Eldir fréttir 2008
23.júní
Mikill
áhugi á hundarækt
Hundasýning
í reiðhöll Fáks í Víðidal
Helgina
28.-29. júní mæta um 571 hreinræktaðir hundar af 84 hundakynjum í dóm í
Reiðhöllinni í Víðidal og hefjast dómar kl. 9.00 árdegis báða dagana. Sýningar
félagsins hafa stækkað ár frá ári sem endurspeglar mikinn áhuga Íslendinga
á hundum og hreinræktun þeirra. Megintilgangur hundasýninga er að meta
hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig
í starfi sínu.
Fimm dómarar frá þremur löndum, Svíþjóð, Puerto Rico og Írlandi dæma
í fimm sýningarhringjum samtímis. Úrslit á sunnudegi hefjast milli 15 og 16
og kemur þá í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara.
Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og að þessu
sinni taka 31 ungmenni þátt í keppni ungra sýnenda á laugardeginum.
20.júní
Mosfellingar
eignast varaformann SUF
Ný
stjórn Sambands ungra framsóknarmanna sem kjörin var á sambandsþingi SUF 7.
og 8. júní sl. hittist í gær. Á fundinum var kjörin framkvæmdastjórn og
sitja þar Eggert Sólberg Jónsson varaformaður, Fanný Guðbjörg Jónsdóttir
gjaldkeri, Inga Guðrún Kristjánsdóttir ritari og Hlini Melsteð Jóngeirsson
ritstjóri ásamt Bryndísi Gunnlaugsdóttur sem kjörin var formaður á
sambandsþinginu.
Bryndís Gunnlaugsdóttir þriðja konan sem gegnir embætti formanns SUF en
áður höfðu Siv Friðleifsdóttir og Dagný Jónsdóttir verið formenn
sambandsins. Þá er Eggert Sólberg fyrsti varaformaður SUF úr Mosfellsbæ
samkvæmt heimildum Mosfellsfrétta.
20.júní
Endurskoðun
á reglum um bæjarlistamann
Bæjarstjórn
samþykkti tillögu Menningarmálanefndar um breytingu á 5. og 6. grein reglna
um val á bæjarlistamanni Mosfellsbæjar.
Breytingin gerir ráð fyrir því að Bæjarlistamaður hljóti allt að fjögurra
mánaða laun í stað þriggja samkvæmt efsta þrepi 122 fl. í kjarasamningi
STAMOS. Fjárhæðin er greidd í einu lagi fyrir hvern mánuð, án orlofsgreiðslu
eða annarra launatengdra gjalda. Ennfremur
gerir breytingin ráð fyrir því að úthlutun fari fram á bæjarhátíðinni
Í túninu heima.
20.júní
Gæsluvöllurinn
Njarðarholti
Búið
er að opna gæsluvöllinn í Njarðarholti og verður hann opinn í allt sumar
frá kl. 9:00 - 12:00 og 13:00-16:00.
Á gæsluvellinum gefst börnum tækifæri til þess að leika sér í öruggu
og skemmtilegu umhverfi undir eftirliti starfsfólks. Klukkustundin kostar
120 krónur.
19.júní
Steingrímur
Hermannsson 80 ára
Steingrímur
Hermannsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins verður áttræður
sunnudaginn 22. júní. Af því tilefni stendur Framsóknarflokkurinn fyrir málþingi
þann sama dag þar sem fjallað verður um Steingrím og stjórnmálaferil
hans, auk þess sem Steingrímur verður heiðraður með nokkrum tónlistaratriðum.
Málþingið verður haldið í Salnum í Kópavogi, sunnudaginn 22. júní frá
kl. 14-16.30. Að erindum loknum verður boðið til móttöku á sama stað:
Framsóknarmenn
og aðrir velunnarar Steingríms eru boðnir velkomnir til að heiðra þennan
fyrrum glæsta leiðtoga. Sjá dagskrá:
16.júní
Vel
heppnaður þjóðhátíðardagur í Mosfellsbæ
Veðrið
lék við bæjarbúa á þjóðhátíðardaginn í gær en fjölmargir tóku
þátt í vel heppnuðum hátíðarhöldum. Hátíðahöldin hófust með
guðþjónustu í Lágafellskirkju og rakti síðan hver viðburðurinn
annan. Boðið var upp á fjölbreytt skemmtiatriði og gátu
jafnt ungir sem aldnir fundið sér skemmtiatriði við hæfi. Þorri
og þura, fjallkonan, fjöllistafólk og töframenn allt setti þetta svip
sinn á bæjarlífið.
15.júní
Dagskrá
hátíðarhaldanna 
Kl.
11.00 Hátíðarguðsþjónusta í Lágafellskirkju
Ræðumaður: Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar
Einsöngur: Margrét Árnadóttir
Kirkjukór Lágafellssóknar leiðir safnaðarsöng
Organisti: Jónas Þórir
Prestur: Sr. Jón Þorsteinsson
Skátar standa heiðursvörð við kirkjudyr
Kl. 13.00 Dagskrá á nýju bæjartorgi
Hátíð sett.
Kl. 14.00 Dagskrá á Hlégarðssvæði
Kynnar verða álfabörnin Þorri og Þura. Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar tekur á móti skrúðgöngunni við hátíðarsvið. Kl. 16.00 Sterkasti maður Íslands
Keppt verður um titilinn Sterkasti maður Íslands á Hlégarðstúni
Kristinn Óskar Haraldsson og Stefán Sölvi á meðal keppenda
Kl. 20.00-22.00 Útidansleikur fjölskyldunnar
Eldhugar og fjöllistamenn. The Nellies. Bob Gillan og Ztrandverðirnir
Kaffisala
í Hlégarði í boði Handknattleiks- og fimleikadeilda Aftureldingar frá
kl. 14.00-17.00
Sölutjöld, andlitsmálun, tívolí, leikir, glens og gaman með félögum
úr Mosverjum. Afturelding verður með kynningu á starfsemi sinni.
13.júní
Veiðikeppni
fjölskyldunnar
Við Meðalfellsvatn í Kjós
Veiðikeppni
fjölskyldunnar verður haldin laugardaginn 14. júní 2008 dagskrá
hefst kl. 9.00 og lýkur kl. 16.00
Keppt
verður í flugu– og opnum flokki. Verðlaun verða veitt fyrir stærsta
fiskinn og flesta fiska í hverjum
flokki fyrir sig og er flokkaskipting eftirfarandi.
•
Barnaflokkur
0-12 ára
• Unglingaflokkur
13– 18 ára
• Fullorðinsflokkur
18 ára og eldri.
Skráning,
grill og verðlaunaafhending fer fram við bæinn Grjóteyri. Boðið verður
uppá pylsur og gos.
Aðgangur er ókeypis. Meira um veiðidaginn á www.kjos.is
12.júní
Chalumeaux-tríóið
spilar á Gljúfrasteini
Þeir
Sigurður Ingvi Snorrason, Kjartan Óskarsson og Rúnar Óskarsson mynda
saman Chalumeaux-tríóið, en þeir leika einungis á hljóðfæri í klarínettufjölskyldunni.
Tónleikarnir verða sunnudaginn 15. júní kl. 16:00 og er aðgangseyrir aðeins
500 krónur.
Á efnisskránni eru umritannir á verkum eftir Bach og Beethoven.
Chalumeaux-tríóið, sem dregur nafn sitt af forvera klarínettunnar, hefur
starfað með hléum í liðlega tuttugu ár. Á þessum árum hefur tríóið
leikið flest það sem skrifað hefur verið fyrir þrjú klarínettuhljóðfæri
og bera þar hæst tónverk Mozarts. Þá hafa mörg íslensk tónskáld
skrifað sérstaklega fyrir hópinn.
Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16,00
10.júní
MÚSMOS
tónleikar í kvosinni
Útitónleikar
Mús Mos verða haldnir í Álafoss-kvosinni laugardaginn 14. júní nk. frá
16.00-20.00. Mosfellskar hljómsveitir koma fram allt frá rappandi
hippsterum til harðra rokkara! Á staðnum verða seldar heitar pylsur á
vegum Varmársamtakana og allskyns góðgæði á vegum handboltadeildar
Aftureldingar.
