Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró

                                                            2005


26.maí
Afturelding - Stjarnan
Laugardaginn 28. maí kl. 16 mæta okkar menn úr Aftureldingu Stjörnu strákunum úr Garðabæ á Varmárvelli.  Afturelding tapaði mjög óverðskuldað gegn Leikni svo það er kominn tími á að sýna Stjörnunni hvað í okkur býr.



25.maí

Umhverfisdagur hestamanna.
Þriðjudagskvöldið 24. maí klukkan 18:00 blés beitar- og umhverfisnefnd Hestamannafélagsins Harðar til hins árlega hreinsunardags  þar sem gæðingarnir fengu frí en þess í stað tóku knaparnir sér hrífu og/eða plastpoka í hönd og hreinsuðu til í nánasta umhverfi félagsins. Reiðvegir voru rakaðir og allt rusl tínt meðfram þeim auk þess sem hesthúsahverfið var hreinsað. Hreinsuðu hestamenn svæðið frá Mosfellsdal og meðfram ströndinni allt að bæjarmörkum. Það voru milli 50 og 60 hestamenn sem tóku þátt í átakinu og var stemmningin mjög góð eins og sjá má á myndunum. 
Að lokinni hreinsun bauð félagið hreinsunarmönnum upp á síðbúinn kvöldverð.
Þetta er í fimmta skipti sem beitar-og umhverfisnefnd félagsins stendur fyrir þessum skemmtilega viðburði og haft var á orði að alltaf minnkaði ruslið með hverju árinu. Fyrsta árið var afreksturinn fjórir fullir gámar en nú var það aðeins einn fullur gámur. Segja má að það sé til marks um aukna umhverfisvitund fólks að ruslið fer minnkandi með hverju árinu.







 

 

 


 

24.maí
Íbúaþing í Mosfellsbæ

Mosfellsfréttir vilja minna á íbúaþingið laugardaginn 28. maí næstkomandi. Markmið íbúaþingsins er að veita bæjarbúum tækifæri til að tjá sig um það sem er gott og finna leiðir til að bæta það sem betur má fara.
Sérstök dagskrá fyrir börn og unglinga meðan á íbúaþinginu stendur.
Þingstaður: Íþróttamiðstöð Mosfellsbæjar við Varmá,
DAGSKRÁ
Kl. 9:30 Morgunkaffi, skráning í hópa
Kl. 9:50 Karlakórinn Stefnir syngur
Kl. 10:00  Setningarávarp, Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri Mosfellsbæjar
Kl. 10:15   Jóhann Ingi Gunnarsson, íbúaþingsstjóri flytur inngangsorð
Kl. 10:30  Framsöguerindi sérfræðinga
Kl. 11:00  Hópavinna hefst
Kl. 12:00  Hádegisverður í boði Mosfellsbæjar – Mosfellskórinn syngur
Kl. 13:00  Hópavinna heldur áfram
Kl. 14:45   Kaffihlé
Kl. 15:00 Greint frá niðurstöðum hópavinnu í Íþróttamiðstöðinni
Kl. 15:55 Samantekt – lokaorð og þingi slitið
Kl. 16:00 Sveitaball fyrir utan Íþróttamiðstöðina

 

23.maí
Umhverfisdagur hestamanna.
Þriðjudagskvöldið 24. maí klukkan 18:00 blæs beitar- og umhverfisnefnd Hestamannafélagsins Harðar til árlegs hreinsunarátaks þar sem gæðingarnir fá frí en þess í stað taka knaparnir sér hrífu eða plastpoka í hönd og hreinsa til í nánasta umhverfi félagsins. Einnig verða reiðvegir rakaðir og allt rusl tínt meðfram þeim.
Að lokinni hreinsun býður félagið upp á síðbúin kvöldverð. Það er að jafnaði mjög góð mæting enda stemmningin góð.


17.maí
Ný Nóatúnsverslun í Mosfellsbæ
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkt með þremur atkvæðum að úthluta Smáragarði ehf lóðunum að Háholti 13 og 15. samkvæmt fyrirliggjandi umsókn. Hugmyndir Smáragarðs er að byggja yfir nýja 3000m2 Nóatúnsverslun.

17.maí
Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2005
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar auglýsir eftir ábendingu um bæjarlistamann Mosfellsbæjar, 2005.  Bæjarlistamanni er jafnframt veittur menningarstyrkur og verður útnefning tilkynnt við þjóðhátíðarhöldin í Mosfellsbæ 17. júní í ár.
Nefndin óskar hér með eftir tilnefningum eða ábendingum frá Mosfellingum um einstkaling eða samtök listamanna í Mosfellsbæ, sem til greina koma að bera sæmdarheitið bæjarlistamaður ársins 2005
Einungis einstaklingar, sem búsettir eru í Mosfellsbæ og hópar og samtök, sem starfa í bæjarfélaginu koma til greina.  Þá setur menningarmálanefnd það einnig sem skilyrði að tilnefndir einstaklingar eða hópar hafi verið virkir í listgrein sinni.
Ábendingar þurfa að hafa borist Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar í síðasta lagi 24. maí 2005, og skulu sendast til:

Fræðslu- og mennningarsvið
Bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar, Kjarna
Þverholti 2
270 Mosfellsbær

Menningarmálanefnd Mofsellsbæjar
Frá þessu sagði á www.mos.is

12.maí
Sorgleg niðurstaða.

Á 419. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar í gær þann 11.maí var samþykkt með 4 atkvæðum meirihlutans gegn 3 atkvæðum minnihlutans að íþróttasalur íþróttamiðstöðvar við Lækjarhlíð skyldi minnkaður úr 22x44 í 18x33m. Minnihlutinn hefur ítrekað nauðsyn þess að byggja salinn stærri enda verði horft fram á við og íþróttasalur byggður sem þjóni öllum þörfum í nútíð og framtíð. Jafnt fyrir nemendur við Lágafellsskóla svo og stækkandi leikskóla að Huldubergi en eins og allir vita er mikil umræða um að leggja eigi aukna áherslu á hreyfingu leikskólabarna. Benda má á að það hefur alltaf verið skoðun minnihlutans að það skuli vera íþróttasalur við hvern skóla og því engin ný sannindi þar á ferðinni. Dapurlegast er að með þessari ákvörðun er aðeins verið að “spara” 50 milljónir í 850 milljóna framkvæmd.

Á sama fundi bæjarstjórnar bókuðu fulltrúar B og G lista eftirfarandi:

Í ljósi þeirra gagna og upplýsinga sem fram hafa komið teljum við það óásættanlegt að íþróttasalurinn við Lækjarhlíð verði minnkaður úr 22x44m í 18x33m.  Þegar allar kennslustundir fyrir nemendur í um 30 bekkjadeildum, val áföngum og sérkennslu og frístundaskóla eru teknar saman er ljóst að húsið getur ekki annað því starfi innan eðlilegs tíma yfir daginn sem og hugsanlegum afnotum leikskólabarna af salnum.  Viðvörunarorð hafa komið fram frá fagaðilum um þetta efni, sem ber að taka alvarlega, um að minnkun salarins þrengi að íþróttakennslunni við skólann sem og hamli framtíðar þróun um fjölgun hreyfitíma grunnskólabarna.

