Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró


                                                2003

19. desember

Jólasýning fimleikadeildar Aftureldingar
Stórglæsileg jólasýning fimleikadeildarinnar var haldin á sunnudaginn var. Íþróttahúsið var troðfullt og mikil stemming.  Mikill áhugi á fimleika virðist vera hjá krökkum í bænum, en strákarnir mættu þó vera fleiri.  Alls eru um 130 börn sem æfa fimleika í dag í 8 hópum og verður þeim örugglega eitthvað fjölgað eftir áramót.
Síðustu helgi í nóvember fóru 6 stúlkur frá fimleikadeildinni á mót á Egilsstöðum.  Þetta var í fyrsta sinn sem krakkar úr fimleikadeildinni fara á mót og stóðu þau sig mjög vel.  Kristín Kristmundsdóttir fékk 2 gull og 1 silfur og Herdís Harðardóttir fékk 1 silfur.
Kristín vann sér inn rétt til að fara á meistaramót eftir áramót og munaði aðeins einu sæti á að Herdís kæmist á það mót. Hinar stúlkurnar stóðu sig einnig allar mjög vel.
Á efri myndinni eru flottir fimleika strákar ásamt þjálfara sínum.

Á neðri myndinni má sjá glæsilegan tromphóp á jólasýningunni um síðustu helgi, en þetta eru stúlkur sem eru búnar að æfa í 2-4 ár.

18.desember
JÓLABINGÓ
Framsóknarfélögin í Mosfellsbæ stóðu fyrir jólabingói á laugardaginn var.
Bingóið var haldið til styrktar Ásdísi Jónsdóttur og syni hennar, Birki Emil, en Birkir Emil er 3ja ára drengur í Mosfellsbæ og er með hinn erfiða sjúkdóm, Goldenhar heilkenni. Jólasveinninn mætti á svæðið, spilaði bingó og spjallaði við krakkana. Vinningar voru glæsilegir og vilja Framsóknarfélögin koma á framfæri þakklæti til allra þeirra eru gáfu vinninga.

Birkir Emil og Hurðaskellir.


Aðalvinningshafi Heiðdís Lóa Ben Pálsdóttir og með henni Hjördís Nína Egilsdóttir.


15.desember
Viðurkenning fyrir gott aðgengi hreyfihamlaðra
Í byrjun desember hlotnaðist okkur í Lágafellsskóla sá heiður að hljóta viðurkenningu fyrir gott aðgengi hreyfihamlaðra. Það var Sjálfsbjörg landsamband fatlaðra sem veitti viðurkenninguna. Sigríður og Jóhanna skólastjórar okkar tóku á móti viðurkenningunni, en á myndinni er Guðrún Nanna nemandi í 4. SH með viðurkenninguna, ásamt bekkjarfélögum sínum.
 


14.desember
Þemadagar í Varmárskóla
Dagana 19., 20. og 21. nóvember voru haldnir þemadagar í Varmárskóla.
Hefðbundin kennsla var brotin upp og nemendur yngri deildarinnar byrjuðu
þemadagana á því að búa  til "heilsukeðju" allan hringinn í kring um
skólann. Þau voru bæði að heilsast og hugsa um heilsuna og útivist á meðan.
Nemendur bjuggu til heilsuhlaðborð í skólastofunum, þau bökuðu heilsubollur
og skáru niður grænmeti og spjölluðu um hollt mataræði og hreyfingu. Margt
var sér til gamans gert og stöðugt minnt á útivist, hreyfingu, hollan mat og
vatnsdrykkju.
Hjalti Úrsus kraftajötunn kom í heimsókn og setti upp fittnessbraut sem var
mjög vinsæl.
Í lok þemadaganna var íþróttahátíð þar sem var dans, boðhlaup og keppni í
kastalaleik á milli kennara og nemenda, sem endaði með naumum sigri
kennaranna.

Dularfullir dagar
Dularfullir dagar var yfirskrift þemadaganna í eldri deildinni. Nemendur
urðu margs vísari um drauga og miðaldarmenningu. Margt var sér til gamans
gert. Skólinn var skreyttur hátt og lágt. Allir tóku virkan þátt í þessu starfi sem lauk með sýningu á föstudeginum.
Þetta voru einstaklega vel heppnaðir dagar.

Skólanum var skipt upp í yngri og eldri deild. Í yngri deildinni var þemað
"Heilsa, hollusta og hreyfing", en í eldri deildinni var þemað "Dularfullir
dagar".

Mosfellsfréttir vilja benda á að á heimasíðu Varmárskóla er  að finna mikið af skemmtilegum myndum frá þemadögunum.


12.desember
                 Jólabingó

Jólabingó verður haldið laugardaginn 13.desember kl.13 að Háholti 14, 2. hæð í Mosfellsbæ (í sama húsi og tónlistarskólinn) Framsóknarfélögin í Mosfellsbæ standa fyrir bingóinu og Halla Karen Kristjánsdóttir og Bryndís Bjarnarson stjórna.  Fjölmörg fyrirtæki hafa gefið vinninga í bingóið. Verð á spjaldi er 300 krónur, glæsilegir vinningar.
Jólaöl, kaffi og smákökur verða seld á vægu verði. Jólasveinn mætir á svæðið og heilsar upp á börnin.
Framsóknarfélögin í Mosfellsbæ hafa ákveðið að allur ágóði jólabingóssins renni til styrktar þeim mæðginum Ásdísi Jónsdóttur og syni hennar Birkir Emils sem er 3ja ára drengur með Goldenhair heilkenni.

11.desember
Fréttatilkynning:
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2004 hefur verið lögð fram í bæjarráði og var til fyrstu umræðu á bæjarstjórnarfundi í gær 10.desember.
Vegna framlagningar á fjárhagsáætluninni vill minnihlutinn í bæjarstjórn Mosfellsbæjar koma aðaleinkennum hennar á framfæri:

Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2004 er almenn hækkun á gjaldskrám bæjarfélagsins  einkennandi þó gengið hafi verið afar langt í þeim efnum á árinu 2003. Hækkanir eru á gjaldskrám fyrir sorphirðu, heitt vatn, heimæðargjöld, skólamáltíðir, gæsluvöll, leigu á félagslegu húsnæði og leikskólagjöld. Leikskólagjöld hafa þá hækkað um hátt í 30% á einu ári.

Þrátt fyrir ummæli sjálfstæðismanna um aukið sjálfstæði stofnana er stöðugt verið að auka á miðstýringu stjórnkerfissins og m.a. með því að takmarka aðkomu kjörinna fulltrúa að lýðræðislegum umræðum og ákvarðanatöku.

Verulega er þrengt að ýmsum stofnunum bæjarins undir yfirskini sparnaðar og aðhalds sem bitnar fyrst og fremst á þjónustustigi þeirra við bæjarbúa til lengri tíma litið og hafa m.a. stofnbúnaðaróskir þeirra verið skornar niður við trog.

Mjög var þrengt fjárhagslega að starfsemi grunnskólans árið 2003 og er haldið áfram á sömu braut 2004.  Með því er vegið að því metnaðarfulla skólastarfi sem byggt hefur verið upp á undanförnum árum.

Fjárhagsáætlun 2004 lýsir að áliti minnihlutans metnaðarleysi sjálfstæðismanna og skorti á framtíðarsýn í ört vaxandi bæjarfélagi.

Bryndís Bjarnason  bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins
Jónas Sigurðsson  bæjarfulltrúi Samfylkingar og VG
Þröstur Karlsson    bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins

28.nóvember
Heitt vatn til húshitunar hækkar um 5%.
Sjálfstæðismenn samþykktu tillögur að breyttri gjaldskrá hitaveitunnar og vatnsveitunnar á tækninefndarfundi þann 25.11 s.l. Hækkunartillögur gera ráð fyrir 5 % hækkun á útsöluverði heits vatns til íbúðarhúsa.

Samþykkt var einnig um 18% hækkun á heimæðargjöldum Hitaveitu Mosfellsbæjar og 21% hækkun á heimæðargjöldum  Vatnsveitu Mosfellsbæjar.

Tillögurnar gera ráð fyrir að hækkanir taki gildi frá og með 1.janúar n.k. Minnihlutinn greiddi atkvæði á móti.

28.nóvember
Útsvarsprósenta 2004.
Á bæjarstjórnarfundi Mosfellsbæjar í gær samþykkti meirihluti sjálfstæðismanna að  útsvarsprósentan árið 2004 yrði 12,94%, sama og í ár.

Minnihlutanum þótti það einkennilegt að  útsvarsprósentan væri ákveðin áður en búið væri að vinna og leggja fram fjárhagsáætlun, en fjárhagsáætlun fyrir árið 2004 hefur ekki verið lögð fram í bæjarráði né í bæjarstjórn.


26.nóvember
Afturelding opnar spjallvef
Búið er að opna spjallvef á heimasíðu Aftureldingar afturelding.is. Þar er hægt að skrá sig inn og ræða málefni félagsins o.f.l. slóðin er http://www.afturelding.is/ smella síðan á vefspjall á valmynd.

 
26.nóvember
Aðalfundur hestamannafélagsins Harðar
Aðalfundur hestamannafélagsins Harðar verður haldinn miðvikudaginn 3. desember næstkomandi. Fundurinn er haldinn í Harðarbóli félagsheimili Harðarmanna og hefst hann kl 20.00.  Allir Harðarfélagar eru hvattir til að mæta
.

24.nóvember
Sölusýning á hrossum frá Flekkudal og Meðalfelli
verður haldin að Meðalfelli í Kjós laugardaginn n.k. 29.nóv kl. 13.30
Sýnd verða efnileg tryppi sem hafa verið í tamningu síðastliðna tvo mánuði og önnur lengra komin. Sýningin verður úti og þá verður veðrið að sjálfsögðu gott!
Allir eru velkomnir í Kjósina til að kynna sér ræktun þessara tveggja búa.
Komið og spjallið um það helsta sem er að gerast í íslenskri hrossarækt. Heitt verður á könnunni.
Akstur að Meðalfelli tekur aðeins um 25 mínútur frá Mosfellsbæ.
Sýningarskrá með mynd og ýtarlegum upplýsingum um hvert hross.

21.nóvember
Úthlutun lóða.

