Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró

   2006

 


31. maí
Þakkir til bæjarbúa
Frambjóðendur B-Listans vilja þakka bæjarbúum fyrir þann stuðning sem að þeir fengu í nýafstöðnum kosningum svo og þeim mikla fjölda flokksmanna og sjálfboðaliða sem koma að kosningastarfinu á liðnum mánuðum en listinn fékk 16,2% greiddra atkvæða og einn mann kjörinn. Fulltrúar Framsóknarflokksins, Samfylkingarinnar, og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs eiga í formlegum viðræðum um myndun nýs meirihluta í Mosfellsbæ. Viðræðurnar ganga vel og vænta má niðurstöðu fljótlega.

25. maí
Sjálfstæðismenn reyna að fela sannleikann
Nýjasta dreifiblað D-listans er undirritað af frambjóðendum, en þeir voru ekki viðstaddir þá fundi sem haldnir voru um fyrirhugaðan framboðsfund og vita því ekki það sem fram fór. Athygli vekur að formaður félags þeirra skrifar ekki undir, en hann var þó fulltrúi þeirra á fundinum. Dapurt er að frambjóðendurnir 14 skuli hafa látið hafa sig í að undirrita bréfið og dreifa því í hús þar sem rangt er farið með þau skilyrði sem fulltrúar sjálfstæðismanna settu fram. Frambjóðendur D-listans ættu að krefja formann félagsins um það sem fram fór.
Afar fámennt var á framboðsfundi Sjálfstæðisfélags Mosfellsbæjar í gærkvöldi.

25. maí
Viðbrögðin láta ekki á sér standa                    
Mosfellsfréttum hefur borist fjölda rafpósta og má sjá hér einn þeirra:

bréf frá lesanda

Ég hefi undanfarin ár kosið sjálfstæðisflokkinn í Mosfellsbæ. Nú er mér nóg boðið!
Ég mun ekki styðja flokkinn lengur. Ástæðan er sú að flokkurinn stundar hér yfirgang og ólýðræðisleg vinnubrögð, frambjóðendur þeirra finnst að þeir eigi Mosfellsbæ. Framkoma þeirra að vilja ekki við hafa lýðræðisleg vinnubrögð á framboðsfundi fyllti mælinn og minnir óneitanlega á stjórnarfarið í ráðstjórnarríkjunum á fyrri tímum. Ég mun kjósa B-listann til að mótmæla pólitísku ofbeldi þar tel ég atkvæði mínu best varið til að fella meirihlutann.

Sjálfstæðiskona í Mosfellsbæ.

25.maí
Umhverfisdagur hestamanna.
Miðvikudagskvöldið 24. maí klukkan 18:00 blés beitar- og umhverfisnefnd Hestamannafélagsins Harðar til hins árlega hreinsunardags  þar sem gæðingarnir fengu frí en þess í stað tóku knaparnir sér hrífu og/eða plastpoka í hönd og hreinsuðu til í nánasta umhverfi félagsins. Reiðvegir voru rakaðir og allt rusl tínt meðfram þeim auk þess sem hesthúsahverfið var hreinsað. Hreinsuðu hestamenn svæðið frá Mosfellsdal og meðfram ströndinni allt að bæjarmörkum. Það voru milli 50 og 60 hestamenn sem tóku þátt í átakinu og var stemmningin mjög góð eins og sjá má á myndunum. 
Að lokinni hreinsun bauð félagið hreinsunarmönnum upp á síðbúinn kvöldverð.
Þetta er í sjötta skipti sem beitar-og umhverfisnefnd félagsins stendur fyrir þessum skemmtilega viðburði og haft var á orði að alltaf minnkaði ruslið með hverju árinu. Fyrsta árið var afreksturinn fjórir fullir gámar en nú var það aðeins einn fullur gámur. Segja má að það sé til marks um aukna umhverfisvitund fólks að ruslið fer minnkandi með hverju árinu.

 

24. maí
Ekki verður af sameiginlegum framboðsfundi í Hlégarði í kvöld!
Fyrirhugað var að halda sameiginlegan framboðsfund í Hlégarði í kvöld.
Við undirbúning fundarins náðist ekki samkomulag um tilhögun hans.
Fulltrúar B-lista, S-lista og V-lista harma að fulltrúar D-lista höfnuðu tillögum um lýðræðisleg fundarsköp og fyrirkomulag.
D-listinn sýndi yfirgang sinn í verki með  óásættanlegri kröfu um að fundarstjóri yrði formaður Sjálfstæðisfélags Mosfellinga og að allt að 50% spurninga úr sal yrði beint til D-listans. Auk þess voru settar fram aðrar einræðislegar hugmyndir í sömu átt um framgang fundarins. Sanngjörn og lýðræðisleg vinnubrögð var allt sem farið var fram á. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu oddvita framboðanna.

 

22. maí
Styrkir til efnilegra ungmenna
Íþrótta- og tómstundanefnd er þessa dagana að auglýsa eftir umsóknum vegna úthlutunar styrkja til efnilegra ungmenna á aldrinum 14-20 ára.  Öll ungmenni sem skara fram úr og hafa sýnt sérstaka hæfileika í íþróttum, tómstundum eða listum geta sótt um styrkinn.  Styrkurinn er fólginn í launum frá Vinnuskóla Mosfellsbæjar en árlega eru veittir styrkir til 3-5 einstaklinga.  Umsóknareyðublöð liggja frammi í þjónustuveri Mosfellsbæjar, í Íþróttamiðstöðinni, í Listaskólanum og Bólinu. Umsóknarfrestur er til 29. maí. frétt af vef www.afturelding.is

22. maí
Jafntefli við Huginn í fyrsta heimaleik sumarsins í knattspyrnu.
Afturelding gerði jafntefli við Huginn, 1-1 í fyrsta heimaleik sumarsins í gær 21. maí.  Afturelding sigraði Skallagrím í Borgarnesi fimmtudaginn 18. maí 3-2 í framlengdum leik í bikarkeppninni.

 

20. maí
Mosfellsfréttir er komið út
Mosfellsfréttir 22. árg, 3. tbl. 2006 er komið út. Blaðinu var dreift frítt inn á öll heimili í bænum og vinnustaði í gær.  Í blaðinu eru fjölmargar greinar og viðtöl m.a. við Halldóru M Baldursdóttur sem skipar 4.sæti B-listans og Evu Ómarsdóttur sem er í 5.sæti.  Vefútgáfa Mosfellsfrétta pdf





18. maí
Undirgöng á Vesturlandsveg
Bæjarráð samþykkti í morgun sinn hlut 13 milljónir við gerð undirganga á Vesturlandsvegi í Ullarnesbrekku, en Vegagerðin framkvæmir og fjármagnar verkið að öðru leyti. Áætluð verklok eru 1.ágúst n.k.




18. maí

Gervigrasvöllur að Varmá

Bæjarráð samþykkti í morgun að taka tilboði Ístaks að upphæð rúmar 93 milljónir í jarðvinnu og snjóbræðslulagnir við gervigrasvöllinn, en lægstbjóðandi SVH pípulagnir féll frá tilboði sínu

18. maí
Söluskúr UMFA

Bæjarráð samþykkti í morgun beiðni knattspyrnudeildar Aftureldingar að hinn frægi björgunarsveitaskúr mætti standa við hlið knattspyrnuvallarins að Varmá. Leyfið er veitt til eins árs í senn. Þessi frægi skúr björgunarsveitarinnar Kyndils komst í fréttirnar fyrir skömmu þegar bæjarstjóri Mosfellsbæjar lét fjarlægja hann í skjóli nætur af lóð Leikfélags Mosfellssveitar þegar fréttist að Samtök vinstri grænna hugðust nota hann sem kosningaskrifstofu

17. maí
Varmárskóli hlýtur jafnréttisviðurkenningu Mosfellsbæjar 

Í dag kl. 17:00 var afhent í fyrsta sinn jafnréttisviðurkenning á vegum Mosfellsbæjar.  Afhendingin fór fram í Listasalnum en viðurkenninguna hlaut Varmárskóli fyrir jafnréttisáætlun skólans en í skólanum hefur verið unnið í anda jafnréttisáætlunar m.a.  gegn einelti og stuðlað að jafnræði innan vinnustaðarins. Óskum við Varmárskóla innilega til hamingju með viðurkenninguna.


 

17. maí
Skóflustunga að gervigrasvelli í fullri stærð
Í dag kl.17:45 var tekin skóflustunga að nýjum gervigrasvelli í fullri stærð við Íþróttamiðstöðina að Varmá.  Bæjarstjóri og börn úr yngstu flokkum knattspyrnunnar tóku skóflustunguna.  Af þessu tilefni spilaði Skólahljómsveitin nokkur lög við góðar undirtektir gesta. Mikla kátínu vakti þegar hljómsveitin flutti lag Sylvíu Nætur “Til hamingju Ísland”.  Knattspyrnuáhugamenn fjölmenntu á athöfnina enda um langþráðan draum þeirra að ræða. Í framtíðinni stendur síðan til að byggja yfir völlinn.




 

17. maí
Árshátíð 8.-10. bekkinga haldin í Lágafellsskóla
Þann 16.maí var haldin árshátíð 8.-10. bekkinga í Lágafellsskóla. Það er óhætt að segja að hún hafi heppnast í alla staði frábærlega. Maturinn var góður, hljómsveitin Svitabandið hélt upp stuðinu allan tímann og krakkarnir voru í alla staði til fyrirmyndar. "Gala" var þema árshátíðarinnar og sjaldan hefur maður séð eins stóran hóp af vel klæddum krökkum eins og í gær. 
Sama dag voru framhaldsskólarnir á höfuðborgarsvæðinu jafnframt með kynningu á sínum skólum fyrir eldri bekkinga úr bæði Varmár- og Lágafellsskóla sem þótti takast vel og var góð mæting á kynninguna.