Notum skynsemina og látum kosningaloforð ekki reka okkur áfram og frestum þessari framkvæmd að öðru leyti en að byggja hentugan íþróttasal enda skal bent á að áætlaður kostnaður er kominn langt fram úr fjárhagsáætlunum Mosfellsbæjar.


9.maí
Hringlandaháttur meirihlutans.

Í umræðunni um byggingu íþróttamiðstöðvar á vestursvæði hafa sjálfstæðismenn snúist eins og skopparakringlur og snúist í heilhring í sínum hringlandahætti.

En út af hverju er allt þetta fjaðrafok? Fyrir þá sem ekki hafa fylgst með umræðunni þá er verið að tala um að spara 50 milljónir í 850 milljóna framkvæmd með því að minnka íþróttasalinn úr 22mtr. x 44mtr. í 18mtr. x 33mtr.

Formaður íþrótta- og tómstundanefndar sagði á fundi matsnefndar um byggingu íþróttamiðstöðvar í janúar sl. að í sínum huga kæmi ekki til greina að minnka íþóttasalinn úr 22mtr. x 44mtr.  Á fundi íþrótta- og tómstundanefndar sagði annar fulltrúi þess sama flokks að hann væri orðinn þreyttur á að vera “puntudúkka” og lýsti sig andsnúinn minnkun salarins en aðeins viku seinna greiða þessir aðilar sem eru í meirihluta íþrótta- og tómstundanefndar atkvæði með minnkun salarins. Hver snýst í hringi og hver er puntudúkka? Það skyldi þó ekki vera að Ragnar Reykás stjórni þessum hringlandahætti með bláu höndinni.

Bókanir hafa gengið á víxl og er málið allt að verða hið skondnasta. Vitnað er í gamlar bókanir minnihlutans þar sem lagt er til sparsemi og nýja stefnu nýs meirihluta þ.e. íþróttasalur við hvern skóla sem var jú stefna fráfarandi meirihluta.

Minnihlutinn hefur ætíð bent á að nota nú skynsemina og en vera ekki rekin áfram af kosningaloforðum og fresta alfarið þessari framkvæmd að öðru leyti en að byggja hentugan íþróttasal. Það virðist samt eiga að djöfla þessu áfram þrátt fyrir að kostnaður sé kominn langt upp fyrir fjárhagsáætlanir bæjarins um byggingu þessa mannvirkis. Ekki virðast 50 milljónir nú vera mikið til viðbótar þegar á að þvinga byggingu þessarar íþróttamiðstöðvar í gegn. Hæpinn sparnaður til lengri tíma þegar ekki verður hægt að nota salinn á fullnægjandi hátt, eins og fram hefur komið í ábendingum m.a. íþróttakennara og fagstjóra Lágafellsskóla. Sparnaður sem gæti verið orðinn dýr eftir nokkur ár þegar öllu verður á botninn hvolft. Það getur nefnilega verið dýrt að spara aurinn en henda krónunni.


28.apríl

Íþróttamiðstöð í Lækjarhlíð

Á fundi bæjarstjórnar í gær var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum að vísa minnkun íþróttasalar aftur til umræðu í fræðslunefnd. Fram hefur komið síðustu daga hörð viðbrögð, sem sjá má í bréfi og bókunum, frá íþróttakennurum og fagstjóra Lágafellsskóla um að sveitarfélagið væri ekki á réttri braut ef það myndi minnka salinn. Í opnu bréfi er meðferð þessa máls líkt við starfshætti Ragnars Reykáss hjá Spaugstofunni. Minnihlutinn sagði að litlar sem engar upplýsingar hafa fylgt inn í nefndirnar um þetta mál og hefur það verið gagnrýnt í íþrótta- og tómstundarnefnd sem er m.a. fagaðili um slík mál, en lesa má frekar um þetta í bókunum íþrótta- og tómstundanefndar frá 22.apríl s.l.


27.apríl
Vortónleikar Mosfellskórsins

Vortónleikar Mosfellskórsins verða í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ miðvikudagskvöldið þann 4. maí og hefjast kl. 8.30.
Mosfellskórinn er blandaður kór og flytur tónlist sem ekki er talin hefðbundin kórtónlist. Kórinn var stofnaður fyrir 17. árum af áhugafólki um létta tónlist , og hefur sungið ýmsa swing- og rokkstandarda í gegnum árin. Lög af efnisskrá eru m.a. Vertu ekki að plata mig, Return to sender, Hvers vegna varstu ekki kyrr, og Killing me Softly o.fl.
Páll Helgason hefur stjórnað kórnum frá upphafi.

Miðaverð 1.500 kr. frítt fyrir börn yngri en 12. ára

26.apríl
Tónleikar Kvennakórsins Heklurnar  
Tónleikar  fyrir alla fjölskylduna að Harðarbóli laugardaginn 30. apríl n.k. kl. 17:00
Á dagskrá eru létt og skemmtileg lög við allra hæfi.
Veitingar seldar á staðnum.
Kórstjórnandi: Björk Jónsdóttir
Undirleikari: Kolbrún Sæmundsdóttir
Fólk er hvatt  til að mæta með börnin í skemmtilegum búningum í tilefni sumarsins.
Aðgangseyrir  kr.500.-


25.apríl
Er íþrótta- og tómstundanefnd puntudúkka íhaldsins?

Á 100.fundi íþrótta- og tómstundanefndar þar sem samningur Mosfellsbæjar og Ístaks varðandi Íþróttamiðstöð við Lækjarhlíð var til umræðu lagði fulltrúi B-listans fram eftirfarandi bókun:

“Ég fer fram á frestun í þessu máli. Ég er að sjá þetta í fyrsta skipti og kemur mér þetta virkilega á óvart að það eigi að minnka íþróttasalinn við Lækjarhlíð í Mosfellsbæ.  Ég gagnrýni þessi vinnubrögð.  Við sem fagfólk í íþrótta- og tómstundanefnd höfum aldrei (frá því að þetta mál með að byggja nýja sundlaug og íþróttahús kom upp) verið kölluð til skrafs og ráðagerðar.  Erum þess vegna illa í stakk búin til að taka ákvarðanir þar sem við fáum nánast engar upplýsingar.  Ég fer fram á það að allar skriflegar upplýsingar sem lagðar hafa verið fram og afhentar bæjaryfirvöldum í málinu tengdar þessum breytingum verði lagðar fram í íþrótta- og tómstundanefnd.  Ég hef alltaf verið á móti þessum framkvæmdum en úr því að málið er komið í þennan farveg þá vil ég að það verði myndarlega að þessu staðið og nýting verði hagstæð fyrir nemendur í Lágafellsskóla.  Ég hef miklar áhyggjur af stærð salarins og veit að íþróttasalur í þessari stærð hefur ekki sömu notkunarmöguleika.  Og annað, ég sé ekki hvernig töflugerðin við Lágafellsskóla gangi upp, því í sal að þessari stærð er bara hægt að kenna einum bekk í einu svo vel sé.  Og munum það að ein af aðalástæðum með þessari byggingu var að þjóna nemendum við Lágafellsskóla.  Látum hag bæjarbúa og nemenda vera að leiðarljósi.  Ég er orðin þreytt á því að vera einhver “puntudúkka” í íþrótta- og tómstundanefnd, þar sem við fáum nánast aldrei að takast á við verkefni fyrr en á afgreiðslustigi.”