Fram koma m.a. - The Nellies -Gummzter -Sleeps like an angry bear -Shogun -Bob
Gillan og Ztrandverðirnir -Shorty -Furry Strangers -Hreindís Ylva og félagar
og fleiri og fleiri!
Aðgangur ókeypis
10.júní
Blint
kaffihús
Ungmennadeild blindrafélagsins Ungblind ætlar að reka blint kaffihús frá
og með 17 júní n.k. til 20 júlí. Kaffihúsið verður staðsett í húsi
Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17. og verður opið alla virka daga frá
1100 til 1500.
Blint kaffihús felur í sér að allt er í svarta myrkri og á meðan þjóna
blind ungmenni til borðs fá gestirnir þá nasasjón af því hvernig er að
vera blindur.
Tekið
er við pöntunum fyrir hópa í hádegismat í síma 525-0034 eða
895-8582.
9.júní
Ársreikningur
2007 samþykkur
Framlög til fræðslu- og umhverfismála lækkuðu frá 2006
Seinni
umræða um ársreikning 2007 var til umræðu í bæjarstjórn á 492.fundi
4.júní sl.
Hér er bókun fulltrúa B-lista vegna ársreiknings Mosfellsbæjar árið
2007:
Afkoma A og B hluta Mosfellsbæjar árið 2007 var jákvæð um 542,9 millj.
en
söluhagnaður fastafjármuna og sala byggingarétta var á árinu 288
millj. eða um 53% af
rekstrarniðurstöðu A og B hluta.
Eftirtektarvert er að árið 2007 var hlutfall skatttekna sem ráðstafað
var til fræðslu- og umhverfismála lægra en árið 2006.
Fulltrúi B-listans tekur undir athugasemdir endurskoðenda ársreikningsins
um að taka rekstur þeirra B-hluta stofnana sem reknar hafa verið með
tapi til endurskoðunar og leita leiða til að snúa rekstri þeirra til jákvæðs
horfs.
Athygli vekur að gjaldfærð leiga af íþróttamannvirkjum við Lækjarhlíð
á árinu 2007 á tímabilinu 1/3 - 31/12 var rúmar 126 milljónir en það
jafngildir að sveitarfélagið greiði u.þ.b. 168 milljónir á ári eða
sem svarar 4,8 milljörðum á næstu 29 árum í leigu af íþróttamiðstöðinni.
Jákvætt er að nú er í fyrsta skipti gerð grein fyrir skuldbindingum
utan efnahagsreiknings eins og Framsóknarmenn hafa bent á undanfarin ár að
eðlilegt sé.
28.maí
Árleg
vorsýning Fimleikadeildar Aftureldingar
Árleg vorsýning Fimleikadeildar Aftureldingar veður haldin föstudaginn
30.maí næstkomandi frá kl 18:30 – 20:00 í sal 3 í íþrótthúsinu að
Varmá. Sýningar deildarinnar hafa fest sig í sessi í bæjarfélaginu og
verðu hún glæsileg að vanda.
Bæjarbúar
eru hvattir til þess að koma og sjá sívaxandi fimleikahæfileika
Mosfellinga.
27.maí
Skít
dælt í Köldukvísl.
Frétt af fréttavef dv.is
Umtalsverðu magni af keytu og skít var sturtað út í Köldukvísl í
Mosfellsdal seint á laugardagskvöld með þeim afleiðingum að mikið af
fiski í ánni drapst. Í gærmorgun urðu íbúar í sveitinni varir við að
dauðir silungar og síli lágu eins og hráviði við bakka árinnar.
Enginn hefur enn gengist við því að hafa sturtað skítnum og keytunni
ofan í ánna, en samkvæmt heimildum DV, hafa nágrannaerjur í
Mosfellsdalnum staðið um nokkurt skeið. Enginn þeirra sem DV hafði
samband við, vildi tjá sig um málið. Ljóst má þó vera á ummerkjum að
losunin hefur haft mjög slæm áhrif á lífríkið á staðnum. Íbúar
í dalnum eru mjög ósáttir við að náttúrunni sé sýnd slík vanvirðing.
Nágrannaerjur hafa verið í nokkurn tíma og vill enginn gangast við því
að hafa sturtað úrganginum í ánna.
26.maí
Stofutónleikaröð
Gljúfrasteins hefst á sunnudaginn
Eins og undanfarin sumur verða tónleikar í stofunni á Gljúfrasteini. Tónleikarnir
verða alla sunnudaga og hefjast klukkan 16.00. Fjölbreyttur hópur tónlistarmanna
mun leika á stofutónleikaröðinni en það er Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari
og Páll Eyjólfsson gítarleikari sem ríða á vaðið á sunnudaginn
kemur.
Það myndast alltaf sérstök stemmning á stofutónleikunum, enda umhverfið
og andrúmsloftið sérstaklega skemmtilegt.
Dagskrá sumarsins er eftirfarandi:
1. júní
Laufey Sigurðardóttir, fiðla og Páll Eyjólfsson,
gítar
8. júní
Áshildur Haraldsdóttir, flauta og Katie Buckley,
harpa
15. júní
Chalumeaux tríóið - Sigurður Ingvi Snorrason, Kjartan Óskarsson og Óskar
Ingólfsson
22. júní Martin Frewer, fiðla og Steingrímur Þórhallsson,
píanó
29. júní Dean Ferrell og Sigurður Halldórsson
syngja og leika á ýmsa strengi
6. júlí Kristjana Stefánsd. söngur,
Agnar Már Magnús.píanó og Helga Björg Ágústsd.selló
13. júlí Arnhildur Valgarðsdóttir og
Ástríður Haraldsdóttir, fjórhent á píanó
20. júlí Hallfríður Ólafsdóttir og
Magnea Árnadóttir, flautur
27. júlí Guðrún Ingimarsdóttir, söngur
og Jónína Erna Arnardóttir, píanó
3. ágúst Ó Ó Ingibjörg - Ingibjörg Guðjónsdóttir,
Óskar Guðjónsson og Ómar Guðjónsson
10. ágúst Nordic Affect - Halla Steinunn Stefánsdóttir,
barokk fiðla, Georgia Browne, barokk þverflauta
og Hanna Loftsdóttir, barokk selló
17. ágúst Hjörleifur Valsson, fiðla
24. ágúst Steinunn Skjenstad, söngur og Solmund Nystabakk, gítar
31. ágúst Gunnar Kvaran, selló
Aðgangseyrir er 500 kr. og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
26.maí
Kirkjureið
hestamanna

Hestamenn
í Mosfellsbæ fóru ríðandi til árlegrar messu hestamanna í
Mosfellskirkju prestur var Sr.Ragnheiður Jónsdóttir. Hestamenn fjölmenntu
til kirkju og var fullt var út úr dyrum. Messan hófst kl. 14.00 Guðni
Ágústsson flutti ávarp og kom víða við m.a. vitnaði hann í Egilssögu
og Innansveitarkroniku Halldórs Laxness lagði áherslu á aukna samveru fjölskyldunnar
auk annars. Karlakórinn Stefnir söng. Eftir messu voru kirkjugestir boðnir
í kaffi í félagsheimili Harðar en kaffihlaðborðið var í boði félagsins.
Segja má að þessi árlegi siður njóti sífellt meiri vinsælda.
23.maí
Ekki
næg rök fyrir Tengibraut út í Leirvogstungu!
Mislæg
gatnamót væntanleg á vesturlandsveg er anna ættu allri umferð.
Marteinn
Magnússon fulltrúi Framsóknarflokksins í bæjarstjórn lagðist gegn því
að aðalskipulag Tunguvegar færi í auglýsingu.
Að sögn Marteins er mikil andstaða meðal bæjarbúa og hestamanna við
fyrirhugaða tengibraut. Skiplagið er illa ígrundað, skipulagið sýnir
veginn aðeins að Leirvogstungu en ekki er gert grein fyrir hvernig hann
muni liggja vestan svæðisins og því tillagan gölluð að vissu leyti.
