Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró

                                                2008

24.desember
Mosfellsfréttir óska lesendum sínum bestu óskir um friðsæla jólahátíð og farsæld á komandi ári, með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.


19.desember

Mosfellsfréttum er dreift í dag
Mosfellsfréttum er dreif í dag en blaðið má lesa á netinu undir hnappnum blöð hér neðar á síðunni til vinstri.

17.desember
Mosfellsfréttir er í prentun
Mosfellsfréttir 24. árg, 2. tbl. 2008 er í prentun. Blaðinu verður dreift frítt inn á öll heimili í bænum og vinnustaði fyrir helgina.  Í blaðinu eru fjölmargar greinar og viðtöl m.a. við unga þau Eggert Sólberg og Bryndísi Gunnlaugsdóttur. Þá eru greinar eftir Óðinn Pétur Vigfússon, Kristbjörgu Þórisdóttur.






15.desember
Skilað auðu gagnvart sveitarfélögunum
Ríkisstjórnin féll á enn einu prófinu þegar hún kynnti endurskoðað fjárlagafrumvarp sitt í gær. Það er holur hljómur í staðhæfingum Samfylkingarfólks um að tillögurnar einkennist af varðstöðu um þann árangur sem náðst hefur í velferðarkerfinu. Sá holi hljómur kemur hvað best fram í því sem snýr að sveitarfélögunum í landinu, - en það eru þau sem standa fólkinu næst og veita því lögboðna og nauðsynlega grunnþjónustu.
Í þeim illa útfærðu tillögum sem ríkisstjórnin kynnti nýlega er að mestu leyti skilað auðu þegar kemur að málefnum sveitarfélaganna.
meira....

12.desember
Sunnudaginn 14. des verður lesið úr nýjum bókum í stofunni á Gljúfrasteini, en lesið er alla sunnudaga á aðventunni.

Dagskráin sunnudagurinn 14. desember:
Sjón – Rökkurbýsnir 
Guðrún Eva Mínervudóttir – Skaparinn 
Ármann Jakobsson – Vonarstræti 
Guðmundur Andri Thorsson – Segðu mömmu að mér líði vel: saga um ástir

Dagskrána í heild sinni má finna á heimasíðu Gljúfrasteins.


11.desember

Segir nýja fjárlagafrumvarpið dapurlegt
Valgerður Sverrisdóttir formaður framsóknarflokksins segir nýtt fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar vera djarft. Hún segir greinilegt að eitthvað meira sé í pípunum og nefnir orðróm um að fara eigi inn í búvörulögin og lækka laun bænda. Hún segir alvarlegast að verið sé að auka álögur á launafólk.
„Það sem er hinsvegar hvað allra mest gagnrýnisvert er að þarna er ekki verið að leggja áherslu á atvinnulífið. Það er ekki verið að halda uppi atvinnu í landinu sem er gríðarlega mikilvægt við þessar aðstæður. Verið er að skerða opinberar framkvæmdir um 11 milljarða, og þar af er helmingurinn í samgöngum sem eru óskaplega mikilvægt byggðamál," segir Valgerður. 
Frá þessu segir á www.visir.is meira....

9.desember
Siv spyr áfram um Icesave á Alþingi
Siv Friðleifsdóttir heldur áfram að spyrja ráðherra um Icesave-ábyrgðir á alþingi. Siv hefur lagt fram fyrirspurn til Geirs Haarde forsætisráðherra um hvort hann, embættismenn eða ráðgjafar hans, hafi haft vitneskju um tilboð breska fjármálaeftirlitsins um að gegn 200 milljóna punda fyrirgreiðslu væri breska fjármálaeftirlitið tilbúið til að færa reikninga Icesave yfir í breska lögsögu.
Siv leggur einnig sömu spurningar fyrir Björgvin G. Sigurðsson. Þar bætir hún einnig við spurningu um hvort forstjóri Fjármálaeftirlitsins hafi verið í símasambandi við breska fjármálaeftirlitið sunnudaginn 5. október sl.
Þingmaðurinn vill einnig vita hvort Fjármálaeftirlitið, eða forstjóri þess, hafi fyrir yfirtöku íslenska ríkisins á Landsbanka Íslands, haft vitneskju um framangreint tilboð breska fjármálaeftirlitsins.
Óskaði Siv eftir skriflegum svörum við þessum spurningum. 


8.desember
Páll Magnússon býður sig fram til formanns
Á flokksþingi Framsóknarflokksins í janúar næstkomandi verður kjörin ný forysta. Innan hans hefur mikil umræða farið fram um nauðsyn á endurnýjun í forystunni – um að nýtt fólk verði kallað til ábyrgðarstarfa.
Ég hef undanfarna daga átt samtöl við fjölmarga flokksmenn um stöðu flokksins og framtíð hans og í kjölfar þeirra ákveðið að gefa kost á mér til formennsku í flokknum.
Framtíð Framsóknarflokksins veltur á því hvort hann skynji kall kjósenda eftir breytingum í íslenskum stjórnmálum. Segja verður skilið við samtryggingu stjórnmálanna og ógagnsæ vinnubrögð. Rannsókn á efnahagshruni síðustu vikna þarf að ná aftur til þeirra ára sem bankarnir voru einkavæddir enda Framsóknarflokknum mikilvægt að allt verði upplýst í því ferli.
Meira......


Höskuldur Þór Þórhallsson býður sig fram til formanns

Að undanförnu hafa sviptivindar farið um íslenskt þjóðfélag. Umbrot síðustu mánaða kalla á breytingar íslensks stjórnarfars auk þess sem mikið uppbyggingarstarf er framundan. Þörf er á breytingum og nýir tímar á Íslandi kalla á nýtt fólk og breyttar áherslur.
Í mínum huga eiga hugsjónir og gildi Framsóknarflokksins brýnt erindi við þjóðina. Mikilsverðustu hagsmunirnir eru að vernda heimilin og sporna við atvinnuleysi með öllum tiltækum ráðum. Hjól atvinnulífsins verða að fara að snúast á ný.
Eins og í þjóðfélaginu þá breytast hlutirnir oft hratt í heimi stjórnmálanna. Í Framsóknarflokknum hafa orðið ör formannsskipti og í gær tilkynnti núverandi formaður að hún myndi ekki sækjast eftir áframhaldandi kjöri til embættisins.
Meira..... 

 

5.desember
Félagsfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Félagsfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn mánudaginn 8. desember nk. kl. 20:00 að Þverholti 14 í Mosfellsbæ. Gestur fundarins verður Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður. 
Félagsmenn fjölmennum
Stjórnin

 

4Yfirlýsing frá Valgerði Sverrisdóttur, formanni Framsóknarflokksins

Það eru umbreytingar í íslensku þjóðlífi um þessar mundir. Í hönd fara tímar þar sem samfélagið verður byggt upp á nýjan leik. 

Ég hef um ríflega tveggja áratuga skeið starfað í stjórnmálum og helgað öllum mínum kröftum í að vinna að framgangi góðra mála. Ég hef hins vegar lýst þeirri skoðun minni, og ítreka hana hér, að þörf sé á endurnýjun í íslenskum stjórnmálum. 