 

17. maí
Fyrsta skóflustungan að gervigrasvelli í fullri stærð
Miðvikudaginn 17. maí kl. 17:45 verður tekin fyrsta skóflustungan að nýjum gervigrasvelli í fullri stærð við Varmá.  Bæjarstjóri og börn í yngstu flokkum knattspyrnunnar, taka fyrstu skóflustunguna.  Af þessu tilefni mun Skólahljómsveitin spila nokkur


17. maí
Þáttur Ísland í bítið um Mosfellsbæ

Ísland í bítið var með umræðuþátt um bæjarmálin í Mosfellsbæ, oddvitar flokkanna mættu þar og ræddu helstu stefnumálin. Til þess að sjá þáttinn ferð þú á visir.is, opnar  VefTV, og smellir þar á Ísland í bítið þá eru "sveitarstjórnarmálin í Mosfellsbæ". Eða með því að smella á slóðina hér að neðan.
http://veftivi.visir.is/veftivi/main.do?treeId=2002&progId=17131&itemId=14945

17. maí
Hjálmur er höfuðprýði
Kiwanismenn í Mosfellsbæ gáfu öllum 1. bekkingum í Varmár- og Lágafellsskóla reiðhjólahjálma. Þetta framtak Kiwanismanna í Mosfellsbæ er til fyrirmyndar og gott dæmi um það frábæra starf sem þeir vinna. Mosfellsféttir færa Kiwanismönnum þakkir fyrir.

16. maí
Fundur um skólamál
Fundur var haldinn í Lágafellsskóla mánudaginn 15. maí að frumkvæði svæðisfélaga kennara. Sæmileg mæting var en á fundinum voru frambjóðendur með framsögn um stefnu sína í grunnskólamálum bæjarfélagsins.
Að framsögn lokinni höfðu fundarmenn tækifæri að spyrja frambjóðendur um málefni grunnskóla Mosfellsbæjar. Athygli vakti svar bæjarstjóra við spurningu um samráð varðandi byggingu íþróttamannvirkis við Lágafellsskóla. Í svari bæjarstjóra kom fram að einungis var um „pólítíska ákvörðun að ræða og ekkert flóknara en það”.
Augljóst er að slíkt svar sýnir klárlega afstöðu sjálfstæðismanna til íbúalýðræðis þar sem ekki var hlustað á raddir kjósenda eða fagaðila.


15.maí

Fundur um skólamál
Í kvöld kl. 20:00 verður haldinn fundur, í sal Lágafellsskóla, um málefni Grunnskóla Mosfellsbæjar. Frambjóðendur munu mæta á fundinn, verða með stutt innlegg og svara fyrirspurnum úr sal. Allir þeir sem hafa áhuga á þessum málum eru hvattir til þess að mæta og kynna sér fyrir hvað framboðin standa.


15.maí
Kirkjureið Harðarfélaga að Mosfelli
Hin árlega kirkjureið Harðarfélaga var endurvakin sl. sunnudag þann 14.maí, en riðið var frá hesthúsahverfinu á Varmárbökkum og víðar. Sr.Ragnheiður Jónsdóttir flutti guðsþjónustu í Mosfellskirkju, en í messunni var skírt barn og einn Harðarfélagi Saga Guðmundsdóttir var fermd. Að guðsþjónustu lokinni var riðið til baka og öllum kirkjugestum boðið í fermingarkaffi í Harðarbóli í boði fermingarbarnsins. Kirkjureiðin var sérlega vel heppnuð og mikill fjöldi Harðarfélaga reið til kirkju í yndislegu veðri.
mosfellsfettir.is óska Sögu Guðmundsdóttur og foreldrum hennar innilega til hamingju með ferminguna.

12.maí
Fundur um íþróttamál
Fundur um íþróttamál var haldinn í gærkvöld kl. 20.30 í Hátíðarsal Varmárskóla. Jón Pálsson frá aðalstjórn flutti erindi “Hvert stefnir í íþróttamálum í Mosfellsbæ”
Formenn deilda Aftureldingar Bóel Kristjánsdóttir formaður badmintondeildar, Eva Magnúsdóttir formaður fimleikadeildar,  Jóhannes Baldursson formaður sunddeildar og Tryggvi Þorsteinsson formaður knattspyrnudeildar kvk kynntu það sem efst er á baugi í hverri deild. Fulltrúar framboðanna kynntu stefnur sínar í íþrótta-og tómstundamálum. Fundarstjóri var Elísabet Guðmundsdóttir formaður Aftureldingar. Fundurinn var hinn ágætasti og kom m.a. þar skýrt fram í máli Höllu
Karenar hver stefna B-listans er í frístundagreiðslum og með hvaða hætti hún á að framkvæmast.

12.maí
Umfjöllun Kastljós um Mosfellsbæ
Kastljós var með umfjöllun um bæjarmálin í Mosfellsbæ, viðtal var við oddvita flokkanna um helstu stefnumálin. Til þess að sjá þáttinn ferð þú á inn á ruv.is/kastljos og síðan smellir þú á horfa á Kastljós fimmtudaginn 11.maí  og þá á umfjöllun um kosningarbaráttuna í Mosfellsbæ.  Og þá má nota slóðina  http://212.30.217.117/kastljos

11.maí
ossur.hexia.net

Össur Skarphéðinsson skrifar á heimasíðu sinni um ítalskar kosningaaðferðir og taugaveiklun íhaldsins:
Íhaldshvolparnir ættu frekar að beina sjónum sínum að Sjálfstæðisflokknum í Mosfellsbæ. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri úr þeirra röðum, uggir svo um sinn hag að hún hefur farið þá nýstárlegu leið að reyna að kaupa sér atkvæði.
Sú ágæta kona greip til þess örþrifaráðs til að reyna að tryggja endurkjör sitt síðar í þessum mánuði með því lofa að endurgreiða 15% af fasteignagjöldum. 
Meira....

10.maí
Þáttur NFS um Mosfellsbæ
Nfs var með umræðuþátt um bæjarmálin í Mosfellsbæ, oddvitar flokkanna mættu þar og ræddu helstu stefnumálin. Til þess að sjáþú á visir.is, opna VefTV, og smellir þar á fréttavaktin f. hádegi, þá eru "kosningamálin í Mosfellsbæ" fjórða efst. Eða með því að smella á slóðina hér að neðan.

9.maí

Tengibraut Helgafellshverfis
Skipulags- og byggingarnefnd fjallaði í morgun um athugasemdir við auglýst deiliskipulag og tillögu að svörum.
Samþykkt var að boða hagsmunaaðila til fundar til að fara yfir athugasemdir og útskýra framkvæmdina enn frekar. Þar mun aðilum vera gefinn kostur að tjá sig og spyrja enn frekar út í framkvæmdina.

Bæjarverkfræðingur nefndi að margir möguleikar væru til að fegra ásýnd þessa vegar t.d. með gróðri, grjóthleðslum og jafnvel listaverkum unnum af íbúum kvosarinnar og hefur landslagsarkitekt verið fenginn til að vera til ráðgjafar við verkefnið.

9.maí
Opið hús
Dagþjónusta á Skálatúni er með opið hús Fimmtudaginn 11. maí á vinnustofunum í Hamrahlíð og dagdvöl/hæfingu í Víðihlíð.
Kynntar verða nýjungar í dagþjónustunni ásamt handverkssýningu og sölu.
Girnilegar kaffiveitingar verða seldar á vegum ferðasjóðs íbúa.
Opið verður frá kl. 11-18.

8. maí
Framboðsfrestur útrunninn
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninganna 27. maí n.k. rann út á hádegi laugardaginn 6. maí. Fjórir stjórnmálaflokkar bjóða fram í Mosfellsbæ þ.e. Framsóknarflokkurinn, Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin og Vinstri Grænir.  
Framsóknarflokkurinn býður fram B-lista framsóknarmanna í 23 sveitarfélögum og býður síðan fram í formlegu samstarfi við aðra í 15 sveitarfélögum í viðbót.  Flokkurinn á því hlut að listum í alls 38 sveitarfélögum af þeim 79 þar sem kosið verður til sveitarstjórna þann 27. maí. Upplýsingar um B-lista í Mosfellsbæ og stefnuskrá er að finna hér á heimasíðunni.

6. maí
Leikskólinn Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg var með opið hús laugardaginn 6.maí milli kl. 11:00-13:00.
Börn og starfsfólk buðu alla velkomna á sýningu á starfi vetrarins. Kaffihúsastemning var í fjölnotarými skólans en þar var margt um manninn, kökur og kaffi voru í boði foreldra elstu barnanna. Mikil stemming var og höfðu krakkarnir greinilega gaman af því að sýna foreldrum og öðrum gestum verk sín og skólann. Mikið og gott starf fer fram í leikskólanum en í honum eru um 160 börn

5.maí
Eldri borgarar borga og borga
Eins og sjá má í greinarskrifum og heyra í umræðunni þá finnst mörgum þeim sem komnir eru á efri ár seilst ansi langt í töku þjónustugjalda og skattheimtu gagnvart þessum hópi sem á annað skilið.
Í góðri grein í síðasta blaði Mosfellsfrétta benti einn af frambjóðendum B-listans á ýmiss dæmi þess, bæði á sviði landsmála og í Mosfellsbæ þar sem Sjálfstæðismenn hafa hækkað álögur á eldri borgara en fullyrða í orði að þeir séu að lækka skatta.