Eitthvað vefst það fyrir forráðamönnum bæjarfélagsins í Mosfellsbæ að úthluta lóðum við Tröllateig. Nú hafa verið send út bréf til margra umsækjenda um að greiðslumat eða fjárhagsmat banka sé ekki nógu hátt eða ranglega gert, en leiðbeiningar fyrir banka fylgja með.

Vefurinn hafði samband við einn verktaka sem sótt hefur um og fram kom að ef hann myndi sækja um alla möguleika, þá yrði hann að leggja fram frá sínum viðskiptabanka 323 milljóna fjárhagsmat. Sá hinn sami ef hann hefði nú allt þetta traust og ef heppinn væri, fengi hugsanlega úthlutað einni lóð undir parhús.

Hvergi má finna á Íslandi slíkar kröfur og eflaust hvergi í heiminum, eins og gerðar eru við undirbúning þessarar úthlutunar. Er verið að klæðskera þessa úthlutun eingöngu fyrir ríkustu byggingarfyrirtækin í landinu? Fá eru það fjáð að geta lagt fram mat upp á 323 milljónir og verið með í öllum útdrættinum.

Blaðamaður rakst einnig á í úthlutunarreglunum að umsóknaraðilar verða að vera skuldlausir við Mosfellsbæ. Mosfellingar verða að vera skuldlausir, en aðrir mega vera skuldum vafnir við sín sveitarfélög. Já furðulegt það! Hvað finnst íbúum Mosfellsbæjar um þetta, þeir sem búa ekki í Mosfellsbæ hafi meiri rétt?


19.nóvember
Jólatréssala að Fossá í Hvalfirði

Hefur þig dreymt um að fara með fjölskyldu þinni í skógarhögg þar sem þið veljið ykkar eigið jólatré og höggvið það sjálf?  Einstaklingum sem og starfsmannahópum gefst nú frábært tækifæri til að koma í desember að Fossá í Kjós og ná sér í jólatré. Þið getið komið með nesti með ykkur og sest inn í húsið að Fossá og borðað það þar svo lengi sem húsrúm leyfir.  Ef veðrið er gott er hægt að setjast niður með nestið í einhverju rjóðrinu í skóginum.
Helgarnar  6. og 7. desember, 13. og 14. desember og 20. og 21. desember verður opið fyrir almenning, frá kl. 11:00 til 15:00.  Vilji hópar koma á öðrum tíma þá er hægt að panta það sérstaklega.  Allur ágóði rennur til skógræktar og uppbyggingar á Fossá.  Skógræktarfélögin í Kópavogi, Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós eiga þetta svæði og hafa plantað í það í um 30 ár.

18.nóvember
10% hækkun á leiguverði félagslegs húsnæðis?

Sjálfstæðismenn í félagsmálanefnd knýja fram hækkun leigu á félagslegu húsnæði gegn atkvæðum minnihlutans, bæjarstjórn á þó eftir að fjalla um málið.

Fulltrúi B-lista í félagsmálanefnd lét bóka eftirfarandi:  Fulltrúi B-lista telur að hækkun sú sem meirihluti sjálfstæðismanna leggur til sé langt umfram almenna verðlagsþróun og því algjörlega ónauðsynleg, enda sé með henni vegið að þeim skjólstæðingum félagsmálanefndar sem síst skyldi.  Leiguíbúðir þær sem félagsmálanefnd hefur til umráða eru hugsaðar sem aðstoð við þá sem eru í brýnni þörf fyrir félagslegt húsnæði um skamman tíma og því óviðeigandi að leiguverð þeirra sé hækkað umfram almenna verðalagsþróun en leiguverð hefur tekið breytingum skv. neysluvísitölu.  Leiguverð félagslegra leiguíbúða í Mosfellsbæ hefur hækkað um 47% frá 1999, en vísitala neysluverðs aðeins um 21% á sama tíma.

17.nóvember
Fjöldi nemenda í bekkjardeildum.
Á bæjarstjórnarfundi þann 12.nóv.s.l. var samþykkt af meirihluta gegn atkvæðum minnihluta að fella úr gildi viðmiðunarreglur um fjölda nemenda í bekkjardeildum grunnskólanna.
Fram kom í máli minnihluta að hann telur að með því að fella úr gildi viðmiðunarreglur um fjölda nemenda í bekkjardeildum og reglur um skiptistundir sem gilt hafa á undanförnum árum sé verið að stíga óheillaspor. Jafnframt sé verið að afnema þá ábyrgð sem legið hefur á bæjarstjórn og fræðsluyfirvöldum bæjarins.
Ábyrgðinni sé með þessu  velt yfir á  skólastjórnendur sem þá verða að taka fjárhagsleg sjónarmið fram yfir hin faglegu, sé fjárveitingum naumt skammtað, eins og er á yfirstandandi skólaári.

14.nóvember
Húsaleigusamningur Tónlistarskólans
Á bæjarstjórnarfundi var tekist á um breytingar á húsaleigusamningi Tónlistarskóla Mosfellsbæjar, en leigusali hefur beðið um leiðréttingar á honum.
Meirihlutinn samþykkti á fundinum að vinna að breytingum á samningnum frá 5.júní 2002 en ekki frá upphafsdegi í október 1999, eins og minnihlutinn lagði til.
Það kom fram hjá minnihluta að húsaleigusamningurinn var gerður eftir upplýsingum frá leigusala, sem síðan reyndust ekki réttar.   Einkennilegt væri að miða leiðréttingar frá 5. júní 2002 sagði minnihlutinn, en fram kom hjá bæjarstjóra að miðað væri við þennan dag þar sem núverandi meirihluta kæmi ekki við “gamlar syndir fráfarandi meirihluta”.  Skondið það, en bæjarstjórn hverju sinni skal virða og vinna að samþykktum og gerðum bæjarstjórnar hvort sem það er fyrrverandi eða núverandi bæjarstjórn sem samþykkti.

13.nóvember
Félagsmálaráðherra styrkir ungmennastarf Sjálfsbjargar
Í sumar heimsótti Árni Magnússon félagsmálaráðherra Sjálfsbjörgu og kynnti sér starfsemi landssambandsins. Í þessari heimsókn hitti hann nokkra af þeim ellefu ungmennum sem störfuðu á skrifstofu sambandsins síðastliðið sumar. Sumarstarf hópsins sem kallar sig Ný-ung, fólst í útgáfu blaðs sem nú hefur litið dagsins ljós og ber heitið Lifur.

Félagsmálaráðherra leist vel á framtak hópsins og bauð öllum hópnum í hádegismat í ráðuneytið af því tilefni. Í heimsókn sinni í félagsmálaráðuneytið afhenti hópurinn ráðherra eintak af Lifur og þáðu pizzur og kók.
Við þetta tækifæri tilkynnti Árni Magnússon Ný-ung hópnum að hann hygðist styrkja frekara starf hópsins með styrk að upphæð 600 þúsund krónur.

Málefni fatlaðra eru helsta áherslumál félagsmálaráðherra í fjárlagafrumvarpinu. Framlög til málaflokksins eru stórlega aukin og stór skref stigin í því að eyða biðlistum fatlaðra eftir búsetu í heimabyggð og annarri þjónustu.

12.nóvember
Uppskeruhátíð Aftureldingar
Laugardaginn 15. nóvember n.k. verður Uppskeruhátíð Aftureldingar haldin í 10. sinn frá kl. 13:30 til 14:30  Að þessu sinni verður hátíðin haldin í Íþróttamiðstöðinni að Varmá. Yfir 100 verðlaun og viðurkenningar verða veittar, einnig verður íþróttamaður Aftureldingar valinn. Allir velkomnir.


10.nóvember      
Fréttatilkynning

Mikill áhugi á námskeiði fyrir foreldra í Mosfellsbæ
Í Mosfellsbæ eru nú um 20 áhugasamir foreldrar og starfsmenn leikskóla á námskeiði sem ber yfirskriftina „Að alast upp aftur, annast okkur sjálf, annast börnin okkar“.  Námskeiðið, sem er haldið á vegum Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar, byggir á þeirri hugmyndafræði sem kynnt er í samnefndri bók eftir þær Jean Illsley Clarke og Connie Dawson og út kom á íslensku fyrir jólin í fyrra.
Námskeiðið fer fram í Lágafellsskóla, einu sinni í viku í sex skipti alls.  Meira..


7.nóvember
Orkubolti Íslands Mosfellingur!

Í orkuátaki Latabæjar á dögunum var valinn orkubolti Íslands.  Fyrir valinu varð Bjarki Steinn Pétursson, 4 ára Mosfellingur sem er á leikskólanum Huldubergi.  Að þessu tilefni mætti íþróttaálfurinn á leikskólann á föstudaginn var til að heimsækja orkubolta Íslands og sprellaði hann með krökkunum.  Þess má geta að öll börnin á Huldubergi stóðu sig mjög vel í orkuátakinu að sögn íþróttaálfsins.
Mosfellsfréttir óska Bjarka Steini til hamingju.

7.nóvember
Skjaladagur.is    Fréttir frá Lágafellsskóla

Nemendur í 6. bekkjum Lágafellsskóla unnu að verkefni í samvinnu við
Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar.Verkefnið tengdist Norrænum skjaladegi,sem
verður þann 8. nóvember, þar sem yfirskriftin er "Er heilsu haldið til
haga". Krakkarnir völdu sér eina íþróttagrein innan Ungmennafélagsins
Aftureldingar, handbolta, knattspyrnu, glímu, frjálsar íþróttir eða
leiklistarstarfsemi.
Verkefnin voru unnin upp úr gömlum afmælisritum frá Aftureldingu, en
greinarnar fengu þau frá Héraðsskjalasafninu ásamt myndum sem þau settu
inn í skjölin.
Eitt skjal var valið til birtingar á vefnum skjaladagur.is en hin skjölin
birtast á síðu Héraðsskjalasafns Mosfellsbæjar. Það var Sólveig Magnúsdóttir
héraðsskjalavörður sem átti hugmyndina að samstarfinu en með henni unnu
Björg Valsdóttir tölvukennari, Anna Charlesdóttir bókasafnsvörður í
Lágafellsskóla, Ásta Steina Jónsdóttir umsjónarkennari í 6. ÁS og Guðrún
Íris Valsdóttir umsjónakennari í 6. ÍV.
Sigurvegararnir komu úr 6. ÁS en það voru þær Anna María, Dagbjört Kristín
og Hjördís. Við óskum þeim til hamingju með sigurinn.