Í umhverfisskýrslu og samanburði þeirra tveggja kosta er ljóst að ef
litið er til umhverfisins og þess verðmæta útivistasvæðis sem
vegurinn fer yfir er betra að hætta við þessa veglagningu og horfa
frekar til annarra kosta.
Bókun
fulltrúa B-lista vegna Tunguvegar
Það
er álit fulltrúa B-listans að lagning tengibrautar yfir eitt helst útivistarsvæði
Mosfellinga sé ekki álitleg lausn á tengingu Leirvogstunguhverfisins við
miðbæ Mosfellsbæjar. Fyrirhuguð tengibraut mun auka umferð um Skeiðholt
og Skólabraut og má ætla að aukin umferð um þessar götur auki líkurnar
á umferðaróhöppum. Umferðarþunginn við og framhjá skólum bæjarins
er nú þegar of mikill og ekki á bætandi.
Það er álit fulltrúa B-listans að ekki liggi nægjanleg rök
fyrir lagningu Tunguvegar sem akvegar og skynsamlegra væri að leita
annarra leiða í þessu máli.
Því greiði ég atkvæði gegn því að aðalskipulagtillaga vegna
Tunguvegar fari í auglýsingu.
23.maí
Ársreikningur
Mosfellsbæjar fyrir árið 2007
543
milljón króna tekjuafgangur Mosfellsbæjar
Ársreikningur
Mosfellsbæjar fyrir árið 2007 var kynntur á 491. fundi bæjarstjórnar
í dag miðvikudaginn 21. maí 2008 og honum vísað til seinni umræðu sem
er fyrirhuguð
er 4. júní.
Rekstur sveitarfélagsins á árinu 2007 gekk vel. Rekstrarniðurstaða A og
B
árinu
2002.
22.maí
Samræður
um Vefarann mikla
Sunnudaginn
25. maí. kl. 16:00 mun Kristín
Ómarsdóttir
rithöfundur stýra samræðum um Vefarann mikla frá Kasmír.
Vefarinn mikli frá Kasmír kom út árið 1927 og er talinn marka upphaf íslenskra
nútímabókmennta.
Bókin hlaut mikið lof, og m.a. sagði Kristján
Albertsson í frægum ritdómi í tímaritinu Vöku:
„Loksins, loksins tilkomumikið skáldverk, sem rís eins og hamraborg upp
úr flatneskju íslenzkrar
ljóða- og sagnagerðar síðustu ára! Ísland hefir eignazt nýtt stórskáld
- það er blátt áfram skylda vor að viðurkenna það með fögnuði."
Vefarinn mikli segir frá Steini Elliða, sem er á 19. ári þegar sagan
hefst, og greinir frá nokkrum árum í lífi hans.
Hann flögrar milli ólíkra lífsskoðana og má segja að hann velkist
milli þriggja meginstefna: kaþólsku, kommúnisma og ofurmennishugsjónar
Friedrichs Nietzsche.
Aðgangur
er ókeypis og allir velkomnir á meðan að húsrúm leyfir.
8.maí
Framhaldsaðalfundur
Varmársamtakanna er í kvöld.
7
gefa kost á sér til stjórnarsetu í Varmársamtökunum
Framhaldsaðalfundur Varmársamtakanna fer fram í kvöld í Listasal
Mosfellsbæjar í Kjarna kl. 20.30.
Á dagskrá er m.a. stjórnarkosning og lagabreytingar. Sjö einstaklingar
gefa kost á sér til stjórnarsetu. Það eru þau: Freyja Lárusdóttir,
Grétar Snær Hjartarson, Gunnlaugur Ólafsson, Kolfinna Baldvinsdóttir, Páll
Kristjánsson, Ólafur Ragnarsson og Sigrún Pálsdóttir.
Berglind Björgúlfsdóttir, Agla Hendriksdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir
gefa ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa.
Varmársamtökin voru stofnuð 8. maí 2006 og eiga því samtökin tveggja
ára afmæli í dag.
Á fundinum mun fulltrúi Mosfellsbæjar kynna drög að nýju miðbæjarskipulagi.
Frekari upplýsingar er að finna á: www.varmarsamtokin.blog.is
6.maí
Hækkun
húsaleigubóta
Sérstakar
húsaleigubætur hækka einnig.
Íslenska ríkið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa gert með sér
samkomulag um ýmiss konar aðgerðir í húsnæðismálum og munu húsaleigubætur
hækka um næstu mánaðamót. Eftirfarandi tafla sýnir hækkun bótanna.
Samkomulagið
gerir einnig ráð fyrir að ríkið komi nú í fyrsta skipti að greiðslu
sérstakra húsaleigubóta. Sérstöku húsaleigubæturnar hækka frá 1.
apríl og geta að húsaleigubótum meðtöldum orðið að hámarki 70.000
krónur í stað 50.000 króna áður. Þess má geta að Mosfellsbær hefur
hafið greiðslur á sérstökum húsaleigubótum.
Ríkissjóður greiðir 60% af heildarkostnaði vegna hækkunar húsaleigubóta
og sérstakra húsaleigubóta og sveitarfélögin 40%.
Meira........
30.apríl
Seðlabankinn
gagnrýnir efnahagsstjórn ríkisstjórnar –
svarbréf bankans
við fyrirspurn formanns Framsóknarflokksins
Þann
20. febrúar s.l. sendi Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins,
Seðlabanka Íslands, bréf þar sem óskað var svara við nokkrum
spurningum sem varða efnahagsmál þjóðarinnar og afkomu ríkissjóðs,
auk álits á ýmsum málum sem þau varða.
Bankinn svaraði með bréfi
dagsettu 18. apríl s.l. og er það undirritað af Davíð Oddssyni,
formanni bankastjórnar og Eiríki Guðnasyni bankastjóra.
Þar
kemur fram að það er álit Seðlabankans að aðhald í opinberum fjármálum
hefði þurfa að vera töluvert meira en reyndin varð því innlend og alþjóðleg
fjármálaleg skilyrði hafi víðtæk áhrif á tekjuöflun ríkissjóðs
og forsendur sem lagðar voru til grundvallar fjárlögum hafi breyst mikið.
Reyndar er það sérstaklega tekið fram að upplýsingar sem lágu fyrir
þegar fjárlög voru samþykkt hafi bent til þess að óbreytt aðhald hefði
verið hæfilegt. Raunin varð hins vegar um 20% útgjaldaaukning á fjárlögum
milli ára og þar sem horfur hafa versnað enn frekar má búast við að
samdráttur í efnahagslífinu muni veikja tekjur ríkissjóðs verulega og
afkoman kunni að versna meira en ætla má við fyrstu sýn. Seðlabankinn
tekur einnig fram í tvígang í svörum sínum að hefðbundnar aðgerðir
sem notaðar eru til að meta undirliggjandi afkomu ríkissjóðs vanmeti áhrif
hagsveiflunnar og því sýni það reiknimódel sem fjármálaráðuneytið
leggur til grundvallar sínum útreikningum ekki allan sannleikann.
Meira....
30.apríl
Tökum
þetta bara viku fyrir viku
Hannes Sigurgeirsson,
hjá Helgafellsbyggingum ehf
Það
hefði sjálfsagt orðið hraðari uppbygging væri ástandið í efnahagsmálunum
betra," segir Hannes Sigurgeirsson, hjá Helgafellsbyggingum ehf.
Fyrirtækið hefur skipulagt og reisir íbúðahverfi í Helgafellslandi í
Mosfellsbæ, í útjaðri höfuðborgarsvæðisins.
„Það er svolítil lægð í sölu," segir Hannes um lóðirnar í
hverfinu, en það komi ekki að sök, þar sem menn hafi frekar verið á
undan áætlun í sölu en hitt. „Það er ekki stopp, en það er hægara
núna."
