta lýsingu í íþróttasölum að Varmá fyrir blak og badminton og lagfæra frjálsíþróttaaðstöðu við Vármávöll. Efla þarf starfsemi MotoMos á Tungumelum til að bæta aðstöðu og stemma stigu við utanvegaakstri. Fjölga ber reiðstígum og bæta lýsingu þeirra í samstarfi við Hestamannafélagið Hörð til að auka umferðaröryggi. Við viljum vinna með forsvarsmönnum Golfklúbbsins
Kjalar að byggingu félagsheimilis ef sameiginlega tekst að standa skynsamlega
að þeirri framkvæmd hvað kostnað og fjármögnun áhrærir. Höfundur er verkfræðingur, situr í þróunar- og ferðamálanefnd Mosfellsbæjar og býður sig fram í 3-ja sæti B-listans í Mosfellsbæ.
|
Veljum íslenskt
To
be is to do
Viltu koma skoðun
þinni á framfæri, viltu að við látum þig vita þegar nýtt efni er sett inn
á síðuna eða óskar þú eftir upplýsingum? |
|
|