Fulltrúi G-listans lagði fram eftirfarandi bókun:  “Ég styð ofangreinda bókun.”

Fulltrúi D-listans lagði fram eftirfarandi bókun:
“Ofangreind bókun er með öllu ótímabær þar sem sjálfsagt er að koma til móts við óskir nefndarmanna um auknar upplýsingar.  Rétt er að taka fram eins og fram hefur komið á fundinum að stærð salarins er ekki minni en upphaflegar hugmyndir um íþróttasal við Lágafellsskóla og mun því vel geta þjónað grunnskólanum.

Málinu var frestað.

25.apríl
'64 árgangurinn úr Gaggó Mos og Paparnir  !
Laugardaginn 30 apríl munu  nemendur úr ´64 árgangi úr Gagnfræðaskóla Mosfellsbæjar hittast í Hlégarði og eiga góða stund saman. Trausti Gylfason verður veislustjóri, myndasýning og ýmislegt verður rifjað upp frá þessum tíma. Húsið opnar kl. 18.30 fyrir ´64 árganginn.
Kl. 23.00 opnar húsið fyrir maka, allir  sem voru í Gaggó Mos á þessum árum eru hvattir til þess að mæta svo og allir Mosfellingar.
Stórsveitin PAPARNIR munu leika undir dansi fram á nótt.

´64 nefndin.

18.apríl
Ótryggð börn.
Samkvæmt skráningu slysa hjá Slysaskrá Íslands (http://landlaeknir.is) hefur íþróttaslysum barna á aldrinum 0-14 ára farið fjölgandi. Skráningin nær ekki til landsins alls, en m.a. hefur verið stuðst við skráningu frá Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Framangreindar upplýsingar eiga því að gefa ákveðna og raunsæa vísbendingu um tíðni íþróttaslysa þessa aldurshóps. Formleg skráning í Slysaskrá Íslands hófst árið 2002, en þá lentu 244 drengir og 189 stúlkur í íþróttaslysum, árið 2003 lentu 440 drengir og 325 stúlkur í íþróttaslysum og árið 2004 lentu 480 drengir og 374 stúlkur á aldrinum 0-14 ára í slysum í íþróttum. Aukning slysa á milli ára er sláandi, segir Una María Óskarsdóttir í nýjum pistli á Tímanum. Meira á http://www.timinn.is

7.apríl
Íbúaþing
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í morgun að halda íbúaþing í Mosfellsbæ þann 28.maí n.k. og er undirbúningur að hefjast. Þetta verður skemmtileg nýbreytni í bæjarlífinu þar sem íbúar fá að láta álit sitt í ljós og hafa áhrif á þróun bæjarmála auk þess að heyra hvað framundan er hjá bæjarfélaginu.

7.apríl
Ný náma í Mosfellsbæ?
Skipulagsstofnun heimilaði með bréfi til ÍAV þann 23.mars s.l. að námagröftur geti hafist í Blikastaðanesi, þar sem stofnunin teldi að þessi framkvæmd væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum, en í verkahring stofnunarinnar er að meta slíkt.
Áætlað er að taka allt að 150.000 rúmmetrum af efni úr nesinu, sem er umtalsvert magn og margir aðilar talið að með því væri verið að framkvæma umhverfisslys í einni náttúruperlu Mosfellsbæjar. Náman verður síðar fyllt af efni sem kemur upp úr lóðum við gröft í Blikastaðalandi og ofan á allt saman koma golfbrautir sem er hluti af stækkun golfvallarins í 18 holu golfvöll.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum í morgun með 2 atkvæðum að ganga til samninga við ÍAV um verkið, en fulltrúi B-listans í bæjarráði sat hjá. Verkið þarfnast síðar framkvæmdaleyfis opinberra aðila eins og heilbrigðiseftirlits og verður forvitnilegt að sjá hvort það fæst.


7.apríl
Brotist var inn í hesthús í Mosfellsbæ!
Þriðjudaginn 5. apríl s.l. var brotist inn í hesthúsið að Drífubakka 1 um hábjartan dag.
Talið er að þjófurinn hafi verið á ferðinni milli kl. 8:00 og 17:20.  Þjófurinn sem þar var á ferð spennti upp glugga, skreið inn og stal tveim hnökkum og öðrum reiðtygjum.
Teknir voru tveir hnakkar: Feldman árg. 2003 og nýr Hrímnishnakkur, svartur með dýnu, auk nokkurra beisla þ.m.t. Sindrastöngum . Sindrastangirnar voru merktar með upphafsstöfunum HG.
Hinrik Gylfasson eigandi hesthússins tjáði Mosfellsfréttum að erfitt  yrði fyrir þjófana að koma Feldman hnakknum í verð þar sem að hann er sá eini sinnar tegundar í landinu.

 

6.apríl
Bókanir í fjölskyldunefnd um jafnréttismál

Á 31.fundi fjölskyldunefndar þann 22 mars sl. lögðu fulltrúar B og G lista fram eftirfarandi bókun í tilefni af umræðu um endurskoðun Jafnréttisáætlunar  Mosfellsbæjar 2002-2005.

Allt þetta kjörtímabil hafa jafnréttismál verið afgangsstærð. Núverandi meirihluti lagði niður starf jafnréttisfulltrúa og skömmu síðar einnig jafnréttisnefnd. Jafnréttismál voru færð undir fjölskyldunefnd án þess að ætla störfum hlaðinni nefnd aukið fjármagn né aukinn fundartíma. Þetta hefur leitt til þess að jafnréttismálum hefur ekki verið sinnt sem skyldi. Í gildandi jafnréttisáætlun er m.a.,  gert ráð fyrir að gerð skuli launakönnun á tveggja ára fresti, að veita skuli viðurkenningu í byrjun árs þeirri stofnun, fyrirtæki eða deild,  sem hefur staðið sig best árið áður við að vinna að framgangi jafnréttisáætlunarinnar. Jafnframt á fræðslan um jafnréttismál og leiðir til að vinna að jafnari stöðu kynjanna, bæði innan stofnana bæjarins og gagnvart bæjarbúum, að vera virkur þáttur í starfi nefndarinnar sem sinnir jafnréttismálum. Þessum þáttum hefur lítið verið sinnt og sumum ekkert. Með sama áframhaldi verður jafnréttisáætlun bæjarins lítið meira en rykfallið plagg og sýnir að núverandi meirihluti hefur ekki áhuga á að bærinn starfi í anda áætlunarinnar.  Sjá meira á mos.is.....