Til stendur að reisa yfir eitt þúsund íbúðir, í einbýli, rað-, par-
og fjölbýlishúsum í hverfinu, í nokkrum áföngum. Frá þessu segir í
umfjöllun á www.visir.is "markaðurinn"
í umfjöllun um byggingarmarkaðinn.
29.apríl
Ævintýragarður
í Ullarnesbrekkum
Fjölskyldunefnd
var með til umfjöllunar drög að forsögn um fyrirhugaðan ævintýragarð
í Ullarnesbrekkum en bæjarstjórn tók ákvörðun um að stofna garðinn
í tilefni að 20ár afmæli Mosfellsbæjar á 471 fundi bæjarstjórnar
Mosfellsbæjar sem jafnframt var hátíðarfundur, fimmtudaginn 9. águst
2007.
Bókun nefndarinnar:
Fjölskyldunefnd leggur áherslu á að börnum verði gefinn kostur á að
láta í ljós hugmyndir sínar um ævintýragarðinn. Ennfremur leggur fjölskyldunefnd
áherslu á að aðgengi fyrir alla verði tryggt að garðinum.
Fulltrúi B-lista leggst gegn því að aðkoma ökutækja verði um
Tunguveg og leggur til að leitað verði annarra lausna til þess að
tryggja gott aðgengi að garðinum. Hringtorgið við Vesturlandsveg ætti
að anna akandi umferð en lagt er til að garðurinn verði tengdur öðrum
íbúðahverfum með hjólreiða-,reið- og göngustígum.
Fulltrúar meirihluta leggja áherslu á gott aðgengi að garðinum og beðið
verði eftir hugmyndum um nánari útfærslu frá fagaðilum vegna skipulags
á svæðinu
28.apríl
Náttúra
Herdísar...
Grein Óðins Péturs:
Í
síðasta blaði Mosfellings ritaði Herdís bæjarfulltrúi um bókun framsóknarmanna
varðandi tengingu Skeiðholts og Tunguvegar.
Þegar
fólk tekur að sér að verða bæjarfulltrúar þá er það krafa í nútíma
þjóðfélagi að hlustað sé á rök og álit þeirra sem ekki eru ávalt
sammála yfirvaldinu þó svo að framkvæmdavaldið sé hjá valdhöfum.
Í
sínum pólitíska rétttrúnaði og einfeldni pirrast Herdís að við
framsóknarmenn erum ekki alveg sannfærðir um tengiveg frá Skeiðholti að
Leirvogstungu. Herdís vill meina að fólk misskilji oft það sem yfirvöld
eru að framkvæma reyna að verja náttúruna vegna einkahagsmuna. Við
gætum skrifað margar blaðsíður um eiginhagsmuni þeirra sem stjórna bænum
en þessi grein snýst ekki um það heldur að sveitastjórnarmaður leyfir
sér að taka allt úr samhengi varðandi bókun framsóknarmanna. Einfeldni
Herdísar er með eindæmum og ætti hún að lesa aðeins betur hvað
stendur í bókunni en ekki að reyna að líkja saman hvað má gera og hvað
ekki má gera. Staðreyndin er: að umferð mun aukast um Skeiðholt til ama
fyrir hverfið, umferð við Lágafellsskóla mun líka aukast en þar lofuðu
sjálfstæðismenn göngum til þess að bæta öryggi fyrir nemendur og aðra
sem þurfa að fara yfir veginn.
Meira.....
25.apríl
Stofuspjall
á Gljúfrasteini sunnudaginn 27. apríl 2008
Sumarhúsasyndrómið:
Bjartur í Sumarhúsum og gremjan í samfélaginu
Eins og titillinn ber með sér er það bókin Sjálfstætt fólk sem er
verk mánaðarins á Gljúfrasteini að þessu sinni. Einar Már Guðmundsson
mun stjórna spjallinu sunnudaginn 27. apríl í stofunni, en þetta er ekki
í fyrsta skipti sem hann fjallar um bókina. Bjartur í Sumarhúsum kemur
mikið við sögu í grein hans sem nefnist Hin
frjálsa frásögn sem birtist í Skírni tímariti hins íslenska bókmenntafélags
vorið 2007. Það verður því fróðlegt að heyra hvað Einar Már hefur
að segja um bókina sem kom út á árunum 1934-35 og er líklega
sú bók Halldórs Laxness sem borið hefur hróður hans víðast.
Spjallið hefst kl. 16 og er ókeypis aðgangur.
24.apríl
Svik
við aldraða og öryrkja
Guðni Ágústsson skrifar:
Það
voru mikil tímamót í júní 2006 þegar svokölluð Ásmundarnefnd skilaði
af sér tillögum og sáttagjörð í málefnum aldraðra og öryrkja hvað
bætur almannatrygginga varðar. Halldór Ásgrímsson fyrrum forsætisráðherra
hafði skipað þessa nefnd en árum saman ríktu deilur milli ríkisvaldsins
og þessara hópa. Geir H. Haarde var nýtekinn við starfi forsætisráðherra
um þetta leyti.
Það
var hátíðleg stund í ráðherrabústaðnum þegar nefndin skilaði tillögum
sínum og ríkisstjórnin þáverandi féllst á aðferðafræði hennar en
samkomulagið var í meginatriðum það að miðað var við að lægstu bætur
væru miðaðar við dagvinnutryggingu launafólks, sem eru hin raunverulegu
lágmarkslaun í landinu en þannig urðu bætur jafnháar og raunveruleg
laun en ekki miðað við launataxta. Nú er hins vegar miðað við lægsta
taxta verkafólks sem gefur ekki raunsanna mynd af tekjum á vinnumarkaði.
Hækkun á lífeyri nú er 7,3% og miklar líkur eru á að verðbólga
éti hana upp til agna og vel það. Bent hefur verið á að elli- og örorkulífeyrisþegar
vantar 10.000 kr. upp á sínar tekjur mánaðarlega til að fyrra viðmið
náist.
Meira:
19.apríl
Greiðslur drógust
Greiðsla á styrkir til foreldra ungra barna (heimgreiðslur) sem greiða
átti þann 10. apríl sl. drógust en voru greiddir út föstudaginn 18. apríl.
Nokkur óánægja var meðal foreldra sem reitt höfðu sig á að greiðslurnar yrðu
afgreiddar á réttum tíma.
Fulltrúi Mosfellsbæjar hefur beðist er velvirðingar á þessum töfum og þeim
óþægindum sem þetta kann að hafa haft í för með sér.
14.apríl
Heilsudagurinn
Heilsudagurinn
laugardaginn 19.apríl n.k. milli kl:12:14
Fjölskyldu- og skemmtihlaup Eldingar 3 og 5 km. Allir fá þátttökupening
hlaupið hefst kl: 12:15 við vallarhúsið forskráning
í íþróttahúsinu og Eldingu, 500 kr. þátttökugjald frítt fyrir leik- og grunnskólabörn.
Guðrún
Adólfsdóttir næringarráðgjafi frá Sýni verður á staðnum milli 12 og14 og
svara öllum spurningum er tengjast næringu munið að allar spurningar eru
leyfðar.
Hjúkrunarfræðingar frá heilsugæslunni verður
á staðnum. Upplýsingabásar!
- Blóðþrýstingsmælingar fyrir þá sem þess óska
- Hæðamælingar og fleira skemmtilegt fyrir börnin
Hoppkastali og áhaldahringur verður í íþróttahúsinu.
Stýrihópur verkefnisins „Allt hefur áhrif – einkum við sjálf“ stendur
fyrir viðburðinum.
11.apríl
Er
Mosfellsbær fjölskylduvænt bæjarfélag?
Nokkur
umræða hefur verið um niðurgreiðslur sveitarfélaga vegna daggæslu hjá
dagmæðrum upp á síðkastið. Það hefur vakið athygli Mosfellsfrétta að
samanburður á styrk til fjölskyldna ungra barna vegna niðurgreiðslan til
dagmæðra hefur verið Mosfellsbæ afar óhagstæður og í ljósi þessa er
taflan hér að neðan birt lesendum til upplýsinga.