 

 

4.maí

Mosfellsfréttir er komið út
Mosfellsfréttir 22. árg, 2. tbl. 2006 er komið út. Blaðinu verður dreift frítt inn á öll heimili í bænum og vinnustaði í dag.  Í blaðinu eru fjölmargar greinar og viðtöl m.a. við Helgu Jóhannesdóttur sem skipar 2.sæti B-listans og Óðinn Pétur Vigfússon sem er í 3.sæti.  Vefútgáfa Mosfellsfrétta pdf


 

 

 

4.maí
Sjónmengun af veltiskilti?
Bæjarbúi tók eftir því að á veltiskilti íþróttafélaganna er komin auglýsing frá D-listanum en þar eru sjálfstæðismenn eins og sakleysið uppmálað, allir í ljósum fötum.  Hver man ekki eftir fréttum af veltiskiltinu í janúar 2003 en þá kom Ragnheiður öllum að óvörum með ummælum um að skiltið væri sjónmengun og mætti gjarnan víkja.
Umrædd frétt: 22 janúar 2003. Afturelding gegn bæjarstjóranum.
Fréttablaðið sagði frá því í dag að kurr væri í forráðamönnum Aftureldingar vegna ummæla Ragnheiðar Ríkharðsdóttur um auglýsingaskiltið við Vesturlandsveg. Hlynur Guðmundsson hjá Aftureldingu segir í frásögn Fréttablaðsins að skiltið sé á góðum stað og af því sé engin sjónmengun enda snyrtilega frá öllu gengið.
mosfellsfréttir.is velta því fyrir sér með hvaða hætti Ragnheiður ætli að bæta íþróttafélögunum skaðann ef skiltið verður látið fara, en skiltið er á skipulagi bæjarins og samningar um veru þess. Hvað skyldi það nú kosta bæjarfélagið ef Ragnheiður rýkur af stað með þessa vitleysu.

3. maí
S
amstarfssamningar við íþrótta- og tómstundafélögin í Mosfellsbæ
Þriðjudaginn 2. maí var skrifað undir samning á milli  Styrktar- og afrekssjóðs Mosfellsbæjar og íþrótta- og tómstundarfélaganna.  Jafnframt var skrifað undir samstarfssamninga við íþrótta- og tómstundafélögin í Mosfellsbæ, Aftureldingu, Hestamannafélagið Hörð, Skátafélagsins Mosverja og Björgunarsveitarinnar Kyndils. Mosfellsbær hefur ávalt stutt við barna- og unglingastarf í bænum með fjárframlögum til félaganna. 
Vígð var ný félags-, búninga- og baðaðstaða við Tungubakka en Afturelding mun hafa umsjón með svæðinu.  Þessi nýja aðstaða  bætir mjög úr því aðstöðuleysi sem knattspyrnuiðkendur bjuggu við að Tungubökkum.

2. maí
Tilboðsvika hjá NAMO 2. til 6. maí
Dagana 2. til 6. maí er tilboðsvika hjá Namo. Opið er frá kl. 9.00 til 20.00 virka daga og laugardaginn 6. maí er opið frá kl. 10.00 til 16.00.
20% afsláttur er af öllum fótboltaskóm, gervigrasskóm og íþróttaskóm. Fótboltasokkar, allar stærðir, eitt par á 850 kr, tvö pör 1.500 kr og þrjú pör 2.000 kr. Fótboltatöskur frá 1.000 kr, stuttbuxur frá 1.000 kr, keppnistreyjur frá 1.000 kr og fleiri góð tilboð. Frábært fyrir sumarið

1. maí
Allir sjálfstæðismenn velkomnir!
Bæjarbúar fengu inn um bréfalúguna boðsmiða frá sjálfstæðismönnum í tilefni af opnun kosningaskrifstofu þeirra. Það vakti athygli bæjarbúa að á boðsbréfinu stóð: „Allir sjálfstæðismenn hjartanlega velkomnir”.  Sennilega þurfa sjálfstæðismenn ekkert á nýjum kjósendum að halda né heldur vilja þeir fjölga í sínum röðum.  Við vonum fyrir þeirra hönd að um prentvillu hafi verið að ræða.  Stuttu áður kynntu sjálfstæðismenn í Mosfellsbæ stefnuskrá sína en ekkert hefur sést til hennar enn.

1. maí
Opnunarhátíð!
Kosningaskrifstofa B-listans í Mosfellsbæ var opnuð í dag 1. maí með viðhöfn. Við það tækifæri var stefnuskrá listans kynnt. Forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson og heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra Siv Friðleifsdóttir auk þingmanna voru viðstödd opnunina. Mikill fjöldi bæjarbúa lagði leið sína á skrifstofuna til að samgleðjast okkur.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar spilaði við opnunina, boðið var upp á kaffi og ljúffengar veitingar, börnin fengu blöðrur, ís og óvæntan glaðning.  Myndir frá opnunarhátíðinni verða birtar hér á síðunni fljótlega undir krækjunni
Myndir”.
Stefnuskrána má finna hér á síðunni undir krækjunni
Stefnuskrá”. Stefnuskrá B-listans vakti mikla  athygli og fengu allir gestir prentað eintak af henni. Frambjóðendur annarra framboða komu og fengu nokkur eintök af skránni sem er afdráttarlaus og skýr. Stefnuskránni verður dreift í öll hús í bæjarfélaginu þriðjudaginn 2. maí. B-listinn hvetur alla bæjarbúa til að kynna sér vel stefnuskrána.

28. apríl
Vortónleikar Mosfellskórsins

Vortónleikar Mosfellskórsins verða í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ miðvikudagskvöldið þann 3. maí og hefjast kl. 20.30. Mosfellskórinn er blandaður kór og flytur tónlist sem ekki er talin hefðbundin kórtónlist.
Kórinn var stofnaður fyrir 17 árum af áhugafólki um létta tónlist og hefur sungið ýmsa swing- og rokkstandarda í gegnum árin. 
Lög á efnisskrá að þessu sinni eru  nokkrar perlur eftir Magnús Eiríksson t.d. Reyndu aftur og Gamli skólinn og aðrar perlur Return to sender, Streets of London, Cotton Fields, Vertu ekki að plata mig og ýmsir Jazzgeggjarar svo eitthvað sé nefnt.  Einnig mun  ung og efnileg stúlka hér úr Mosfellsbæ Íris Hólm syngja einsöng með kórnum.  Páll Helgason er stjórnandi kórsins.  Miðaverð 1.500 kr. og frítt fyrir börn yngri en 12 ára.


27. apríl

Heiðar Davíð er orðinn atvinnumaður í golfi

Heiðar Davíð Bragason, kylfingur úr GKJ, er orðinn atvinnumaður í golfi. Hann ætlaði upphaflega að gerast atvinnumaður í haust, eftir heimsmeistaramót áhugamanna,  en langaði meira að spila sem atvinnumaður og ákvað því að stíga skrefið núna. Heiðar Davíð er nýkominn heim úr fjögurra vikna æfingabúðum á Spáni. Hann sagði að aðstæður þar til æfinga hafi verið mjög góðar. Heiðar Davíð er fjórði íslenski kylfingurinn sem leikur á atvinnumannamótum erlendis í sumar, en hinir eru Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG sem leikur á Áskorendamótaröðinni, Ólöf María Jónsdóttir sem spilar á Evrópumótaröðinni og Ólafur Már Sigurðsson úr GR sem leikur á þýsku EPD-mótaröðinni. Frá þessu segir á www.kylfingur.vf.is




27. apríl
Stoltar stelpur í handbolta
Helgina 22. - 23. apríl sl. keppti 7. flokkur kvenna frá Aftureldingu í handbolta á svokölluðu Lýsismóti.  Lýsismótið var skipulagt og haldið að af íþróttafélaginu Gróttu á Seltjarnarnesi. Á meðfylgjandi mynd má sjá stúlkurnar taka stoltar við verðlaunapeningum og  góðum gjöfum.

 


27. apríl
Það er eins gott að það rigni ekki oft
Húsnæði Varmárskóla þarfnast lagfæringar eins og sjá má á þessu myndum.  Augljóst er að ekki hefur verið varið miklum fjármunum í að viðhalda annars ágætis byggingu síðustu árin.  Skólinn lekur og á góðum rigningardegi eru stigagangar teppalagðir með handklæðum.  Gluggar eru víða illa farnir að innanverðu og sveppur farin að myndast.  Er þetta skólahúsnæði sem við erum stolt af að bjóða börnum okkar?

 

 

25. apríl
Lára Kristín meistari Aftureldingar í fimleikum
Lára Kristín Pedersen  varð um síðustu helgi meistari Aftureldingar í fimleikum á innanfélagsmóti sem haldið var að Varmá og hlaut flest samanlögð stig. Lára keppti í 4. þrepi b. Í öðru sæti í samanlögðum stigum var Telma Þrastardóttir og Kristjana Valdís Guðjónsdóttir lenti í því þriðja.





 

25. apríl
Opnunarhátíð!
Kosningaskrifstofa B-listans í Mosfellsbæ opnar 1. maí n.k. kl. 15.00, en samhliða opnun kosningaskrifstofu mun stefnuskrá listans verða kynnt.
Lifandi tónlist, boðið verður upp á kaffi og meðlæti, börnin fá blöðrur, ís og e.t.v. óvæntan glaðning. Allir bæjarbúar eru hjartanlega velkomnir.


 

20. apríl
Gleðilegt sumar og þökkum fyrir veturinn
Mosfellsfréttir óska öllum gleðilegs sumars og þakkar ánægjuleg samskipti á liðnum vetri. Það er von okkar að það góða samstarf haldi áfram og sumarið verði íbúum Mosfellsbæjar gæfuríkt og ánægjulegt. Vorið og sumarið er sá tími þegar mannlífið í bæjarfélaginu okkar blómstrar og munum við leggja okkur fram um að þjóna bæjarbúum með því að flytja fréttir eins og frekast er kostur. Bæjarbúum er velkomið að senda okkur fréttir og tilkynningar um hvaðeina sem er á döfinni.

 

 

19.apríl
Tónleikar
Wolfgang Amadeus Mozart í tali og tónum

Tónleikar í tilefni 250 ára fæðingarafmælis Mozarts verða haldnir sumardaginn fyrsta, 20. apríl, kl. 20 í Kjarna, Þverholti 2, Mosfellsbæ.
Á dagskránni eru þekkt söng- og kammerverk Mozarts. 
Reynir Axelsson stærðfræðingur og ljóðaþýðandi fylgir dagskránni úr hlaði og segir sögur af afmælisbarninu.
Flytjendur eru:
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari, Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleikari, Helga Þórarinsdóttir, víóluleikari, Kristjana Helgadóttir, flautuleikari, Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðluleikari, Sigrún Hjálmtýsdóttir, sópran.
Miðaverð kr. 1500 og 1000 fyrir námsmenn og eldri borgara.  Tónlistarfélags Mosfellsbæjar

18.apríl
Athugasemdir B-listans  við fréttaflutning og fullyrðingar Ragnheiðar Ríkharðsdóttur bæjarstjóra Mosfellsbæjar:


Yfirlýsing vegna lækkunar gjalda í Mosfellsbæ
Íbúar Mosfellsbæjar fá 15% afslátt af fasteignagjöldum, 20% afslátt af leikskólagjöldum og greiðslur til foreldra með börn í daggæslu hækka um 20% samkvæmt tillögu meirihlutans en allir bæjarfulltrúar samþykktu tillöguna á 440. fundi bæjarstjórnar.  Áætlaður kostnaður þessa er samtals  62 milljónir króna.

