27. desember
Áramótabrenna.
Haldin verður
áramótabrenna á vegum Mosfellsbæjar á tjaldstæðinu við
Íþróttamiðstöðina að Varmá. Kveikt verður í brennunni á
gamlárskvöld kl.20:30.
27. desember
Kjúklingabúið
Móar biður um greiðslustöðvun
Kjúklingabúið Móar í
Mosfellsbæ hefur farið fram á greiðslustöðvun vegna fjárhagserfiðleika
og tekur Héraðsdómur Reykjavíkur afstöðu til beiðninnar klukkan 15 í
dag. Sjá nánar á mbl.is.
24.desember
Mosfellsfrettir.is
óska lesendum sínum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
18. desember
Áhyggjur
foreldraráðs Lágafellsskóla.
Foreldraráð Lágafellsskóla
mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á fjárframlögum til Lágafellsskóla
sem fram koma í tillögum að fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar. Foreldraráð
óttast að þessi niðurskurður muni koma verulega niður á þeirri þjónustu
sem skólinn getur veitt börnunum segir í nýju bréfi frá þeim til bæjarstjórnar.
18. desember
Úrskurður
um skólaakstur í Miðdal.
Á vormánuðum kærði Kristín Ingvarsdóttir í Miðdal í Mosfellsbæ
til félagsmálaráðuneytisins, þá einhliða ákvörðun bæjarráðs
og skólayfirvalda Mosfellsbæjar um að hætti skólaakstri í Miðdal en
foreldrum yrði í staðinn greitt fyrir að koma börnum í veg fyrir skólabílinn,
en m.a. fjallaði Stöð 2 oft um þetta mál
.
Úrskurðarorð ráðuneytisins
dagsett 10.desember s.l. varðandi kröfu kæranda um að ráðuneytið felli úr
gildi ákvörðun skólaskrifstofu Mosfellsbæjar um að hætta skólaakstri heim
til kæranda, er hafnað.
17. desember
Ekki
hollan fisk.
Samkvæmt
upplýsingum vefsins hefur núverandi meirihluti sjálfstæðismanna fyrirskipað
öllum leikskólum að skera niður aðra fiskmáltíðina vegna sparnaðar.
Fiskmáltíðir í skólunum hafa verið tvær í viku hverri og benda má á að
Manneldisráð mælir með þeim fleiri en einni. Hvar ætlar þessi vitleysa að
enda?
27. Nóvember
Hækkanaskriða
nýja meirihlutans farin af stað.
Tillaga sjálfstæðismeirihlutans um að hækka útsvarsprósentu á næsta ári
2003
í 12,94% úr 12,65%. Samþykkt með fjórum atkvæðum meirihlutans gegn þremur
atkvæðum minnihlutans.D-listinn hækkar skatta!
Bókun B og G Lista
:
B og G listinn leggst gegn
hækkun á útsvarsprósentunni sem í dag er hækkuð í 12,94%, en þessi hækkun
er þung byrði fyrir bæjarbúa og ekki síst fyrir barnafjölskyldur. Við
teljum í ljósi niðurstöðu fjárhagsúttektar KPMG um að fjárhagsstaða bæjarins
sé traust til lengri tíma litið að þá sé hækkun útsvars ónauðsynleg.
27. nóvember
Áhugaleysi meirihlutans á atvinnumálum.
Meirihluti Sjálfstæðismanna ákvað á bæjarstjórnarfundi að leggja niður
Atvinnuþróunarsjóð Mosfellsbæjar gegn þremur atkvæðum minnihlutans.
Bókun B og G lista.
Hörmum þá ákvörðun meirihlutans um að leggja niður Atvinnuþróunarsjóð
Mosfellsbæjar en hans hlutverk er og hefur verið að styðja við
atvinnurekstur í bænum. Mörg frumkvöðlafyrirtæki
hafa notið stuðnings sjóðsins þau ár sem hann hefur starfað.
Einnig hefur sjóðurinn haft með höndum það hlutverk að vera eignasjóður
um eignir bæjarins í Kjarna, sem segja má að hafi verið mikil framtíðarsýn
hjá fyrrverandi meirihluta með þeirri aðgerð, en á næsta ári er skv. lögum
öllum sveitarfélögum skylt að taka upp eignasjóð með svipuðu formi.