Ég vil fyrir mitt leyti fylgja eftir þessari sannfæringu minni um nauðsynlega endurnýjun. Því hef ég ákveðið að sitja ekki lengur sem formaður Framsóknarflokksins en til næsta flokksþings framsóknarmanna sem haldið verður í janúarmánuði næstkomandi. Þar verður því kjörinn nýr formaður Framsóknarflokksins. Ég mun hins vegar áfram sitja á Alþingi og vil gera mitt til að vinna þjóðinni og flokknum allt það sem ég tel að til heilla horfi. 

Valgerður Sverrisdóttir 

3.desember
Opinn fundur um Evrópumál 
Vakin er athygli á opnum fundi um Evrópumál sem Framsóknarflokkurinn stendur fyrir miðvikudaginn 3. desember kl. 17, í Framsóknarhúsinu á Hverfisgötu 33.
Boðað er til opins fundar í Framsóknarhúsinu á Hverfisgötu 33, miðvikudaginn 3. desember kl. 17. Þar munu Jón Sigurðsson fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins og Orri Hlöðversson framkvæmdastjóri fjalla um vinnu og niðurstöður tveggja Evrópunefnda flokksins en þeir félagar stýrðu hvor sinni nefndinni sem fóru djúpt ofan í þessi mál.


2. desember

Jólamarkaður Ásgarðs 2008
Laugardaginn 6. desember frá 12:00 til 17:00 mun Handverkstæðið Ásgarður vera með sinn árlega jólamarkað í húsnæði sínu að Álafossvegi 24 í Mosfellsbæ. Allar leikfangalínur Ásgarðs verða til sýnis og sölu, einnig verða kaffi / súkkulaði og kökur til sölu gegn vægu gjaldi. Góðir gestir líta í heimsókn og að þessu sinni mun harmonikkuleikarinn Hjálmar Pálsson skemmta gestum með nokkrum lögum Garðar Jökulsson listmálari hefur málað fallega mynd sem hann gaf Ásgarði og verður hún til sölu, en þeir sem vilja eignast myndina geta lagt inn tilboð í myndina á meðan jólamarkaðurinn stendur.  Allir velkomnir.

1.desember
Flokksþing 16.-18. janúar
Svo sem kynnt hefur verið ákvað miðstjórn Framsóknarflokksins að flýta næsta flokksþingi Framsóknarflokksins fram í janúar nk. Unnið hefur verið hörðum höndum að því að finna heppilega stað- og tímasetningu og liggur nú fyrir að næsta flokksþing verður haldið helgina 16.-18. janúar nk. í nýrri og glæsilegri höll Valsmanna á Hlíðarenda.
Minnt er á að aðildarfélög Framsóknarflokksins eru samkvæmt lögum flokksins krafin um að tilkynna um val sitt á fulltrúum á flokksþing til skrifstofu flokksins eigi síðar en viku áður en flokksþing er sett, þ.e. í þessu tilfelli föstudagsmorguninn 9. janúar 2009.
Flokksþing Framsóknarflokksins ákveður meginstefnu flokksins í landsmálum, setur flokknum lög og hefur æðsta vald í málefnum hans. Á flokksþingi eru jafnframt kjörin formaður Framsóknarflokksins, varaformaður, ritari og tveir skoðunarmenn reikninga.

27.nóvember
Upplestur úr jólabókum og verk mánaðarins
Á aðventunni munu rithöfundar lesa úr nýútkomnum bókum sínum á Gljúfrasteini sunnudagana fjóra á aðventu. Segja má að komin sé hefð á upplestrana enda er andrúmsloftið í stofunni einstakt og tilvalið að hlýða á lestur í kyrrð og friði. 

Nánar má lesa um erindi Ingunnar  á heimasíðu Gljúfrasteins, einnig má finna upplestrardagskránna hér.

26.nóvember
Frá aðalfundi Varmársamtakanna
Varmársamtökin álykta um vegagerð við Álafosskvos

Aðalfundur Varmársamtakanna var haldinn þriðjudaginn 25. nóvember. Kosið var í stjórn félagsins, rætt um fjáröflunarleiðir og vegagerð við Álafosskvos. Stjórn Varmársamtakanna skipa nú Freyja Lárusdóttir, Kolfinna Baldvinsdóttir, Ólafur Ragnarsson, Páll Kristjánsson og Sigrún Pálsdóttir. Gunnlaugur B. Ólafsson og Kristín Pálsdóttir sitja nú í varastjórn. Á næsta stjórnarfundi mun ný stjórn skipta með sér verkum.
Á fundinum samþykktu fundargestir svohljóðandi ályktun:
Meira.....


17. nóvember
Hausttónleikar Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar 

Í gær sunnudag hélt Skólahljómsveit Mosfellsbæjar árlega hausttónleika sína í Íþróttahúsinu að Varmá á tónleikunum kom fram B,C, og D sveit skólans alls um 100 hljóðfæraleikarar. Fjölmenni var á tónleikunum.  
Efnisskráin var fjölbreytt og ljómandi skemmtileg áheyrnar.
Þess má geta að á næsta ári heldur hljómsveitin upp á 45 ára afmæli sitt væntanlega með afmælistónleikum. Stjórnendur og kennarar skólans eru Birgir D. Sveinsson , Daði Þór Einarsson, Daníel Friðjónsson, Jón Guðmundsson, Sveinn Þ. Birgisson og Þorkell Jóelsson.

 

12.nóvember
Ný stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Mikil endurnýjun í stjórninni

Á fjölmennum aðalfundi Framsóknarfélags Mosfellsbæjar þann 1. nóvember sl. er haldin var í  félagsheimili félagsins að Háholti 14 var kosin ný stjórn en nýju stjórnina skipa:

Óðinn Pétur Vigfússon  formaður
Gunnar Einarsson
Hlynur Þórisson
Kristmundur Þórisson
Guðni Þorbjörnsson
Sveinbjörn  Ottesen
Ingveldur Bjarnarson 

Segja má að um nýja stjórn sé að ræða enda mikil endurnýjun í stjórninni en fimm af sjö stjórnar og varastjórnarmönnum eru nýir.  Aðalfundur þakkaði fráfarandi stjórnarmönnum fyrir þeirra störf en margir af þeim hafa starfað í langan tíma fyrir félagið.


11.nóvember
Viðtalstímar bæjarfulltrúa á morgun miðvikudag.
Bæjarfulltrúarnir, Karl Tómasson  og Marteinn Magnússon, verða með viðtalstíma fyrir bæjarbúa miðvikudaginn 12. nóvember  frá kl. 17:00 – til kl.18:00.  Viðtölin fara fram á bæjarskrifstofunni, Þverholti 2, í fundarherbergjum bæjarfulltrúa, Búrfelli og Bæjarfelli, 2. hæð.


11.nóvember
Jólatrjáasala að Fossá í Hvalfirði
Einstaklingum sem og starfsmannahópum gefst nú, eins og undanfarin ár, frábært tækifæri til að koma í desember að Fossá í Kjós og ná sér í jólatré.
Gott væri að hópar tilkynni um komu sína.