Staðreyndir málsins eru þær að minnihlutinn hefur hrakið meirihluta sjálfstæðismanna hvað eftir annað til að lækka álögur í bæjarfélaginu og er þetta í fjórða skiptið síðan fjárhagsáætlun var lögð fram sem það gerist og telst það sennilega Íslandsmet.  Með lækkun þessara gjalda er meirihluti sjálfstæðismanna að viðurkenna fullyrðingar B - listans að allt kjörtímabilið hafi barnafjölskyldur verið breiðu bökin í bæjarfélaginu og eru nú rétt fyrir kosningar að endurgjalda þeim hluta oftekinna gjalda til baka.  Þetta sýnir ekkert annað en örvæntingu meirihluta sjálfstæðismanna nú rétt fyrir kosningar.  Við í B-listanum í Mosfellsbæ höfum gagnrýnt meirihlutann öll fjögur árin fyrir þessar háu álögur og notað hvert tækifæri til að benda á að það sé ekki mikill vandi að skila rekstrarafgangi ef gjöldin eru hækkuð langt umfram það sem þau þurfa að vera.

14.apríl
"það er dýrt að búa í Mosfellsbæ" á meðan aðrir geta sagt "það er gott að búa i Kópavogi"
Það hefur ekki farið fram hjá bæjarbúum hversu dýrt hefur verið að búa í Mosfellsbæ eftir að sjálfstæðismenn komust til valda en þeir breyttu þeirri yfirlýstu stefnu fyrri meirihluta að Mosfellsbær væri fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gjaldtaka vegna þjónustu sem fjölskyldufólk keypti væri ávallt haldið í lágmarki.
Nú nýlega birtust kannanir ASÍ sem sýndu fram á hvað álögur hafa hækkað mikið í Mosfellsbæ en sem dæmi hafa fasteignagjöld hækkað um 55,7% á kjörtímabilinu.  Bæjarstjórar nágrannasveitarfélaganna hafa sýnt svipaðan samanburð þar sem Mosfellsbær hefur komið illa út.
Bæjarstjóri Kópavogs birtir á síðum Morgunblaðsins samanburð milli sveitarfélaga miðvikudaginn 12. apríl  þar sem að hann tekur sem dæmi að ef miðað er við fjögurra manna fjölskyldu sem býr í 150 fermetra  íbúðarhúsnæði og er með 600þús. kr mánaðrtekjur, annað barnið er í 8 klst. vistun á leikskóla og hitt er í grunnskóla og dægradvöl í 2 klst. þá er langdýrast að búa í Mosfellsbæ. 
Sjá töflu

Íþrótta-

 

 

 

Fasteigna-

 

Hlutfalls-

Sveitarfélag

syrkur 

Leiksskóli

Grunnskóli 

Útsvar

gjöld

Samtals 

munur%

Kópavogur

-20

247

79

938

115

1359

0,0

Seltjarnarnes

0

314

102

889

113

1418

4,3

Reykjavík

0

254

112

938

118

1422

4,6

Akureyri

0

246

85

938

173

1442

6,1

Hafnarfjörður

-40

317

112

938

153

1480

8,9

Garðabær

-20

325

143

897

141

1486

9,3

Mosfellsbær

0

315

79

932

161

1487

9,4

*Mosfellsbær

0

273

79

932

145

1429

5,1

*= áhrif nýsamþykktrar lækkunar komin inn
Eftir lækkun gjalda má sjá að staða Mosfellsbæjar lagast, en hversu trúverðugar eru svona aðgerðir?  Hefði ekki verið betra fyrir sjálfstæðismenn að stilla álögum og gjaldtöku í hóf allt kjörtímabilið?

 

12.apríl
Tillaga um lækkun gjalda
Á 440. fundi  bæjarstjórnar var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum tillaga meirihlutans varðandi breytingu á gildandi fjárhagsáætlun, en tillagan hljóðaði svo:
Að 15 % afsláttur verði veittur af fasteignagjöldum íbúðarhúsnæðis á árinu 2006.
Áætluð áhrif um 49,5 millj. kr.
Að leikskólagjöld lækki um 20 % frá og með 1. maí 2006.
Áætluð áhrif um 11,3 millj. kr.
Að greiðslur til foreldra með barn / börn í daggæslu dagforeldra hækki um 20% frá og með 1. maí 2006.
Áætluð áhrif um 1,3 millj. kr.
Bókun fulltrúa B - listans.
Samþykkjum framkomna tillögu um lækkun gjalda til íbúa, en við viljum árétta að við höfum gagnrýnt sífelldar óhóflegar gjaldtökur sjálfstæðismanna á þessu kjörtímabili.
Í fjórða sinn fyrir fjárhagsárið 2006 er lögð fram breytingartillaga til lækkunar fasteignaskatta og er sennilega Íslandsmet.
Með lækkun þessara gjalda er meirihluti sjálfstæðismanna að viðurkenna fullyrðingar B - listans allt kjörtímabilið að barnafjölskyldur hafa verið breiðu bökin og eru nú rétt fyrir kosningar að endurgjalda þeim til baka.
Þetta sýnir ekkert annað en örvæntingu meirihluta sjálfstæðsismanna rétt fyrir kosningar.
 

12.apríl
Ársreikningur Mosfellsbæjar 2005, síðari umræða
Á fundi bæjarstjórnar í gær var ársreikningur Mosfellsbæjar til síðari umræðu. Helstu niðurstöður sýna að rekstrarniðurstaða A-hluta bæjarsjóðs var jákvæð um 542 mkr. samanborið við 63 mkr. afkomu í fjárhagsáætlun. Munar þar mestu um sölu byggingarréttar vegna Krikahverfis eða 392 mkr.
Rekstrarniðurstaða án byggingarréttar er jákvæð um 151 mkr. sem er betri niðurstaða en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.

Bókun bæjarfulltrúa B – listans.
Eins og lesa má í ársreikningum Mosfellsbæjar fyrir árið 2005 hefur hin nýja tekjulind bæjarins þ.e. sala á byggingarrétti á lóðum í Krikahverfi fyrir hart nær 400 milljónir haft veruleg áhrif á afkomu ársins 2005. Skatttekjur og framlög frá Jöfnunarsjóði voru 76 milljónum hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir að ógleymdum talsverðum gengishagnaði á þensluári. Samtals eru þessir liðir u.þ.b. 520 milljónir eða um 75.000 kr. á íbúa. Það er sú upphæð sem meirihluti sjálfstæðismanna hreykir sér af í fjölmiðlum að hafa lækkað skuldir á íbúa. Uppbygging íþróttamiðstöðvar á vestursvæði sem er í einkaframkvæmd er ekki talin með til skulda, en framtíðar skuldbindingar vegna hennar eru verulegar, sem ekki kemur fram í ársreikningnum. Þetta er nú öll fjármálaspeki meirihlutans fyrir þessi fjögur ár sem þeir hafa verið við völd, en á sama tíma hafa ýmsar stofnanir bæjarins liðið fyrir með ónógu viðhaldi og skorti á rekstrarfé og er því dulinn uppsafnaður vandi þar á ferð.
Fárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2005 gerði ráð fyrir rekstrarafgangi og viljum við þakka starfsfólki bæjarfélagsins fyrir hvað áætlanir hafa staðist vel og hversu mjög það hefur lagt sig fram um að fara vel með fjármuni bæjarins.
Fjármál bæjarins eru á réttri leið og er það vel, en við minnum á að allar framtíðarspár fyrri meirihluta gerðu ráð fyrir verulegum bata í rekstri eftir þung fjárfestingarár vegna m.a. yfirtöku grunnskólans og einsetningu hans.

10. april
Ánægjuleg viðbrögð.

Óhætt er að segja að viðbrögðin við dreifibréfinu sem fulltrúar B-listans sendu út til bæjarbúa hafi komið þægilega á óvart.  Í bréfinu var bæjarbúum gefinn kostur á að senda inn sínar tillögur og hugmyndir til að hafa áhrif á hvernig bæta mætti bæjarfélagið. Fjöldi svarbréfa hefur borist, ásamt þó nokkrum tölvubréfum og tjáir fólk sig um hin ólíklegustu málefni.

Framboð B-listans þakkar frábærar viðtökur og lofar að skoða vel þær ábendingar sem hafa borist.
 

10. april
Gervigrasvöllur að Varmá.
Á 107. fundi íþrótta- og tómstundanefndar Mosfellsbæjar sem haldinn var í dag var gervigrasvöllur á Varmársvæðinu til umræðu. Á fundinum voru lögð fram gögn og upplýsingar um hugmyndir að gervigrasvelli á Varmársvæðinu, en fulltrúar minnihlutans gagnrýndu ólýðræðisleg vinnubrögð meirihlutans í þessu máli sem og í nokkrum öðrum, en íþrótta- og tómstundanefnd er fagnefnd bæjarins um íþróttamál.