Leitt er til þess að vita að núverandi meirihluti sjálfstæðismanna skuli
sýna atvinnumálum bæjarins svo lítinn skilning sem raun ber vitni, á dögum
aukins atvinnuleysis, en fyrir áramót verður búið að leggja niður Atvinnuþróunarsjóð
Mosfellsbæjar og starf atvinnu- og ferðamálafulltrúa.
27. nóvember
Er
Sjálfstæðisflokkurinn ekki fyrir konur?
Á
laugardaginn fór fram prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum.
Hlutur kvenna var heldur rýr og varla ofsögum sagt að kvenþjóðin
hafi goldið afhroð í prófkjörinu.
Ef
gengið er út frá því að Sjálfstæðisflokkurinn fái 10 þingmenn verða
einungis tvær þingkonur í borginni samkvæmt niðurstöðu prófkjörsins. Túlka
má niðurstöðu prófkjörsins sem vantraustsyfirlýsingu á eina kvenráðherra
flokksins, Sólveigu Pétursdóttur og þingkonurnar Láru Margréti Ragnarsdóttur,
Katrínu Fjeldsted og Ástu Möller.
Eru prófkjör e.t.v. ekki vel til þess fallin að koma konum að?
Niðurstaða prófkjörsins er grátleg fyrir konur og gríðarlegt áfall
fyrir jafnréttisbaráttuna ef jafnræðið fellst í fléttulistum eða jafnri
kynjaskiptingu á lista.Hvað sem öðru líður er ljóst að það er við hæfi
að votta konum í Sjálfstæðisflokknum samúð.
Sjálfstæðisflokkurinn er e.t.v. ekki fyrir konur, það virðist vera að málflutningur
þeirra eigi sér ekki hljómgrunn meðal Sjálfstæðis”manna”.
26. nóvember
Nýr fréttaritari Kántríbæjar?
Ljóst er að fjölmargir hafa tekið mark á ummælum frú Ragnheiðar Ríkharðsdóttur
bæjarstjóra Mosfellsbæjar varðandi framkvæmd á utankjörstaðaatkvæðagreiðslunni
hjá Sjálfstæðismönnum í nýju Norð-Vesturkjördæmi. Forsvarsmönnum
utankjörstaðaatkvæðagreiðslunnar var ekki skemmt þegar sögu sagnir um að
kosið hefði verið á barnum í Kántríbæ á Skagaströnd fóru af stað og
því síður var þeim skemmt þegar Ragnheiður lét hafa eftir sér svipað
slúður í sjónvarpinu. “Fréttaritarinn” dró það reyndar allt til baka
skömmu seinna og er hún kvenmaður meiri fyrir það.
Ef til vill liggur margt betur fyrir bæjarstjóranum okkar en að vera í
hlutverki fréttaritara
26. nóvember
Pólitískt jólatré!
Enn á ný er jólatré bæjarins
komið á fulla ferð og er ferðinni nú heitið aftur þvert yfir
Þverholtið og að Kjarna í krafti pólitískra afla. Jólatréð hefur verið
síðustu árin á planinu við
Búnaðarbankann. Döpur
reynsla var af því að hafa tréð við Kjarna en þar er mjög
vindasamt og varla stætt fyrir tréð, hana Grýlu eða Jólasveinana
hennar.
Kveikt verður á jólatrénu þann 7.desember n.k.
20. nóvember
“Baráttumaður
sem féll í orrustu”.
Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins,
segir að eftirsjá sé af Páli Péturssyni. Páll Pétursson félagsmálaráðherra
hlaut ekki kosningu í fyrsta sætið á framboðslista Framsóknarflokksins í
Norð-Vesturkjördæmi og er Páll þar með væntanlega hættur þátttöku
í pólitík. Mosfellsfréttir er sammála að það verður eftirsjá af Páli
Péturssyni.
11. nóvember
Virðisaukan
af barnafötum!