6.nóvember
Tónlistarskóli í hremmingum.
Fram kom á bæjarstjórnarfundi þann 29.10 s.l. að Tónlistarskóli Mosfellsbæjar býr við mikinn niðurskurð, svo mikinn að ekki hefur verið hægt að bóna gólf skólans og mörg raftækjanna þyrfti að kippa úr sambandi ef vel ætti að vera. Fækkað hefur verið um 20 nemendur á haustönn frá því í vor og eru nemendur í dag 150 talsins en voru 170. 45 nemendur eru á biðlista eftir að fá að hefja nám og hefur biðlistinn aldrei verið lengri.

6.nóvember
Öldrunarsetur í Mosfellsbæ.

Bæjarstjórnin samþykkti á fundi sínum þann 29.10 s.l. með öllum greiddum atkvæðum að áfram verði haldið með samstarfsverkefni Mosfellsbæjar og Eirar um uppbyggingu öldrunarseturs í Mosfellsbæ og að þeim þáttum er lúta að skipulagi svæðisins verði vísað til skoðunar skipulags- og byggingarnefndar en jafnframt verði hlutlaus ráðgjafi fenginn til þess að fara yfir hagkvæmnisútreikninga fyrir Mosfellsbæ.

5.nóvember
Bæjarleikhúsið.

Samþykkt var á fundi bæjarráðs þann 30.10 s.l. að veita aukafjármagni að upphæð kr.225 þúsund til að snyrta umhverfis Bæjarleikhúsið.


31.október
Makaskipti ÍAV og Mosfellsbæjar
Mosfellsbær og Íslenskir aðalverktakar undirrituðu í dag makaskiptasamning um Blikastaðanes annars vegar og 7 hektara lands Mosfellsbæjar sem skilgreint er samkvæmt aðalskipulagi sem svæði fyrir blandaða byggð. Blikastaðanes er 48 hektarar að flatarmáli, skilgreint sem almennt útivistarsvæði og golfvöllur.

Eignirnar eru að öllu leyti endurgjald hvor fyrir aðra og kemur ekki til frekari greiðslna á milli aðila, segir í frétt frá skrifstofu bæjarstjóra Mosfellsbæjar.

Á Blikastaðanesi verða gönguleiðir, reiðstígar og golfvöllur. Fyrirhugaður golfvöllur verður í tengslum við núverandi 9 holu golfvöll þannig að úr verður 18 holu golfvöllur og sjá Íslenskir aðalverktakar um að leggja brautir vallarins í samræmi við endanlega hönnun og skila brautunum grófjöfnuðum endurgjaldslaust.


31.október
Uppbygging íþróttamiðstöðvar við Lágafellsskóla.

Meirihluti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 29.10 s.l. með fjórum atkvæðum gegn einu að  byggja íþróttahús og almenningssundlaug við Lágafellsskóla sem þjónar skólum á vestursvæði.  Jafnframt yrði lagt fé í Varmárlaug til þess að hún geti þjónað áfram sem kennslulaug á austursvæði ásamt því að nýtast til sundþjálfunar keppnisfólks.

Mikill ágreiningur hefur verið um þetta mál, en minnihlutinn lagði þunga áherslu að ekki yrði hlaupið frá hálfnuðu verki við Íþróttamiðstöðina að Varmá og  almennissundlaugin yrði byggð þar samkvæmt stefnu allra flokka frá síðasta kjörtímabili.

Fulltrúar B listans sátu hjá og bókuðu:.

Mosfellsbær er að okkar mati ekki kominn í þá stærð að réttlætanlegt sé að byrja á uppbyggingu á nýrri íþróttamiðstöð, farsælla sé að ljúka uppbyggingu íþróttamiðstöðvar að Varmá áður en farið verður í uppbyggingu á vestursvæði. Skorum á núverandi meirihluta að endurskoða afstöðu sína og ljúka við uppbyggingu íþróttamannvirkja á Varmársvæðinu og hlaupa ekki frá hálfnuðum verkum áður en hafist er handa á vestursvæðinu.

Áður á fundinum fór B listinn fram á að endurskoðendur Mosfellsbæjar, endurskoðunarfyrirtækið KPMG yrði falið að fara yfir og leggja mat á skýrslu um samanburð á hagkvæmni kosta um uppbyggingu íþróttamannvirkja í Mosfellsbæ. Forstöðumanni íþróttamála yrði einnig falið að afla gagna til samanburðar frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu um rekstur og rekstrarkostnað íþróttamannvirkja. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum gegn þremur.
 

31.október
Tekist á um vanhæfi á bæjarstjórnarfundi.

Sjálfstæðismenn í íþrótta- og tómstundanefnd töldu fulltrúa B listans hugsanlega vanhæfan í tengslum við umræðu um uppbyggingu íþróttamiðstöðva í Mosfellsbæ og kom þetta til umræðu á bæjarstjórnarfundi þann 29.10 s.l.

Fulltrúar B listans bókuðu:
Fordæmum þau vinnubrögð og dylgjur sem fram komu í bókunum meirihluta sjálfstæðismanna í íþrótta- og tómstundanefnd, um að fulltrúi B-listans væri hugsanlega vanhæfur. Meirihlutinn hefði átt að undirbúa sig betur fyrir fundinn og kynna sér málið og ganga þá til atkvæðagreiðslu um vanhæfi nefndarmannsins eins og lög og reglur gera ráð fyrir en vera ekki með svona aðdróttanir. Þetta sýnir ekkert annað en málefnafátækt sjálfstæðismanna í nefndinni.

27.október
VILLIBRÁÐAKVÖLD

Hið frábæra Villibráðakvöld Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verður haldið í sal félagsins að Háholti 14  2.hæð laugardaginn 1.nóvember nk.

Húsið opnar kl. 19.30 með fordrykk og borðhald hefst kl. 20:15. Eins og venjulega mun Vignir Kristjánsson matreiðslumeistari í Hlégarði flambera og bera á borð sitt frábæra villibráðahlaðborð.

Einnig verður boðið upp á fordrykk, kaffi, konfekt og ekki má gleyma hinu árlega happadrætti, þar sem vinningar verða veglegir sem endra nær.

Heiðursgestir kvöldsins:
Hr.Árni Magnússon, félagsmálaráðherra og frú Edda Björg Hákonardóttir.
Veislustjóri: Ævar Sigdórsson

Miðaverð kr: 4.200
Vinsamlegast pantið miða fyrir fimmtudaginn 30. október.
Miðapantanir: Bryndísi í síma 891-8206, Kolbrúnu í sím 699-5178, Systu í síma 566-8752

Skemmtinefndin

 


22.október

 

Mótmæli dagmæðra í Mosfellsbæ

Dagmæður í Mosfellsbæ er búnar að fá sér lögmann til að leita réttar síns gagnvart ný samþykktum reglum Mosfellsbæjar hvað varðar niðurgreiðslur til sjálfstætt starfandi dagmæðra. Lögmaður dagmæðranna telur ýmiss atriði samþykktanna ekki standast almennar stjórnsýslureglur. Í bréfi lögmanns kemur m.a. fram að andmælaréttur hafi ekki verið virtur, nýtt fyrirkomulag
seinki niðurgreiðslum, skuldajöfnun sé óheimil og áskilinn sé réttur til að kæra ólögmæta öflun á persónuupplýsingum til Persónuverndar.


21.október
Hlutfall framlags sveitarfélaga til tryggingar viðbótarlánum lækkað í 4%

Félagsmálaráðherra hefur gert breytingu á 17. gr. reglugerðar um varasjóð húsnæðismála nr. 656/2002 með reglugerð nr. 754/2003. Með breytingunni er hlutfall framlags sveitarfélaga til tryggingar viðbótarlánum lækkað úr 5% af veittum viðbótarlánum í 4%.
Breyting þessi var gerð að tillögu ráðgjafarnefndar varasjóðs húsnæðismála og að fenginni umsögn frá Seðlabanka Íslands, Fjármálaeftirlitsins og stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lækkunin tekur til allra viðbótarlána sem afgreidd eru af Íbúðalánasjóði eftir gildistöku reglugerðarinnar (tók gildi 14. október sl.).
Þetta ætti að koma sveitafélögum á borð við Mosfellsbæ mjög vel enda lækkar þetta kostnað sveitar félagsins til viðbótarlána um u.þ.b..20%


20.október
Fráveitumál í hesthúsahverfinu ófullnægjandi
Á fundi Heilbrigðisnefndar Kjósarsvæðis var samþykkt eftirfarandi:
Fráveita í hesthúsahverfinu við Varmárbakka.

 

“Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis leggur til við bæjarstjórn Mosfellsbæjar að hún geri ráð fyrir fjármagni vegna hönnunar og skipulagningu fráveitulausnar fyrir hesthúsahverfið við Varmárbakka í fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Heildarlausn fyrir hverfið þarf að liggja fyrir sem fyrst þar sem ástand fráveitu er ófullnægjandi í hverfinu “


17.október
Siv Friðleifsdóttir í gifsi
Samkvæmt því sem Siv skrifar á heimasíðu sinni þá lenti hún í gifsi eftir að hafa slasast í badminton leik eða eins og hún segir sjálf frá: “Þetta slys er með því al-al- hallærislegasta sem ég hef lent í lengi. Eftir að hafa verið búin að æfa og keppa slysalaust í badmintoni í um 30 ár frá stelpualdri tekst mér að slasast á þeim 5 mínútum sem Sigmundur Ernir og co. á Skjá Einum eru mættir með tökuvélarnar í gangi. Svona eru tilviljanirnar magnaðar” mosfellsfrettir.is vona að Siv batni bæði fljótt  og vel.