Í
Mosfellsbæ eru 17 starfandi dagmæður og samkvæmt upplýsingum er verð þeirra
nokkuð misjafnt en áætlað meðalverð er 72000 fyrir 8 stunda vistun með fæði
og bleyjum.
Þann
greiða foreldrar í Mosfellsbæ 47,000.kr fyrir mánuðinn miðað við
25000.kr niðurgreiðslu á meðan foreldrar á Álftanesi greiddu 22,000.kr miðað
við 50,000kr niðurgreiðslu og sama meðalverð fyrir 8.stunda vistun.
Ef
skoðaðir eru forgangshópar kemur jafnframt í ljós að Kópavogur og Reykjavík
flokka foreldra þar sem annað foreldrið er í námi í forgangshóp og fá því
þessir foreldrar hærri niðurgreiðslu frá bæjarfélaginu.
Það
er því augljóst að ef miðað er við þessar upplýsingar þá getur
Mosfellsbær varla talist fjölskylduvænn.
9.apríl
Hugmyndum
að aðkoma í ævintýragarð mótmælt.
Á
68,fundi atvinnu- og ferðamalanefndar Mosfellsbæjar var lagt fram
minnisblað skipulags- og byggingarnefndar. Í bókun fundargerð
nefndarinnar segir “Atvinnu- og ferðamálanefnd lýsir yfir ánægju með
framlagt minnisblað og marga góða punkta sem þar er að finna og leggur
til að leitað verði til íbúa og félagasamtaka bæjarins með góðar
hugmyndir um útfærslu garðsins.”
Bókun fulltrúa B-lista
við hugmyndum að aðkoma í fyrirhugaðan ævintýragarð verði um
Tunguveg er eftirfarandi:
“Fulltrúi B-lista leggst gegn því að aðkoma ökutækja verði um
Tunguveg og leggur til að leitað verði annarra lausna til þess að
tryggja gott aðgengi að garðinum. Hringtorgið við Vesturlandsveg ætti
að anna akandi umferð en lagt er til að garðurinn verði tengdur öðrum
íbúðahverfum með hjólreiða-, reið- og göngustígum.”
8.apríl
Umhverfisskýrsla
vegna Tunguvegar kynnt í umhverfisnefnd
Í
fundargerð umhverfisnefndar Mosfellsbæjar frá 21.febrúar segir að Hrund
Skarphéðinsdóttir hafi mætti á fundinn og kynnti umhverfisskýrslur
fyrir Tunguveg.
í fundargerðinni er að finna bókun fulltrúa B-lista
í nefndinni.
Bókun:
Ljóst er að stækkun Mosfellsbæjar kemur til með að hafa áhrif á náttúru
og viðkvæm svæði í sveitarfélaginu og þess vegna ber að fara með
meiri nærgætni og hafa umhverfisjónarmið að leiðarljósi fyrir allar
framtíðar vegaframkvæmdir í Mosfellsbæ.
Með þessari framkvæmd er farið verulega á skjön við umhverfissjónarmið
þegar hugsað er til Köldukvíslar og Varmár. Er til dæmis vitað um áhrif
tjöru og salts á fiskgengd í þessum ám ?
Skerðing verður á útivistarsvæði Mosfellinga og mun umferðarþungi
raska þessu til muna þar sem þetta svæði verður skorið í sundur með
tilkomu vegarins.
Umferðarþungi við skólamannvirki og íþróttamannvirki eykst verulega
og mun skapa svipað ástand eins og við Lágafellsskóla.
Framkvæmd þessi þrengir verulega að íþróttastarfssemi hestamanna og
e.t.v stækkun á hesthúsahverfinu.
Ágætis byggingarsvæði er tekið undir veg og útilokar alla framtíðar
uppbyggingu á þessu svæði.
Umferð inn í hverfið þyngist verulega, sem veldur bæði meiri mengun og
hættu fyrir gangandi vegfarendur svo ekki sé talað um börnin sem sækja
skólann og íþróttasvæðið að Varmá.
Umferð um Skeiðholt eykst verulega með tilheyrandi hættum.
Umferð framhjá Lágafellsskóla mun aukast og er ansi þung fyrir.
Hönnun hringtorgs við Vesturlandveg ætti alveg að anna allri umferð frá
Leirvogstungu og þess vegna ekki ástæða til að framkvæma þennan gjörning.
Í þess stað væri hægt að tengja Leirvogstungu með hjólreiðastígum
og göngustígum.
Hefja mætti skógrækt á þessu svæði sem væri kostur fyrir útiveru bæjarbúa.
Það myndi til dæmis engum detta í hug að leggja veg gegnum Fossvogsdal
í Reykjavík!
Það er áhyggjuefni hversu bæjaryfirvöld eru föst í hugsun þegar
kemur að umhverfisvænum framkvæmdum og tilliti við náttúruna.
27.mars
Styrkir til fjölskyldna
eins árs barna
Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu bæjarráðs um styrkir til fjölskyldna
eins árs barna fram að leikskólavist.
Bókun bæjarstjórnar:
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar bregst við óskum
foreldra eins til tveggja ára barna um greiðslur, til að mæta kostnaði
við umönnun þeirra. Samþykkt er greiðsla til allra foreldra, óháð því
hvort þeir nýta sér þjónusta sveitarfélags, einkaaðila eins og
dagforeldris eða annast barn sitt sjálfir. Með þessu móti njóta
foreldrar barna á fyrrgreindum aldri jafnræðis og tekið er undir þau
mikilvægu sjónarmið að börnin njóti lengur samvista við foreldra sína.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkir jafnframt að beina tilmælum til ríkisstjórnar
Íslands um að fram fari endurskoðun á lögum um fæðingarorlof þannig
að fæðingarorlofið verði lengt úr níu mánuðum í eitt ár.
26.mars
Yfirgefið húsnæði
í miðbæ Mosfellsbæjar
Nú
þegar framkvæmdir eru að hefjast við miðbæjartorg og þar með fegrun
miðbæjarsvæðisins vekur athygli sóðalegt húsnæði sem áður hýsti verslun
Nóatúns.
Eins og sjá má á myndinni hefur verið neglt fyrir hurðir og glugga en
eitthvað hefur verið um að börn og unglingar hafi brotist þarna inn. Það er
því ljóst að yfirgefin hús eru víðar vandamál en í Reykjavík
26.mars
Framkvæmdir hafnar
við miðbæjartorg.
Framkvæmdir
eru nú að hefjast við miðbæjartorg við Þverholt. Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum 6. mars sl. að heimila tæknisviði að semja um jarðvinnu án útboðs og
að bjóða út verkið við uppbyggingu miðbæjartorgsins út að öðru leyti.
Torgið verður um 1800 m² að stærð áætlað er að framkvæmdum ljúki í maí 2008.
Á torginu verður listaverk Kristins Hrafnssonar sem unnið er í tengslum við
100 ára afmæli hitaveitu á Íslandi, í aðalhlutverki.
26.mars
Stjórn KSSV í
heimsókn í Mosfellsbæ
Stjórn
Kjördæmissambands Framsóknarmanna í SV kjördæmi heimsækir Mosfellinga
á laugardaginn 29.mars. Fundurinn verður í sal framsóknarmanna við
Háholt 14 í Mosfellsbæ og hefst kl. 10.30. Kaffi og með því.
Stjórn
Framsóknarfélags Mosfellsbæjar.
14.mars
Atlantsolía opnaði formlega í dag!
Atlantsolía
opnaði í dag bensínstöð sína í Mosfellsbæ en hún er 15. bensínstöð
Atlantsolíu.
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar opnaði stöðina formlega klukkan 15.30
skólahljómsveit Mosfellsbæjar lék nokkur lög að þessu tilefni.
Stöðin var rúma 4 mánuði í byggingu en það var Rein hf. sem sá um verklegar
framkvæmdir, VGK Hönnun sá um eftirlitsþátt og Teiknistofan Tröð sá um
hönnun stöðvarinnar.