Fulltrúi B-listans Halla Karen Kristjánsdóttir bókaði eftirfarandi:
”Ég fagna nýjum, stórum gervigrasvelli í fullri stærð hér í bæinn okkar.
Frábært fyrir íþróttafólkið okkar og auðvitað okkur öll í Mosfellsbæ. Ég vil vekja athygli á með bókun minni um undarlegt og ólýðræðislegt vinnuferli hjá meirihlutanum varðandi völlinn og er það ekki í fyrsta skipti þegar íþrótta- og tómstundanefnd á í hlut.
Þann 27. febrúar s.l. var kynningarfundur með nefndum og UMFA um gervigrasvöllinn. Það er gott framtak. Síðan sé ég á heimasíðu Mosfellsbæjar að þann 16. mars á 765. fundi bæjarráðs var samþykkt með tveimur atkvæðum að heimila undirbúning að gerð gervigrasvallar við Varmá. Því í ósköpunum var málið ekki sent áður til umfjöllunar og umsagnar í íþrótta- og tómstundanefnd.  Hvert er hlutverk íþrótta- og tómstundanefndar?   Við höfum aldrei fengið þetta mál inn á fund til okkar fyrr en nú í dag og þá er búið að ákveðja og samþykkja staðsetningu vallarins og heimila útboð. Hvers vegna erum við að fá þessi gögn núna?
Sem fulltrúi í íþrótta- og tómstundanefnd bið ég um skrifleg svör um þetta undarlega háttarlag á næsta fundi nefndarinnar. Ég skil ekki þessi vinnubrögð að sniðganga íþrótta- og tómstundanefnd aftur og aftur.”

10. april

Kristrún Íslandsmeistari.
Í síðustu viku varð ung stúlka héðan úr Mosfellsbæ, Kristrún Sigurjónsdóttir, Íslandsmeistari með liði sínu Haukum. Kristrún hefur spilað körfubolta með Haukum í tvö ár, en liðið sem er skipað mjög ungum leikmönnum sem hefa nú unnið alla titla sem í boði eru þrátt fyrir að hafa komið upp í fyrstu deild í fyrra.
Mosfellsfréttir óska Kristrúnu og fjölskyldu hennar innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.




8.april

Mosfellsfréttir 22.árg,1.tbl. 2006
Mosfellsfréttir er komið út, blaðinu var dreift frítt inn á öll heimili í bænum og helstu vinnustaði í gær föstudag.  Í blaðinu er birtur framboðslistinn fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor auk fjölmargra greina og viðtala m.a. við Martein Magnússon efsta mann listans.  Vefútgáfa Mosfellsfrétta pdf
 

 

8.april
Leirvogstungulandið tekið fram fyrir
Hagnast bæjarstjórinn um tugi milljóna?
Margir landeigendur sitja sárir í dag eftir að Leirvogstunguland var tekið fram fyrir í uppbyggingu miðað við núgildandi aðalskipulag bæjarins sem er í gildi til ársins 2024. Uppbygging landa eins og Blikastaða-, Helgafells-, og Lágafellslands, sem eru í einkaeign, áttu að vera á undan Leirvogstungulandi í uppbyggingu, en aðalskipulag bæjarins nær til ársins 2024. Meira......


 

3.apríl
Sveitarstjórnarráðstefna og stjórnmálaskóli Framsóknarflokksins
Um helgina var haldin sveitarstjórnarráðstefna og stjórnmálaskóli Framsóknarflokksins í  Egilshöll.  Ráðstefnan hófst laugardaginn 1. apríl og lauk henni  sunnudaginn 2.apríl. 
Meðal ræðumanna var Sören Toft skrifstofustjóri þingflokks Venstre í Danmörku auk margra annarra innlendra fyrirlesara. Á myndinni má sjá Martein Magnússon oddvita B-listans í Mosfellsbæ í pontu.




 

3.apríl
1. aprílgabb  - Halldór gerði betur á sveitarstjórnarráðstefnunni
Birkir truflaði fyrirlesara sveitarstjórnarráðstefnunnar snemma á laugardagsmorgun og bað um hljóð.  Birkir benti gestum að horfa niður á skautasvell hallarinnar en þar væru ráðherrarnir Siv Friðleifsdóttir og Jón Kristjánsson á skautum.  Þau væru þrælvön og ætluðu að sýna ráðstefnugestum listir sínar.  Ráðstefnugestir stóðu allir úr sætum og fóru fram á áhorfendapallana.  Meðal ráðstefnugesta var háttvirtur forsætisráðherra sem gerði sér lítið fyrir og fór alla leið niður á svellið til að missa ekki af neinu.  Viti menn um apríl gabb var að ræða.   Á svellinu stóðu Siv og Jón brosandi og veifuðu hópnum.  Halldór lét sig ekki um muna að fara á skauta í jakkafötunum og sýna listir sínar. Það væri gaman að sjá þá Spaugstofumenn leika þetta eftir.


30.mars
Tekjur sveitarfélaga af fasteignasköttum
Tekjur sveitarfélaganna af fasteignasköttum hafa aukist umtalsvert sl.ár eins og taflan sýnir. Vert er að benda á að þar ber Mosfellsbær höfuð og herðar umfram önnur sveitarfélög. Meira um málið á www.asi.is


30.mars
Bæjarráð fjallaði um kosningaskrifstofuna
Í bæjarráði í morgun var tekin fyrir beiðni Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs um að fá bráðabirgðastöðuleyfi á húsi Björgunarsveitarinnar Kyndils á lóð við Bæjarleikhúsið í bænum, en í fjölmiðlum í gær mátti sjá að húsið var flutt í fyrrinótt skjóli nætur eftir beiðni bæjarstjóra og byggingarfulltrúa.
Fulltrúar sjálfstæðismanna felldu beiðnina en fulltrúi framsóknarmanna greiddi beiðninni atkvæði sitt. Fulltrúi B-listans bókaði að hann lýsi yfir undrun sinni að bæjarstjóri Mosfellsbæjar hafi fyrirskipað Björgunarsveitinni Kyndli að fjarlæga húsið á þessum tímapunkti, en húsið er búið að fá að standa þarna í um 3 mánuði. Framboð Vinstri grænna var búið að viðra við bæjarstjóra og byggingarfulltrúa um tímabundið stöðuleyfi og ljóst að formlegt erindi  yrði tekið fyrir á fundinum í dag.  Lýsi stuðningi við að leyft verði að færa húsið aftur á sama stað og því gefið bráðabirgðastöðuleyfi eins og framboð Vinstri grænna hefur farið fram á.
Fulltrúi G-listans tók undir bókun fulltrúa B-listans
.

29.mars
Karl Tómasson hafði þetta að segja um flutninginn:
Karl Tómasson fyrsti maður á lista VG sagði í viðtali við Mosfellsfréttir að með því að grípa svona inn í atburðarásina áður en bæjarráð fær málið til umfjöllunar og fjarlægja húsið með hraði er bæjarstjóri á hálum ís hvað varðar rétta málsmeðferð. Það má ekki gleyma því í umræðunni að með því er bæjarstjóri einnig að láta tvö mæt og góð félagasamtök í bæjarfélaginu þ.e. Björgunarsveitina Kyndil og Leikfélag Mosfellsveitar verða af tekjum. Það vekur einnig furðu fyrst að málið verður tekið fyrir í bæjarráði á morgun eins og fram kom hjá bæjarstjóra í viðtali við NFS í dag að hún skuli þá ekki hafa beðið í tvo daga eftir niðurstöðu bæjarráðs, heldur látið Kyndil standa straum af flutningskostnaði sem ekki hefði þurft að koma til ef stöðuleyfið verður samþykkt hjá bæjarráði á morgun fimmtudag.

29. mars
Kosningaskrifstofa VG flutt brott í skjóli nætur

Fyrirhuguð kosningaskrifstofa Vinstri grænna í Mosfellsbæ var fjarlægð í fyrrakvöld og stendur nú á lóð Björgunarsveitarinnar Kyndils í iðnaðarhverfi þar í bæ. Kyndilsmenn höfðu leigt flokknum smáhýsið, sem var miðsvæðis í bænum, fram yfir sveitarstjórnarkosningar.

Við höfðum samband við byggingarfulltrúa og hann sá ekki neina meinbugi á því að smáhýsið yrði þarna enda hafði það verið þar frá því fyrir áramót, segir Bjarki Bjarnason, formaður Vinstri grænna í Mosfellsbæ. Það er hinsvegar ekki fyrr en við förum að renna hýru auga til þess að það liggur allt í einu verulega á því að fjarlægja það. Flokksmenn höfðu sent bæjarráði beiðni um stöðuleyfi og taka átti hana til umræðu á morgun og undrar Bjarki sig á því af hverju málið fær ekki formlega afgreiðslu.

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri og fyrsti maður á lista Sjálfstæðisflokksins, segir málið ekki snúast um pólitík. Leyfið rann út 15. janúar og Björgunarsveitin hafði enga heimild til að leigja hann þarna og það hefur verið þrýst á þá að fjarlægja skúrinn.
Frá þessu segir á www.visir.is


27. mars

Stóra upplestrarkeppniní Mosfellsbæ
Fimmtudaginn 23. mars sl. var stóra upplestrarkeppnin haldin í Bæjarleikhúsinu.  
Að keppninni standa Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn.  Góð mæting var á kepnnina og var hún hin glæsilegasta.   Sex keppendur frá Lágafellsskóla og sex frá Varmárskóla tóku þátt í keppninni, en þessir nemendur náðu lengst í sínum skóla í undankeppnum þar.  Skáld keppninnar voru að þessu sinni Kristín Steinsdóttir og Birgir Svan Símonarson og lásu keppendur úr verkum þeirra.   Ólafur Orri Gunnlaugsson 7. RR í Varmárskóla var í  fyrsta sæti, María Ólafsdóttir 7. AB Lágafellsskóla í  öðru sæti og í þriðja sæti var Kristín Helga Hermannsdóttir.  Varmárskóli hlaut því farandbikarinn sem skólaskrifstofa Mosfellsbæjar gefur að þessu sinni.  Mosfellsfréttir óska sigurvegurunum hjartanlega til hamingju með þennan frábæra árangur.
Glæsilegt boðskort sem hannað var í tilefni keppninnar myndskreytti Eiður Sveinn Gunnarsson 7.DB í Lágafellsskóla.


23
. mars
Ársreikningur 2005
Á fundi bæjarráðs í morgun ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2005 lagður fram.
Helstu niðurstöður hans eru að rekstrarniðurstaða í heild er jákvæð um 514 milljónir. Að mestu leyti eða um 400 milljónir tilkomnar vegna sölu byggingarréttar í Krikahverfi, en sala á byggingarrétti er ný tekjulind hjá Mosfellsbæ.  Ársreikningnum var vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Mosfellsbæjar.