4.apríl
Meira um holræsamál hestamanna.
Þann 22.febrúar s.l. sendi Félag hesthúsaeigenda á Varmárbökkum bréf til bæjarstjórnar Mosfellsbæjar vegna óánægju með álagningu holræsagjalds. Félagið vitnar til vatnalaga grein 88 sem segir: Bæjarstjórn leggur holræsi svo, að lóðareigandi hver nái til þeirra í götu, vegi eða opnu svæði, er lóð hans telst til, enda verður maður eigi krafinn um holræsagjald, fyrr en svo er.

Samkvæmt 4 mgr.87.gr. vatnalaga nr. 15/1923 skal holræsagjald ákveðið í reglugerð. Í 90.gr. sömu laga kemur fram að reglugerðir allar um holræsi og holræsagjald, sem bæjarstjórn semur, skuli senda ráðherra til staðfestingar. Þegar reglugerð hefur hlotið staðfestingu ráðherra er hún lögmæt holræsareglugerð. Þessari reglugerð þarf að fylgja kostnaðartölur af viðkomandi holræsagerð.

Samkvæmt upplýsingum frá félaginu hefur ekkert svar borist frá bæjarstjórn.


4.apríl
Fulltrúar B-listans óska eftir úttekt.
Fulltrúar B- listans fara fram á að gerð verði úttekt á leigusamningi á 1.hæð Kjarna en 2.hæð Kjarna var sett uppí leigu á 34 milljónir eða 28 milljónum undir bókfærðu verði og telja fulltrúar B-listans að það þarfnist útskýringa.
Tillaga frá fulltrúum B-listans.
Gerum að tillögu okkar að óvilhallir aðilar, endurskoðendur sveitarfélagsins geri úttekt og skili bæjarstjórn greinargerð vegna leigusamnings sem gerður var á síðasti ári um 1.121 fermetra húsnæði sem er á 1.hæð í Kjarna að Þverholti 2 Mosfellsbæ, en húsnæðið hýsir í dag Bókasafn Mosfellsbæjar. Jafnframt verði skoðað viðmið við  leiguverð um sambærilega eign í Mosfellsbæ.
Greinagerð:
Í samningnum tók leigusali upp í leiguverðið 2.hæð Kjarna sem er um 380 fermetra  skrifstofuhúsnæði sem áður hýsti bókasafnið. Fasteignamat hæðarinnar er um 21,5 milljón og brunabótamat  um 34 milljón, en bókfært verð hæðarinnar var um 65 milljón. Uppítökuverð í leigusamningi var síðan miðað við 37,0 milljónir eða um 28,0 milljónum undir bókfærðu verði, sem þarfnast útskýringa. Óskað er eftir úttekt á allt frá kaupum hæðarinnar til sölu hennar við þennan leigusamning.
Einnig verði skoðaðir eignaskiptasamningar um 1.hæð Kjarnans, en ekki er annað að sjá en að Mosfellsbær hafi átt allt Torgið (1.hæð) skv. eignaskiptasamningi sem í gildi var þegar leigusamningur var gerður.
Tillagan borin upp og samþykkt með sjö atkvæðum.

4.apríl
Ársreikningur Mosfellsbæjar 2004.
Ársreikningur Mosfellsbæjar 2004 var til seinni umræðu í bæjarstjórn 30.mars sl.
Fulltrúar B og G  lista lögðu fram eftirfarandi bókun.
Í þriggja ára áætlun áranna 2002-2004 í tíð fyrri meirihluta var gert ráð fyrir um 250 milljóna framlagi frá rekstri á árinu 2004 og má segja að þær áætlanir hafi verið að rætast. Í áætlunum var gert ráð fyrir að eftir mikið fjárfestingatímabil við uppbyggingu og endurreisn sveitarfélagsins, þá myndi stoðum (íbúum) fjölga og reksturinn sýna mikinn bata og jákvæða niðurstöðu ár frá ári.
Þessi ársreikningur sýnir þá jákvæðu þróun að tekist hefur að snúa rekstri sveitarfélagsins í jákvæða niðurstöðu og það ber að þakka.
Við lestur ársreiknings fyrir árið 2004 er ljóst að utanaðkomandi áhrif hafa orðið þess mest valdandi að þessi niðurstaða fékkst og má benda á nokkur atriði í því sambandi. Jákvæð gengisþróun upp á um kr.70 milljónir, aukið framlag úr Jöfnunarsjóði um 30 milljónir, þensla í þjóðfélaginu með aukningu á skatttekjum upp á um 35 milljónir og minni kostnaðar vegna verkfalls kennara eða um 20 milljónir. Einnig má benda á að með mikilli hækkun þjónustugjalda í sveitarfélaginu og hækkana á fasteignagjöldum vegna stórhækkandi fasteignamats sem hefur fært sveitarfélaginu miklar tekjur, en rekstrartekjur sveitarfélagsins jukust í heildina um 235 milljónir á milli áranna 2003 og 2004. Minnihlutinn vonar að það takist að halda rekstri sveitarfélagsins í réttu horfi og þess gætt að barnafjölskyldurnar beri ekki mestu álögurnar eins og verið hefur.

Í fyrri umræðu og milli umræðna hefur meirihlutinn kynnt niðurstöðu ársins í fjölmiðlum.


9.mars
Kóngurinn opnaður

Nýja skíðalyftan í Bláfjöllum var opnuð s.l. sunnudag af forseta Íslands herra Ólafi Ragnari Grímssyni. Lyftan fékk nafnið Kóngurinn, en hún er hraðskreiðast lyfta landsins og er með fjórum mjúkum sætum í hverjum stól. Einnig eru fjórir kláfar í lyftunni sem taka fjóra, en mjög þægilegt og auðvelt er að taka kláfana. Þessi viðbót við lyfturnar er frábær fyrir skíðafólk þar sem biðtími á háannatíma mun  styttast gífurlega. Næst á dagskrá hjá Bláfjallanefnd er aðalskíðasvæði okkar MosfellingaSkálafell. Að fá lyftu upp á topp á Skálafelli, yrði toppurinn.

 



8.mars
Fyrirmyndar unglingar á Samfés í Mosfellsbæ

Söngvakeppni félagsmiðstöðvanna “Samfés”  var að þessu sinni haldin í  Íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ. Þar voru saman komin um 3500 ungmenni til þess að skemmta sér og fylgjast með söngvakeppninni. Á föstudagskvöldið var slegið upp miklu balli með hljómsveitunum Írafár, Í svörtum fötum,  ásamt ýmsum öðrum hljómsveitum. Á laugardag var sjálf söngvakeppnin, en rúmlega 30 keppendur spreyttu sig eftir útsláttarkeppni sem haldin var í Vestmannaeyjum.  Við Mosfellingar áttum keppandann sem lenti  í öðru sæti, Íris Hólm Jónsdóttir 15 ára. 
Mosfellsfréttir óska henni og öðrum keppendum til hamingju með frábæran árangur.