Það er ánægjulegt frá því að segja að hluti ágóða af sölu fyrsta mánuðinn
mun ganga til styrktar unglingastarfi UMFA-Aftureldingar
14.mars
Moto Mos fær svæði undir Mótorcrossbraut
Bæjarráð
hefur heimilað bæjarstjóra að ganga frá samningi við Moto-Mos um afnot af
landsvæði til akstursíþrótta. Samningurinn er til fimm ára og verður
skipulag svæðisins unnið í samstarfi við Mosfellsbæ, sérstaklega
útfærsluatriði er varða hljóðvist, útlit, aðkomu o.fl.
Í staðinn fyrir afnot landssvæðisins mun MotoMos standa fyrir öflugu
fræðslu- og kynningarsamstarfi, m.a. um:
- að akstur mótorhjóla sé bannaður á göngu- og reiðstígum bæjarfélagsins.
- að sporna gegn utanvegaakstri mótorhjóla og sömuleiðis akstri innanbæjar á
torfæruskráðum hjólum.
- að setja reglur sem banna akstur á vélhjólum, með torfæruskráningu, til og
frá aksturssvæðinu. Slík hjól skulu flutt á flutningstækjum.
Þetta kemur fram í Mosfelling sem kom út í dag.
12.mars
Atlantsolía opnar í Mosfellsbæ.
Fátt
virðist að vanbúnaði til að Atlantsolía geti opnað sjálfsafgreiðslu sína í
Mosfellsbæ. Bensínstöðin er staðsett í Krikahverfi á móts við gatnamót
Jónsteigs,Stórakrika og Reykjavegar. Staðsetningin gerir stöðina ágætan kost
fyrir bæjarbúa svo og þá sem eiga leið um Vesturlandsveg. Nú er bara að sjá
hvort Atlantsolía veit N1 og Olís sem fyrir eru í Mosfellsbæ verðuga
verðsamkeppni Mosfellingum til hagsbóta.
10.mars
Mánudagsfundur
með Óskari Bergssyni í kvöld.
Fundur
með Óskari Bergssyni borgarfulltrúa í kvöld, mánudaginn 10.03
kl.20.00. Óskar ræðir um stjórnmálaviðhorfið í borginni, samgöngumál
og önnur mál.
Fundurinn
byrjar kl. 20,00 og verður haldinn í sal Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
við Háholt 14, Mosfellsbæ.
Allir
velkomnir.
Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar.
10.mars
Afturelding
er Íslandsmeistari í hópfimleikum
Afturelding
er Íslandsmeistari í hópfimleikum en P-2 elsta keppnislið deildarinnar
hreppti Íslandsmeistaratitilinn um síðustu helgi. Einungis 10 stigahæstu
lið landsins náðu þeim árangri og var samkeppnin gríðarlega hörð.
Þrátt fyrir ungan aldur eru þessar stelpur því komnar á
afreksmannastigið þó liðið sé aðeins á aldrinum 11-16 ára. Þær
munu hér eftir keppa í fullorðinsflokki þar sem íslenskt afreksfólk og
fyrrum landsliðsfólk þreytir keppni. Að baki þessum sigri liggur metnaður
barnanna og þjálfara þeirra, Oddnýjar Þóru Logadóttur, stuðningur bæjarfélags
og fyrirtækja að ógleymdri stjórn og foreldrafélagi í gegnum árin.
Fimleikadeildin
er ekki orðin 10 ára en er þegar farin að veita stórveldunum í nágranna-sveitarfélögunum
Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði harða samkeppni. Í fimleikaheiminum
er víða talað um kraftinn í Mosfellsbæ en einstakt er að deild nái
svona langt á svo skömmum tíma. Keppnislið deildarinnar eru þrjú en þau
eru ávallt meðal efstu liða á landinu í hverri keppni. Yngra keppnisliðið,
P-1, fer aldrei tómhent heim af mótum, vinnur gull og silfur til skiptis
og er gríðarlega sterkt lið. Einnig á deildin einstaklega efnilegar stúlkur
á aldrinum 8-10 ára en þær hófu keppni í vetur.
27.febrúar
Alþjóðleg
hundasýning Hundaræktarfélags Íslands
Alþjóðleg
hundasýning Hundaræktarfélags Íslands verður haldinn 1.-2. mars n.k. í
reiðhöll Fáks í Víðidal. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Hundaræktarfélags Íslands, www.hrfi.is
Mynd af besta hundi októbersýningar 2007, Þýska fjárhundinum ISW-07 BH
SCHH1 Gildewangen's Istan ásamt sænska dómaranum Kenneth Edh, Gunnlaugi
Valtýssyni, Elínu Þóru Eiríksdóttur, Hjördísi H. Ágústsdóttur sem
sýndi hann til sigurs og Jónu Th. Viðarsdóttur formanni HRFÍ. Ljósmyndari:
Johan Frick-Meijer
22.
febrúar
Guðni
Ágústsson óskar svara!
Frétta af ruv.is
Guðni
Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur skrifað Seðlabankanum
bréf þar sem hann óskar eftir hagfræðilegum svörum um áhrif nýlokinna
kjarasamninga og þess hvort Seðlabankinn telji ríkisstjórnina hafa gengið
nógu langt til að draga úr þenslu í samfélaginu
Í
bréfi Guðna til seðlabankastjóra, Davíðs Oddssonar, er óskað hagfræðilegra
svara við sex spurningum. Í bréfinu er vísað til lagalegrar skyldu
bankans að veita aðilum vinnumarkaðarins og stjórnmálaflokkum, sem eiga
fulltrúa á Alþingi, í té upplýsingar og annast fyrir þá hagfræðilegar
athuganir eftir því sem um semst.
Spurt
er um hver áhrif breytinga á fjármálamörkuðum hérlendis og erlendis
hafi á tekjuöflun ríkisins. Hver áhrif nýlokinna kjarasamninga séu á
þróun efnahagslífsins og tekjuöflun ríkisins. Guðni spyr einnig hvaða
áhrif tillögur ríkisstjórnarinnar til að liðka fyrir í kjaramálum
hafi á þróun efnahagslífisins, ríkisútgjöld og tekjuöflun ríkisins.
Óskað
er álits Seðlabankans á svigrúm ríkissjóðs til frekari útgjaldaaukningar
í tengslum við kjarasamninga sem ólokið er. Spurt er hvort Seðlabankinn
telji fjárlög ársins 2008 hafi haft neikvæð áhrif á það ójafnvægi
sem ríkir í efnahagsmálum hér á landi.
Að
lokum spyr Guðni hvort Seðlabankinn telji ríkisstjórn landsins hafa
gengið nógu lagt í þá átt að draga úr þenslu í samfélaginu.
21.febrúar
Skop
og húmor í Gerplu
Næsta
sunnudag 24. febrúar kl. 16.00 mun Bergljót S. Kristjánsdóttir, prófessor
í íslenskum bókmenntum, stýra samræðum um skáldsöguna Gerplu. Bergljót
mun meðal annars víkja að aðferð sögunnar og viðtökum bókarinnar,
en einnig mun hún íhuga hvað Halldór ætlaði sér með verkinu. Auk þessa
verður farið ítarlega í skop og húmor sögunnar. Því má búast við
skemmtilegum og líflegum umræðum í stofunni á sunnudaginn.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Hér má sjá dagskrá Gljúfrasteins
fram í maí.
Opið er á Gljúfrasteini alla daga nema mánudaga frá kl. 10 – 17.
19.febrúar
Framhaldsskóli
rís!
Langþráður draumur verður að
veruleika.
Í
dag undirrituðu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, samkomulag um stofnun og
byggingu framhaldsskóla í Mosfellsbæ. Skólinn mun rísa í miðbæ
Mosfellsbæjar og stefnt er að því að skólastarf hefjist þar haustið
2009. Skólinn verður fyrsti framhaldsskóli Mosfellsbæjar og fyrsti
framhaldsskóli sem er stofnaður á vegum opinberra aðila á höfuðborgarsvæðinu
frá því að Borgarholtsskóli hóf störf árið 1996.
Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir allt að 4.000 fermetra byggingu sem rúmar
400-500 nemendur. Við ákvörðun lóðarstærðar verður gert ráð fyrir
möguleikum til verulegrar stækkunar í framtíðinni og við hönnun hússins
og undirbúning skólastarfs verður lögð áhersla á sveigjanleika og möguleika
til nýbreytni.
15.febrúar
SUF
ályktar um opinberar ráðningar og skipanir
Stjórn
SUF samþykkti á fundi sínum á þriðjudagskvöld ályktun þar
sem hún furðar sig á framferði ríkisstjórnarinnar við ráðningar og
skipanir í opinber embætti. SUF telur framkomu Samfylkingarinnar sérstaklega
ámælisverða en við skipanir í fjölmörg embætti að undanförnu hafi
mestu máli virst skipta að koma eigin fólki að. Þetta sé í hróplegu
ósamræmi við hástemmd ummæli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í
Borgarnesræðu hennar árið 2003, þar sem hún sagði m.a. að fólk ætti
að geta treyst því að það njóti sannmælis og ekki skipti máli hvar
það skipi sér í pólitíska sveit.
Ályktunina
í heild er að finna hér:
14.febrúar
Þungskýjað
í efnahagsmálum.
Þá
er Seðlabankinn búinn að aflétta spennunni varðandi stýrivextina, en
í gær mátti greinilega finna fyrir henni og margir gátu vart beðið
eftir tíðindum morgunsins frá Davíð.
Þótt svo bankamenn og Villi Egils séu ósáttir við að Seðlabanki hafi
ekki lækkað stýrivextina, þá hefur bankinn fært sín rök fyrir ákvörðuninni.
Það hafa einfaldlega ekki skapast forsendur til að lækka vextina,
ég gerði a.m.k. ekki ráð fyrir því að það gerðist í dag. Það
er mikil undirliggjandi verðbólga, bæði til skemmri og lengri tíma, ásamt
því að gengisþróunin er með þeim hætti að slíkt er ekki
forsvaranlegt nú. Hins vegar deili ég óánægjunni með bankamönnum
og Villa Egils yfir stöðunni, það væri að sjálfsögðu skemmtilegri
staða ef lækkun stýrivaxta væri möguleg núna, menn verða hins vegar að
sætta sig við raunveruleikann eins og hann er. Meira......
8.febrúar
Dýpsta
lægð vetrarins hér við land.
Ákveðið
hefur verið að virkja Samhæfingarmiðstöðina í Skógarhlíð frá
klukkan fjögur í dag og fram eftir nóttu - en þá er búist við
vonskuveðri. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða í
viðbragðsstöðu, sem og slökkvilið og lögregla.
Íbúar
Mosfellsbæjar eru hvattir til að hlúa að eigum sínum sem og að hreinsa
frá niðurföllum. Starfsmenn
áhaldahússins gefa frekari upplýsingar í síma 566 8450.
Í
neyð skal hringja í 112.
Einar
Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, segir á bloggi sínu að það sem
valda muni veðurofsanum, verði klárlega dýpsta lægð
vetrarins hér við land. Sjá blogg
Einars.....
8.febrúar
Framkvæmdir
á Reykjavegi
Umferðartafir á móts við Teigahverfi
Vegna
framkvæmda Vegagerðar og Mosfellsbæjar við fyrirhugað hringtorg á
gatnamótum Jónsteigs, Stórakrika og Reykjavegar, verður tímabundin aðkoma
að Teigahverfi í gegnum Völuteig og Víðiteig. Gert er ráð fyrir að
loka við Jónsteig ofan Víðiteigs í fjóra mánuði frá og með
15. febrúar. Sjá
nánar á mos .is
31.janúar
Hörður
Torfa með verk mánaðarins næsta sunnudag
Hörður
verður í stofunni á Gljúfrasteini næsta sunnudag 3. febrúar kl. 16.00
og mun hann fjalla um og flytja ljóð Halldórs Laxness bæði í tali
og tónum.
Hörður hefur alist upp við skáldskap
Halldórs Laxness sögur hans, leikrit og ljóð. Hann hóf snemma að
setja saman lög við ljóð hans og eitt þeirra Kveðið
eftir vin minn var á fyrstu breiðskífu Harðar frá 1970. Það náði
miklum vinsældum og er sungið víða enn þann dag í dag. Ljóðið Í
áfanga var síðan á annarri breiðskífu hans 1972. Hörður
tileinkaði Halldóri hausttónleika sína í Jónshúsi í Kaupmannahöfn
1982 og flutti þar mörg ljóð hans við eigin lög. Árið 2002 sendi
hann síðan frá sér geisladiskinn Söngvaskáld
þar sem hann túlkaði ljóð Halldórs með dyggri aðstoð Vilhjálms Guðjónssonar.
Ókeypis er inn á verk mánaðarins sem er alltaf síðasta
sunnudag hvers mánaðar kl. 16:00 út maí.
31.janúar
Þingmenn
framsóknar funda í Mosfellsbæ
Þingmenn
framsóknarmanna og forysta flokksins verða á ferð um landið á komandi
vikum og halda opna fundi til að ræða stöðu stjórnmálanna og einstök
mál þar að lútandi.
Fundur í Mosfellsbæ verður haldinn miðvikudaginn 6. febrúar kl. 20:00
Háholt 14
Framsögumenn: Siv Friðleifsdóttir, Bjarni Harðarson, Sæunn Stefánsdóttir
31.janúar
Þiggja
ára áætlun Mosfellsbæjar
Þiggja
ára áætlun Mosfellsbæjar var til síðari umræðu í bæjarstjórn í gær
en samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal semja og fjalla um þriggja ára
áætlun. Áætlunin er markmiðssetning um rekstur, framkvæmdir og fjármál
bæjarfélagsins
fyrir árin 2009 til og með 2011.
Hér á eftir fer bókun fulltrúa B-lista vegna áætlunarinnar:
Þriggja ára áætlun Mosfellsbæjar er markmiðssetning meirihlutans um
rekstur fjármál og framkvæmdir bæjarfélagsins fyrir árin 2009 -2011.
Undanfarin ár hafa verið afar hagstæð fyrir rekstur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
og ber áætlunin þess merki.
Ein helsta forsenda áætlunarinnar er spá varðandi fólksfjölgun í
Mosfellsbæ. Áætlunin sýnir ágætlega fjölgun og aldursdreifingu þó hún
sé sennilega í varlegri kantinum. Gert er ráð fyrir að fjölgun íbúa
á tímabilinu 2008 til 2011 verði um 2.947 talsins.
Meira.....
24.janúar
SUF
ályktar um atburði undanfarinna daga
,,Stjórn
Sambands ungra framsóknarmanna telur atburði undanfarinna daga á
vettvangi framsóknarflokksins í Reykjavík vera dapurlega og lýsir yfir
furðu sinni á framgöngu fyrrverandi alþingismanns og trúnaðarmanns
flokksins í Reykjavík.
Harkalegar persónulegar árásir í fjölmiðlum á kjörna fulltrúa
flokksins eru aðeins til þess fallnar að veikja Framsóknarflokkinn og
hvetur stjórn SUF Guðjón Ólaf Jónsson til að íhuga alvarlega stöðu
sína innan flokksins, ef trúnaður hans við stofnanir flokksins er ekki
meiri en nú hefur sýnt sig.
Stjórn SUF vill þakka Birni Inga Hrafnssyni gott samstarf, vinarþel og
stuðning við starf sambandsins og vonast til þess að mega njóta áframhaldandi
samstarfs við hann á vettvangi Framsóknarflokksins, þó að hann hverfi
nú úr sæti borgarfulltrúa.
Þá óskar SUF nýjum oddvita framsóknarmanna í Reykjavík, Óskari
Bergssyni alls hins besta í störfum sínum fyrir flokkinn.”