Eiríkur Páll Eiríksson sími 554-4236, gsm 864-2865 og eirikp@fa.is
Jónína Þ. Stefánsdóttir  sími 554-3416, gsm 864-9246 og 
Heimasíða:        http://www.kjalarnes.is/fossa.htm

6.nóvember
Rætt um þjóðaratkvæðagreiðslur og stjórnarskrá
Framsóknarflokkurinn hélt fjölmennan fund á Grand hóteli í hádeginu í dag til að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslur og stjórnarskrána. Eiríkur Tómasson, lagaprófessor við Háskóla Íslands hélt þar fróðlegt erindi og sagði m.a. þetta:
Íslenska stjórnarskráin heimilar ekki framsal á ríkisvaldi til alþjóðlegra eða fjölþjóðlegra stofnana. Miklar umræður spunnust um meint framsal í tengslum við EES samninginn árið 1994 og Schengen samkomulagið árið 2000. Telur Eiríkur vafa leika á hvort það framsal sem átti sér stað með umræddum samningum og lögum, stenst stjórnarskrá og telur að stjórnarskráin hefði átt að njóta vafans við lagasetninguna. Dómstólar hafi þó lagt blessun sína yfir þennan meinta árekstur við stjórnarskrána í dómum sínum síðar.
Eiríkur sagði ýmsar þjóðir hafa slíkt ákvæði inni í sinni stjórnarskrá og tiltók tvö dæmi, norsku og dönsku stjórnarskrána. Hann lagði sérstaka áherslu á dönsku útfærsluna sem er þannig að ef 5/6 hlutar þingsins samþykkja valdframsal, þá telst það samþykkt. Ef um er að ræða meirihluta en án þess að 5/6 hlutar náist er málinu vísað til sérstakrar þjóðaratkvæðagreiðslu. Útfærsla þjóðaratkvæðagreiðslunnar er svo þannig að einfaldur meirihluti ræður niðurstöðunni. Þó verða minnst 30% kosningabærra manna að hafna samþykkt þingsins, en ella telst hún samþykkt.  Meira......

3.nóvember
Vel heppnaður haustfagnaður Framsóknarfélags Mosfellsbæja
 Laugardagskvöldið 1 nóvember sl. var árlegur haustfagnaður félagsins haldinn skemmtiatriði og veislukostur var að vanda í sérflokki.  Heiðursgestur kvöldsins var Bjarni Harðarson þingmaður og flutti hann stórskemmtilega ræðu er fjallaði að hluta til um æskuminningar þingmannsins.  Veislu stjóri var nýkjörinn formaður félagsins Óðinn Pétur Vigfússon.

 

31.október
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn í sal félagsins að Háholti 14, laugardaginn 1. nóvember kl. 10,00
 
                       
Dagskrá:

Skýrsla stjórnar.
Reikningar félagsins.
Kosningar 
Formann félagsins
Fjóra aðalmenn í stjórn og tvo til vara
Tvo skoðunarmenn reikninga

Kosning fulltrúa á kjördæmisþing Suðvesturkjördæmis
Önnur mál.

31.október

Munið haustfagnað Framsóknarfélagins
Laugardagskvöldið 1.nóvember verður haldinn haustfagnaður Framsóknarfélagins salnum að Háholti 14. 
Fagnaðurinn hefst með fordrykk kl 1900

Heiðursgestur Bjarni Harðarson
Um matinn sér Óli Tran hjá Asiu
Happdrætti
Leikir
Leyniatriði

Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæja

30.október
Fuglaskoðunarhús hundruð prósenta fram úr heimildum.
Gæluverkefni Vinstri-Grænna langt fram úr fjárheimildum
Á fundi bæjarráðs 10 apríl sl. var 600 þúsund króna veitt til byggingar fuglaskoðunarhúss í Leiruvogi. Það var hins vegar ekki fyrr en á fundi bæjarstjórnar 22. október sl. að það upplýstist fyrir tilviljun að húsið hefði farið langt fram úr heimildum og kostað á fjórðu milljón. Gæluverkefnið fór því mörg hundruð prósent fram úr áætlun og engin heimild fyrir framúrkeyrslunni. Það upplýstist þó að millifært hefði verið á milli liða í fjárhagsáætlun og m.a. teknir peningar úr undirbúningi að fyrirhuguðum ævintýragarði.
Málið er því allt hið ótrúlegasta og meinhluta V-Grænna og Sjálfstæðismanna varla til sóma.
Mosfellsfréttir vona hins vegar að húsið komi til með að nýtast áhugasömu fuglaskoðunarfólki í framtíðinni þar sem Leirugvogurinn er stærsta fæðuöflunarsvæði vaðfugla á höfuðborgarsvæðinu. 
Fullyrða má að betur hefði mátt fara með sameiginlegt fé okkar.

29.október
Nornaveiðar og ábyrgð Framsóknar

Nornaveiðimenn fara nú mikinn í blogg-heimum og keppast við að finna sökudólga fyrir því hvernig nú er komið. Því miður eru rannsóknir sem liggja að baki slíkum veiðum ekki alltaf vísindalegar og megnið af þeim í formi frasa og upphrópana sem, þegar betur er að gáð, eiga sér veika stoð í raunveruleikanum. Framsóknarmenn sitja nú undir ámæli fyrir að hafa setið í ríkisstjórn með Sjálfstæðismönnum undanfarin þrjú kjörtímabil og telja sumir að þess vegna sé orsök vandans að leita þar. 
Lítum á staðreyndir. 
Meira.....

24.október
Rjúfum þögn ráðamanna!

SUF stendur ásamt fjölmörgum einstaklingum og félagasamtökum fyrir kröfugöngu næstkomandi laugardag til þess að mótmæla ærandi þögn ráðamanna. Gengið verður frá Austurvelli klukkan 16:00 að Ráðherrabústaðnum með kyndla. Kyndlar fást m.a. í Rúmfatalagernum en verða líklega einnig seldir á Austurvelli. Krafan er einföld og þverpólitísk: RJÚFUM ÞÖGN RÁÐAMANNA. Í ráðherrabústaðnum er setið dag hvern og samið um framtíð okkar en engar fáum við upplýsingarnar. 

Mætum öll á Austurvöll til að hittast og sýna hvert öðru samhygð. Við höfum rödd og stöndum saman!

 

16.október
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn í sal félagsins að Háholti 14, laugardaginn 1. nóvember kl. 10,00
 
                       
Dagskrá:

Skýrsla stjórnar.
Reikningar félagsins.
Kosningar 
Formann félagsins
Fjóra aðalmenn í stjórn og tvo til vara
Tvo skoðunarmenn reikninga

Kosning fulltrúa á kjördæmisþing Suðvesturkjördæmis
Önnur mál.

Haustfagnaður Framsóknarfélagins
Um kvöldið þann 1.nóvember verður haldinn haustfagnaður Framsóknarfélagins salnum að Háholti 14. Fagnaðurinn hefst með fordrykk kl 1900

Heiðursgestur Bjarni Harðarson
Um matinn sér Óli Tran hjá Asiu
Happdrætti
Leikir
Leyniatriði

Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar


10.október
Fundur um gjaldmiðilsmál í Kópavogi
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópavogi boðað til opins fundar um gjaldeyrismál laugardaginn 11. október 2008 kl. 11.00
Staðsetning: Digranesvegi 12
Frummælandi: Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrrverandi alþingismaður, og formaður nefndar Framsóknarflokksins um gjaldeyrismál.
Allir velkomnir
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópavogi

9.október
Bæjarráð Mosfellsbæjar bregst við breyttri stöðu í íslensku efnahagslífi 
Í ljósi breyttrar stöðu í efnahagslífi þjóðarinnar bregst bæjarráð Mosfellsbæjar við með eftirfarandi aðgerðum. Almenn þjónusta við bæjarbúa verður með hefðbundnum hætti. Haldið verður áfram með þær framkvæmdir á vegum sveitarfélagsins sem þegar eru hafnar. Gjaldskrá verður óbreitt að sinni, starfshópur skipaður um upplýsingagjöf og til að veita íbúum ráðgjöf. Formaður bæjarráðs er formaður samstarfshópsins. Sjá má bókun bæjarráðs í heild sinn hér....