Varaþingmaður Framsóknarflokksins Páll Magnússon
vill fella niður virðisaukaskatt af barnafötum. Er loksins kominn baráttumaður
fyrir málefni ungs fjölskyldufólks? Þingsályktunartillaga Páls Magnússonar,
varaþingmanns Framsóknarflokksins, um að fella niður virðisaukaskatt á
barnafötum hefur vakið verðskuldaða athygli jafnvel svo mikla að Hagkaup sló
frétt um hana upp í auglýsingu sinni. Nú er bara að bíða og sjá hvort
Geir H. Haarde telji ríkissjóð geta orðið af þessum tekjum og bætt þannig
verulega lífskjör barnafólks.
28. október
Skoðanakönnun eða kosning.
Á seinni árum hefur orðræðan oft sveigst í átt
að því sem menn kalla íbúalýðræði eða aukin þátttaka almennings í
ákvarðanatöku hjá sveitarfélögum eða ríkisvaldinu. Er þá gjarna vísað
til þeirra möguleika sem rafrænt samfélag býður upp á með nettengingum
og möguleikum á að taka afstöðu gegnum sína heimilistölvu. Þetta hefur
verið talið sem dæmi um jákvæða þróun lýðræðisins og þá möguleika
sem nútíma tækni býður upp á.
Lesið ágæta grein á heimasíðunni www.hrifla.is
25. október
D-listinn
vill litlar
úrbætur í félagslegu leiguhúsnæði.
Fulltrúar G og B lista lögðu
fram tillögu um úrbætur í félagslegu leiguhúsnæði þannig að Mosfellsbær
nýtti þá upphæð sem áætluð var fyrir árið 2002 kr 45.432.720 (um 5 íbúðir)
en aðeins hafa verið nýttar 17 milljónir af 45.
Einnig lögðu fulltrúar G og B lista til að að gert væri ráð fyrir
5 nýjum íbúðum á árinu 2003 en þessu höfnuðu sjálfstæðismenn í félagsmálanefnd.
Meðfylgjandi er greinagerðin sem fulltrúar B og G lista lögðu fram:
”Félagsmálaráðuneytið hefur lagt áherslu á byggingu leiguíbúða á
vegum sveitarfélaga, kaupleiguíbúðum fækkar og eigendur félagslegra
eignaíbúða hafa nú möguleika á að kaupa þær.
Ljóst er að viðbótarlán leysa ekki vanda þeirra sem tekjulægstir
eru og vaxandi fjárhagserfiðleikar þeirra kalla á fleiri leiguíbúðir.“
23. október
Fræðslustígurinn
verðlaunaður á aðalfundi SSH
Á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
sem haldinn var föstudaginn 18. október 2002 í Hlégarði Mosfellsbæ, veittu
samtökin Mosfellsbæ viðurkenningu fyrir merkt framlag til umhverfis-, útivistar-
og skipulagsmála.
Viðurkenningin er veitt fyrir fræðslustíga í Mosfellsbæ en bærinn hefur að
sett upp tæplega 30 fræðslumerki við göngustíga í bænum sem m.a. ná frá
landmörkum við Reykjavík og langt upp í Mosfellsdal. Fræðsluskiltin eru hönnuð
af Árna Tryggvasyni en þau urðu hlutskörpust í hönnunarsamkeppni sem fram
fór á vegum atvinnu- og ferðamálanefndar 1999. Bjarki Bjarnason hefur séð
um textagerð og öflun mynda á öll skiltin.
Sigurður Geirdal bæjarstjóri formaður stjórnar SSH afhenti að þessu
tilefni Hafsteini Pálssyni forseta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar styttuna Jarðteikn
gerða af Koggu og Magnúsi Kjartanssyni. www.mos.is sagði frá.
Gaman
er að geta þess að Guðný Dóra Gestsdóttir atvinnu og ferðamálafulltrúi
sá um framkvæmd verksins fyrir hönd nefndarinnar.
23. október
Sussssssssss
má ekki ræða!!!
Fjölmiðlar
tóku andköf fyrir nokkru þegar Halldór Ásgrímsson formaður Framsóknarflokksins
ræddi þá staðreynd að umræðan um Evrópusambandið verður ekki flúin
lengur og stjórnmálamenn sem og aðrir þurfi að ræða kosti þess og
galla, opið og fordómalaust. Kosningarmál !!!
Lesið ágæta grein á heimsíðuni maddaman.is
16. október
Einræðistilburðir
sjálfstæðismanna halda áfram.