16.október
Villibráðakvöld Framsóknarflokksins

Hið sívinsæla og skemmtilega villibráðakvöld Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Í sal Framsóknarfélagsins að Háholti 14 2.hæð verður hið árlega villibráðakvöld haldið. Að venju sér Vignir í Hlégarði um að flambera og bera fram bráðina. Heiðursgestur verður Árni Magnússon félagsmálaráðherra og frú. Allir velkomnir, hægt að panta miða á netföngunum, systasig@isl.is og bryndisbj@simnet.is

6.október
Hestamannafélagð Hörður gefur út bók

Í síðustu viku gaf Hestamannafélagið Hörður út bókina Litla hestahandbókin, verkefnisstjóri og höfundur texta er Hulda G.Geirsdóttir.  Bókin fjallar um flestar hliðar hestamennskunnar fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í hestamennsku.
Bókin er í lausblaðamöppu sem gefur möguleika á að nota hana í kennslu þar sem auðvelt er að stinga inn í hana nýjum upplýsingum og minnisblöðum.
 

2.október
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra mun í dag formlega opna nýtt 19 þúsund fermetra fraktflughlað á Keflavíkurflugvelli.
Á síðustu árum hefur mikil aukning verið í fraktflutningum til og frá Keflavíkurflugvelli. Vöruflutningar voru samtals tæp 42 þúsund tonn á síðasta ári. Þar af var útflutningur um 25 þúsund tonn og hefur rúmlega tvöfaldast á sjö árum.
Búist er við áframhaldandi aukningu í fraktflugi frá Keflavíkurflugvelli á næstu árum og hafa fyrirtækin Flugleiðir og Vallarvinir reist sérhæfðar fraktmiðstöðvar í þeim tilgangi að bæta þjónustu við útflytjendur. Fraktflughlaðið mun bæta vörumeðhöndlun með betri tengingu við fraktmiðstöðvarnar og verður hægt að þjónusta allt að fjórar vöruflutningavélar á flughlaðinu samtímis. utanrikisraduneyti.is


2.október

 

Fréttatilkynning frá Hundaræktarfélagi Íslands 

Hundasýning um helgina
Árleg haustsýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldin nú um helgina 3.-5. október í reiðhöll Gusts í Kópavogi. Alls verða sýndir um 350 hundar. Sýningin hefst á föstudag kl. 16 og verða sýndir hvolpar af fjölmörgum tegundum fram eftir kvöldi auk þess sem börn og unglingar keppa um titilinn besti ungi sýnandinn. Meira..

29.september
Afturelding með í Íslandsmóti í blaki fyrsta sinn
Afturelding hefur skráð lið í bæði meistaraflokki karla og kvenna til þátttöku á Íslandsmóti Blaksambands Íslands en mótið hefst væntanlega upp úr miðjum október.
Liðin munu bæði spila í 2. deild.
Á síðasta leikári tók Afturelding þátt í bikarkeppni BLÍ í fyrsta sinni og munu þau spreyta sig að nýju á komandi keppnistímabili, frá þessu segir á heimasíðu Aftureldingar.

26.september
Alþjóðlegt samstarf gegn fíkniefnum.
Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, hefur ásamt ráðherrum frá hinum Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum þremur undirritað viljayfirlýsingu um sameiginlega stefnumótun í baráttunni gegn fíkniefnum. Meira....




24.september

Fréttatilkynning

Heklurnar eru kvennakór sem hóf starfsemi í janúar síðastliðinn hér í Mosfellsbæ. Æft er einu sinni í viku, á þriðjudögum frá 20.00 - 22.00 og stjórnandi er Björk Jónsdóttir. Kórinn er sérstaklega hugsaður fyrir konur sem hafa gaman af söng en ekki mikinn tíma en 4. gr. laga kórsins er svohljóðandi:

4. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að félagar hittast einu sinni í viku frá september fram í maí til söngiðkunar. Fjáröflunarstarfsemi sem felst í sölu á t.d. rækjum, salernispappír og berjatínum er andstæð tilgangi félagsins sem og kökusala á bösurum eða hliðstæðum viðburðum.

 Þær konur sem hafa áhuga á að vera með geta haft samband við Kristínu kip@hi.is eða í síma 5666327.

23.september

Aðstöðuleysi á Tungubökkum

Núverandi bæjarstjórn sjálfstæðismanna lofaði Aftureldingu og bæjarbúum fyrir ári síðan að aðstaða á Tungubökkum yrði ofarlega á framkvæmdarlistanum í ár.

Ekkert hefur gerst, ekkert bólar á neinum framkvæmdum né úrbótum, en aðstaða fyrir knattspyrnuiðkendur er þar mjög döpur og er knattspyrnuáhugafólk orðið langþreytt á biðinni. 

Á hverju sumri koma fleiri þúsund knattspyrnuiðkendur sem nýta sér aðstöðuna á Tungubökkum, sem er aðalæfingarsvæði knattspyrnudeildar Aftureldingar.
Er ekki rétt að láta hendur standa fram úr ermum og sýna þessu máli áhuga?


23.september

SUF vill nýta jarðhita til orkuframleiðslu

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna, SUF, fagnar áformuðum viðræðum Norðuráls, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja um mögulega orkuöflun til stækkunar álvers Norðuráls. Með því að leysa málið á þennan hátt verður Norðurál stækkað, með þeim jákvæðu áhrifum sem það mun hafa á nærliggjandi byggðir og landið í heild. Nýting jarðhitans er umhverfisvæn og áhugaverð leið, ásamt því sem fleiri valkostir í sölu raforku leggja grundvöll fyrir aukinni samkeppni sem mun bætta hag neytenda til lengri tíma litið.

Stjórn SUF telur mikilvægt að málefni Norðuráls verði leyst sem fyrst enda eru miklir hagsmunir í húfi fyrir norðvesturhluta landsins sem og samfélagið í heild.


22.september

Nýtt aðildarfélag Framsóknarflokksins

Þann 22. júní síðastliðinn var Félag ungra framsóknarmanna í Garðabæ og Bessastaðahreppi stofnað.  Félagið hlaut nafnið Denni til heiðurs Steingrími Hermannssyni fv. formanni Framsóknarflokksins.

Stofnfélagar voru 23 en formaður var kjörinn Egill Arnar Sigurþórsson en aðrir stjórnarmenn eru Ólafur Ágúst Ingason og Nói Christiansen.  

Landsstjórn Framsóknarflokksins staðfesti formlega aðild félagsins á fundi þann 4. september sl. og þar með er félagið komið í hóp hinna ríflega 100 aðildarfélaga flokksins.

19.september

6 mánaða uppgjör Mosfellsbæjar

 Á  síðasta fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar og var lagt fram óendurskoðað rekstraruppgjör yfir fyrstu 6 mánuði þessa árs. Viðsnúningur hefur orðið á milli ára, en útkoman er jákvæð um u.þ.b. 69 milljónir.

Fram kom í umræðum að í áætlunum sem gerðar voru af fyrri meirihluta var einnig gert ráð fyrir ágætri rekstrarafkomu á þessu ári og kom þetta ekki því mjög á óvart.

Bæjarfulltrúar framsóknarmanna lýstu óánægju með að þessi bætta rekstrarafkoma núverandi meirihluta sé fengin að stórum hluta með því að draga úr þjónustu og auka álögur á íbúa bæjarins og þá sérstaklega barnafjölskyldur.

Það er ekki mikil fjármálaleg speki að skila góðum rekstrarafgangi með því að auka álögur og minnka þjónustuna sagði einn bæjarfulltrúanna í viðtali við mosfellsfrettir.is


19.september

Félagsvist

Hin sívinsælu spilakvöld í framsóknarsalnum að Háholti 14 2.hæð hefjast aftur föstudagskvöldið 26.september kl.20.30
Veglegir vinningar og allir velkomnir.



18.september

Úthlutunarreglur byggingarlóða

Á bæjarstjórnarfundi í gær voru samþykktar nýjar úthlutunarreglur vegna úthlutunar byggingarlóða í Mosfellsbæ.
Minnihlutinn, fulltrúar B- og G listans bentu á að ýmsir ágallar væru í reglunum og sátu hjá við atkvæðagreiðsluna þar sem þau sögðust ósátt með að íbúar Mosfellsbæjar, eigendur landsins, njóti ekki forgangs við úthlutun
lóða.


18.september

Varmárlaug lögð niður?

Í máli sjálfstæðismanna í bæjarstjórn í gær kom fram að Varmársundlaug yrði á næstu árum lögð niður sem almenningssundlaug bæjarins. Hún myndi aðeins þjóna Varmárskóla og tengdri starfsemi íþróttamiðstöðvar og yrði lappað upp á hana fyrir fáeinar milljónir króna.
Stefnt yrði að uppbyggingu almenningssundlaugar á lóð Lágafellsskóla og lóð sem ætluð var undir byggingar fyrir aldraða við Lækjarhlíð.
Í máli framsóknarmanna á fundinum kom fram að þeim þætti ekki Mosfellsbær komið í þá stærð að réttlætanlegt sé að byrja á uppbyggingu á nýrri íþróttamiðstöð, farsælla sé að ljúka uppbyggingu glæsilegrar íþróttamiðstöðvar að Varmá áður en farið yrði í uppbyggingu á Vestursvæði, en skv. skipulagi er gert ráð fyrir uppbyggingu nýrra íþróttamannvirkja á Blikastaðalandi en þeirra er vart þörf fyrr en byggðin hefur stækkað og styrkst, en Mosfellsbær er aðeins með um 7.000 íbúa í dag.

Bent var á að stærri sveitarfélög, Kópavogur og Hafnarfjörður byggðu ekki sína aðra sundlaug fyrr en íbúafjöldinn var kominn vel á annan tug þúsunda.

Einnig fannst bæjarfulltrúum B-listans það miður að bygging leikfimissalar við Lágafellsskóla hafi verið frestað, en við hönnun skólans var gert ráð fyrir að þar risi salur í 2. byggingaráfanga. Framsóknarmenn hvöttu núverandi meirihluta að taka til hendinni og  hefja uppbyggingu hans svo hægt sé að kenna leikfimi á staðnum.