9.október
Ungir framsóknarmenn krefjast afsagnar seðlabankastjóra
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna krefst þess að bankastjórn Seðlabanka Íslands verði sett af hið snarasta, og stýrivextir lækkaðir í kjölfarið.
„Ljóst er að afdrifarík mistök seðlabankastjóra á miklum óvissutímum hefur skaðað þjóðarhag til muna á alþjóðagrundvelli og gert illt verra. Ríkisstjórnin verður að taka fast á málum. Beinir stjórn SUF sérstaklega orðum sínum til Samfylkingar, að flokkurinn hafi frumkvæði að þessum hreingerningum, enda óljóst hver ræður ferðinni í samstarfsflokknum. Sé þetta ekki gert er ljóst að ríkisstjórn Íslands er rúin trausti hjá almenningi og skuli hún þar með tafarlaust segja af sér.
Um leið krefst stjórnin þess að látið verði af pólitískum skipunum seðlabankastjóra og fagleg sjónarmið verði látin ráða för þegar ráðið verði í embættin að nýju. Stjórnin lýsir sömuleiðis yfir stuðningi við frumvarp þess efnis sem þingflokkur Framsóknarflokksins hefur lagt fram."


7.október
Kidda í frambodi 2.bmpYfirfærsla málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga árið 2011
Grein: eftir Kristbjörgu Þórisdóttur 
Þann 28. ágúst s.l. var stigið fyrsta skrefið mót nýrri framtíð varðandi málefni fatlaðs fólks. Þá var undirritaður samningur við Reykjavíkurborg um það að hún taki að sér framkvæmd þjónustu fyrir geðfatlað fólk í byrjun næsta árs. Samkvæmt metnaðarfullri stefnumótun félagsmálaráðuneytisins „Mótum framtíð“ er stefnt að því að í kjölfarið fylgi yfirfærsla á þjónustu við fatlað fólk frá ríki til sveitarfélaga eða eins og sagt er í skýrslu á vef ráðuneytisins að: Meira..

6.október
Opinn fundur um fyrirhugaða lagningu Tunguvegar
Varmársamtökin með málþing
Mánudagskvöldið 13. október kl. 20. 30 verður málþing í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2. Lagning Tunguvegar úr hinu nýja Leirvogstunguhverfi í miðbæ Mosfellsbæjar verður til umræðu á þessum fyrsta opna fundi Varmársamtakanna í vetur. 
Dr. Ólafur Arnalds, jarðvegsfræðingur og Valdimar Kristinsson, blaða- og hestamaður, munu vera með framsögu á fundinum og fjalla um áhrif vegarins á umhverfi sitt. Tunguvegur liggur yfir svæði á náttúruminjaskrá og í grennd við friðlýsta ósa Varmár, einnig yfir Köldukvísl ásamt því að hafa mikil áhrif á aðstöðu hestamanna í Mosfellsbæ.

30.september
Viðtalstímar bæjarfulltrúa á morgun miðvikudag.
Bæjarfulltrúar í Mosfellsbæ, þeir Karl Tómasson  og Marteinn Magnússon, verða með viðtalstíma miðvikudaginn 1. október 2008 á bæjarskrifstofunni, Þverholti 2, 4. hæð kl. 17:00.

29.september
Orð dagsins er stöðugleiki
Eggert Sólberg bloggar:
“Tilgangurinn með þessari aðgerð er að tryggja stöðugleika í fjármálakerfinu” segir í tilkynningu frá Forsætisráðuneytinu og viðskiptaráðherra segir að verið sé að “verja fjármálalegan stöðugleika” með aðgerðum morgunsins. Nú spyr ég eins og fávís maður hvort ekki þurfi að ná stöðugleika fyrst áður en hægt verði að tryggja hann eða verja?
Verðbólgan nálgast nú 15%, stýrivextir seðlabankans eru þeir hæstu á Vesturlöndum, fjárlögin gerðu ráð fyrir 20% útgjaldaaukningu árið 2008 frá fyrra ári, gengisvísitalan hefur hækkað um tugi prósenta á stuttum tíma, verðtryggð lán almennings rjúka upp, fasteignir falla í verði, fréttir berast af fjöldauppsögnum fyrirtækja og bankar hafa verið að taka yfir aðra bankastofnanir vegna fjármagnsskorts svo eitthvað sé nefnt. Ef þetta er stöðugleikinn sem ráðherrar ríkisstjórnarinnar sækjast eftir þá ættu þeir að fletta hugtakinu upp í orðabók.


29.september
Naglbít beitt í nágrannaerjum dv segir frá
Eigendur hestaleigunnar hafa staðið í langvarandi illdeilum við Jón Baldvinsson
Lögregla var kölluð til fyrir helgi þegar upp úr sauð í langvarandi nágrannadeilu um aðgengi að beitarlandi í Laxnesi í Mosfellsbæ. Jón Baldvinsson á Furuvöllum segir Hauk Þórarinsson hjá Hestaleigunni Laxnesi hafa slegið til sín með naglbít þannig að undan blæddi. Haukur segir um smámál að ræða og að Jón hafi rekist í naglbítinn þegar Haukur bar hönd fyrir höfuð sér undan áhlaupi Jóns.   meira á www.dv.is


26.september
Guðni Ágústsson á ferð um Mosfellsbæ
"Til móts við Mosfellinga"

Guðni Ágústsson formaður Framsóknarfloksins var á ferð um Mosfellsbæ g
Heimsóknin endaði svo með fjölmennum fundi í félagsheimili Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ þar sem Guðni fór yfir stjórnmálaástandið , aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar, verðbólguna, vaxtaokrið og almennt um stöðu þjóðmála.  Fundagestir spurðu margs og greinilegt er að fundarmenn höfðu áhyggjur af alvarlegri stöðu þjóðarinnar þó annars væri slegið á létta strengi þess á milli eins og Guðna er einum lagið.

25.september
Bergur Ebbi rýnir í hlutverk skáldskapar.

Fyrsta stofuspjall vetrarins um verk mánaðarins fer fram á Gljúfrasteini sunnudaginn 28. september klukkan 16:00.
Að þessu sinni verður stórverk Halldórs Laxness, Heimsljós, í brennidepli. Bergur Ebbi, söngvari hljómsveitarinnar Sprengjuhöllin, mun ræða um bókina og fara um víðan völl í umfjöllun sinni. Hann mun velta fyrir sér hvaða mann eða menn Ólafur Kárason hefur að geyma og fjalla um nokkur skáld sem Bergur Ebbi telur eiga samsvörun með ljósvíkinginum, auk þess að tengja lífshlaup persónunnar Ólafs við Halldór sjálfan.
Eins og sjá má verða líflegar umræður og spennandi umfjöllunarefni í stofu nóbelsskáldsins sunnudaginn kemur. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Verk mánaðarins er haldið síðasta sunnudag í hverjum mánuði kl. 16.00 að desember undantöldum, en þá er lesið úr jólabókum. Gestir eru hvattir til að taka virkan þátt í stofuspjallinu og kasta fram spurningum og vangaveltum. Dagskrá haustsins má sjá í heild sinni á heimasíðu Gljúfrasteins.