 


7.mars
Miklar umræður um íþróttastyrki eftir að fulltrúar B-listans lögðu fram tillögu um breytingar.
Á 414. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar sem haldinn var miðvikudaginn 2. mars sl. lögðu fulltrúar B-listans fram breytingartillögu við umfjöllun um styrki við íþrótta- og tómstundafélög í bæjarfélaginu.
Breytingartillaga B lista var:
Í ljósi þess að samningar við íþrótta- og tómstundafélög í Mosfellsbæ eru jafn mismunandi og þeir eru margir og því óljóst að fulls jafnræðis sé gætt milli félaga, leggja fulltrúar B-listans til að í stað fyrirliggjandi samninga verði teknir upp iðkenda styrkir og verði þeir eftirfarandi:
6-12 ára   kr 10.500,-
13-18 ára  kr 15.500,-

Sé félagið eða viðkomandi deild fyrirmyndarfélag ÍSÍ greiðist 5% auka álag pr. iðkanda. Með þessu móti er tryggt jafnræði milli félaganna auk þess sem aldurshópnum 13-18 ára er gefið aukið vægi, enda er brottfall mest úr þeim hópi og því mikilvægast að tryggja honum sterkt og öflugt starf.  Öruggt er að þessi breyting kæmi til með að hafa mikið forvarnargildi.
Tillaga þessi mun hækka heildarkostnað samninga um u.þ.b. 10% miðað við áætlaðan núverandi skráðan fjölda iðkenda.

Bæjarstjórn vísaði málinu til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar.
 Sjá nánar í fundagerð bæjarstjórnar á www.mos.is


7.mars
Glæsilegir tónleikar.

Skólahljómsveit Mosfellsbæjar hélt í gær glæsilega tónleika í Íþróttamiðstöðinni að Varmá kl. 17.00.
Byrjendur, yngri deild og eldri deild skólans léku mörg af vinsælustu tónverkum kvikmyndasögunnar. Kynnir var Birgir D. Sveinsson. En auk hans eru stjórnendur og kennarar þeir Daði Þór Einarsson, Daníel Friðjónsson, Jón Guðmundsson, Sveinn Birgisson og Þorkell Jóelsson.
Þess má geta að skólahljómsveitin er rekin sem sjálfstæð eining með aðsetur í Varmárskóla og aðstöðu til kennslu í Lágafellsskóla. Nemendur skólans eru um 120.


1.mars
Jafnréttismál

Á  28. flokksþingi Framsóknarflokksins var samþykkt afdráttarlaus lagagrein í flokkslögin um kynjakvóta.
Samþykkt var að grein 12.8 í lögum flokksins hljóði svo:
"Við skipan í trúnaðar- og ábyrgðarstöður innan flokksins sem og við val á framboðslista hans skal hlutur hvors kyns ekki vera lægra en 40%, nema þegar gagnsæjar og augljósar aðstæður eru því til fyrirstöðu. Jafnréttisnefnd og LFK skulu eftir þörfum verða til ráðgjafar um að ná markmiði þessu fram."


28.febrúar
Kvensjúkdómalæknir í Mosfellsbæ

Vilhjálmur Kr. Andrésson, kvensjúkdómalæknir hefur opnað stofu í Mosfellsbæ að Þverholti 2 og veitir þjónustu alla fimtudaga frá kl. 10.00 – 16.00.  Tímapantanir eru í síma 5100 700.  Vilhjálmur er yfirlæknir kvennadeildar Sjúkrahússins á Akranesi en það er mikill áhugi af hálfu sjúkrahússins að auka og bæta þjónustu við íbúa í nágrannabyggðarlögum Akraness.  Opnun stofunnar í Mosfellsbæ er liður í þessari viðleitni.   Þar eru gerðar ómskoðanir og sé aðgerða þörf, t.d. á kvenlíffærum eða vegna þvagleka, þá eru þær framkvæmdar á Sjúkrahúsinu á Akranesi.  Nefna má að ný kvennadeild var opnuð á sjúkrahúsinu fyrir u.þ.b. ári og eru aðstæður allar hinar ákjósanlegustu.    Sjá nánari upplýsingar um SHA á heimasíðu stofnunarinnar www.sha.is  


24.febrúar
STAMOS mótmælir láglaunastefnu Mosfellsbæjar.

Fjölmennur fundur starfsmanna í STAMOS – Starfsmannafélagi Mosfellsbæjar 17.febrúar 2005 sendi bæjarráði eftirfarandi ályktun fundarins:
“Fundurinn skorar á bæjarstjórn að hætt verði við þá láglaunastefnu, sem hefur verið við lýði hér í bæ alltof lengi og þrýsti jafnframt á að innleiðing starfsmats hefjist eigi síðar enn 1.mars 2005”.
Heimasíða STAMOS er
www.stamos.is

24.febrúar
Meira um holræsagjaldið.

Á þriðjudaginn sl. sögðum við frá óánægju hestamanna með að þurfa að borga holræsagjald enda ekkert holræsi í hesthúsahverfinu. Stjórn Félags hesthúseigenda á Varmárbökkum hefur sent félagsmönnum sínum eftirfarandi tilkynningu:
Orðsending til félagsmanna:
Í tilefni af álagningu holræsagjalds á  hesthúseigendur hefur stjórn  hesthúseigendafélagsins ákveðið að kanna nánar lagalegt gildi þessarar álagningar.
Í Vatnalögum frá 1923 nr.15   grein 88   1.málsgrein segir:
Bæjarstjórn leggur holræsi svo að lóðareigandi hver nái til þeirra í götu,vegi eða opnu svæði,er lóð hans telst til,enda verður maður eigi krafinn um holræsagjald fyrr en svo er.
Okkar túlkun er því: EKKERT HOLRÆSI – EKKERT GJALD.  Stjórnin


24.febrúar
Fjörugar umræður á vefnum www. 847.is um holræsagjaldið.
Fjörugar umræður spunnust í framhaldi af grein mosfellsfrétta.is um holræsagjaldið inn á vefnum www.847.is og sitt sýndist hverjum.


22.febrúar
Hesthúsaeigendur í Mosfellsbæ eru óhressir með holræsagjaldið.
Hesthúsaeigendur eru afar ósáttir eftir að álagningarseðlarnir frá Mosfellsbæ bárust. Eitt árið enn er lagt á holræsagjald á hesthúsin en engu holræsi er fyrir að fara í hverfinu. Þessi gjaldtaka mun vera kolólögleg samkvæmt þeim fréttum sem mosfellsfrettir.is komust að.   Ljóst er að hesthúsaeigendur fá ekki að njóta á næstunni holræsakerfis,  ef marka má framkvæmdaáætlanir Mosfellsbæjar.  
Á sjötta hunduð manna eru í Hestamannafélaginu Herði og flestir stunda hestamennsku ásamt fjölskyldum sínum, á svæði félagsins að Varmárbökkum. Það er því mikill fjöldi sem fær ekki að njóta þess sjálfsagðar hlutar að komast á klósett í hesthúsahverfinu og þurfa margir að fara um langan veg  til að njóta þess munaðar.