17.september

Hættu að reykja á Patró (Mosó)

Unglingar í Félagsmiðstöðinni Vest-End á Patreksfirði standa nú fyrir átaki sem þau kalla „Hættu að reykja!“.
Mun Patreksskóli taka dyggan þátt í verkefninu og fræða nemendur um skaðsemi tóbaks. Opnuðu unglingarnir átak sitt í gær með því að senda einn ungling, 14 ára gamlan, til að reyna að kaupa sér tóbak í verslunum í bænum.
Fór viðkomandi á alla þá staði sem hafa með sölu tóbaks að gera en þrátt fyrir afsakanir og rökræður við starfsfólk fékk hann hvergi afgreiðslu. Á næstu dögum verða sett verða upp veggspjöld í bænum, vinnustaðir merktir reyklausir og viðurkenningar gefnar reyklausum vinnustöðum.  Dv.is sagði frá.

Þetta frábæra átak mætti e.t.v. betrumbæta og framkvæma í Mosfellsbæ.


16.september
 

Bæjarstjóri Mosfellsbæjar treður á lýðræðinu.

Hanna Bjartmars varabæjarfulltrúi G-listans fékk þau skilaboð frá bæjarstjóra Mosfellsbæjar að hún ætti ekkert erindi inn á bæjarráðsfund að hennar sögn.  Rétt er að benda á að Hanna Bjartmans er varabæjarfulltrúi Jónasar Sigurðssonar í bæjarstjórn.  Jónas hefur verið áheyrnarfulltrúi í bæjarráði og því ekkert nema sjálfsagt og eðlilegt að Hanna taki stöðu hans sem áheyrnarfulltrúi í bæjarráði í fjarveru hans að mati mosfellsfrétta.is enda er það í anda lýðræðis.


16.september

Íslandsmótið í handknattleik

Í dag þriðjudaginn 16.september er fyrsti heimaleikur meistaraflokks Handknattleiksdeildar Aftureldingar á keppnistímabilinu en hann er gegn Þór og hefst kl 19.15 í íþróttahúsinu að Varmá.
Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópi meistaraflokks frá því á síðasta keppnistímabili, skemmst er að minnast brotthvarfs Bjarka Sigurðssonar formanns íþrótta og tómstundarnefndar sem fjallað var um hér á heimasíðunni. 
Lið Aftureldingar hefur fengið nýjan þjálfara Karl Erlingsson en Karl er kunnugur liðinu enda þjálfaði hann yngri flokka Aftureldingar um nokkurra ára skeið. Það verður gaman að fylgjast með þessu unga og efnilega liði í vetur.  Allir sem einn, íbúar Mosfellsbæjar styðjum nú vel við bakið á þessu unga og efnilega liði.


7.september

Höfðingleg gjöf

Ný stofnað félag eldriborgara í Mosfellsbæ hefur staðið fyrir söfnun í sumar til kaupa á rafknúnum snyrtistól til notkunar í þjónustumiðstöð  aldraðra í Mosfellsbæ og gefa þeir stólinn þjónustumiðstöð aldraðra.
Stóllinn er mjög þarfur þar sem gamli stóllinn hentaði ekki þjónustunni og gátu ekki allir sem þurftu á þjónustu snyrtifræðings/fótsnyrti að halda þegið þá þjónustu hér og urðu að fara annað en nýi stóllinn er mjög lipur og í alla staði þægilegur. Stóllinn kemur því í góðar þarfir.


5.september

Ekki hundi út sigandi?

Veðurstofan gerir ráð fyrir áframhaldandi roki og rigningu langt fram í næstu viku og er þá sennilega óhætt að segja að hundi sé ekki út sigandi.  mosfellsfrettir.is fundu ráð við því á heimasíðunni  www.prestigiouspets.com en þar er að finna regnkápur o.fl. fyrir gæludýr. Myndirnar tala sínu máli.



5.september

Dagný er nefndadrottning

Dagný Jónsdóttir, 27 ára þingmaður Framsóknarflokksins, á sæti í fimm fastanefndum Alþingis. Þetta mun vera met frá því að þingið var sameinað í eina deild samkvæmt lauslegri athugun skrifstofu Alþingis sem fólst að kanna eitt þing á hverju kjörtímabili frá 1991. samkvæmt frétt í dv.is.

Dagný gegnir varaformennsku í menntamálanefnd og umhverfisnefnd og situr í landbúnaðarnefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og heilbrigðis- og trygginganefnd. Kristinn H. Gunnarsson situr í fjórum fastanefndum en enginn annar í fleiri nefndum en þremur. Dagný segist ekki hafa setið auðum höndum í sumar og ljóst að hún muni hafa nóg fyrir stafni í vetur. mosfellsfrettir.is dáðst að dugnaði og krafti þessarar ungu framsóknarkonu.


3.september

Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra opnar formlega "Þýska daga"

Þýsk íslenska verslunarráðið stendur fyrir "Þýskum dögum" í Reykjavík og á Akranesi vikuna 1. – 6. september, þar sem sérstök áhersla er lögð á umhverfismál og þá staðreynd að þýskur iðnaður er einn sá umhverfisvænsti í heimi.




1.september

Afrekshundur ársins!

Fréttatilkynning frá Hundaræktarfélagi Íslands

Hundaræktarfélag Íslands hefur ákveðið að efna til samkeppni um val á afrekshundi ársins. Lesendum/hlustendum til glöggvunar er hér átt við hund sem með einhverjum hætti hefur komið að björgun manna og/eða dýra, liðsinnt fötluðum eða veikum einstaklingum eða verið til uppörvunar og hjálpar á einn eða annan hátt.
Meira.....



(C)MOTIV-MYND, Jón Svavarsson.



 

30.águst

Meirihluti styður rjúpnaveiðibann

58,7% svarenda í viðhorfskönnun Gallup eru sammála ákvörðun Sivjar Friðleifsdóttur, umhverfisráðherra, um þriggja ára rjúpnaveiðibann vegna lélegs ástands stofnsins. 37,8% segjast mjög sammála ákvörðun ráðherra og 20,9% frekar sammála en 31,3% svarenda eru ósamála ákvörðuninni, 12,4% af þeim voru frekar ósammála og 18,9% voru mjög ósammála ákvörðuninni. Um 10% tóku ekki afstöðu.



29.ágúst

Brimkló í Hlégarði

Hljómsveitin Brimkló leikur í Hlégarði laugardagskvöldið 30.ágúst. Ekki er vitað hvort Sigurjón Sighvatsson bassaleikari, eða Jónas R Jónsson stígi á svið líkt og gerðist í NASA en þar var fullt hús og löng biðröð myndaðist langt fram á nótt.
Forsala aðgöngumiða verður á laugardaginn milli kl 16-18.


28.ágúst

Góður árangur hjá golfurum

Sveit Golfklúbbsins Kjalar í flokki 16-18 ára drengja urðu Íslandsmeistarar í sveitakeppni unglinga.  Sveitina skipa þeir Magnús Lárusson, Guðni Birkir Ólafsson, Tryggvi Georgsson, Kristján Þór Einarsson og Stefán Hallgrímsson.  Liðsstjóri þeirra er Guðfinnur Vilhjálmsson.  

Þetta er þriðji stóri titillinn sem Kjalarfólk vinnur í sumar því fyrr í sumar varð Helga Rut Íslandsmeistari í holukeppni kvenna og Magnús Lárusson varð Íslandsmeistari unglinga í flokki 16-18 ára.  Óska mosfellsfréttir.is þeim öllum til hamingju með frábæran árangur.

26.ágúst
 

Meirihluti vill Ingibjörgu Sólrúnu

Meirihluti stuðningsmanna Samfylkingar, eða um 87%, vill að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verði formaður flokksins ef kosið yrði á milli hennar og núverandi formanns, Össurar Skarphéðinssonar, í haust.
Aðeins tæplega 13% aðspurðra vilja Össur áfram í sæti formanns.

Átök og glundroði virðist einkenna formannsembættið hjá Samfylkingunni ef marka má þessar niðurstöður og eitt er víst að sitji Össur áfram þá verður það eingöngu í skjóli Ingibjargar svilkonu,  því meirihlutinn vill Ingibjörgu Sólrúnu.


25.ágúst

Skólarnir farnir af stað.

Nú þegar skólarnir hér í Mosfellsbæ hefjast  þurfum við ökumenn að sýna sérstaka aðgæslu enda á annað þúsund af  nemendum á leið í skólann og margir á leið í fyrsta skiptið.  Ökumenn, drögum úr hraða og verum vel á verði.

Foreldrar og forráðamenn leiðbeinum börnunum, sýnum þeim öruggustu leiðina í skólann og brýnum fyrir þeim hætturnar af akandi umferð.

22.ágúst

Berjaleiðangur.

Þótt gnægð sé af berjum víðast hvar í grennd við byggðir ætlar ferðaskrifstofan Vesturferðir á Ísafirði að gera út berjaleiðangur á Hesteyri í Jökulfjörðum á morgun laugardag. Að sögn hafa berin þar sjaldan verið föngulegri og vilja þeir bröttustu meina að þau nálgist vínber að stærð. Frá þessu segir á heimasíðu bb.is.
Sauðfé hefur ekki verið á beit á Hesteyri í hálfa öld og því er ekki hætta á sparðatínslu í misgripum fyrir sæt berin. Leiðangursmenn fá um fjóra tíma til að tína krækiber, bláber og aðalbláber eins og hver getur borið. Þegar nóg er komið í sultu og saft fyrir veturinn verður farið í kaffi hjá Birnu Pálsdóttur í Læknishúsinu á Hesteyri.
Brakandi veðurblíða er við Ísafjarðardjúp í dag eins og víðast hvar á landinu.  Vel horfir fyrir morgundaginn og má reikna með hægri sunnanátt og mjög hlýju veðri í Jökulfjörðum. Nú er bara að drífa sig.

22.ágúst

Umhverfisviðkenning

 

 

Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar veitti á dögunum umhverfisviðkenningar ársins 2003.

Fyrir fallegan einkagarð fengu þau Dröfn Sigurgeirsdóttir og Helgi Ólafsson í Hvammi viðurkenningu.  Íbúar í Lækjartúni fengu viðurkenningu fyrir fallega og snyrtilega götu og KFC fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi við veitingastað sinn hér í bæ.  Mosfellsfréttir óska viðurkenningahöfum til hamingju.

21.ágúst

Atvinnuleysi í júlí mánuði 2003. 

Í Mosfellsbæ voru 117 manns atvinnulausir í lok júlí  þar af 74 konur eða 63%. Atvinnuleysi hefur aukist hratt Í Mosfellsbæ á einu áru eða um 48 sem jafngildir 69% aukningu.