21.janúar
Halldór og Nína íþróttamaður
og kona Mosfellsbæjar
Kjör
íþróttamanns og íþróttakonu Mosfellsbæjar árið 2007 fór
fram í Hlégarði sunnudaginn 20. janúar. Fyrir valinu urðu þau Nína
Björk Geirsdóttir golfíþróttakona úr Golfklúbbnum Kili og Halldór Guðjónsson
hestaíþróttamaður úr Hestamannafélaginu Herði.
Nína sýndi frábæran árangur á sl. ári og var meðal annars Íslandsmeistari
kvenna í golfi ásamt því að vera Íslandsmeistari í sveitakeppni með
Golfklúbbnum Kili. Einnig var Nína kosin kvenkylfingur ársins hjá
Golfsambandi Íslands.
Halldór sýndi góðan árangur í sinni grein og var meðal annars Íslandsmeistari
í 250m skeiði á Íslandsmóti á Dalvík. Einnig fékk Halldór efstu reiðkennaraverðlaun
á reiðkennarabraut við Háskólann á Hólum.
21.janúar
Fundir forystunnar um
land allt á komandi vikum
Þingmenn
framsóknarmanna og forysta flokksins verða á ferð um landið á komandi
vikum og halda opna fundi til að ræða stöðu stjórnmálanna og einstök
mál þar að lútandi.
Fundahrinan hefst í Reykjavík 21. janúar og lýkur í Reykjavík þann
19. febrúar. Þess á milli verða haldnir 11 aðrir fundir. Sjá
dagskrá www.framsokn.is
Fundur í Mosfellsbæ verður haldinn miðvikudaginn 6. febrúar kl. 20:00
Háholt 14
Framsögumenn: Siv Friðleifsdóttir, Bjarni Harðarson, Sæunn Stefánsdóttir
20.janúar
Glæsilegt
þorrablót
framsóknarmanna
Hið
árlega og víðfræga þorrablót framsóknarmanna í Kópavogi og nærsveitum
var haldið föstudaginn 18. janúar s.l. í Lionssalnum Kópavogi. Þorrablótið
hófst með því að blótað var við dyrnar að venju. Samúel Örn
Erlingsson varabæjarfulltrúi í Kópavogi og alþingismaðurinn Birkir Jón
Jónsson fluttu ávörp. Hljómsveitin Klassík
lék fyrir dansi. Mikil stemming og stuð eins og sjá má á myndunum.
17.janúar
Fasteignagjöld
lækkuð!
Bæjarráð
Mosfellsbæjar samþykkti samhljóða á bæjarráðsfundi í morgun lækkun
fasteignagjalda fyrir árið 2008. Þessi samþykkt er tilkomin þar sem í
forsendum fjárhagsáætlunar fyrir árið 2008 var gert ráð fyrir að
fasteignamat hækkaði um 10% milli ára, en hækkun fasteignamats var
hinsvegar ívið meira.
Lækkanir á fasteignagjöldum verða sem hér segir:
Fasteignaskattur
í A – flokki verði 0,220 % í stað 0,225%
Lóðarleiga í A – flokki verði 0,30% í stað 0,34%
Holræsagjald verði 0,145% í stað
0,150%
14.janúar
Mislæg
gatnamót á Vesturlandsveg.
Vegagerðin
og landeigendurnir Leirvogstunga ehf. og Ístak ehf. hafa samið um þverun
Hringvegarins (Vesturlandsvegar) með mislægum gatnamótum á milli
Leirvogstungu og Tungumela og tengingar við Vesturlandsveginn.
Mislæg gatnamót á þessum stað munu auka mjög umferðaröryggi og greiða
mikið fyrir umferð að og frá Leirvogstungu og Tungumelum og einnig á
milli þeirra.
Vegna framkvæmda landeigenda og verktaka beggja vegna Vesturlandsvegarins
er þeim unnt að byggja mislægu gatnamótin á hagkvæmari hátt en ella.
Samningsaðilarnir þrír skipta með sér kostnaði við þessa framkvæmd.
Meira ….www.leirvogstunga.is
14.janúar
Verða
fasteignagjöld lækkuð?
Mun
Mosfellsbær lækka álagningarstofn fasteignagjalda fyrir árið 2008 líkt
og Hafnafjörður gerði?
Í
síðustu viku tilkynnti bæjarstjóri Hafnarfjarðar um lækkun álagningarstofns
fasteignagjalda fyrir árið 2008 á íbúðarhúsnæði úr 0,27% og í
0,24%. Þetta var gert í ljósi þess að fasteignamat á húsnæði
hækkaði nokkuð umfram það sem forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið
2008 gerðu ráð fyrir.
Forsendur fjárhagsáætlunar Mosfellsbæjar gerðu ráð fyrir 10% meðalhækkun
og því ætti að vera svigrúm til að lækka álagningarstofninn til samræmis
við það sem gert var í Hafnarfirði.
14.janúar
Mosfellingur
ársins 2007
Mosfellingur
hefur valið Jóhann Inga Guðbergsson Mosfelling ársins 2007. Jóhann er
sundlaugarvörður í Lágafellslaug og bjargaði tveggja ára gamalli stúlku
frá drukknun. Mosfellingur hefur tvisvar áður valið Mosfelling ársins.
árið 2005 Sigsteinn Pálsson og 2006 Hjalta Úrsus Árnason Kraftakarl.
Sá hugsun
verður sífellt áleitnari að bæjarstjórn Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna
í Mosfellsbæ sé ekkert heilagt í umhverfismálum. Í gærmorgun vöknuðu íbúar
við Álafoss upp við hávaða frá stórvirkum vinnuvélum. meira.....
7.janúar
Töf
á reiðhallarframkvæmdum fer nú senn að ljúka. Ástæða tafarinnar
er að aðalverktakinn hefur átt í verulegum erfiðleikum með að fá gögn
frá verkfræðingi sem er undirverktaki hjá honum. Reiknað er með
að framkvæmdir hefjist að nýju á næsta fimmtudag og verður þá ræsi, svæðið
jafnað og gert tilbúið til sáningar. Þá ætti svæðið norðan við
reiðstiginn að vera frágengið og verksvæðið minkað sem því nemur.
Í framhaldi af þessu munu verktakar koma sér fyrir og hefja uppslátt á
undirstöðum.
Reiðhöllin sjálf er nánast fullsmíðuð og tilbúin til flutnings um leið
og endanleg staðfesting fæst um samþykkt teikninga verkfræðingsins.
2.janúar
Mosfellsbær
hækkar gjöld!
Verulegar hækkanir á gjaldskrám
.
Meirihluti sjálfstæðismanna og vinstri grænna samþykktu á 481 fundi bæjarstjórnar
gjaldskrár fyrir ýmiskonar þjónustu Mosfellsbæjar en þar er um að ræða
umtalsverðar hækkanir.
Húsleiga í félagslegum leiguíbúðum hækkar um 13-14%.
Gjald fyrir eina klst. á gæsluvelli hækkar um 20%.
10 miða kort fyrir börn í íþróttamiðstöð Varmár hækkar um 16,67%.
Félagslega
heimaþjónustu gjald lífeyrisþega hækkar um 5,32%
Leikskólagjöld
hækka um 4%
Gjald
fyrir þátttöku í skólagörðum hækkar um 50%
Árgjald fyrir þátttöku í félagsmiðstöð hækkar um 13%
Gjald
vegna námskeiða í félagsstarfi aldraðra hækkar um 7%
Gjald
vegna ferðaþjónustu í félagsstarf aldraðra hækkar um 6,6% (stök ferð)
Gjaldskrá um hundahald hækkar um 33-38%
Gjaldskrá
heimæðagjalda algengir flokkar hækkar um 12%
Gjaldskrá
sorphirðu hækkar um 6,5%-16% eftir stærð tunnu
Gjaldskrá
byggingarfulltrúa hækkar mismikið en algeng hækkun er 16%
Fullyrða
má að þessar hækkanir eru langt umfram verðlagþróun og vandséð annað
en að meirihlutinn sé að lauma hækkunum á bæjarbúa með þessum
gjaldskrár hækkunum.
7.janúar
Vel
heppnuð Þrettándabrenna.