24.september

Upplýsingagátt um Evrópumál

Nú hefur verið opnuð upplýsingagátt á www.framsokn.is fyrir þá sem vilja vera viðræðuhæfir um helstu Evrópumál.

23.september
Guðni fundar í Mosfellsbæ á fimmtudagskvöldið 
"
Til móts við Mosfellinga"
Formaður Framsóknarflokksins Guðni Ágústsson verður með fund í salnum að Háholti 14  2.hæð á fimmtudagskvöldið n.k. kl 20.00
Fundurinn er liður í fundaferð Guðna Ágústssonar um landið þar sem hann heimsækir fólk og fyrirtæki og boðar til opinna funda. 
Á fundinum ætlar Guðni að  ræða um stjórnmálaástandið, aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar, verðbólguna og vaxtaokrið svo og almennt um stöðu þjóðarbúsins.

                         Allir velkomnir.

                         Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar


21.september
Mikill áhugi á hundarækt
Hundasýning í reiðhöll Fáks í Víðidal
Helgina 27.-28. september mæta um 750 hreinræktaðir hundar af 86 hundakynjum í dóm á hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands. 
Sýningin verður haldin í Reiðhöllinni í Víðidal og hefjast dómar kl. 9.00 árdegis báða daga og standa fram eftir degi. Fimm dómarar frá fjórum löndum, Ísrael, Mexíkó, Svíþjóð og Finnlandi dæma í fimm sýningarhringjum samtímis. Úrslit á sunnudegi hefjast upp úr kl. 14:00 og kemur þá í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara. 
Sýningar félagsins hafa stækkað ár frá ári sem endurspeglar mikinn áhuga Íslendinga á hundum og hreinræktun þeirra. Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu. 


18.september
Steinunn Marteinsdóttir opnar málverkasýningu
Þar spretta laukar, þar gala gaukar 
Laugardaginn 20. september kl. 14:00 verður opnuð sýning á málverkum Steinunnar Marteinsdóttur í Listasal Mosfellsbæjar. Á sýningunni sem ber heitið Þar spretta laukar, þar gala gaukar, sýnir Steinunn olíumálverk á striga sem sprottin eru útfrá hughrifum frá náttúrunni og tengslum mannsins við hana. Sýningin stendur til 18. október 2008.


16.september
Bæjarstjórn Mosfellsbær tekur lóðir af Kaupfélaginu! 
Á síðasta fundi bæjarstjórnar ákvað meirihluti bæjarstjórnar gegn atkvæði Marteins Magnússonar að leysa til sín lóðir að Háholti 16,18 og 20. Kaupfélagið hefur þinglýsta lóðaleigusamninga að þessum lóðum og hafði sótt um að byggja á þeim verslunar og skrifstofuhúsnæði samkvæmt gildandi deiliskipulagi en ekki hlotið afgreiðslu skipulags-og byggingarnefndar..
Bókun Marteins Magnússonar, fulltrúa Framsóknarflokksins, vegna þeirrar áætlunar meirihluta bæjarstjórnar að taka lóðirnar til sín með vísan í 12. gr. lóðaleigusamnings, er svohljóðandi:
Það að Mosfellsbær ætli að taka til sín umræddar lóðir með því að rifta lóðaleigusamningi eftir litlar og áhugalausar samningsumleitanir af hendi bæjarins er afar óeðlilegt.  Svona vinnubrögð eru ófagleg og samningaviðræðurnar lítið annað en sýndarmennska. Eflaust er þetta einnig brot á eðlilegum samskiptareglum bæjarfélags við þegnana. Lóðarhafi umræddra lóða hefur fyrir löngu lagt fram teikningar til skipulags- og byggingarnefndar um uppbyggingu lóðanna í samræmi við skipulag svæðisins og samkvæmt ákvæðum lóðaleigusamnings og ekki fengið eðlilega afgreiðslu. Viðmót bæjarins gagnvart atvinnufyrirtæki í bæjarfélaginu er með þessum hætti til skammar og að mínu mati til þess fallið að fyrirtæki forðist frekar en laðist að uppbyggingu í Mosfellsbæ. Mosfellsbær þarf að vinna að málum eins og þessu með heiðaleika, vandaðri og faglegri stjórnsýslu þar sem meðalhófs er gætt, en það hefur ekki átt sér stað í þessu máli.


15.september
Hjólalest úr Mosfellsbæ
Mosfellsbær tekur þátt í fyrsta skipti í Evrópskri samgönguviku.
Framundan er Evrópsk samgönguvika dagana 16.-22. september n.k. þar sem hvatt er til umhverfisvænni samgöngumáta með yfirskriftinni “Hreint loft fyrir alla”.  Um er að ræða vitundavakningu um nauðsyn þess að draga úr mengun af völdum umferðar og hvetja til breyttra og betri samgönguhátta.  Skipulögð verður hjólalest úr Mosfellsbæ niður í miðbæ Reykjavíkur þar sem við tekur skemmtileg dagskrá í tilefni dagsins. Lestin leggur af stað frá miðbæjartorginu kl 11:30 laugardaginn 20 september. Hjóla veður sem leið liggur niður í Elliðaárdal og þaðan í Nauthólsvík og að lokum að ráðhúsi Reykjavíkur.

14.september
Forseti bæjarstjórnar harðlega gagnrýndur
Á heimasíðu Varmársamtakana er grein sem ber nafnið “um sannleiksást Karls Tómassonar”  ástæða greinarskrifanna er stutt viðtal er birtist nú nýlega við forseta bæjarstjórnar nú nýlega undir yfirskriftinni “Mega ekki óttast skurðgröfur” sem frægt er orðið.
En í greininni segir meðal annars:
“Í viðtalinu gerir Karl sjálfan sig að píslarvotti og segist persónulega hafa verið tekinn fyrir. Ljóst er Karl gerir hér engan greinarmun á starfi sínu sem stjórnmálamaður og persónulegum málum. Varmársamtökin hafa gagnrýnt Karl  sem stjórnmálamann fyrir að svíkja þau kosningaloforð sem hann gaf kjósendum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2006 og ennfremur þann ólýðræðislega þankagang sem lýsir sér m.a. í tilhæfulausum ummælum hans um störf Varmársamtakanna og einstaka liðsmenn þeirra.”
Hér má finna greinina í heild.... 


13
Varaþingmaður SV Samúel Örn tekur sæti
Hinn geðþekki íþróttagarpur Samúel Örn Erlingsson hefur setið sem varaþingmaður Sivjar Friðleifsdóttur í vikunni en Siv hefur verið að sinna embættisverkum erlendis.
Samúel Örn lét sitt ekki eftir liggja og tók þátt í umræðum þingsins eins og hans er von og vísa og störfum allsherjarnefndar sem fjallaði um hið brýna mál, nálgunarbann, í vikunni.
Samúel Örn hefur því verið í essinu eins og jafnan þegar hann er á þingi.