Á síðasta fundi fræðslunefndar
þann 8. okt. sl. bættu sjálfstæðismenn einu klúðri enn í hatt sinn
er þeir lögðu fram þessa bókun
:
"Fulltrúar D-lista telja vart við
hæfi að fyrsti varamaður G-listans í bæjarstjórn sitji sem áheyrnafulltrúi kennara
í fræðslunefnd Mosfellsbæjar. Þessi skipan er óeðlileg og til
þess fallin að rýra trúverðuleika hans sem áheyrnafulltrúa kennara."
Það er eins og sjálfstæðismenn geri sér ekki grein fyrir því að
við búum við lýðræði, Hanna Bjartmars var kosin (ekki
skipuð) í lýðræðislegri leynilegri kosningu af samkennurum sínum.
2. október
Bókun B og G lista í
bæjarstjórn í dag
Sameiginleg bókun B og G lista
Meira.....
2. október
Fyrirspurnir B og G lista
Fyrirspurnir
B og G lista varðandi hlutfall kostnaðar af heildartekjum, rekstrarútkomu, áhorfendabekkja
auk sundurliðunar á heildarlaunum bæjarstjóra.
Meira.....
27. september
Fréttatilkynning
Fulltrúar
minnihlutans sendu frá sér fréttatilkynningu í tilefni af undarlegri túlkun
meirihlutans á ófullkomnu
6 mánaða uppgjöri:
Meira....
1. október
Félagsvist
Félagsvist
verður í framsóknarsalnum Háholti 14. Föstudagskvöldið
4.október nk. kl.2030.
27. september
Taugaveiklaðir sjálfstæðismenn.
Taugaveiklun hefur gripið um sig í forystusveit sjálfstæðismanna í
Mosfellsbæ. Oddviti flokksins hefur farið offörum í túlkun á 6 mánaða
uppgjöri sem unnið er af endurskoðendafyrirtækinu KPMG.
En eins og allir vita þá þarf ekki að vera samansem merki á milli 6 mánaða
uppgjörs og ársuppgjörs t.d. er það alþekkt staðreynd að tekjur eru
meiri seinni hluta ársins.
Er nýr meirihluti e.t.v.
búinn að missa kjarkinn við stjórnun bæjarins? Hvað verður um
loforðabækling sjálfstæðismanna þegar taugarnar bresta? Hvað verður um
þá úrvals starfsmenn sem sagt hefur verið upp eða hraktir úr starfi og
fjölskyldur þeirra þegar launagreiðslur hætta að berast? Höfðu sjálfstæðismenn
ekki kynnt sér ársuppgjör 2001? Fráfarandi meirihluti reyndi ekki að breiða
yfir skuldastöðuna enda höfðu þeir farið í nauðsynlegar framkvæmdir við
grunnskólana sem kostuðu á annan milljarð og ljóst var að næstu ár færu
í að greiða þær niður.
Það er alltaf dapurlegt þegar nýir stjórnendur reyna að klóra yfir eigið
getuleysi með því að kenna fráfarandi stjórnendum um. Auðsjáanlega ætla
þeir að beita fyrir sig pólitísku sjónarspili til að innleiða stórfelldar
hækkanir.
Margt er miður fallegt, hægt að segja um þær stjórnunaraðferðir
sem sjálfstæðisflokkurinn er að innleiða en ætli þær dæmi sig ekki bara
sjálfar.
20. september
Félagsfundur
Boðað er til almenns félagsfundar í Framsóknarfélagi Kjósarsýslu þann 24.
sept.nk. að Háholti 14 kl 20:00
19. september
Félagsvist
Félagsvist
verður í
framsóknarsalnum Háholti 14. Fyrsta gjöf föstudaginn 27 september nk.
kl.2030. Spilað verður þrjú föstudagskvöld í röð. Veglegir
vinningar.
13. september
Til hamingju með nýja bæjarblaðið
mosfellsfrettir.is
vilja óska Karli Tómassyni og bæjarbúum öllum til hamingju með Mosfelling.
Það er von okkar að þetta blað sem áætlað er að komi út hálfsmánaðarlega
verði til að auka á hlutlausan fréttaflutning um málefni bæjarins auk þess
að miðla til okkar fjölbreyttum upplýsingum úr okkar góða bæjarlífi.