Dapurlegt er að núverandi meirihluti bæjarstjórnar sá ástæðu til að segja upp atvinnu- og ferðamálafulltrúa bæjarins á síðasta ári og geta menn spurt sig að því hvort ekki hefði verið full þörf fyrir hans störf í dag og þegar til framtíðar er litið.  Atvinnumál eiga að vera metnaðarmál hvers bæjarfélags og því ber að gera allt sem í þess valdi er til að tryggja sem best atvinnuástand í bæjarfélaginu. Metnaðarleysi núverandi meirihluta hlýtur því að vera bæjarbúum mikið áhyggjuefni.


21.ágúst

Bjarki Sig. í Víking!

Formaður Íþrótta-  og tómstundarnefndar Mosfellsbæjar Bjarki Sigurðsson er genginn  til liðs við Víking. Bjarki mun því leika gegn Aftureldingu í deildinni á næsta keppnistímabili.

Nokkur urgur er meðal stuðningsmanna Aftureldingar og íbúa bæjarins  vegna þessa og hafa sumir þeirra haft á orði að það sé nokkuð hart að formaður Íþrótta- og tómstundarnefndar Mosfellsbæjar skuli hafi "svikið" Aftureldingu og farið yfir í Reykjavíkurliðið Víking. 


20.ágúst

Brettafólk látið bíða!
Samþykkt hefur verið að láta framkvæmdir í Reykjahverfi fyrir brettafólk bíða næsta árs og gera ráð fyrir peningum við  fjárhagsáætlunargerð 2004
.

 


20.ágúst

Atlantsolía ehf. óskar eftir lóð í Mosfellsbæ.


Erindi Atlantsolíu ehf. dags. 6. ágúst 2003 var tekið fyrir í bæjarráði 14 ágúst sl. , varðandi ósk um lóð fyrir bensínstöð.  Bæjarráð samþykkt með öllum atkvæðum að fela bæjarstjóra að ræða erindi bréfsins við bréfritara.
Vonandi getum við Mosfellingar fagnað enn meiri samkeppni á næstunni.


20.ágúst

Mosfellsbær greiðir kostnað vegna tónlistarkennslu í Reykjavík

Bæjarráð samþykkti að greiða kostnað fram að áramótum vegna tónlistarkennslu umfram skólagjöld fyrir nemendur sem stunda nám í tónlistarskólum í Reykjavík og eru með lögheimili í Mosfellsbæ.

Mosfellsbær mun því ábyrgjast greiðslur fyrir alla nemendur með lögheimili í Mosfellsbæ sem stunda nám í tónlistarskólum jafnt á grunn- sem á framhaldsskólastigi.

19.ágúst

Skólasetning grunnskólanna

Senn hefst skólastarfið og er skólasetning mánudaginn 25. ágúst í Lágafellsskóla og Varmárskóla. Nemendur mæti sem hér segir:

 Kl. 09:30  2. bekkur
-   10:00   3. bekkur
-   10:30   4. bekkur
-   11:00   5. bekkur
-   11:30   6. bekkur
-   12:00   7. bekkur
-   12:30   8. bekkur
-   13:00   9. bekkur
-   13:30 10. bekkur

Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir bréflega. Sjá nánar á www.mos.is
Tónlistarskóli Mosfellsbæjar
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá mánudaginn 1.september


19.ágúst

Náðargáfan lesblinda

Föstudaginn 15. ágúst s.l., gáfu Prentsmiðjan Oddi og fyrirtækið Lesblind.com grunn – og framhaldsskólum landsins eintak af bókinni Náðargáfan lesblinda eftir Ron Davis, Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra veitti gjöfinni viðtöku í Lágafellsskóla.

10.júlí

Bjarki Sigurðsson til Víkings

Bjarki Sigurðsson, handknattleiksmaður, hefur ákveðið að ganga til liðs við sitt gamla félag Víking, en Bjarki hefur leikið með Aftureldingu nær sleitulaust síðustu átta ár og og einnig verið þjálfari liðsins undanfarin þrjú ár, frá þessu segir á mbl.is. Samningur Bjarka við Aftureldingu rann út í vor og sagði Bjarki þá að hann ætlaði að taka sér frí frá þjálfun um einhvern ótiltekinn tíma og sú ákvörðun stendur.   
Það dylst engum um að það er gríðarlega mikill fengur fyrir Víking að fá Bjarka, en hann er margreyndur landsliðsmaður og hefur verið einn af bestu handknattleiksmönnum þjóðarinnar um árabil.
Á myndinni má sjá Bjarka undrrita samninginn ásamt Má Svavarssyni og Torfa Dan Sævarssyni.

23.maí
Lágafellsskóli – 2. áfangi/ enginn leikfimissalur.
  
Tækninefnd lagði til á fundi sínum í vikunni að auglýst verði opið útboð um byggingu    2. áfanga Lágafellsskóla um leið og útboðsgögn verða  tilbúin, en gert er ráð fyrir 8 kennslustofum í þessum áfanga ásamt annarri aðstöðu. Leikfimisal hefur verið ýtt til hliðar í þessum áfanga og verður til skoðunar næstu misseri hvað gert verður endanlega í þeim málum. Bæjarráð staðfesti á fundi sínum í morgun tillögur tækninefndar, en Þröstur Karlsson B-lista framsóknarmanna bókaði á að hann leggi áherslu á að leikfimisalur risi sem fyrst og verði ekki ýtt út af borðinu.

22.maí
Stórsýningin Sumarhúsið og garðurinn

Stórsýningin Sumarhúsið og garðurinn verður haldin í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ dagana 22.-25. maí 2003. Sýningin er sölu- og kynningarsýning og þar má finna allt það nýjasta í vöru og þjónustu fyrir sumarhúsa- og garðeigendur, að viðbættum þáttum sem viðkoma afþreyingu og ferðamennsku. Opnunartími sýningarinnar er sem hér segir, fimmtudaginn 22. maí kl.17-19, föstudaginn 23. maí kl. 15-21, laugardag kl. 12-19 og sunnudag kl. 12-21.
Aðgangseyrir fyrir fullorðna er kr. 800 en frítt er fyrir börn yngri en 12 ára. Þess má geta að áskrifendur tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn fá 50% afslátt af
aðgangseyri.


 21.maí
Fjölskyldudagur  

Fjölskyldudagur hestamannafélagsins Harðar verður haldinn sunnudaginn 25. maí nk. frá kl.13:00 - 16:30 á félagssvæði Harðar.
Kynnir verður Júlíus Brjánsson,
Pollar, börn og unglingar sýna mismunandi gangtegundir íslenska hestsins, einnig verður sýnt hindrunarstökk.

Töframaður, hoppukastali, teymt verður undir börnunum, ratleikur,tónlistaratriði og margt fleira skemmtilegt. 
Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

15.maí
Íþróttamót hestamannafélagsins Harðar  
Íþróttamót hestamannafélagsins Harðar hefst föstudaginn 16.maí n.k. Mótið er eitt af stóru mótunum hjá Herði með yfir 200 skráningar og er nefnt EJS íþróttamót. Dagskrá  mótsins hefst með forkeppni í tölti föstudaginn 16. maí kl. 17:30. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu félagins: www.hordur.net

14.maí

Fyrsti Heimaleikur Aftureldingar á Íslandsmótinu í Knattspyrnu.

Fyrsti heimaleikur Aftureldingar á
Íslandsmótinu í knattspyrnu, verður
mánudaginn 19. maí n.k. á Varmárvelli klukkan 20:00. Leikurinn verður á Varmárvelli og tekur Afturelding á móti Víking. Mætum nú öll og hvetjum okkar menn til sigurs.

14.maí
Atvinnuástandið í Mosfellsbæ,
Fjöldi atvinnulausra á landinu öllu fækkaði um 252 og eru nú 5791 eða u.þ.b.3,9%.  
Í Mosfellsbæ í lok apríl mánaðar voru 104 án atvinnu þar af 36 karlar og 68 konur, vekur það athygli hversu margar konur eru atvinnulausar í bæjarfélaginu okkar eða 65%, en á landsvísu er þessi skipting nánast jöfn eða 49,93% kvenna og 50,07% karla.


12.maí
Ágæt útkoma Framsóknarflokksins

Við Framsóknarmenn getum vel við unað með ágæt úrslit kosninganna í gær.
Flokkurinn tapaði um 0,6 prósentustiga fylgi frá kosningunum 1999 og fékk nú 17,7% atkvæða. Framsóknarflokkurinn hélt sínum 12 þingmönnum.
Í Suðvesturkjördæmi gekk ágætlega en flokkurinn fékk 14,9% atkvæða eða tæp 6400 atkvæði og fengum við einn mann kjörinn Siv Friðleifsdóttur, aðeins vantaði upp á að markmið næðust þ.e. að ná Páli Magnússyni inn.

6.maí
Það skiptir máli.......
Sjá ágæta grein Páls Magnússonar en Páll skipar annað sætið á listanum í Suðvesturkjördæmi
                                                         Grein..........
6.maí
Ný Gallup könnun

Könnun Gallup sem gerð var dagana 3.-5. maí sl. sýnir eftirfarandi:
B-listi Framsóknarflokksins 16,4%- vikmörk 3,0 Aprílkönnun: 12,8%
D-listi Sjálfstæðisflokksins 37,1%- vikmörk 4,0 Aprílkönnun: 34,2%
F-listi Frjálslynda flokksins 9,3%- vikmörk 2,4 Aprílkönnun: 9,6%
S-listi Samfylkingarinnar 26,1%- vikmörk 3,6 Aprílkönnun: 32,9%
U-listi Vinstrihreyfingarinnar - Græns framboðs 9,8%- vikmörk 2,4 Aprílkönnun: 9,5%
N-listi Nýs afls 1,1%- vikmörk 0,9 Aprílkönnun: 0,8%
T-listi Sérframboð í Suðurkj.  0,3%- vikmörk 0,4 Aprílkönnun: 0,2%

Sjá nánar á kosningavef Gallup

22.apríl
Stóru flokkarnir tapa, bilið milli flokkanna minnkar.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins er 35,2% samkvæmt skoðanakönnun sem birt er í Fréttablaðinu í dag það er 3,8% minna fylgi en flokkurinn hafði í samsvarandi könnun blaðsins fyrir viku. Samfylkingin mælist með 29,1% fylgi, það er 2,0% minna  en fyrir viku. Framsóknarflokkurinn mælist hins vegar með 11,8% fylgi en það er 9,8% meira en flokkurinn mældist með í síðustu skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Frjálslyndi flokkurinn mælist nú með 12,8% en fylgi hans var 10,5% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri grænna 9,5% en það var 7,4% í síðustu viku.