5.september
Nýtt og glæsilegt hótel opnar í Mosfellsbæ
Í dag föstudaginn, 5. september opnar formlega  nýtt og glæsilegt hótel að Háholti 7, Mosfellsbæ hótelið hefur hlotið nafnið Hótel Laxnes. Með opnun hótelsins rætist úr mikilli vöntun á gistirými í bæjarfélaginu.  En segja má að skortur á gistirými hafi oft staðið ýmsum viðburðum fyrir þrifum og jafnvel komið í veg fyrir að hægt hafi verið að halda ýmiskonar mannfagnaði. Þá má gera ráð fyrir að ferðamenn staldri lengur í bænum.  Mosfellsfréttir fagnar tilkomu hótelsins og óskar eigendum þess til hamingju.


5.september
sr. Ragnheiður Jónsdóttir valin sóknarprestur í Mosfellsprestakalli
Valnefnd í Mosfellsprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi, ákvað á fundi  í gær  að leggja til að sr. Ragnheiður Jónsdóttir verði ráðin sóknarprestur í prestakallinu. Átta umsækjendur voru um embættið.
Embættið veitist frá 15. október næstkomandi. Biskup Íslands skipar í embættið til fimm ára að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipuðu níu manns úr prestakallinu ásamt prófasti Kjalarnesprófastsdæmis.
Ragnheiður lauk kandídatsprófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands árið 1998 og var skipuð sóknarprestur í Hofsósprestakalli sama ár. Hún hefur starfað sem prestur í Mosfellsprestakalli frá árinu 2004. Frá þessu segir á www.kirkjan.is


5.september
ALLIR Á VÖLLINN!  ÁFRAM AFTURELDING!
Nú hefur lið Aftureldingar tryggt sér sæti í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í 5.flokki kvenna. Leikurinn fer fram á Varmárvelli í Mosfellsbæ núna á laugardaginn 6. september kl 13:00 og mótherjarnir eru Valur. Stelpurnar okkar eru búnar að standa sig mjög vel í sumar, þær voru í öðru sæti á Pæjumótinu í Vestmannaeyjum í júní og unnu bikarinn á Símamótinu í júlí. Vonandi sjá sem flestir sér nú fært að koma og hvetja Aftureldingu til dáða. Foreldraráð skorar á alla sem vettlingi geta valdið að mæta á völlinn á laugardaginn og styðja okkar stelpur til sigurs en það er ekki á hverjum degi sem Afturelding er að spila um Íslandsmeistaratitil þannig að til mikils er að vinna.

4.september
Siv Friðleifsdóttir skoraði á Jóhönnu að koma úr felum!
Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, benti á að þegar BSRB hefði í vor gert samninga við ríkið þá hefði ekki verið hægt að leiðrétta kjör kvenna. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefði sagt að það myndi reyna á stjórnarsáttmálann varðandi þetta mál. Þá hefði hún einnig sagt að það yrði að lyfta konum upp í launum án þess að karlarnir fylgdu eftir. 
Siv sagði Ástu Möller segja að kjör ljósmæðra væru ekki viðunandi en flokksbróðir hennar Árni Mathiesen fjármálaráðherra segði efnahagsástandið of erfitt til þess að leiðrétta kjör ljósmæðra. Skoraði Siv á karlinn Árna Mathiesen að hlusta á konurnar sem krefðust eðlilegra launa og sömuleiðis að hlusta á konuna Ástu Möller sem segði að ástandið væri ekki viðunandi. Þá skoraði Siv á Jóhönnu Sigurðardóttur að fela sig ekki heldur stíga fram og þrýsta á fjármálaráðherra. Frá þessu er sagt á www.visir.is 


3.september
Herferð Samfylkingar gegn Sjálfstæðisflokki.
Af heimasíðu Magnúsar Stefánssonar alþingismanns
Eins og ég hef áður skrifað um, vekur athygli hve þingmenn og jafnvel ráðherrar Samfylkingar eru opinskáir í gagnrýni sinni á störf sjálfstæðismanna í fyrri ríkisstjórnum.  Þetta hefur komið fram í umræðum á Alþingi sl. vetur, í opinberri umræðu og í umræðum um efnahagsmál í þinginu í gær. 
Sem dæmi um þetta má nefna að Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingar skammaði okkur framsóknarmenn, eins og honum er tamt, í ræðu sinni um efnahagsmál í gær.  Skammirnar fólu í sér mikla gagnrýni á efnahagsstjórn síðustu ríkisstjórnar og virtist Árni telja að öll ábyrgð á því sem hann taldi miður hafa farið vera Framsóknarflokksins.  Hann taldi að menn hafi hreinlega ekki hafa vitað hvað þeir voru að gera í efnahagsmálum, í tíð síðustu ríkisstjórnar. Lesa meira


1.september

Formaðurinn á hringferð um landið
„Tími aðgerða í efnahagsmálum er runninn upp“
Guðni Ágústsson, alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins, hefur verið á hringferð um landið, heimsótt fólk og fyrirtæki og boðað til opinna funda þar sem rætt hefur verið um stjórnmálaástandið og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar, verðbólguna og vaxtaokrið og almennt um stöðu þjóðarbúsins.
Guðni hefur nú þegar fundað í Borgarnesi, Skagafirði, Húsavík og á Egilsstöðum fjölmenni hefur sótt fundina. Í dag mánudag verður Guðni í Þingborg í Hraungerðishreppi. Þá eru fyrirhugaðir fundir á Vestfjörðum og á höfuðborgarsvæðinu svo eitthvað sé nefnt en þeir hafa ekki verið dagsettir ennþá. 
Fundirnir sem bera yfirskriftina „Tími aðgerða í efnahagsmálum er runninn upp“ eru auglýstir með dreifibréfi á hverju svæði fyrir sig en þangað eru allir velkomnir.

28.ágúst
Síðustu tónleikar sumarsins, Gunnar Kvaran leikur Bach
Gunnar Kvaran sellóleikari mun sunnudaginn 31. ágúst kl. 16:00 halda síðustu stofutónleika sumarsins á Gljúfrasteini. Meðleikari á píanó er Haukur Guðlaugsson.
Tónleikaröð Gljúfrasteins hefur gengið mjög vel í sumar og þakkar starfsfólk fyrir góða aðsókn og skemmtilega


27.ágúst

Þjófnaður í skólum bæjarins 

Nokkuð hefur verið um þjófnað skólum bæjarins. Í Varmárskóla hefur m.a. verið stolið verðmætum myndvörpum og öðrum búnaði er notaður er til kennslu.
Síðastliðinn vetur var mikið um þjófnað í skólunum og urðu nemendur jafnt sem kennarar fyrir barðinu á þjófunum. Að sögn einnar móður var fatnaði stolið frá syni hennar að verðmæti 30.þúsund. Og þá varð kennari fyrir barðinu á þjófunum þegar veski í hennar eigu var stolið.  Nú er unnið er að því að setja upp eftirlitsmyndavélar í fatahengi Varmárskóla og leitað er leiða til að stemma stigu við ástandinu.
Aldrei er of vel brýnt fyrir nemendum að skilja ekki eftir verðmæti í yfirhöfnu.