17.febrúar
Er meirihlutinn í Mosfellsbæ að brjóta lög?

Á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi var tekist á um hvort meirihluti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn Mosfellsbæjar væri að fara að lögum með því að samþykkja að taka tilboði lægstbjóðanda í byggingu Íþróttamiðstöðvar við Lágafellsskóla, en tilboðið hljóðaði upp á 875 milljónir. Í nýsamþykktri áætlun fyrir árið 2005 og 3ja ára áætlun er aðeins gert ráð fyrir, samtals um 600 milljónir til byggingarinnar á árunum 2005-2008 og upphæðin er langt umfram fjórðungi skatttekna Mosfellsbæjar.

Í 65.gr. sveitarstjórnarlaga segir m.a.:
“Hyggist sveitarstjórn ráðast í fjárfestingu og áætlaður heildarkostnaður eða hlutur sveitarfélagsins í henni nemur hærri fjárhæð en fjórðungi skatttekna yfirstandandi reikningsárs er skylt að leggja fyrir sveitarstjórn umsögn sérfróðs aðila um kostnaðaráætlunina, væntanleg áhrif hennar á fjárhagsafkomu sveitarsjóðs á fyrirhuguðum verktíma og áætlun um árlegan rekstrarkostnað fyrir sveitarsjóð, sé um hann að ræða. Jafnframt skal gerð grein fyrir því hvernig framkvæmdin samræmist þriggja ára áætlun sveitarfélagsins.”

Í ljósi þessa ákvæðis sveitarstjórnarlaga var óskað eftir því að gögn samkvæmt lagagreininni yrðu lögð fram í bæjarstjórn áður en að samþykkt bæjarráðs um að taka tilboði í byggingu íþróttamiðstöðvar yrði tekin til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Tillagan var borin upp og felld með fjórum atkvæðum gegn þremur atkvæðum minnihlutans fulltrúum B og G listans.

Minnihlutinn benti síðan á í framhaldinu að þar sem ekki lægi fyrir umsögn sérfróðs aðila um kostnaðaráætlunina, væntanleg áhrif hennar á fjárhagsafkomu og árlegan rekstrarkostnað bæjarsjóðs eins og áskilið er í 65.gr. sveitarstjórnarlaga væri ekki hægt að taka afstöðu til málsins.
Jafnframt ítrekaði minnihlutinn fyrri bókanir í málinu sem meðal annars fela í sér að skynsamlegra sé að ljúka fyrst byggingu Íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá með fullkominni sundlaugaraðstöðu eins og fyrri hugmyndir gerðu ráð fyrir sem og að byggja lítinn íþróttasal við Lágafellsskóla.

Í lokin lögðu fulltrúar B og G lista fram tillögu um að leitað verði úrskurðar Félagsmálaráðuneytisins um gildi 65. gr. sveitarstjórnarlaga gagnvart afgreiðslu þessa máls.

Tillagan borin upp og felld með fjórum atkvæðum sjálfstæðismanna gegn þremur atkvæðum minnihlutans, fulltrúum B og G lista.


15.febrúar
kristinn.is
Kristinn H Gunnarsson opnar heimasíðu á slóðinni www.kristinn.is mosfellsfrettir.is óska Kristni til hamingju með stórglæsilega heimasíðu.

14.febrúar
Efnisnám á Blikastaðanesi til umsagnar Skipulagsstofnunar.
Bæjarráð fjallaði um efnisnám á Blikastaðanesi á 131. fundi sínum þann 10.febrúar og var bæjarstjóra falið að ræða smávægilegar breytingar  á samningnum við ÍAV sem síðan sendir drögin til Skipulagsstofnunar til umsagnar.
mosfellsfréttir.is hafa bent á að samkvæmt gildandi aðalskipulagi bæjarins þá er ekki gert ráð fyrir grjótnámi á Blikarstaðanesi og er því þessi framkvæmd ef að verður í mótsögn við gildandi aðalskipulag. En samkvæmt þessum samningi  verður stórfellt grjótnám eða allt að 150.000 rúmmetrum á Blikastaðanesi með sprengingum og tilheyrandi landróti.
Það má teljast all sérstakt ef Skipulagsstofnun gerir ekki umtalsverðar athugasemdir við svo viðamikla framkvæmd mitt á útivistarsvæði bæjarbúa enda er náttúran sérlega viðkvæm þarna og má meðal annars benda á að fuglalíf er þarna mikið.
Spyrja má hvort nauðsynlegt sé að opna enn eina námuna í Mosfellsbæ?
Við munum flytja ykkur frekari fréttir af gangi mála eftir því sem málin skýrast.

14.febrúar
Stofnfundur Tónlistarfélags Mosfellsbæjar.
Stofnfundur Tónlistarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn í Listasal
Mosfellsbæjar 19. febrúar 2005 kl. 13:00.
Allir áhugamenn um tónlist og tónlistarflutning í Mosfellsbæ eru velkomnir.


14.febrúar
Félagsvist Í Framsóknarsalnum Háholti 14
Félagsvist spiluð kl. 20.00 að Háholti 14, 2.hæð. þriðjudaginn 15.febrúar
Ferðavinningur veittur fyrir fimm hæðstu kvöldin samanlagt, búin eru tvö af átta. Einnig veglegir vinningar fyrir hvert stakt kvöld. Allir velkomnir.


3.febrúar

Tilboð í íþróttamiðstöð.
Á bæjarráðsfundi í dag var samþykkt að taka tilboði lægstbjóðanda Ístaks hf. að upphæð um kr.875 milljónir í byggingu íþróttamiðstöðvar við Lágafellsskóla, en tilboðið var um 100 milljónum hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir. Bygging íþróttamiðstöðvarinnar er kosningarloforð sjálfstæðismanna frá 2002, en loforðið er nú komið í öngstræti þar sem svo miklir peningar sem tilboðið gerir ráð fyrir eru ekki í fjárhagsáætlunum bæjarins. Þrátt fyrir þetta virðist meirihlutinn ætla að geysast áfram með verkið þrátt fyrir ábendingar minnihlutans og stór hluta bæjarbúa að fara aðrar ódýrari og praktískari leiðir, eins og t.d. að byggja upp sundlaug á Varmársvæðinu með tilheyrandi frágangi við Íþróttamiðstöðina að Varmá.