23
. mars
Fornleifauppgröftur fær styrk

Menntamálaráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur ákveðið að styrkja fornleifarannsóknir  um kr.2 milljónir sem unnar hafa verið á jörðinni Hrísbrú í Mosfellsdal. Rannsóknirnar hafa staðið í mörg ár og eru þetta  tímamótafréttir fyrir aðstandendur þessa merkilega uppgraftar.

 

23. mars
Styrkir til framboða
Á bæjarráðsfundi í morgun lagði bæjarstjóri til að framboðslistar yrðu styrktir samtals um 1,6 milljónir króna til að mæta kostnaði við komandi sveitarstjórnarkosningar.

Þröstur fulltrúi B-listans bókaði:

Sit hjá við afgreiðslu þessa máls þar sem að ég er ósáttur við hvernig staðið hefur verið að styrkjamálum allt núverandi kjörtímabil. Eitt fyrsta verk núverandi meirihluta var að afnema útgáfustyrki til framboðslistanna að því er virðist í þeim einum tilgangi að stöðva eðlilega lýðræðislega umræðu um sveitarstjórnarmál í bæjarfélaginu, auk þess að leggja niður spjallþræði á heimasíðu sveitarfélagsins.
Meirihluti sjálfstæðismanna óskaði eftir því að málinu yrði vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

22. mars
Hundar lausir í bænum
Undanfarið hefur borið mikið á lausum hundum hér í Mosfellsbæ og virðist það hafa aukist nú síðustu misseri.
Á svæðinu í kring um hið nýja hverfi við Tröllateig er þetta núna sérstaklega áberandi að sögn heimildarmanns, þar má sjá lausa hunda á hverjum morgni og virðist sem fólk hleypi þeim út til að gera þarfir sínar, og treysti því að þeir skili sér til baka. Þetta er að sjálfsögðu óleyfilegt og ekki samkvæmt samþykktum um hundahald í Mosfellsbæ.

16. mars
Gervigrasvöllur að Varmá.

Í bæjarráði í morgun var samþykkt með tveimur atkvæðum að heimila undirbúning að gerð grasvallar á Varmársvæði. Þröstur fulltrúi B-listans sat hjá en bókun hans var svohljóðandi:

Hvet til uppbyggingar á gervigrasvelli í fullri stærð og knattspyrnuhúsi sem fyrst hér í Mosfellsbæ, en nauðsynlegt er að bæta aðstöðu knattspyrnuiðkunar í bænum.

Finnst mikil skammsýni með fyrirhugað staðarval og óska eftir að það verði endurskoðað, en búningsaðstaða, aðgengi, bílastæði og aðrir þættir eru alls ekki fullnægjandi sé litið til framtíðar.

16.mars
Hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ
Fimmtudaginn 9. mars s.l. afhentu konur úr Kvenfélagi Lágafellssóknar í Mosfellsbæ Siv Friðleifsdóttur heilbrigðisráðherra undirskriftalista á Alþingi til stuðnings byggingar hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ, en um 2400 íbúar í bæjarfélaginu skrifuðu undir listann. Á myndinni má sjá Siv Friðleifsdóttur, Salome Þorkelsdóttur og konur úr Kvenfélagi Lágafellssóknar í Mosfellsbæ á Alþingi.

Á 438 fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 15 mars var samþykkt eftirfarandi ályktun.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur árum saman lagt á það áherslu að hjúkrunarheimili verði byggt í bænum en án árangurs fram til þessa. Nú hafa fleiri lagt þessu máli lið og í ljósi ályktunar frá fundi Félags aldraðra í Mosfellsbæ og undirskriftasöfnunar Kvenfélags Lágafellssóknar þá skorar bæjarstjórn Mosfellsbæjar á heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnina alla að veita vilyrði fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ.

 Í dag búa tæplega 7200 íbúar í Mosfellsbæ og er gert ráð fyrir verulegri fjölgun á næstu árum. Eldra fólki fjölgar ört í Mosfellsbæ og því er skýr þörf fyrir að hefja uppbyggingu hjúkrunarheimilis í bæjarfélaginu sem er það 7. stærsta í landinu.
Sem stendur eru milli 30 og 40 Mosfellingar vistaðir á hjúkrunarheimilum vítt og breytt um landið sem er óásættanleg niðurstaða bæði fyrir þá sjúku og öldruðu og aðstandendur þeirra. Auk þess eru fjöldi einstaklinga búsettir í Mosfellsbæ í brýnni þörf fyrir vistun á hjúkrunarheimili.
Á Íslandi ríkir mikil velferð því er það skylda þeirra sem eru í forsvari á Alþingi, í ríkisstjórn og í sveitarstjórnum að sinna málefnum aldraðra af krafti og áræði þannig að þeir geti notið síðari hluta æviáranna með reisn.

 

14.mars
Veggjakrot

Í Mosfellsbæ hefur orðið mikil aukning á veggjakroti að undanförnu. Þetta er orðið það mikið, að grípa verður í taumana, það er ótækt að þetta skuli vera látið nánast óátalið. Því að það er vitað hverjir standa að þessu.
Þarna eru ekki að verki nein smábörn, heldur hálf fullorðið fólk, skemmdavargar sem kosta sveitarfélagið margar milljónir á hverju ári.
Eins og meðfylgjandi myndir sýna, þarf að skifta um plötur utan á Brúarlandshúsinu með ærnum tilkostnaði, eins var nýbúið að mála íþróttahúsið, þegar skemmdavargarnir voru komnir þangað og búnir að krota á það.



13.mars
Tónleikar Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar

 
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar hélt sína árlegu vortónleika í Íþróttamiðstöðinni að Varmá  í gær.  Allar þrjár sveitir skólans spiluðu og voru efnistök að vanda fjölbreytt allt frá Latabæ eftir Mána Svavarsson til A Space Oddyssey eftir Richard Strauss og allt þar á milli. Mikill fjöldi fólks var mættur til að hlýða á hljómsveitina og sæti þétt setin.
Allar sveitirnar stóðu sig frábærlega og hljómsveitin sannaði enn og aftur hvað hún er að gera góða hluti.
Stjórnendur voru þeir Birgir D.Sveinsson og Daði Þór Einarsson.

 

 

13.mars
Stjórnmálaskóli Framsóknarflokksins

Laugardaginn 11. mars sl. var stjórnmálaskóli Framsóknarflokksins haldinn að Hverfisgötu 33 í Reykjavík
Fulltrúar Mosfellsbæjar mættu að sjálfsögðu á skólabekk en á myndinni má sjá Helgu Jóhannesdóttur, Halldóru M. Baldursdóttur, Martein Magnússon og Kristbjörgu Þórisdóttur.

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra setti skólann, Einar Gunnar Einarsson skrifstofustjóri Framsóknarflokksins fór yfir sögu og hugmyndafræði Framsóknarflokksins, Björn Ingi Hrafnsson oddviti framboðslista framsóknarmanna í Reykjavík ræddi um framkomu og greinarskrif en starfi skólans lauk með heimsókn á Alþingi.
 

6.mars
Ljósleiðaravæðing Mosfellsbæjar

Á fundi bæjarráðs 2.mars s.l. var samþykkt að heimila bæjarstjóra að ganga til samninga við Orkuveitu Reykjavíkur um ljósleiðaravæðingu.

Þröstur Karlsson bæjarfulltrúi fagnaði því að þetta mál sé að komast í höfn og sagði þetta auka lífsgæði í Mosfellsbæ til muna, en Þröstur lagði upphaflega til að þessi leið yrði farin.


3.mars
Bauhaus óvelkomið.
Athugasemdir bæjarstjóra Mosfellsbæjar og einleikur í bréfi til borgarráðs Reykjavíkur vegna umsóknar Bauhaus um lóð í Reykjavík í hlíðum Úlfarsfells eru stór merkilegar.
Málið hefur aldrei verið rætt í bæjarstjórn Mosfellsbæjar. Nær væri hjá bæjarstjóra að bjóða Bauhaus velkomna í Mosfellsbæ, með því að bjóða þeim lóð.
Þetta upphlaup lyktar eins og einhver pólítískur vinargreiði við forstjóra BYKO. Að vitna í að þetta sé í andstöðu við svæðisskipulag höfðuðborgarsvæðisins er furðulegt, en flest öll sveitarfélög hafa farið út fyrir þann ramma og má sem dæmi nefna Leirvogstungu.
Leirvogstungu var kippt fram fyrir í svæðisskipulagi, öðrum landeigendum til lítillar gleði, en þar átti m.a. bæjarstjóri Mosfellsbæjar hagsmunum að gæta.


3.mars

Framboðslisti framsóknarmanna
Sveitarstjórnarkosningar 2006
Fjölmennur félagsfundur í Framsóknarfélagi Mosfellsbæjar sem haldinn var í gærkvöldi samþykkti einróma tillögu uppstillingarnefndar félagsins um skipun framboðslista framsóknarmanna B-listann í Mosfellsbæ vegna komandi sveitarsjórnarkosninga 2006.

  1. Marteinn Magnússon markaðsstjóri, Furubyggð 17
  2. Helga Jóhannesdóttir viðskiptafræðingur, Hjarðarlandi 4a
  3. Óðinn Pétur Vigfússon grunnskólakennari, Skeljatanga 20
  4. Halldóra M. Baldursdóttir aðstoðargæðastjóri, Skeljatanga 13
  5. Eva Ómarsdóttir háskólanemi, Grundartanga 21
  6. Kristbjörg Þórisdóttir forstöðumaður, Hulduhlíð 9
  7. Halla Karen Kristjánsdóttir íþróttakennari, Helgafelli 5
  8. Óli Kárason Tran veitingastjóri, Leirutanga 39a
  9. Sigríður Sigurðardóttir tómstundafræðinemi, Skeljatanga 41
  10. Leifur Kr. Jóhannesson fv.framkvæmdastjóri, Akurholti 6
  11. Kolbrún Haraldsdóttir þroskaþjálfanemi, Tröllateigi 26
  12. Eyjólfur Árni Rafnsson framkvæmdastjóri, Furubyggð 40
  13. Bryndís Bjarnarson bæjarfulltrúi, Byggðarholti 43
  14. Þröstur Karlsson bæjarfulltrúi, Bugðutanga 3



27. febrúar

Mosverjar
Skátafélag Mosfellsbæjar
Fjölmenni mætti á skemmtilega hátíð Mosverja þann 22/02/2006 í Hlégarði á afmælisdegi stofnanda skátahreyfingarinnar Badens Powell.
Öflugt skátastarf er í Mosverjum og hefur skátum þar fjölgað ört, er þeir nú um 100 talsins.