26.ágúst
Sorpu b.s. hagnast um 19 milljónir króna
Hagnaður Sorpu b.s. fyrstu sex mánuði ársins nam rétt tæpum 19 millj.kr. en var 64,8 millj.kr. fyrir sama tímabil árið áður. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir nam 93,4 millj.kr. en var 44,9 millj. fyrir sama tímabil á árinu 2007.
Rekstrartekjur samlagsins námu 992,3 millj.kr. á tímabilinu samanborið við 945,7 millj.kr. árið 2007. Rekstrargjöld, án afskrifta og fjármagnsliða voru 839,0 millj.kr. samanborið við 841,5 millj.kr. 2007. mbl.is sagði frá þessu í dag.
Sorpa byggðarsamlag var stofnað 1988 eigendur eru sveitafélögin á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við fólksfjölda í hverju þeirra fyrir sig
.

25.ágúst
Íbúðalánasjóður kemur lántakendum til hjálpar.
Lántakendur Íbúðalánasjóðs sem eiga tvær fasteignir geta nú fengið frestun á afborgunum af lánum. Þannig kemur Íbúðalánasjóður til móts við þá lántakendur sem hafa keypt fasteign án þess að hafa náð að selja.
Heimilt er að fresta greiðslum af lánum sjóðsins á annarri eða báðum eignum. Lántakendur geta fengið greiðslufrest í eitt ár í senn en þau skilyrði eru sett að fasteignin sem um ræðir hafi verið keypt eftir 1. júlí 2007 og að reynt hafi verið að selja aðra eignina.
Vextir sjóðsins á útlánum vegna húsnæðiskaupa eru nú 4,9% með uppgreiðsluálagi og 5,4% án uppgreiðsluálags.

25.ágúst

Íkveikja í ruslagámi í nótt
Slökkvilið var kallað út að Þverholti í Mosfellsbæ í nótt vegna íkveikju í ruslagámi. Að sögn slökkviliðs var um töluverðan eld að ræða, og gámurinn stór. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. mbl.is sagði frá. Nokkuð hefur borið á því að kveikt hefur verið í rusla-og safn gámum í Mosfellsbæ upp á síðkastið.

22.ágúst
Guðni Ágústsson  á hringferð!
Tími efnahagsmála er runninn upp
Guðni Ágústsson, alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins, verður á hringferð um landið á næstunni. Hann mun heimsækja fólk og fyrirtæki og boða til opinna funda þar sem rætt verður um stjórnmálaástandið og aðgerðaleysi ríkisstjórnarinnar, verðbólguna og vaxtaokrið og almennt um stöðu þjóðarbúsins.
Guðni mun boða til opinna funda í Félagsbæ við Borgarbraut í Borgarnesi mánudaginn 25. ágúst n.k., kl. 20:30, í Varmahlíð þriðjudaginn 26. ágúst, á Húsavík miðvikudaginn 27. ágúst og á Egilsstöðum fimmtudaginn 28. ágúst. Fundirnir sem bera yfirskriftina „Tími aðgerða í efnahagsmálum er runninn upp“ verða auglýstir með dreifibréfi á hverju svæði fyrir sig en þangað eru allir velkomnir.

22.ágúst

sr. Jón Þorsteinsson kveður söfnuðinn
Guðsþjónusta í Lágafellskirkju sunnudaginn 24. ágúst kl. 14.00
Næstkomandi sunnudag 24. ágúst mun sr. Jón Þorsteinsson, sóknarprestur kveðja söfnuðinn í guðsþjónustu safnaðarins kl. 14:00. Sr. Jón hefur þjónað söfnuðinum í 18 ár. 
Allir hjartanlega velkomnir.
Að guðsþjónustunni lokinni býður sóknarnefnd Lágafellssóknar kirkjugestum í kaffi í Hlégarði. Þar verða honum færðar þakkir fyrir farsæl og traust störf hans í þágu safnaðarins. 

 

21.ágúst
Söngur, gítarspil og gleði á Gljúfrasteini
Steinunn S. Skjenstad, sópransöngkona og Solmund Nystabakk gítarleikari munu sunnudaginn 24. ágúst kl. 16:00 halda tónleika í stofunni á Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er aðeins 500 kr. og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. 
Á efnisskránni kennir ýmissa grasa en tónleikarnir hefjast á verkum Franz Schuberts við ljóð Goethe og annarra þýskra ljóðskálda. Þar á eftir verða flutt verk eftir Benjamin Britten og í endann verður svo tekin þjóðlagasyrpa þar sem jafnt íslensk sem norsk þjóðlög verða flutt í útsetningu Solmunds Nystabakks. Það er því spennandi dagskrá sem bíður áheyrnar í stofunni á Gljúfrasteini.

20.ágúst
Krikaskóli (Brekkukot) formlega opnaður
Krikaskóli í bráðabyrgðar húsnæði fram á næsta haust
Í gær var Brekkukot formlega opnað en Krikaskóli er nú rekinn þar til bráðabyrðar.
Næsta haust færist starfsemin væntanlega í nýtt framtíðarhúsnæði í Krikahverfi en Krikaskóli verður í framtíðinni fyrir börn frá eins árs til níu ára. Þrúður Hjelm hefur verið ráðin skólastjóri Krikaskóla en hún hefur þegar hafið störf. Í Brekkukoti verða u.þ.b. 45 börn í vetur á aldrinum tveggja til fimm ára.

15.ágúst
Stofutónleikar Gljúfrasteins
Frá Bach til Boss - fiðla að hætti Hjörleifs
Hjörleifur Valsson fiðluleikari mun á sunnudaginn 17. ágúst kl. 16:00 halda tónleika í stofunni á Gljúfrasteini. Aðgangseyrir er aðeins 500 kr. allir velkomnir meðan að húsrúm leyfir. 
Hjörleifur mun hefja leikinn á sónötu köflum eftir Bach, leika svo verk eftir Paganini og enda á þjóðlaga fantasíu með hjálp galdrameistara nútímans, eins og hann segir sjálfur frá.
Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér.

15.ágúst
Útimarkaður Varmársamtakana “Í túninu heima”

Varmársamtökin halda nú útimarkað í þriðja sinn, laugardaginn 30. ágúst frá kl. 12 -16 í tengslum við bæjarhátíðina “Í túninu heima”.  Á markaðinum verður m.a. hægt að versla lífrænt grænmeti, silung, harðfisk, sultur, heilsuvörur, kaffiveitingar og margt fleira.
Markaðurinn hefur verið fjölsóttur og skemmtilegur viðburður sem nú er að festa sig í sessi í bæjarlífinu.


13.ágúst

Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2008
Afhending umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar 2008 fór fram þriðjudaginn 12. ágúst í fundasal bæjarstjórnar en umhverfisviðurkenningu Mosfellsbæjar hlutu að þessu sinn:

Kristleifur Guðbjörnsson og Margrét Ólafsdóttir Arkarholti 4. fyrir áratuga ræktunarstarf.
Gunnlaugur Júlíusson og Jónína S Jónsdóttir Leirutanga 27. fyrir fallegan og vel hirtan garð þar sem umhirða gróðurs er til fyrirmyndar.
Svavar S Tómasson og Rannveig Raymondsdóttir Hamratangi 15. fyrir sérstaklega fallega hönnun og skipulag lóðar.