Nýtt frjálst og óháð fréttablað, sem þó er í samvinnu við pólitísku
flokkana í Mosfellsbæ að B-lista undan skyldum verður að sanna sig sem óháð
í sínum
málflutningi, við vonum að það takist.
1. september
Sumarfrí heimasíðu
www.mosfellsfrettir.is Heimasíðan
mosfellsfrettir.is hefur verður í sumarfríi en er nú mætt til leiks á ný
og mun fjalla um bæjarmálin í vetur. Bent er á að alltaf er hægt að hafa
samband við bæjarfulltrúa B- listans í gegnum e-mail eða síma vilji bæjarbúar
ræða málin.
1. september
Meirihluti
sjálfstæðismanna vanvirðir hefðbundin vinnubrögð.
Á
síðasta bæjarráðsfundi kom fyrirspurnir frá Þresti Karlssyni vegna frétta
í Morgunblaðinu 28. ágúst í sambandi við fjárfestingar sem snúa að áhorfendabekkjum
í íþróttahús og vegna fréttar í Morgunblaðinu 29. ágúst í tengslum við
skólaakstur.
Í fundagerð Bæjarráðs segir svo:
Bæjarstjóri svaraði fyrirspurnum Þrastar.
Bókun kom fram frá Þresti Karlssyni:
"Alveg forkastanleg vinnubrögð að fréttir um að þessar "samþykktir"
skulu fyrst birtar aðila í bæjarráði og nefndarfólki minnihlutans í
gegnum fjölmiðla. Hér er um verulegar breytingar á fjárhagsáætlun,
sem bæjarráð og nefndir hafa ekki fjallað um og er ekki lýðræðislega að
þeim staðið. Svona vinnubrögð sem meirihlutinn viðhefur samrýmist
ekki stjórnkerfi bæjarins."
Bókun frá meirihluta:
"Í bókun minnihluta B lista í bæjarráði er vísað í fréttir
í Morgunblaðinu dagana 28. og 29. ágúst þar sem rætt var um áhorfendabekki
í Íþróttahúsinu að Varmá annars vegar og skólaakstur grunnskólabarna
hins vegar.
Meirihluti D listans í bæjarráði Mosfellsbæjar vill taka fram að engar samþykktir
hafa verið gerðar um breytingar á fjárhagsáætlun bæjarins vegna þessara
verkefna eins og fulltrúa minnihlutans ætti að vera kunnugt um.
Meirihluti D listans vill taka fram að honum finnst dapurlegt til þess að
hugsa að minnihluti B lista í bæjarráði skuli gera athugasemdir sem þessar
við undirbúning mála sem eru bæjarbúum til heilla."
Ritstjórn mosfellsfretta.is finnst
það undarleg vinnubrögð ef meirihlutinn ætlar að hlaupa
með allt í fjölmiðla fyrst og vinna heimavinnuna síðan.
Þetta líkist villta vestrinu skjóta fyrst og spyrja svo.
Vonandi er þetta ekki framtíðin hér í Mosfellsbæ.
18.
júní
Nýr bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Ragnheiður
Ríkharðsdóttir nýr oddviti sjálfstæðismanna er nýráðinn bæjarstjóri
í Mosfellsbæ.
Ragnheiður var margoft spurð fyrir kosningar hvort hún væri hugsanlegt bæjarstjóraefni.
Hún gaf skýr skilaboð um að hún myndi ekki verða það,
ákveðið væri að auglýsa og hún gæti “svo sem” sótt um eins
og aðrir, en hún væri í góðu og skemmtilegu starfi.
"Hvað varð um auglýsinguna Ragnheiður?" Spyrja íbúar og aðrir
hugsanlegir umsækjendur.
Sannleikurinn er alltaf sagna bestur. Sjálfstæðismenn hefðu átt að gefa skýr
og heiðarleg svör fyrir kosningar. Þessi framkoma er ekki til fyrirmyndar.
Eins og sjá má á miðlum, blöðum og vefsíðum, hefur Ragnheiður verið hvött
til að gefa opinberar skýringar á framferðinu við íbúa Mosfellsbæjar.