3.febrúar
Opnun Bókasafns Mosfellsbæjar,Þjónustuvers Mosfellsbæjar og vígsla Listasals Mosfellsbæjar í Kjarna.
Laugardaginn 5.febrúar n.k. kl.14.00 verður bókasafn og þjónustuver Mosfellsbæjar opnað á nýjum stað í Kjarna  jafnframt verður Listasalur Mosfellsbæjar vígður.
Tónlistaratriði á vegum Tónlistarskólans, Skólahljómsveitin spilar,
 ávörp, listasalur vígður og margmiðlunarefni um fornleifauppgröftinn í Mosfellsdal frumsýnt.

28.janúar
Opinn fundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar um atvinnumál.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt í lok fundar Framsóknarfélags Mosfellsbæjar um atvinnumál:
                                                 Ályktun

Opinn fundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar um atvinnumál í bæjarfélaginu haldinn 27.1
.2005 skorar á bæjaryfirvöld að blása til sóknar í atvinnuuppbyggingu. Stefnumörkun í atvinnumálum var unnin árið 1999 en hefur ekki verið fylgt eftir. Í stað þess að halda uppbyggingunni áfram hefur verið dregið úr öllum þeim þáttum er snúa að frekari uppbyggingu atvinnulífs í bæjarfélaginu. Atvinnuþróunarsjóður hefur verið lagður niður ásamt stöðu atvinnu- og ferðamálafulltrúa.

Tilmælum er beint til bæjaryfirvalda að vinna að markvissri uppbyggingu öflugs atvinnulífs samhliða uppbyggingu íbúabyggðar.


26.janúar
Félagsvist

Félagsvistin byrjar þriðjudaginn 1. febrúar kl.20 að Háholti 14, 2. hæð. ( Fyrir ofan Snæland vídeó)
Spilað verður átta þriðjudagskvöld í röð og verður veglegur ferðavinningur fyrir þann sem er með bestu samanlögð stigin af fimm kvöldum.

Ýmsir aðrir veglegir vinningar á hverju kvöldi.
Allir velkomnir.


24.janúar

Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2004
Heiðar D. Bragason golfmaður úr Golfklúbbnum Kili var kjörin Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2004, annað árið í röð, í hófi sem haldið var að tilefni kjörsins í Hlégarði í gær. Heiðar er vel að titlinum kominn. Hann hefur verið í landsliðinu í golfi síðan 1999. Á meðal afreka hans á síðasta ári má nefna að hann sigraði á Opna spænska áhugamannamótinu, á Opna velska áhugamannamótinu, var í HM liðinu sem endaði í 27.sæti á heimsmeistarmóti í Puerto Rico og er Heiðar nú í 6-8 sæti á lista áhugamannakylfinga í Evrópu. Heiðar var einnig sigursæll á mótum hér heima sl. sumar.
Í öðru sæti um val á íþróttamanni Mosfellsbæjar var Halldór Lárusson frjálsíþróttamaður og í þriðja sæti var Halldór Guðjónsson úr Hestamannafélaginu Herði.
Aðrir sem voru útnefndir í kjörinu um íþróttamann Mosfellsbæjar eru:

  Albert H. Arason

knattspyrnumaður  Aftureldingu

  Andrés Andrésson

badmintonmaður  Aftureldingu

  Halldór Guðjónsson

hestaíþróttamaður  Hestamannafélaginu Herði

  Halldór Lárusson  frjálsíþróttamaður  Aftureldingu

  Hrafn Ingvarsson

handknattleiksmaður  Aftureldingu

  Kostas Petrikas

karatemaður   Aftureldingu

  Kristín Kristmundsdóttir 

fimleikakona   Aftureldingu

  Reynir Árnason

blakmaður   Aftureldingu

  Sævar B. Lúðvíksson

skilmingamaður   Skilmingafélagi Reykjavíkur

Mosfellssfréttir óska Heiðari og öllum hinum innilega til hamingju.

 

24.janúar
Atvinnumöguleikar í Mosfellsbæ
Opinn fundur um atvinnuástand og framtíðarmöguleika fyrirtækja í Mosfellsbæ.
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 27. janúar kl. 20 að Háholti 14, annari hæð.
* Bryndís Bjarnarson formaður Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
  Setur fundinn
* Valgerður Sverrisdóttir viðskipta- og iðnaðarráðherrra 
   Forsenda framfara
* Þröstur Karlsson bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ
   Staðan fyrr og nú í Mosfellsbæ
* Sigurður Björnsson markaðsstjóri Kópavogsbæjar
   Útrás Kópavogsbæjar
*  Almennar umræður og fyrirspurnir

Allir velkomnir
                                                       Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar

24.janúar
Grein Valgerðar Sverrisdóttur
Góð skilyrði eru forsenda framfara

 Hlutverk stjórnvalda er fyrst og fremst að skapa atvinnulífinu hagstæð rekstrarskilyrði.  Tilgangur þess er að efla samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja í hinu alþjóðlega markaðsumhverfi sem við erum vissulega hluti af.  Það er lykillinn að efnahagslegum framförum og þeirri félagslegri velsæld sem við viljum öll geta boðið upp á. meira:


24.janúar
Skortur á dagforeldrum.

Mikill skortur er á dagforeldrum í bænum. Fólk virðist ekki sækjast eins eftir þessu starfi nú og hér á árum áður. Margar ástæður kunna að vera fyrir því. Ein af þeim gæti verið sú, að atvinnuástand er gott í landinu og foreldrar sjá sér ekki hag í því að vera heima. Einnig hættu margir dagforeldrar sl. haust þegar félagsmálaráðuneytið gaf út drög að reglum um daggæslu í heimahúsum. Þá var uppi hugmynd um að fækka leyfilegum barnafjölda úr fimm niður í fjóra, en sú hugmynd féll í grýttan jarðveg og var dregin til baka.

22.janúar
Stækkun Huldubergs.

Samþykkt var á bæjarstjórnarfundi þann 19. janúar að hefja undirbúning á viðbyggingu við leikskólann Hulduberg. Í dag eru um 96 börn á Huldubergi á fjórum deildum. Ætlunin er að byggja tvær deildir sem munu rúma um 46 börn til viðbótar. Bæjaryfirvöld telja heppilegt að byggja við Hulduberg þar sem mesta þörfin á leikskólarými er á Vestursvæði. Ekki þykir heppilegt að byrja á nýrri leikskólabyggingu vegna þeirrar tilraunar að hafa leikskóladeild fyrir 5 ára börn í Varmárskóla. Ef svo fer að fimm ára börn fari almennt inn í grunnskólana í framtíðinni er ekki eins mikil þörf fyrir nýjan leikskóla strax.