10.apríl
SUF opnar nýja heimasíðu; www.suf.is

Sambands ungra framsóknarmanna opnaði nýja heimasíðu, www.suf.is. Vefnum er ætlað að vera frétta- og upplýsingamiðill fyrir unga framsóknarmenn, auk þess að endurspegla stefnu og markmið samtakanna. mosfellsfrettir.is óska Sambandi ungra framsóknarmanna til hamingju með nýju heimasíðuna.


8.apríl

Galaxy Fitness Bikarmót

Galaxy Fitness Bikarmót var haldið í Íþróttamiðstöðinni að Varmá, fjöldi fólks mætti til að fylgjast með og hvetja keppendur.
Í karlaflokki sigraði Bjarni Auðunsson, annar var Ívar Guðmundsson og  þriðji var Arnar Grant.
Í kvennaflokki sigraði Sigurlín J. Baldursdóttir önnur var Linda Jónsdóttir  og  þriðja var Sara Ósk Wheeley. 

í Galaxy Kroppur sigraði Sara Ósk Wheeley önnur var Sif  Ragnarsdóttir og þriðja var Rósa Árnadóttir. Nánar segir frá mótinu á www.kraftsport.is

3.apríl
Félagsvist

Félagsvist verður í Framsóknarsalnum Háholti 14. Föstudagskvöldið 4.apríl nk. kl.20.30.  Allir velkomnir.

2.apríl
Viljum við auka byrðarnar?

Nú eru uppi hugmyndir meðal Sjálfstæðismanna og innan Samfylkingar um að auka greiðslubyrði meðal fjölskyldnanna í landinu með því að færa starfsemi Íbúðarlánasjóðs til hins almenna bankakerfis. Fróðleg grein eftir Árna Magnússon á Tíminn.is  Meira

27.mars
Stórfelldar kjarabætur til öryrkja

Jón Kristjánsson, heilbrigðis   og tryggingamálaráðherra, og Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalags Íslands hafa, fyrir hönd ríkisstjórnar og Öryrkjabandalagsins, gert samkomulag um hækkun grunnlífeyris öryrkja frá 1. janúar 2004. Stórfelldar kjarabætur til öryrkja, tíminn.is segir frá.... Meira

25.mars
Félagsvist

Félagsvist verður í Framsóknarsalnum Háholti 14. Föstudagskvöld 28.mars og 4.apríl nk. kl.20.30.  Allir velkomnir.

24.mars
Aukið atvinnuleysi í Mosfellsbæ

Aukið atvinnuleysi segir til sín í Mosfellsbæ sem og annarsstaðar þrátt fyrir aðgerðir ríkisstjórnarinnar og hefur atvinnulausum fjölgað í Mosfellsbæ frá því í janúar um 14%. Ef litið er til s.l.12 mánaða þá nemur aukningin 114%.
Í febrúar s.l. voru 115 atvinnulausir í bæjarfélaginu okkar en atvinnuleysi á landsvísu er u.þ.b. 4,1%.

20.mars
Opinn fundur með frambjóðendum
Opinn fundur með frambjóðendum Framsóknarflokksins í Suð-vestur kjördæmi verður haldinn í Framsóknarsalnum að Háholti 14. 30.mars nk.    klukkan 20.30. Allir velkomnir.

19.mars
Kosningaskrifstofan verður opnuð laugardaginn 5. apríl n.k.

Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins verður opnuð laugardaginn 5. apríl n.k. Kl 15.00 að Háholti 14. Forystumenn flokksins mæta. Allir velkomnir í kaffi og meðlæti. Nánari upplýsingar um opnunartíma verður auglýst síðar.

19.mars
Félagsvist
Félagsvist verður í Framsóknarsalnum Háholti 14. Föstudagskvöld 21.mars nk. kl.20.30.  Allir velkomnir.

18.mars
Páll Magnússon opnar heimasíðu
 
Páll Magnússon sem skipar 2. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi opnaði í dag nýja heimasíðu http://www.palli.is . Meðal efnis á nýju heimasíðunni eru áherslumál Páls og Framsóknarflokksins í komandi Alþingiskosningum, ræður, greinar og fleira eftir Pál sem birst hafa í hinum ýmsu blöðum og tímaritum. Páll Magnússon er aðstoðarmaður iðnaðar- og viðskiptaráðherra.

17.mars
Skorað á dómsmálaráðherra
Sambandi ungra framsóknarmanna skorar á dómsmálaráðherra að lækka aldursmörk vegna áfengiskaupa á léttvíni og bjór í 18 ár.
Fréttatilkynningin er svohljóðandi:
Vilja lækka áfengiskaupaaldur
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna hefur sent dómsmálaráðherra áskorun um að lækka aldursmörk vegna áfengiskaupa á léttvíni og bjór í 18 ár. Segir stjórnin að það sé í samræmi við löggjöf á Norðurlöndunum og í öðrum nágrannalöndum.
Í áskorun SUF segir að einkennilegt sé að einstaklingum sem sé treystandi til að aka bifreið, eignast húsnæði, setja á fót atvinnurekstur, bjóða sig fram til Alþingis, ganga í vígða sambúð o.s.frv. skuli ekki vera heimilt að kaupa sér áfengi.

 
12.mars
Stefnuleysi D-listans í atvinnumálum!
Í janúar sl. tókust B og D lista fulltrúar á um atvinnuástandið í Mosfellsbæ og bókaði D-listinn þá eftirfarandi....Meira

11.mars
Félagsvist
Félagsvist verður í framsóknarsalnum Háholti 14. Föstudagskvöldið 14og 21.mars  nk. kl.20.30

24.febrúar
Óíþróttamannleg framkoma stuðningsmanna Aftureldingar og HK. 
Óafsakanleg framkoma hluta stuðningsmanna Aftureldingar setti skugga á leik félagsins um SS Bikarinn og vekur upp spurningar um hvernig hægt sé að koma í veg fyrir að svona nokkuð endurtaki sig. Ölvun í fámennum hóp manna var til skammar og undirstrikar nauðsyn þess að vísa öllum ölvuðum áhangendum frá íþróttaleikjum.
Eftirfarandi birtist á vefnum visir.is 
“Svo virtist sem fylgismenn Aftureldingar hefðu frumkvæði að slagsmálunum og gengju harðar fram í þeim. Umræður á spjallsvæði Aftureldingar benda einnig til þess að svo hafi verið. Einn slagsmálahundanna birtist ítrekað í nærmynd sjónvarpstökuvélanna og þar ættu að vera hæg heimatök um útilokun frá kappleikjum”.
Ljóst er að til aðgerða verður að grípa svo að svona lagað endurtaki sig ekki,  þetta er algjörlega óafsakanleg hegðun.

23.febrúar
Fréttatilkynning!
Fréttatilkynning frá fulltrúum minnihlutans í bæjarstjórn Mosfellsbæjar í tilefni af afgreiðslu á 3ja ára áætlun bæjarins.
meira

22. febrúar
 
Tíminn verður málgagn flokksins á ný.
mosfellsfrettir.is vill óska Framsóknarflokknum til hamingju með nýja vefritið, timinn.is. Það er afar mikilvægt fyrir flokkinn að hafa slíkt málgagn, en eldri vefurinn framsokn.is mun áfram gegna hlutverki sínu sem upplýsingavefur. 

22.febrúar
Afturelding tapaði naumlega fyrir sterku liði HK.
Afturelding tapaði 24-21 fyrir sterku liði HK staðan í leikhléi var 13-10 en segja má að HK hafi verið sterkari aðilinn í leiknum.
Bjarki Sigurðsson og Jón Andri Jónsson skoruðu 5 mörk hvor fyrir Aftureldingu og Reynir Þór Reynisson varði 20 skot í markinu.  

22.febrúar
NÝ leikskólabygging.
Viðbygging við leikskólann Hlíð var tekin í notkun í vikunni. Segja má að biðlistar séu þar með úr sögunni en aðeins eitt barn er á biðlista um þessar mundir. 

20.febrúar
Flokksþing framsóknarmanna.  
27. flokksþing framsóknarmanna fer fram dagana 21. til 23. febrúar 2003 n.k. að Hótel Loftleiðum undir kjörorðunum “Vinna, vöxtur, velferð”. Gert er ráð fyrir að þingið byrji kl 10.00 föstudaginn 21. og ljúki kl 14.00 sunnudaginn 23. febrúar. Nánari upplýsingar er að finna inn á heimasíðu framsóknarflokksins www.framsokn.is

16.febrúar
Hærri skattar, minni þjónusta og auknar skuldir. 
 Hærri skattar og minni þjónusta við íbúa Mosfellsbæjar er framtíðarsýn meirihlutans í bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Þriggja ára áætlun bæjarsjóðs Mosfellsbæjar og stofnana hans 2004 – 2006 var afgreidd á  366. fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 12. febrúar 2003. Þriggja ára áætlunin  er markmiðssetning um rekstur, framkvæmdir og fjármál bæjarfélagsins.   Áætlunin sýnir almennt minnkandi þjónustu við íbúana á flestum sviðum.
Að þjónusta 20% fleiri íbúa með 11% hærri útgjöldum gengur ekki upp og er það ekkert nema ávísun á niðurskurð á þjónustu. Eitt af kosningaloforðum sjálfstæðismanna var að minnka skuldir bæjarfélagsins, en í áætluninni næst það markmið ekki þar sem raun skuldir samstæðunnar aukast um 70 milljónir, þrátt fyrir stórauknar álögur á fjölskyldufólk bæjarins. mosfellsfrettir.is velta því fyrir sér hvað varð um fólk, fyrst og fremst.