4. júní
Framsókn
í stórsókn
-
samkvæmt skoðanakönnun DV
Framsóknarflokkurinn hefur bætt við
sig verulegu fylgi undanfarið samkvæmt skoðanakönnun DV sem birt er í
morgun. Samkvæmt könnuninni nýtur flokkurinn stuðnings 25,6% atkvæða.
Fylgi flokksins hefur ekki mælst meira frá því árið 1994. Þá var hann í
stjórnarandstöðu.
Aðrir
flokkar, að Frjálslynda flokknum undanskildum tapa fylgi. Sjálfstæðisflokkurinn
nýtur stuðnings 39,7% þeirra sem taka afstöðu. Það er í fyrsta skipti í
rúmt ár sem flokkurinn nær ekki 40%. Samfylkingin hefur 17,5% fylgi.
Vinstri-grænir fá 12% og hafa ekki mælst lægri frá því skömmu eftir síðustu
þingkosningar. Frjálslyndi flokkurinn nýtur stuðnings 4,5% kjósenda samkvæmt
könnuninni.
29. maí
Ragnheiður
næsti bæjarstjóri í Mosfellsbæ!
Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins
í Mosfellsbæ ákvað á fundi sínum að Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
oddviti D-lista, yrði næsti bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
29. maí
Sumarhúsið og garðurinn áhugaverð sýning
Undirbúningur vegna stórsýningarinnar Sumarhúsið
og garðurinn, sem fyrirhuguð er í Íþróttasmiðstöðinni að Varmá dagana
30. maí - 2. júní, er í fullum gangi. Það er fyrirtækið Rit og rækt í
Mosfellsbæ sem stendur fyrir sýningunni
27. maí
Framsóknarflokkur Mosfellsbæjar
vill þakka öllum þeim sem studdu framboð B-listans.
Úrslit í sveitastjórnarkosningunum sem fram fóru
laugardag 25 maí s.l. urðu sem hér segir: Framsóknarflokkur (B listi) hlaut 827
atkvæði og 2 menn kjörna, Sjálfstæðisflokkur (D listi) hlaut 1.787 atkvæði
og 4 menn kjörna, Samfylking og Vinstri grænir (G listi) hlaut 792 atkvæði
og 1 mann kjörinn. Sjálfstæðisflokkur fékk því 52.5% greiddra atkvæða
og hreinan meirihluta. Á kjörskrá í Mosfellsbæ voru 4.327 og kusu 3.481
manns.
Bæjarfulltrúar Mosfellsbæjar næsta kjörtímabil eru: Ragnheiður
Ríkharðsdóttir (D) Haraldur
Sverrisson (D) Herdís Sigurjónsdóttir (D) Hafsteinn Pálsson (D)
Þröstur Karlsson (B) Bryndís Bjarnarson (B)
Jónas Sigurðsson (G)
24. maí
Aðsend grein frá
Bergljót
Kristínu Ingvadóttur
HÉR
23. maí
Ágæti
kjósandi!
Í
fréttum í gær var greint frá skoðanakönnun þar sem fram kom að
B-listanum vanti örfá atkvæði til að meirihlutinn í Mosfellsbæ haldi
velli.
Stöndum
saman og fylkjum liði á kjördag og setjum X við B til að tryggja áframhaldandi
meirihluta og Jóhann Sigurjónsson sem bæjarstjóra.
23. maí
Bull
fjármálaumræða.
Haraldur Sverrisson sagði
á fundi í Hlégarði í gærkvöldi að hægt væri að spara 1.000 milljónir
í rekstri bæjarfélagsins á næstu fjórum árum, án þess að gera nokkra
grein fyrir því hvar hann ætlar að spara. Trúir nokkur svona málflutningi!!!!!!!!!!
Ætti Haraldur ekki að vera sérstakur ráðunautur Geirs H.Haarde fjármálaráðherra
til þess að koma í veg fyrir fjáróreiður í tengslum við Þjóðmenningarhús,
Þjóðminjasafn og önnur fjáróreiðuverkefni Sjálfstæðisflokksins.
Hvílíkur málflutningur og útreikningar hjá hámenntuðum manninum.
Meginhluti útgjalda eru launagreiðslur til starfsmanna. Er hann að boða
minnkandi þjónustu í skólum bæjarins með hópuppsögnum?
Vilt þú ágæti bæjarbúi að þjónustan verði minnkuð í skólum bæjarins?