Þess má geta að hjónin Kristleifur og Margrét Arkarholti 4. hafa tvívegis áður hlotið umhverfisviðurkenningu Mosfellsbæjar 1994 og 1986

13. ágúst
Loksins opnar Mosfellsbær íbúagátt
Loksins opnar Mosfellsbær íbúagátt á heimasíðu sinni bæjarbúum til hagsbóta en mörg bæjarfélög hafa þegar stigið þetta skref fyrir margt löngu síðan.
Ráðgert er að íbúagáttin verði opnuð 18. ágúst. Fyrst í stað verður eingöngu hægt að sækja um mötuneyti grunnskólanna og dvöl fyrir barn í frístundaseli í gegn um íbúagáttina.
Markmiðið með rafrænni íbúagátt er almennt að gefa íbúum kost á  að sækja um þjónustu til sveitarfélagsins, senda inn formleg erindi, fylgjast með framgangi sinna mála, skoða greiðslustöðu, koma ábendingum á framfæri svo eitthvað sé nefnt.

10.júlí
Erum farin í sumarfrí frá og með 10.júlí til og með 13 ágúst.


8.júlí

Glæsilegt auglýsingaskilti
Framsóknarflokkurinn í Mosfellsbæ hefur látið merkja húsnæðið hjá sér með veglegu skilti á húsgaflinn að Háholti 14.
Hvort þetta sé upphaf stórsóknar látum við ósagt en nú ætti ekki að fara fram hjá neinum hvar framsóknarmenn í Mosfellsbæ eru til húsa hafi vafi leikið á því.  Eitthvað hefur borið á því að fólk hefur átt í vandræðum með að finna fundarsal framsóknarmanna að Háholti allir hafa þó skilað sér að lokum á fjöruga fundi framsóknarmanna.

 

 


8.júlí
Framkvæmdir við Reykjaveg talsvert á eftir áætlun
Íbúar Teigahverfis orðnir langþreyttir á löngum

Framkvæmdir við fyrirhugað hringtorg og undirgöng sem hófust í febrúar sl. hafa dregist úr hófi fram. Íbúar kvarta yfir drætti á framkvæmdum en upphaflega var fyrirhugað að þær stæðu yfir í fjóra mánuði.  Nú hafa þessar framkvæmdir dregist um nær átta vikur.
Gert var ráð fyrir að lokað yrði frá og með 15. febrúar og til 15 maí vegna framkvæmda Vegagerðar og Mosfellsbæjar við hringtorg og undirgöng á gatnamótum Jónsteigs, Stórakrika og Reykjavegar, en tímabundin aðkoma að Teigahverfi hefur verið í gegnum Völuteig og Víðiteig á meðan á framkvæmdum hefur staðið. 

8.júlí
Ljósmyndasýning í Listasal Mosfellsbæjar
Laugardaginn 12. júlí næstkomandi opnar Guðmunda Jónsdóttir ljósmyndasýningu sína Augnakonfekt í Listasal Mosfellsbæjar.
Ljósmyndirnar á sýningunni hafa að mestu leyti verið teknar á síðastliðnum tveimur árum. Meginviðfangsefni hennar á sýningunni er landslag, blóm, fólk og dýr. Guðmunda er félagi í Fókus, sem er félag áhugaljósmyndara og hefur hún tekið þátt í samsýningum á vegum þess.  Allir velkomnir - Aðgangur er ókeypis


7.júlí
Engin jarðtenging í Valhöll!

Ungir sjálfstæðismenn sendu í dag frá sér ályktun þar sem þeir komast að þeirri niðurstöðu að niðurlagning Íbúðalánasjóðs sé til þess fallin að skapa heilbrigðari aðstæður á fjármálamarkaði hérlendis. Meginþorri þjóðarinnar er hins vegar búinn að sjá í gegnum gylliboð bankanna og bíður nú milli vonar og ótta eftir því að bankarnir endurskoði vexti á húsnæðislánum sem þeir dældu út á fasteignamarkaðinn í ómældu magni svo hann lá stórskaðaður á eftir.
Ungir sjálfstæðismenn tilheyra greinilega ekki meginþorra þjóðarinnar sem styður Íbúðalánasjóð dyggilega. Spyrja má einnig hvort ungir sjálfstæðismenn styðji ekki núverandi ríkisstjórn sem fékk Íbúðalánasjóði aukið hlutverk á fasteignamarkaði fyrir nokkrum dögum.
Heilbrigðið sem sjálfstæðismenn kalla svo mjög eftir á íbúðalánamarkaði felst í því að uppfylla þeirra eigin trúarbrögð um að samkeppni færi fólkinu í landinu alltaf bestu kjörin. Það þarf ekki að líta lengi í kringum sig til að sjá að því miður ber of lítið á kröftugri samkeppni hér á landi og sporin hræða hvað samráð á frjálsum og fámennum markaði áhrærir.
Já, það er ekki ofsögum sagt að sjálfstæðismenn séu búnir að tapa jarðtengingunni, ungir sem aldnir. 


2.júlí
Djassað á Gljúfrasteini

Sunnudaginn 6. júlí kl. 16:00 munu Kristjana Stefánsdóttir djasssöngkona, Agnar Már Magnússon píanóleikari og Helga Björg Ágústsdóttir sellóleikari halda tónleika á Gljúfrasteini. Á efnisskránni má finna verk eftir tónskáldin Sunnu Gunnlaugsdóttir, Tómas R. Einarsson og Sigurð Flosason við ljóð ýmissa þekktra íslenskra ljóðskálda, þar á meðal Tómas Guðmundsson og Halldór Laxness.
Unnendur djass og góðrar tónlistar ættu því ekki að láta þennan viðburð framhjá sér fara. 
Sem fyrr er aðgangseyrir aðeins 500 kr. og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér.

24.júní 
Er Mosfellsbær fjölskylduvænt bæjarfélag?
Mosfellsbær greiðir lægstu styrkina vegna frístunda barna á höfuðborgarsvæðinu.

Nokkur umræða hefur verið um greiðslur sveitarfélaga vegna frístundaiðkunar. Það hefur vakið athygli Mosfellsfrétta að samanburður á styrk til fjölskyldna barna 6-18 ára vegna íþróttaiðkunar hefur verið Mosfellsbæ óhagstæður og í ljósi þessa er taflan hér að neðan birt lesendum til upplýsinga.


Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á 493.fundi sínum sl. miðvikudag tillögu íþrótta-og tómstundarnefndar um greiðslur vegna frístundávísunnar að kr 18000 fyrir árið 2008-9.
Greiðslur þessar eru fyrir öll börn í Mosfellsbæ á aldrinum 6-18 ára.
Ef borin er saman upphæðin við nágranasveitafélögin þá er ljóst að Mosfellsbær má gera betur en samkvæmt upplýsingum Mosfellsfrétta þá er aðeins Reykjavík og Mosfellsbær búnir að samþykkja upphæðina fyrir árið 2009 en upphæð annar sveitafélaga miðast við árið 2008.
Það er því augljóst að ef miðað er við þessar upplýsingar þá getur Mosfellsbær varla talist fjölskylduvænt bæjarfélag..
 

 

 

 

 

 

 

Veljum íslenskt
Veljum X-B
FYRIR ALLA

 

 

 

To be is to do
Sokrates
Do bee do bee do
Frank Sinatra

 

Viltu koma skoðun  þinni á framfæri, viltu að við látum þig vita þegar nýtt efni er sett inn á síðuna eða óskar þú eftir upplýsingum?
Sendu okkur tölvupós
t:

frettir@mosfellsfrettir.is