21.janúar
Aukafjármunir veittir til grunnskólanna vegna verkfalls.
Samþykkt var á fundi bæjarráðs þann 13. janúar sl. að beiðni skólastjórnenda, viðbótarfjárveiting til viðbótarkennslustunda vegna þeirra skerðinga sem urðu á kennsludögum vegna verkfallsins á haustönn.  276 stundum var veitt til viðbótar í kennslu í 10.bekk í Varmárskóla og 468 til viðbótar fyrir 1.- 9. bekk. 387 stundum var svo veitt til viðbótar í Lágafellsskóla fyrir 1. - 9.bekkjar.  4. 7. og 10. bekkir þreyta samræmd próf í febrúar .
Þetta mun einnig hafa verið gert í nágrannasveitarfélögunum og munu því börnin okkar  sitja við sama borð og önnur þegar þau þreyta sín próf.  4. og 7. bekkir er þegar byrjaðir í viðbótartímum í Varmárskóla þar sem þau taka samræmd próf um miðjan febrúar.


19.janúar
Efnisnám á Blikastaðanesi.
Þessa dagana  er verið að kynna í nefndum bæjarins drög að samningi milli Mosfellsbæjar og ÍAV um efnisvinnslu á Blikastaðalandi. Þessi samningur felur í sér stórfellt grjótnám eða allt að 150.000 rúmmetrum á Blikastaðanesi með sprengingum og tilheyrandi landróti.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi bæjarins þá er ekki gert ráð fyrir  grjótnámi á Blikarstaðanesi og er því þessi framkvæmd ef að verður í mótsögn við gildandi aðalskipulag.
Bæjarstjórn fjallar um málið í dag.
Forvitnilegt verður fyrir bæjarbúa að fylgjast með frekari fréttum af þessu enda er þetta mál sem varðar flesta bæjarbúa á einn eða annan hátt.

19.janúar
Tillaga um lagningu ljósleiðaranets.
Þröstur Karlsson oddviti framsóknarmanna lagði til í bæjarráði að farið yrði í viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um lagningu ljósleiðaranets í Mosfellsbæ. Bæjarráð samþykkti með þrem atkvæðum að fela bæjarstjóra að kanna möguleika sem kunna að vera fyrir hendi varðandi lagningu ljósleiðaranets í Mosfellsbæ.





18.janúar.
Mosfellsbær gefur 500 þús.kr. í söfnunina.
Á 699.fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar var samþykkt að gefa kr 500.000,- í söfnunarsjóð Rauða kross Íslands vegna hamfaranna á flóðasvæðunum í Asíu.
 

11.janúar
Yfirgripsmikið þekkingarleysi. Nýr pistill á Tímanum.
Heildarframlag íslenskra stjórnvalda í þessum rúma áratug sem er liðinn síðan samningurinn var undirritaður er um 2,7 milljarðar en við höfum fengið til baka um 6,5 milljarða. Við höfum því fengið um 3,8 milljörðum meira til okkar en þá er ekki metin til fjár sú aukna þekking, sambönd og það almenna gildi sem samstarfið hefur fyrir þátttakendur og samfélagið í heild, segir Andrés Pétursson í nýjum pistli á Tímanum. Meira á http://www.timinn.is


7.janúar

Nýárstónleikar.

  Nýárstónleikar Tríó Artis verða haldnir  í Mosfellskirkju     
  sunnudaginn 9. janúar nk. kl. 17:00.
  Á efnisskránni eru verk eftir Arnold Bax, André Jolivet,
  Gary Schocker, G.Ph. Telemann,
  J.S. Bach og Gabriel Fauré.

  Meðlimir Tríó Artis eru:
  Kristjana Helgadóttir, flautuleikari,
  Jónína Auður Hilmarsdóttir, víóluleikari og
  Gunnhildur Einarsdóttir, hörpuleikari
  Aðgangur er ókeypis.

 

 

 

7.janúar

Birgir D. Sveinsson sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu.
Á nýársdag var Birgir D. Sveinsson sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir störf sín í þágu tónlistar af forseta Íslands við hátíðlega athöfn að Bessastöðum.
Birgir stofnaði skólahljómsveit Mosfellssveitar árið 1964 og hefur stjórnað henni allar götur síðan. Viðurkenning þessi er mikill heiður fyrir Birgir og óska Mosfellsfréttir honum innilega til hamingju með viðurkenninguna
.


4.janúar
Þjófar hreinsa út úr hesthúsi í Mosfellsdal
Aðfaranótt 27. desember var brotist inn í hesthús í Reykjahlíð í Mosfellsbæ og öll stolið sem hægt var að stela.
Því sem meðal annars stolið var:
3 nýlegir Ástund special hnakkar. 2 Ísland Sleipnir hnakkar. 2 Didda dýnur.1 barnahnakkur. 3 teymingargjarðir. 2 taumhringsbeisli. 10 leðurtaumar. 20 beisli, þar af tvær orginal Sindrastangir. Öllum járningaráhöldum.
Brotist var inn hjá Sverri Jóhannssyni og er ljóst að um gríðarlegt tjón er ræða hjá honum sem hleypur á milljónum. Vildi eigandinn vara fólk við að kaupa notaðan varning af þessu tagi sem talinn er upp. Lofar hann veglegum fundarlaunum hverjum þeim sem getur gefið upplýsingar um þýfið. Hægt er að ná í Sverri í síma 8622005 einnig er hægt að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Frá þessu var sagt á eiðfaxa.is.


4.janúar
Íþróttafélagið Ösp

Íþróttafélagið Ösp er með sundnámskeið fyrir fötluð börn úr Mosfellsbæ tvisvar í viku í sundlauginni á Reykjalundi og hélt þar Jólamót í sundi þar sem mættu um 30 sundmenn úr félaginu sem eru að æfa og læra sund hjá félaginu.


4.janúar
Hestakerru stolið á Kjalarnesi.
Samskonar kerru og er hér á myndinni var stolið af Kjalarnesi fyrir um mánuði síðan. Um er að ræða 4 hesta kerru af gerðinni Schram og er skráningarnúmer kerrunnar LN-100.  Kerran er dökkgrá að lit með hvítu segli.
Ef einhverjir hafa orðið kerrunnar varir vinsamlegast hafi samband í síma 8923042,  8920015 eða hafi samband við lögreglu.

3.janúar
Þrettándabrenna
Hin árlega þrettándabrenna í Mosfellsbæ verður fimmtudaginn 6.janúar n.k. Lagt verður af stað frá Nóatúni kl 20.00. Brekkusöngur,  Álfakóngur, Álafadrottning, Grýla og fl. verða á staðnum. Og ef að lýkum lætur glæsileg flugeldasýning í umsjá Kyndils.


3.janúar
Eldur í Krókabyggð 14
Eldur kviknaði í íbúðarhúsnæði í Krókabyggð 14 í Mosfellsbæ í gær. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var gert viðvart klukkan 16.46. Mikill eldur var í herbergi á efri hæð húsins.
Vel tókst að slökkva eldinn og lauk slökkvistarfi um hálfsexleytið. Húsið var vaktað eitthvað fram eftir kvöldi. Óvíst er um eldsupptök og er slökkviliðið að rannsaka málið.


1.janúar
Gleðilegt ár
Mosfellsfrettir óskar öllum lesendum vefsins og öðrum landsmönnum gleðilegs árs og farsældar á komandi ári.