27. febrúar

Félagsfundur
Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar boðar til almenns félagsfundar fimmtudaginn 2. mars nk. kl.20.00 í húsakynnum félagsins að Háholti 14,  2.hæð Mosfellsbæ. 
Á dagskrá fundarins verður m.a. tillaga að skipan framboðslista Framsóknarfélags Mosfellsbæjar í komandi sveitarstjórnarkosningum.



27. febrúar
Munið félagsvistina í framsóknarsalnum
Félagsvist spiluð kl. 20.00 að Háholti 14, 2.hæð. þriðjudaginn 28.febrúar
Allir velkomnir.


21.febrúar
Löggæslumál
Fjölskyldunefnd hefur áhyggjur af óviðunandi löggæslu í bæjarfélaginu
Á 55. fundi fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar þriðjudaginn 7. febrúar sl. var samningur Mosfellsbæjar og Rannsóknar og greiningar um úrvinnslu rannsókna á högum ungs fólks í Mosfellsbæ til umræðu.
Hverfislögreglumaður Mosfellsbæjar mætti á fundinn til að ræða málefni ungmenna. 
Fjölskyldunefnd bókaði eftirfarandi á fundinum:
Fjölskyldunefnd lýsir yfir áhyggjum sínum yfir löggæslumálum í bænum, og þá sérstaklega hvað varðar viðbragstíma lögreglu. Fjölskyldunefnd leggur til við bæjarstjórn að beina erindi til Lögreglustjórans í Reykjavík vegna óviðunandi þjónustu við íbúa Mosfellbæjar á kvöldin og um helgar.

Bæjarstjórnar Mosfellsbæjar fundaði miðvikudaginn 15. febrúar og í fundargerð má sjá eftirfarandi:
Tilmæli 55. fundar fjölskyldunefndar, um að beina því til Lögreglustjórans í Reykjavík að þjónusta við íbúa Mosfellsbæjar á kvöldin og um helgar sé óviðundandi. Bæjarstjórn tekur undir bókun nefndarinnar og samþykkir að fela bæjarstjóra að fara fram á fund með lögreglustjóra.

 

21.febrúar
Munið félagsvistina Í Framsóknarsalnum í kvöld
Félagsvist spiluð kl. 20.00 að Háholti 14, 2.hæð. þriðjudaginn 21.febrúar
Allir velkomnir.


20.febrúar
Starfsemi á mengunarsviði
Starfsleyfi

Á 436. fundur bæjarstjórnar Mosfellsbæjar haldinn miðvikudaginn 15. febrúar sl spunnust umræður um starfsleyfi sem Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæði veitti Borgarplasti þann 3.janúar s.l. 
Af þessu til efni bókuðu bæjarfulltrúar D listans.
Bæjarfulltrúar D listans fagna því að öflug fyrirtæki skuli kjósa að flytja starfsemi sína í Mosfellsbæ. Jafnframt er þeim tilmælum beint til þeirra aðila sem veita almenn starfsleyfi að ýtrustu kröfur séu ávallt settar vegna mengunarvarna samkvæmt 24. gr. reglugerðar nr. 941/2002.
Marteinn Magnússon fulltrúi í Heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis vill ítreka bókun sem hann lagði fram á þessum fundi eftirlitsins, en bókunin hljóðar svo:
Með vísar til 4. mgr. 24. gr. reglugerðar um hollustuhætti nr. 94/2002 þar sem m.a. kemur fram að hæfileg fjarlægð skuli vera á milli mannabústaða og starfsemi sem valdið getur samsvarandi óþægindum eins og sú sem talin er upp í 1. mgr. Ekki liggur fyrir svo öruggt getur talist að ekki stafi lyktarmengun frá umræddu fyrirtæki og því sé ekki tryggt að íbúar nærliggjandi byggðar verði ekki fyrir óþægindum m.a. vegna lyktar frá starfseminni. Ekkert liggur fyrir um hvernig megi koma í veg fyrir lyktarmengun frá fyrirtækinu á þessu stigi og því getur fulltrúi B-listans ekki samþykkt starfsleyfið.


20.febrúar
Reiðleið frá Vesturlandsvegi við Varmá.

Á 436. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar miðvikudaginn 15. febrúar sl. var samþykkt deiluskipulag fyrir reiðleiðina frá Vesturlandsvegi upp að Hafravatni í gegnum bæinn. Þetta er fagnaðarefni fyrir hestamenn en þeir hafa um langt árabil barist fyrir að úr þessari leið yrði bætt eftir að fyrri leiðir voru teknar af þeim. Nú er bara að bíða eftir að bæjaryfirvöld leggi veginn.


14.febrúar
Langþráð bið bráðum á enda.
Mislæg gatnamót

Vegagerðin hefur nú boðið út mislæg gatnamót á mótum Suðurlands- og Vesturlandsvegar. Í verkinu felst að byggja brú (eina akrein í hvora átt) yfir Nesbraut (Vesturlandsveg) þar sem hún tengist Hringvegi á mótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar, nýjan Suðurlandsveg að brúnni á 300 m kafla og tilheyrandi rampa, aðreinar og fráreinar til að fullmóta þessi mislægu gatnamót. Einnig skal gera nýja skeringu í gjánni við Suðurlandsveg.
Verklok eru áætluð þann 1.nóvember n.k.


Þessi framkvæmd er mikið fagnaðarefni fyrir Mosfellinga sem og aðra landsmenn, en þessi gatnamót eru mikill flöskuháls aðallega í helgarumferð og þó mest yfir sumartímann, en biðraðir hafa verið alla leið upp fyrir Mosfellsbæ og niður í Ártúnsbrekku.





9.febrúar
Hvernig Mosfellsbæ vilt þú?
Laugardagsfundir

Næstkomandi laugardaga mun Framsóknarfélag Mosfellsbæjar halda opna laugardagsfundi þar sem bæjarbúum gefst kostur á að koma og vera með í að móta stefnu félagsins í komandi kosningum. 

Fundirnir hefjast kl.10.00 í sal Framsóknarfélagsins að Háholti 14, 2.hæð og munu standa í um tvær klukkustundir. 

Búið er að ákveða hvað málaflokkar verða ræddir hverju sinni og hér að neðan má sjá yfirlit næstu laugardagsfunda.

Febrúar
Laugardagurinn 11.febrúar                       Fjölskyldu-, félags- og jafnréttismál
Laugardagurinn 18.febrúar                       Skipulagsmál
Laugardagurinn 25.febrúar                       Fræðslumál

Mars
Laugardagurinn 4.mars                  Íþróttar- og tómstundarmál
Laugardagurinn 11.mars               Atvinnu-og ferðamál
Laugardagurinn 18.mars               Menningarmál
Laugardagurinn 25.mars               Umhverfismál

9.febrúar
Hækkun launa til leikskólakennara og STAMOS félaga.

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur Launanefndar sveitarfélaga frá 28.janúar s.l. að hækka alla leikskólakennara og félaga innan Starfsmannafélags Mosfellsbæjar, STAMOS. Jafnframt verði þess sérstaklega gætt gagnvart einstökum störfum þar sem launamunur er umtalsverður í sambærilegum störfum á sama atvinnusvæði að hækka tímabundið skilgreindar eingreiðslur til starfsmanna innan raða STAMOS.

Áætlaður umframkostnaður sveitarfélagsins vegna launa og launatengdra gjalda er áætlaður um 55 milljónir króna.


8.febrúar
Framsóknarsalurinn laus til útleigu dagana: 2., 17.(annar í páskum), og 20. apríl (sumardagurinn fyrsti).
Tekur allt að 80 manns í sæti.
Upplýsingar í síma 699-3131


8.febrúar
Kunningjapólítík
Deiliskipulag í Álafosskvosinni.

Fjöldinn allur af athugasemdum bárust við auglýsingu á breyttu deiliskipulagi á Álafosskvosinni.

Einn aðili segir m.a. í bréfi sínu til Mosfellsbæjar, að hugmyndir um kunningjapólítík og opinbera mismunum á réttindum fólks séu óásættanlegar í nútíma stjórnsýslu. Óskar hann eftir skýringum bæjarins á þessum hugmyndum um mismunum á réttindum fólks og staðfestingu á því að ekki sé um að ræða hugmyndir um klíkuskap og innansveitarkrónískan hugsunarhátt heldur eðlilega stjórnsýslu í samræmi við lög og reglur þar að lútandi.


3.febrúar
Það er orðið dýrt að búa í Mosfellsbæ!

Um fasteignagjöld

Í morgunblaðinu í dag svarar Gunnar I. Birgisson grein Hafsteins Karlssonar. Mosfellsféttir birtir hér brot úr grein Gunnars í framhaldi af skrifum hér á síðunni um fasteignagjöld en Gunnar staðfestir ágætlega það sem að við höfum haldið fram, "það er orðið dýrt að búa í Mosfellsbæ" á meðan aðrir geta sagt "það er gott að búa i Kópavogi".
En Gunnar skrifar m.a."Nú er liðinn meira en mánuður síðan bæjarfélög ákváðu álagningu fasteignagjalda í tengslum við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2006, en allan janúarmánuð hafa samt ýmis sveitarfélög verið að lækka álagningarforsendur."
  


Taflan hér að neðan er úr grein Gunnars og sýnir ágætlega munin á sveitarfélögunum.

 

 

 Heimild: Morgunblaðið 3.febrúar 2006.