16.febrúar

79.Ársþing UMSK var haldið í Mosfellsbæ.
79. Ársþing UMSK var haldið í Harðarbóli fimmtudaginn 13 sl í  félagsheimili hestamannafélagsins Harðar og hófst það kl. 18:00.
Fjölmörg mál voru til umræðu á þinginu og ber þar hæst tillaga um athugun á áhrifum þess að UMSK gangi úr UMFÍ og félögin fái beina aðild.
Valdimar Leó Friðriksson var endurkjörinn formaður sambandsins, Ester Jónsdóttir og Albert H.N. Valdimarsson voru kjörin í stjórn. Svanur M. Gestsson, Jónas Már Fjelsted og Margrét Björnsdóttir voru kjörin í varastjórn. Ef lesendur vilja kynna sér meira um þingið þá er hægt að finna nánari umfjöllun á heimasíðu UMSK
  http://www.isisport.is/umsk/

15.febrúar
Áskorun til samgönguyfirvalda.
Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar skorar á samgönguyfirvöld að hraða tvöföldun Vesturlandsvegar frá Víkurvegi að Langatanga. Á  Vesturlandsvegi er ein hæsta slysatíðni  á landinu. Nú þegar yfirvöld hafa ákveðið að leggja til aukið fé til að hraða vegaframkvæmdum ríkisins,  teljum við nauðsynlegt að setja Vesturlandsveginn í forgang sem er mikið öryggisatriði fyrir íbúa Mosfellsbæjar.
Framsóknarfélags Mosfellsbæjar.

14.febrúar
Afturelding leikur til úrslita í SS-bikarkeppninni.
Afturelding er komin í úrslit í bikarkeppninni í handbolta og leikur við HK um bikarinn.  Úrslitaleikur SS-bikarkeppni karla í handknattleik í ár verður milli HK og Aftureldingar. Þetta varð ljóst eftir tvo æsi spennandi undanúrslitaleiki. Afturelding vann naumum sigur á Val að Hlíðarenda, 23-22. HK vann heimasigur á Fram, 40-39, í tvíframlengdum leik.

10.febrúar
Foreldraröltið byrjað aftur
.
Föstudaginn 7.febrúar hóf foreldraröltið göngu sína að nýju hér í Mosfellsbæ. Rölt verður föstudags og laugardagskvöld frá kl. 22.00. Það eru foreldrafélög Lágafellsskóla og Varmárskóla í samstarfi við Rauða kross Íslands Kjósarsýsludeild sem hafa skipulagt röltið og munu halda utan um það. Gengið verður um bæinn og komið við á þeim stöðum þar sem unglingar safnast saman. Nálægð fullorðinna hefur yfirleitt þau áhrif að hópurinn leysist upp og minnkar líkur á að vímuefnasalar geri vart við sig. Foreldraröltið er því afar þarft og hefur mikið forvarnargildi.

1.febrúar
Verðbólga á íslandi svipuð og í EES.

Verðbólgan hér á landi er orðin svipuð eða lægri en verðbólgan er að meðaltali í ríkjum evrópska efnahagssvæðisins (EES) en á lista yfir 17 ríki innan EES er Ísland með sjöundu lægstu verðbólguna og í fyrsta sinn í um þrjú ár sem verðbólgan hér á landi mælist lægri en í ríkjum EES að meðaltali.


31.janúar
Tekist á um atvinnuástandið í bænum.

Text Box:  Sjá bókanir B og D lista frá síðasta bæjarstjórnarfundi.
 
Bókun B-listans.
Í ljósi nýrrar samantektar frá Vinnumálastofnun fyrir desember mánuð 2002 hefur atvinnuleysi í Mosfellsbæ vaxið um 63% á milli ára.
Vaxandi atvinnuleysi er staðreynd sem bæjarstjórn Mosfellsbæjar getur ekki látið fram hjá sér fara án þess að grípa til aðgerða. Fráfarandi meirihluti lagði metnað sinn í sterka þætti í uppbyggingu atvinnulífs sem nú hafa verið rifnir niður t.d. með uppsögn atvinnu- og ferðamálafulltrúa og með því að leggja niður Atvinnuþróunarsjóð.
Því vilja fulltrúar B-listans óska eftir stefnu meirihlutans í atvinnumálum og með hvaða hætti sú stefna stuðli að aukinni atvinnu innan bæjarfélagsins.
Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hvort að flýta megi framkvæmdum innan bæjarfélagsins til að örva atvinnulífið.

Bókun D-listans
Bæjarfulltrúar D-listans taka undir áhyggjur B-listans um atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar hefur sú gjörð meirihlutans að leggja niður starf atvinnu- og ferðamálafulltrúa og að leggja niður Atvinnuþróunarsjóð ekkert með aukningu atvinnuleysis í Mosfellsbæ að gera.
Meirihluti D-listans hefur þegar kynnt deiliskipulag glæsilegs atvinnusvæðis í miðbæ Mosfellsbæjar sem án efa stuðlar að aukinni atvinnuuppbyggingu.
 

30.janúar
Kvennakór í Mosfellsbæ
Stofnaður hefur verið kvennakór hér í Mosfellsbæ og eru æfingar haldnar á þriðjudagskvöldum frá 20.00-22.00 í Harðarbóli, félagsheimili hestamanna. Stjórnandi kórsins er Björk Jónsdóttir sem syngur meðal annars með "Fjórum klassískum".
Sumum gæti þótt það vera að bera í bakkafullan lækinn að stofna einn kórinn enn hér í bænum en þetta er þó fyrsti kvennakórinn og síðan er markmiðið að hittast eingöngu til að syngja en láta allt fjáröflunarstarf eiga sig og hefur það mælst vel fyrir.
Ekki er komið nafn á kórinn en allar konur sem halda lagi eru velkomnar og geta haft samband við Ernu Arnar ernaa@hugur.is eða Kristínu Páls kip@hi.is eða bara mætt í Harðarból eitthvert þriðjudagskvöldið.

27.janúar
Íþróttamaður Mosfellsbæjar.
Sigurður Sigurðarson úr Hestamannafélaginu Herði var kjörinn íþróttamaður Mosfellsbæjar árið 2002, en hans keppnisferill árið 2002 var mjög glæsilegur, þátttaka í landsliði og fjöldinn allur af sigrum og afrekum.
Annar varð hinn efnilegi golfleikari Halldór Lárusson í Golfklúbbnum Kili og þriðji varð íþróttamaður Aftureldingar árið 2002 badmintonleikarinn snjalli Sigurjón Jóhannsson.
mosfellsfrettir.is óskar þessum fræknu íþróttamönnum til hamingju ásamt öðrum sem hlutu tilnefningu en þau voru alls 7 talsins sem það hlutu.

27.janúar
Stórþorrablót Aftureldingar.
Laugardagskvöldið 25.jan. s.l. var haldið í fyrsta sinn stór þorrablót Aftureldingar í íþróttahúsinu að Varmá. Þátttaka var frábær eða um 450 manns í mat. Veislustjóri var Gísli Einarsson fréttamaður á RÚV og fórst honum það verk vel úr hendi.
Jóhannes Kristjánsson eftirherma skemmti þorrablótsgestum og fór á kostum. Karlakór Kjalarness skemmti með söng og hljómsveitin Papar sá um fjörið fram á nótt.

22.janúar
Afturelding gegn bæjarstjóranum.
Fréttablaðið sagði frá því í dag að kurr væri í forráðamönnum Aftureldingar vegna ummæla Ragnheiðar Ríkharðsdóttur um auglýsingaskiltið við Vesturlandsveg. Hlynur Guðmundsson hjá Aftureldingu segir í frásögn Fréttablaðsins að skiltið sé á góðum stað og af því sé engin sjónmengun enda snyrtilega frá öllu gengið.
mosfellsfréttir.is velta því fyrir sér með hvaða hætti Ragnheiður ætli að bæta íþróttafélögunum skaðann ef skiltið verður látið fara, en skiltið er á skipulagi bæjarins og samningar um veru þess.
Hvað skyldi það nú kosta bæjarfélagið ef Ragnheiður rýkur af stað með þessa vitleysu?


22.janúar
Aukið atvinnuleysi til umræðu á Alþingi
Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, hóf í dag umræðu utan dagskrár á Alþingi um atvinnuástandið í landinu og aukið atvinnuleysi. Guðmundur Árni spurði Pál Pétursson félagsmálaráðherra hvað ríkisstjórnin ætli að gera í þessum málum. Páll sagði m.a. í svari sínu að ótvírætt væri að atvinnuleysi færi vaxandi. visir.is sagði frá.  
mosfellsfréttir.is velta því fyrir sér hvað meirihlutinn í Mosfellsbæ ætli að gera í atvinnumálum annað en að segja upp atvinnufulltrúa bæjarins og leggja niður atvinnuþróunarsjóð.

8.,janúar
Á síðasta bæjarstjórnarfundi 18.des. s.l. var meðal annarra mála.
Bréf frá Þrumum og Eldingum.
Tekið fyrir bréf frá formanni knattspyrnudeildar Aftureldingar og greinagerð frá formanni Þruma og Eldinga vegna skuldar um krónur ein milljón, sem stofnað hafði verið til vegna vinnu við hönnun á aðstöðu á Tungubökkum, en núverandi meirihluti færði alla peninga sem voru á áætlun yfir á kaup á áhorfendabekkjum og skildi þar með Þrumur og Eldingar eftir með þessa ógreiddu reikninga.

Sjá bókanir:

7.janúar
Þrettándinn í Mosfellsbæ
Þrettándabrennan fór vel fram að vanda, fjölmennt var enda veður með besta móti.  Karlakórinn Stefnir sá um sönginn, Álfakonungur, Álfadrottning, Grýla og Jólasveinarnir voru að sjálfsögðu á staðnum. Óvenju glæsileg flugeldasýning sem Björgunarsveitin Kyndill sá um og sýndu þeir Kyndilsmenn að þeir kunna tökin á þessu. Samkoman var í boði Menningarmálanefndar  Mosfellsbæjar.

3.janúar
Þrettándabrennan.
Hin árlega þrettándabrenna verður haldin mánudaginn 6.janúar n.k. gengið verður frá Nóatúni kl 20:00. Álfakóngur, Álfadrottning, flugeldasýning og margt fleira.

1.janúar 2003
Gleðilegt nýtt ár