Til viðbótar veitir Kópavogur 5% staðgreiðsluafslátt af ofangreindum gjöldum eitt sveitarfélaganna.


 

27.janúar
Bæjarráð 758.fundur
Á fundi bæjarráðs í morgun kom fulltrúi B-listans Þröstur Karlsson með tillögu um að Mosfellsbær taki upp viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um hugsanlega sölu á fráveitukerfi bæjarins. Tillögunni fylgdi svohljóðandi greinagerð:

Ljóst er að fráveitukerfi bæjarins kostar sveitarfélagið mikið í uppbyggingu og álögur á íbúa vegna þess því miklar. Til framtíðar litið gæti verið hagkvæmara að fela Orkuveitu Reykjavíkur uppbyggingu og rekstur þess enda má telja að hagkvæmni stærðarinnar geti skilað íbúum Mosfellsbæjar hagkvæmari rekstri til lengri tíma litið.

Samþykkt var með þremur atkvæðum að fela bæjarstjóra að skoða framkomna tillögu.


26.janúar
Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis samþykkir starfsleyfi fyrir plastverksmiðju í Mosfellsbæ
Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis samþykkti á fundi sýnum 3.janúar sl. starfsleyfi fyrir Borgarplast með öllum greiddum atkvæðum gegn atkvæði B-listans eins og fram kemur í bókun hér að neðan:

Starfsemi á mengunarsviði
Borgarplast hf sækir um starfsleyfi fyrir rekstri á hverfissteypuverksmiðju og frauðplast og kassaverksmiðju að Völuteigi 25-31. Málið var áður kynnt á fundi þann 13. desember sl.
„Eftir umræðu um málið var gengið til atkvæða og var samþykkt að veita Borgarplasti starfsleyfi með atkvæðum 5 nefndarmanna en fulltrúi
B-lista í Mosfellsbæ greiddi atkvæði á móti".

Bókun: „Með vísan til 4. mgr. 24 gr. reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002 þar sem m.a. kemur fram að hæfileg fjarlægð skuli vera á milli mannabústaða og starfsemi sem valdið getur samsvarandi óþægindum eins og sú sem talin er upp í 1. mgr. Ekki liggur fyrir svo öruggt getur talist að ekki stafi lyktarmengun frá umræddu fyrirtæki og því sé ekki tryggt að íbúar nærliggjandi byggðar verði ekki fyrir óþægindum m.a. vegna lyktar frá starfseminni. Ekkert liggur fyrir um hvernig megi koma í veg fyrir lyktarmengun frá fyrirtækinu á þessu stigi og því getur fulltrúi B-listans ekki samþykkt starfsleyfið."
Framkvæmdastjóra var falið að semja starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina."

Mosfellsfréttir.is er undrandi á að nefndin skuli samþykkja starfsleyfi verksmiðjunnar svo nálægt íbúðabyggð sérstaklega þegar litið er til þess að starfsemin verður aðeins nokkurhundruð metra frá núverandi byggð og fyrirhugaðri byggð í Krikahverfi og Helgarfellshverfum.


23.janúar
Holræsagjöld hækka mest í Mosfellsbæ:

Álagningaprósentan vegna holræsagjalda stendur almennt í stað eða lækkar samkvæmt könnun ASÍ (sjá:www.asi.is/upload/files/alagning5.pdf).
Þegar tekið hefur verið tillit til hækkunar á fasteignamati er mesta hækkun á höfuðborgarsvæðinu af þeim sveitarfélögum sem birt hafa álagningaprósentu sína í Mosfellsbæ en krónutölu hækkun á holræsagjaldi á fjölbýli verður 30% og á sérbýli 35%.

23.janúar
Hvernig Mosfellsbæ vilt þú?

Laugardaginn sl. bauð Framsóknarfélag Mosfellsbæjar bæjarbúum til morgunverðarfundar  undir yfirskriftinni “Hvernig Mosfellsbæ vilt þú?” ágætis mæting var á fundinn og margt góðra skoðana og hugmynda komu fram. Stefnumótunarvinna vegna stefnuskrár fyrir komandi sveitastjórnarkosningar er hafin og verður henni haldið áfram n.k. laugardagsmorgna.









20.janúar
Bitist um hesthúsalóðir á höfuðborgarsvæðinu.
Hafnarfjarðarbær auglýsti fyrir skömmu lausar til umsóknar 14 lóðir fyrir hesthús við Kaplaskeið. Á fundi bæjarráðs voru lagðar fram 123 umsóknir og ljóst að bitist er um þær fáu lóðir sem eru til úthlutunar. Á vef Hafnarfjarðarbæjar má sjá nöfn þeirra sem sóttu um lóðirnar.
Í Mosfellsbæ eru engar hesthúsalóðir fáanlegar og að sögn þeirra sem sótt hafa um lóðir, eru svör bæjarins við þeim fyrirspurnum á þá leið að engar lóðir séu til.

19.janúar
Enn um hrakfallasögu fasteignaskatta

Meirihluti sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ lagði fram í morgun á fundi bæjarráðs enn nýja tillögu þá þriðju í röðinni um álagningarstofn fasteignaskatts eða 0,265%, en fyrsta tillagan var um 0,32% álagningu. Ljóst er að aðhald minnihlutans og könnun ASÍ nú nýverið hefur hrakið meirihlutinn áfram í þessu máli. Samþykkt var að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar, en hún þarf að halda aukafund um málið n.k. miðvikudag.

Fulltrúi framsóknarmanna í bæjarráði bókaði eftirfarandi á fundinum í morgun:
Fagna framkominni tillögu, hún er gleðiefni fyrir íbúa Mosfellsbæjar. Hún lýsir engu að síður vandræðagangi meirihluta sjálfstæðismanna þar sem hún er sú þriðja sem meirihlutinn kemur með vegna álagningu fasteignaskatta fyrir árið 2006. Minnihlutinn benti ítrekað á við seinni umræðu um fjárhagsáætlun ársins 2006 að tillaga um lækkun álagningarprósentu væri ekki nógu mikil og yrði því um verulega hækkun fasteignaskatta á milli ára.


19.janúar
ASÍ leiðréttir

ASÍ hefur nýverið leiðrétt á heimasíðu sinni upplýsingar um álagða fasteignaskatta í Mosfellsbæ úr 0,320%, sem var fyrsta tillaga meirihlutans, í 0,295%, en sú breyting var samþykkt við síðari umræðu fjárhagsáætlunar bæjarins og er þeirri leiðréttingu komið á framfæri hér. Engu síður er hækkun á fasteignasköttum í Mosfellsbæ veruleg eins og sjá má á vefnum þeirra. Sjá nýjustu fréttir af fasteignasköttum í Mosfellsbæ ofar á síðunni.
 

18.janúar
Fasteignaskattar hækka verulega.

Samkvæmt nýgerðri könnun ASÍ (sjá www.asi.is ) kemur fram að fasteignaskattar hækka um 15-20% í Mosfellsbæ og er með því mesta á landsvísu. Álagningaprósenta fasteignaskatta af íbúðarhúsnæði lækkaði í Mosfellsbæ úr 0,36 í 0,32 en á móti kemur að fasteignamat íbúða hækkaði mikið á síðastliðnu ári. Stofn til útreiknings á fasteignasköttum hækkar því um 15,56% á fjölbýli og 20% á sérbýli að meðaltali.

Framsóknarmenn bentu á í umræðu um fjárhagsáætlun að lækkun á stuðli væri ekki nóg. Tillaga minnihlutans var um óbreytta krónutölu á íbúð. Tillagan var felld með fjórum atkvæðum gegn þremur atkvæðum minnihlutans.


17.janúar

Hærri gjöld í Mosfellsbæ!

Samkvæmt nýgerðri könnun ASÍ kemur fram að Mosfellsbær og Garðabær er þau einu sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu sem hafa hækkað leikskólagjöldin, hjá öðrum standa þau í stað eða lækka.  Ef litið er einkum til forgangshópa á borð við einstæða foreldra og námsmenn þá hefur bilið milli hæstu og lægstu sveitarfélaganna aukist.

 

16.janúar
Skortur á dagvistun í Mosfellsbæ
Margir foreldrar í Mosfellsbæ fá ekki dagvistun í bæjarfélaginu en skortur á dagforeldrum er mikill sem og raunar er á öllu höfuðborgarsvæðinu. Foreldrar eiga víða í verulegum vandræðum, en Mosfellsbær er eitt fárra bæjarfélaga á höfðuborgarsvæðinu sem ekki bjóða upp á leikskóla fyrir börn að tveggja ára aldri. Margir foreldrar hafa þurft að leita með börnin til Reykjavíkur.  Niðurgreiðslur Mosfellsbæjar með því minnsta sem þekkist eins og sjá má á línuritinu hér að neðan.



 

6.janúar
Þrettándabrennuni aflýst
Þrettándabrenna Mosfellsbæjar 2006 hefur verið aflýst í dag vegna veðurs, áætlað að hafa hana á morgun kl. 17:00 ef veður leyfir, blysför leggur af stað frá Nóatúni.


5.janúar
Ásókn í lóðir

Mikil sprenging virðast vera í ásókn um lóðir í Mosfellsbæ, en yfirvöldum bæjarins hefur borist fjöldinn allur af umsóknum um byggingarlóðir nú síðustu vikur. Á þetta jafnt við umsóknir um lóðir undir íbúðarhús, atvinnu- eða iðnaðarhúsnæði. Lítið er um lausnir fyrir alla þessa aðila eins og sjá má í svörum bæjarráðs viku eftir viku.

4.janúar
Þrettándinn í Mosfellsbæ 2006

Hin árlega þrettándabrenna Mosfellsbæjar verður föstudaginn 6. janúar 2006.
Blysför leggur af stað frá Nóatúni kl. 20:00.
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur, fjöldasöngur undir stjórn Álafosskórsins.
Álfakóngur, Álfadrottning, Grýla, Leppalúði og þeirra hyski verða á svæðinu.

 

Glæsileg flugeldasýning!

Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar,
Leikfélag Mosfellssveitar,

Björgunarsveitin Kyndill og
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar