Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró

                                                                        2005

23.desember

Mosfellsfréttir senda lesendum sínum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári.
Ritstjórn.

19.desember
Ráðstöfun lóðaleiguhafa
Ráðstöfun lóðaleiguhafa á lóðum (við Hamrafell, Hulduhóla, Láguhlíð, Brúarhól, Vinja og lóðum í miðbæ Mosfellsbæjar) í kjölfar deiliskipulags.

Búið er að gera deiliskipulag á lóðum á þessum stöðum en þetta er eignarland bæjarins í langri leigu viðkomandi aðila.

Fulltúar B listans lögðu til að byggingarrétturinn verði 9,9 millj. kr. fyrir einbýlishúsalóðir og 7,9 millj. kr. fyrir par- og raðhúsalóðirí stað 7,9 milljóna fyrir einbýlishús og 4,9 milljóna fyrir par- og raðhúsalóðir á þessum frábæru stöðum.

Breytingartillögunni var hafnað með 3 atkvæðum gegn 2.

Bókun fulltrúa B listans:
Umræddar lóðir eru að markaðsvirði a.m.k. 15 millj. kr. hver um sig og því sanngirnismál að Mosfellsbær fái að njóta verðmætanna, enda eigandi umrædds lands
.


19.desember
Jólaleyfi bæjarstjórnar
Bæjarstórn er farin í jólaleyfi fram til 18.janúar en bæjarráði var falin afgreiðsla mála þar til bæjarstjórn kemur til fundar að nýju.


19.desember
Þriggja ára áætlun 2007-2009
Þriggja ára áætlun fyrir árin  2007-2009 var lögð  fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn, nánar verður sagt frá henni hér á síðunni síðar.


19.desember
Bæjarstórn samþykkti nýjar reglur
Bæjarstórn samþykkti með sjö atkvæðum nýjar reglur um kjör íþróttamanns og konu Mosfellsbæjar. En með tilkomu nýju reglnanna verður framvegis  kosið um íþróttamann og konu Mosfellsbæjar.


15.desember
Jólatrjáaasala í Hamrahlíð
Á vegum Skógræktarfélags Mosfellsbæjar verður jólatrjáasala í Hamrahlíð
17.og 18.des. frá 10-16. Einnig 21. 22. og 23 frá 13-16
 

 

 

14.desember
Afturelding hlaut silfur á Aðventumóti í hópfimleikum 
Lið Aftureldingar, P2, hlaut silfurverðlaun á Aðventumóti í hópfimleikum í íþróttahúsinu á Selfossi 3. desember síðastliðinn. Þrjú lið frá Fimleikadeild Aftureldingar kepptu á mótinu en auk silfurliðsins kepptu einnig P1 og M10 hóparnir. P1 hópurinn lenti í fjórða sæti á mótinu. Aldrei hafa jafnmargar fimleikastúlkur frá Aftureldingu verið mættar til keppni í fimleikum. Stúlkurnar stóðu sig allar frábærlega á mótinu en þær yngstu sem eru 7 ára voru að keppa í fyrsta sinn. Stúlkurnar skörtuðu nýjum glæsilegum keppnisbúningum á mótinu en Fimleikadeildin hyggst eiga búningana og leggja þá fram á keppnum og sýningum.


13.desember

Jólasýning Fimleikadeildar Aftureldingar
Jólasýning Fimleikadeild Aftureldingar verður haldin sunnudaginn 18. desember næstkomandi á milli kl. 11 og 13. Einstök skemmtiatriði hjá þessum frábæru fimleikabörnum.



12.desember
Umræða um ljósleiðaravæðingu Í Mosfellsbæ
Í janúar sl. lagði Þröstur Karlsson til í bæjarráði að farið yrði í viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um lagningu ljósleiðaranets í Mosfellsbæ.
Á 751.fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar þann 8.desember sl. var minnisblað bæjarstjóra um ljósleiðaravæðingu í bænum til umræðu. Að því tilefni bókaði fulltrúi B-listans eftirfarandi:
”Marteinn Magnússon fagnar því að skriður er kominn á erindi bæjarfulltrúans Þrastar Karlssonar frá í janúar sl. varðandi mögulega á ljósleiðaravæðingu.”
Það má furðu sæta að málið skuli ekki vera komið lengra, en þess má geta að mörg önnur sveitarfélög eru komin mjög langt í ljósleiðaravæðingu.


1.desember
Sjálfstæðismenn minntir á

Við umræðu um útsvarsprósentu ársins 2006 lögðu sjálfstæðismenn til óbreytta útsvarsprósentu frá árinu 2005 eða 12,94%

Framsóknarmenn bókuðu eftirfarandi:
Vegna tillögu um óbreytta útsvarsprósentu  viljum við minna á að eitt fyrsta verk sjálfstæðismanna var að hækka útsvarsprósentuna fyrir árið ári 2003 úr 12,65%  í 12,94%, sem samþykkt var með fjórum atkvæðum meirihluta sjálfstæðismanna gegn þremur atkvæðum minnihlutans.

1.desember
Fríar skólamáltíðir

Framsóknarmenn lögðu fram tillögu um fríar skólamáltíðir fyrir grunnskólabörn í Mosfellsbæ en tillagan var felld í bæjarstjórn í gærkvöldi.  Tillagan var svohljóðandi:
Með vísan til skólaskyldu grunnskólabarna leggja fulltrúar B-listans til að máltíðir grunnskólabarna verði fríar, tillögur okkar myndu jafna aðstöðu á milli grunnskólaskólabarna innan sveitarfélagsins og tryggja heilsusamlega næringu og jafnræði þeirra á milli.

 

1.desember
Mosfellsbær undir meðaltali

Við seinni umræðu fjárhagsáætlunar bentu Framsóknarmenn m.a. á að þeir hefðu viljað sjá meiri metnað í fjárhagsáætluninni og viljað sjá meiri fjármunum veitt til skólamála.  Í máli oddvita framsóknarmanna Þrastar Karlssonar kom m.a. fram að samkvæmt árbók Sambands Íslenskra Sveitarfélaga 2005 leggur Mosfellsbær minnst til með hverju barni af sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu en í umræddri árbók kemur m.a. fram framlag með hverjum nemenda er u.þ.b. kr. 484þús hjá Mosfellsbæ á meðan meðaltal á landsvísu er u.þ.b. kr.667þús og  u.þ.b kr 611þús á höfuðborgarsvæðinu.


1.desember
Bókun fulltrúa B lista við samþykkt fjárhagsáætlunar fyrir árið 2006

Ljóst er að langtímaáætlanir hafa gengið eftir og er rekstur sveitarfélagsins á réttri braut þrátt fyrir hrakspár sjálfstæðismanna í tíð fyrri meirihluta um að slíkt myndi ganga eftir. Þess ber þó að geta að samkvæmt 3ja ára áætlun bæjarins fyrir árin 2006-2008 var gert ráð fyrir um 128 millj.kr.rekstrarafgangi en samkvæmt fjárhagsáætlun ársins 2006 er áætlaður rekstrarafgangur einungis um 67 millj.kr.
Ljóst er að framlögð fjárhagsáætlun gefur ekki rétta mynd af stöðu bæjarfélagsins þar sem langtímaskuldbindingar vegna íþróttamiðstöðvar og bókasafns eru með öðrum hætti en venja er til,  þrátt fyrir að farið sé að bókhaldsreglum.
Framsóknarmenn hefðu viljað sjá meiri metnað í fjárhagsáætluninni og m.a. viljað sjá meiri fjármunum veitt til skólamála en skólum bæjarins eru skammtaðir litlir fjármunir í  fjárhagsáætlun ársins 2006. Samkvæmt upplýsingum úr Árbók sveitarfélaga árin 2002-2005 má sjá að útgjöld Mosfellsbæjar á nemenda í grunnskóla hefur farið minnkandi sl.ár og eru þau undir landsmeðaltali þessi ár.  Æskilegt væri að máltíðir grunnskólabarna væru fríar svo og ritföng að ákveðnu marki, þannig að allir sitji við sama borð.  Tillögur okkar þar um myndu jafna aðstöðu á milli skólabarna. Gleymum því ekki að auður okkar er börnin og fjölskyldan. 
Í góðu árferði er nauðsynlegt að stilla álögum í hóf og láta ekki sjálfvirkar
hækkanir eins og t.d á fasteignum og fasteignamati, ganga beint til að auka tekjustofna sveitarfélagsins fram úr eðlilegum hækkunum. Í Mosfellsbæ búa hlutfallslega margar barnafjölskyldur miðað við landsmeðaltal og óhóflegar álögur lenda ekki hvað síst á þeirra bökum.
Tillögur okkar eru að fara ber varlega í þessum málum, en í ár og á þeim næstu verður mikið aukið fjármagnsinnstreymis til sveitarfélagsins af nýjum tekjuliðum, eins og sölu á byggingarrétti, en tekjuliður sem þessi hefur ekki sést áður í bókhaldi sveitarfélagsins.   Í árferði þenslu, hækkandi gjalda og skatttekna er minni vandi að stjórna fjármálum sveitarfélagsins það sjá allir sem vilja sjá.

24.nóvember
Upplestur á jólabókum á Gljúfrasteini alla sunnudaga á aðventu

Sunnudagur 4. desember

Steinunn Sigurðardóttir, Sólskinshestur
Viktor Arnar Ingólfsson, Afturelding
Þráinn Bertelsson, Valkyrjur
Jón Kalman Stefánsson, Sumarljós og svo kemur nóttin

Sunnudagur 11. desember
Sjón, Argóarflísin
Guðrún Eva Mínervudóttir, Yosoy - Af líkamslistum og hugarvíli í hryllingsleikhúsinu við Álafoss
Þorsteinn frá Hamri, Dyr að draumi
Rúnar Helgi Vignisson, Feigðarflan

Sunnudagur 18. desember
Sigrún Eldjárn, Steinhjartað
Kristín Helga Gunnarsdóttir, Fíasól í Hosiló
Þórarinn Eldjárn, Völuspá
Eyrún Ingadóttir, Ríkey ráðagóða


24.nóvember
Söngleikurinn Bugsy Malone
Söngleikurinn Bugsy Malone var frumsýnt sl. laugardag 21. nóvember.
Leikarar og aðstoðarfólk sem taka þátt í sýningunni eru 65 talsins og eru allir nemendur 7. – 10. bekk Lágafellsskóla.
Leikstjóri er Trausti Ólafsson og tónlistastjóri er Gerður Gísladóttir en þau eru
bæði kennarar við skólann.
Ákveðið hefur verið að hafa tvær aukasýningar
Föstudaginn 25. nóv. kl. 20:00
Laugardaginn 26. nóv. kl. 17:00
Sýningarnar verða í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ.
Miðaverð er kr. 800,00 og hægt er að panta/kaupa miða á skrifstofu skólans virka daga til kl. 16:00. Athugið að ekki er hægt að greiða með greiðslukortum.
Mosfellsfréttir óska nemendunum og kennurum til hamingju með sýninguna.

23.nóvember
Aftur til hamingju!
Það er full ástæða til að óska bæjarstjórnarmeirihlutanum til hamingju með fjórða fund atvinnu- og ferðamálanefndar Mosfellsbæjar á árinu, en hann var haldinn þriðjudaginn  8. nóvember sl.  þetta er 25% aukning frá fyrra ári og því sennilegt að atvinnumál í bæjarfélaginu séu áherslumál þetta árið, eða hvað?
Það var von Mosfellsfrétta á síðasta ári að bæjarstjórnarmeirhlutinn vaknaði af værum svefni og að við tæki uppbyggingarstarf í atvinnumálum sveitarfélagsins en það virðist allt vera við sama heygarðshornið í þessum málaflokki, góðærið virðist ekki ætla að staldra við í Mosfellsbæ.   Ritstjórn Mosfellsfrétta vil minna bæjarstjórnarmeirhlutann á að það felast mikil lífsgæði í öflugu atvinnulífi í sveitarfélaginu og hvetur hún núverandi meirihluta til dáða, því enn eru rúmir 6.mánuðir eftir af kjörtímabilinu.  Fátt er jákvæðara en sterkt og gott atvinnulíf í heimabyggð.


15.nóvember
Jólabasar og kaffisala á Hlaðhömrum
Jólabasar, kaffihlaðborð og ljúfur söngur á Hlaðhömrum.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ verður með jólabasar og kaffisölu = Kaffihlaðborð, í Dvalarheimilinu Hlaðhömrum laugardaginn 19. nóvember kl. 13:30 -. Kór eldri borgara Vorboðar syngur frá kl. 14:30


7.nóvember
Félagsvist
Hin sívinsælu spilakvöld í framsóknarsalnum að Háholti 14 2.hæð hefjast aftur þriðjudagskvöldið 8. nóvember, kl.20.00
Spilað verður 8.15. og 22. nóvember.
Veglegir vinningar og allir velkomnir.


7.nóvember
Örar breytingar á fasteignamarkaði
Þeir eru til sem kenna Íbúðalánasjóði og þá einkum aðgerðum ríkisstjórnarinnar í húsnæðismálum á síðasta ári (sem raunar leiddi af sér 1 prósent lækkun á langtímavöxtum) um þensluna í hagkerfinu. Það er að mínu mati mikil einföldun.
Líklegt er að breytingar á skuldabréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs sumarið 2004, breytt eignarhald bankanna og aukinn styrkur þeirra hafi flýtt fyrir þeirri þróun að bankar og sparisjóðir buðu upp á íbúðalán í samkeppni við Íbúðalánasjóð í ágúst 2004. Meira....


4.nóvember
Viðtalstími bæjarfulltrúa í nóvember og desember
Viðtalstími bæjarfulltrúa í nóvember og desember verða sem hér segir:
Miðvikudaginn 23.nóvember
Hafsteinn Pálsson og Bryndís Bjarnarson
Miðvikudaginn 7.desember
Herdís Sigurjónsdóttir og Þröstur Karlsson
Viðtölin fara fram í fundarherbergi bæjarstjórnar á 4. hæð í Kjarna Þverholti 2
frá kl. 17:00 til 18:00


3.nóvember
Úthlutunarskilmálar fyrir Krikahverfið
Bæjarstjórnar Mosfellsbæjar samþykkti á 429. fundi sínum í gær, úthlutunarskilmála fyrir Krikahverfið  , en Krikahverfið  er miðsvæði sunnan Vesturlandsvegar.
Til úthlutunar koma 68 einbýlishúsaeiningar, 6 parhúsaeiningar ,8 raðhúsaeiningar, 5 fjölbýlishúsaeiningar. Gert er ráð fyrir að lóðirnar verið byggingarhæfar 1.júli 2006.
Þess má geta að nýjung er í úthlutunarskilmálunum að nú verða fjórum einbýlishúsaeiningum úthlutað til hreyfihamlaðra einstaklinga eða forráðamanna slíkra einstaklinga. Markmiðið með þessu er að veita hreyfihömluðum íbúum möguleika á að byggja íbúðarhúsnæði sem frá upphafi er hannað með þarfir viðkomandi í huga.  Sjá skýringaruppdrátt.


3.nóvember
Skóflustunga að nýjum öryggisíbúðum
Þriðjudaginn 1. nóvember var tekin skóflustunga að nýjum öryggisíbúðum fyrir aldraða íbúðirnar verða þrjátíu og níu en þær munu rísa við Hlaðhamra 2 í Mosfellsbæ. Gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði tilbúnar hinn 1.desember 2006.
Það er Eir öldrunarþjónusta sem annast framkvæmdina samkvæmt samningi þar um við Mosfellsbæ.
Stefnt er að því að byggt verði hjúkrunarheimili fyrir aldraða á sömu lóð þegar tilskilin leyfi hafa fengist.

 

1.nóvember
Kjördæmisþing.
5.kjördæmisþing Framsóknarmanna í SV-kjördæmi var haldið laugardaginn 29.október sl. í  íþróttahúsinu á Álftanesi.
Um150 manns sóttu þingið. Á þinginu var m.a. rætt um stjórnmálaviðhorfið, unnið í hópastarfi, ályktanir samþykktar og kosið til miðstjórnar flokksins.

 


27.október
Strendur langt yfir hættumörkum.
Í skýrslu Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis segir
m.a. að Varmárósar í botni Leiruvogs eru skilgreindir sem friðlýst svæði en auk þess eru fjörur í Leiruvogi á náttúruminjaskrá. Flestir saurkólígerlar og enterokokkar voru í sýnum teknum við Hestaþinghól innst í Leiruvogi. Þar mælist fjöldi saurgerla talsvert yfir 20.000 pr. 100 ml. og upp í 35.000 pr. 100 ml. Mengun er allstaðar yfir skilgreindum umhverfismörkum reglugerðar um fráveitur og skólp. Spurningar vakna hvort núverandi meirihluti sé að fresta framkvæmdum við fráveitumál til að fegra ársreikning bæjarins rétt fyrir kosningar?




26.október
Viltu taka þátt í mótun fjölskyldustefnu?

Á 47. fundi fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar samþykkti fjölskyldunefnd að auglýst yrði eftir áhugasömum þátttakendum við mótun fjölskyldustefnu Mosfellsbæjar.
Vinnuhópar munu taka afstöðu til ýmissa málaflokka er varða fjölskylduna. Þeir sem áhuga hafa á að koma að mótun fjölskyldustefnunnar hafi samband við verkefnastjóra fyrir 1. nóvember 2005 með tölvupósti.
Netfangið er eddajonz@simnet.is.

 

26.október
Skólpmál bæjarins komin í óefni.

Sofandaháttur sjálfstæðismanna við að fylgja eftir áætlunum um lausn fráveitumála í Mosfellsbæ er algjör. Áætlunum og átaki fyrri meirihluta um að koma fráveitumálum bæjarins í gott horf hefur ekki verið fylgt eftir og er nú svo komið að strendur bæjarins eru komnar yfir hættumörk hvað varðar magn saurkólígerla og enterokokka. Strendurnar eru orðnar hættulegar mönnum og dýrum, eins og lesa má í frétt Morgunblaðsins frá í dag.
Samkvæmt reglugerð nr. 798/1999 um fráveitur og skólp hafa sveitarfélögin frest til ársloka ársins 2005 til að fullnægja ákvæðum um hreinsun skólps en fyrirséð er að þau tímamörk verða ekki uppfyllt af hendi Mosfellsbæjar.  Meira um skólpmengun við strandlengju Mosfellsbæjar og Seltjarnarness....

Myndin sýnir skólpútrás við Langatanga, en þess má geta að þarna eru börn oft að leik.
Mynd: Ríkharður Friðrik Friðriksson.


25.október
Kjördæmisþing.
5.kjördæmisþing Framsóknarmanna í SV-kjördæmi verður haldið laugardaginn 29.október 2005. kl 10.00 í  íþróttahúsinu á Álftanesi.
Guðni Ágústsson, Sigurður Eyþórsson og Bryndís Bjarnarson munu ávarpa þingið.

Sjá dagskrá:


17.október
Mat landa og fasteigna í dreifbýli og á jaðarsvæðum í Mosfellsbæ margfaldast
Fasteignamat ríkisins hefur lokið endurmati fasteigna í dreifbýli og á jaðarsvæðum í Mosfellsbæ. Meginniðurstöður matsins eru þær að landmat þeirra fasteigna sem mat breyttist fyrir hækkaði úr 649,6 milljónum króna í tæpa 4 milljarða eða u.þ.b. sexfalt. Mat annarra hluta fasteignanna, svo sem mannvirkja og hlunninda, breyttist ekki.
Samtals náði endurmatið til 716 fasteigna á 564 löndum og breyttist mat á 235 sem standa á 186 löndum. Heildarmat fasteignanna hækkaði úr 1,3 milljörðum í 4,6 milljarða króna. Mat hækkaði á 145 löndum en lækkaði á 41 landi. Heildarmat fasteigna í Mosfellsbæ er nú um 55 milljarðar.
Frá þessu segir á www.mbl.is.
 


16. október

Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar.
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar var haldinn 15. október sl. að Háholti í Mosfellsbæ.  Meðal þess sem kom fram er að starfið er þróttmikið  og fjárhagsstaða félagsins er góð.  Samþykkt var tillaga þess efnis að fela uppstillingarnefnd röðun á lista fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Þá tilkynntu bæjarfulltrúarnir Þröstur Karlsson og Bryndís Bjarnarson að þau gefi ekki kost á sér til endurkjörs. Voru þeim þökkuð afar góð störf á undanförnum kjörtímabilum, en Þröstur hefur  verið bæjarfulltrúi okkar í tæp 12 ár en Bryndís í tæp 4 ár.
Nýr formaður félagsins var kjörin Helga Jóhannesdóttir en Bryndís Bjarnarson hefur verið formaður s.l. 3 ár en baðst nú undan endurkjöri en hún hefur hafið nám við Viðskiptaháskólann að Bifröst.  

6.október

Íþróttamiðstöðin að Lækjarhlíð í einkaframkvæmd!
Minnihluti B og G var þessu mótfallinn.

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar fundaði aftur fyrir luktum dyrum í gær um tilboð Nýsis hf sem m.a. gengur út á stofnun hlutafélags (Lækjarhlíð ehf) sem verður að jöfnu í eigu Nýsis hf og Mosfellsbæjar. Hlutafélagið Lækjarhlíð ehf. leigir síðan Fasteignastjórnun ehf., sem er fyrirtæki í eigu Nýsis hf húseignina til 30 ára. Mosfellsbær mun til sama árafjölda kaupa tíma og þjónustu til notkunar fyrir skólakennslu. Stofnkostnaður miðstöðvarinnar er áætlaður um 800 milljónir.
Ekki voru bæjarstjórnarmenn allir jafn sannfærðir um ágæti þessa samnings og var m.a. bent á að í forsendum væri leiguþörf bæjarins verulega vanáætluð.
KPMG fyrirtækjaráðgjöf  framkvæmdi að beiðni bæjarstjórnar mat á tveimur mismunandi kostum út frá fyrrnefndum forsendum á fjármögnunaraðferðum vegna framkvæmdanna. Við samanburð kom í ljós að núvirtur munur á eiginframkvæmd þ.e. eiga húsið og reka í nafni sveitarfélagsins og svo einkaframkvæmd var áætlaður um 160 milljónir á 30 árum eða aðeins um 5,3 milljónir á ári miðað við gefnar forsendur sem fram komu í útboði.

 Við afgreiðslu málsins bókaði minnihlutinn eftirfarandi:
Í samanburði með núvirðisgreiningu á valkostum við eignarhald og rekstur Íþróttamiðstöðvarinnar við Lækjarhlíð sem unnin var af KPMG, kemur fram að mismunur þessara kosta er lítill eða um 5,3 milljónir á ári út samningstímann á mannvirki sem kostar jú um 800 milljónir. Ekki er á það hættandi fyrir svo lítinn ávinning að binda hendur og frjálsræði sveitarfélagsins í tugi ára í að mæta síbreytilegum þörfum íbúanna á þjónustu með samningum sem þessum. 
Því telja fulltrúar B og G lista að hagsmunum íbúanna sé betur borgið til lengri tíma litið með því að bæjarfélagið að öllu leyti eigi og reki íþróttamiðstöðina.

 

23.september
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar fundaði fyrir luktum dyrum!

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar fundaði í fyrradag fyrir luktum dyrum um eignarhald og rekstur íþróttamiðstöðvar við Lækjarhlíð. En eins og fram kemur í fundargerð sat m.a. Sigfús Jónsson frá Nýsi hf fundinn en Nýsir hf starfar einkum á sviði einkaframkvæmda og fasteignastjórnunar. Hvað veldur því að bæjarstjórn fundar fyrir luktum dyrum um þetta mál er ekki gott að segja, en samkvæmt upplýsingum Mosfellsfrétta hefur meirihluti Sjálfstæðismanna lagt fram hugmyndir um breytt eignarhald á íþróttamiðstöðinni ásamt því að leigja allan rekstur íþróttamiðstöðvarinnar til 30 ára. Ef af verður yrði þetta fyrsta einkaframkvæmd í sögu Mosfellsbæjar.

En í fundargerð er bókað eftirfarandi:

Drög að samstarfi Mosfellsbæjar og Nýsis hf. um uppbyggingu og rekstur íþróttamiðstöðvar við Lækjarhlíð

Til máls tóku: HS, ÞK, HSv, BB, BH 

Samþykkt var með sjö atkvæðum að ræða þennan dagskrárlið fyrir luktum dyrum sbr. 17. gr. í bæjarmálasamþykkt Mosfellsbæjar.

Samþykkt með sjö atkvæðum að fela fyrirtækjasviði KPMG að fara yfir málið og vinna mat og gera samanburð á valkostum, með aðkomu meiri- og minnihluta. Vinnu þessari verði lokið fyrir næsta bæjarstjórnarfund.


22.september

Mosfellsbær eignast heimsmeistara!
Bæjarráð Mosfellsbæjar ákvað á fundi sínum í morgun að styrkja Sigurð Straumfjörð Pálsson um kr. 100 þús. vegna heimsmeistaratitils í 100 m skeiði er hann vann til á heimsmeistaramóti íslenska hestsins í Svíþjóð í ágúst sl.

 

9.september
VARMÁRVÖLLUR Afturelding - Selfoss
Síðasti leikur sumarsins laugardaginn 10. september kl. 14.00 Gúmmívinnustofan hvetur alla Mosfellinga til að mæta á völlinn.

9.september
Launahækkanir skekja fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar
Í nýútkominni endurskoðaðri fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar sem lögð var fram í bæjarráði í gær er áætlað að 50% hækkun verði á launalið sem áætlaður var vegna breytinga vegna nýrra kjarasamninga starfsfólks sem gerðir hafa verið síðustu misseri.  Áætlað var að hækkanir yrðu um 105 milljónir en reyndin er að launabreytingarnar endi í um 155 milljónir, en heildar launagreiðslur bæjarins láta nærri að vera samtals 1,1 milljarður á ári.


6.september
Frábær þjónusta Strætó bs
Inn á heimasíðu Strætó bs  www.straeto.is er svo kallaður ráðgjafi en þetta er  hjálparforrit sem hjálpar farþegum að finna hagkvæmustu leiðina til og frá staða.. Ráðgjafinn er öflugt hjálparforrit sem veitir nákvæmar upplýsingar um áfangastaði og ferðir strætó með það að markmiði veita aukna þjónustu og að koma notendum milli staða á höfuðborgarsvæðinu á sem hagkvæmastan hátt. Ráðgjafinn blasir við notendum þegar slóðin að vefsíðu Strætó bs. Sjá www.straeto.is

6.september
Stórfelld niðurgreiðsla erlendra skulda og milljarða framkvæmdir í þjóðþrifamálum
32,2 milljörðum króna af söluandvirði Landssíma Íslands verður varið til að greiða erlendar skuldir. 18 milljörðum króna verður varið til uppbyggingar hátæknisjúkrahúss á árunum 2008-2012, 15 milljarðar renna til samgöngubóta, þar af 8 milljarðar til Sundabrautar, 2,5 milljarðar fara til uppbyggingar fjarskiptakerfis á landsbyggðinni og 2,5 milljarðar til nýsköpunarmála. Með 1 milljarðs framlagi verður biðlistum geðfatlaðra eftir búsetuúrræðum eytt, 3 milljarðar króna fara til að kaupa varðskip og flugvél fyrir Landhelgisgæsluna og 1 milljarður króna til byggingar nýs húss Árnastofnunar í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands árið 2011.  Meira á tíminn.is


26. ágúst
Afturelding - Leiftur/Dalvík
Nú mætum við öll á völlin og hvetjum okkar menn til sigurs geng Leiftri/Dalvík á laugardaginn kl 1600.  KFC býður öllum frítt á völlinn.

25.ágúst
Ályktun bæjarstjórnar Mosfellsbæjar vegna tvöföldunar Vesturlandsvegar.
Um leið og bæjarstjórn Mosfellsbæjar fagnar þeim áfanga sem nú er að ljúka við tvöföldun Vesturlandsvegar þá er lögð áhersla á að tvöföldun frá Skarhólabraut að Langatanga verði flýtt. Vegalengdin sem um ræðir er styttri en einn kílómeter og er flöskuháls sem dregur úr afkastagetu vegarins og skapar umtalsverða hættu.
Vegagerðin hefur reifað hugmyndir sínar um þrjár akgreinar á þessari leið, eina akgrein í norður en tvær í suður. Verði sú leið valin er verið að bæta við enn einni bráðabirgðalausn á þessum fjölfarnasta þjóðvegi landsins. Hringtorgin á Vesturlands-vegi eru bráðabirgðalausnir í stað varnanlegra mislægra gatnamóta.
Framkvæmdir á Vesturlandsvegi hafa staðið í all mörg ár og ekki séð fyrir endann á þeim því fyrr en seinna verður vonandi hafist handa við gerð mislægra gatnamóta og þá verður Vesturlandsvegurinn enn einu sinni í uppnámi vegna framkvæmda:
Vesturlandsvegurinn er fjölfarnasti þjóðvegur landsins og þessi viðbót tvöföldunar frá Skarhólabraut að Langtanga mun ekki aðeins auka afkastagetu vegarins til muna heldur og efla örygga þeirra vegfarenda sem um Vestulandsveginn fara. Jafnframt munu þær framkvæmdir sem verið er að ljúka og þeir fjármunir sem í þær hafa verið lagðir nýtast að fullu.
Bæjarráð og bæjarstjórn Mosfellsbæjar hafa margoft ítrekað óskir sínar um tvöföldun Vesturlandsvegar, mislæg gatnamót og fleira er að framkvæmdum lýtur og enn er skorað á samgönguyfirvöld, Vegagerðina og aðra þá aðila er málið varðar að tillit verði tekið til sjónarmiða og óska sveitarfélgasins og tvöföldun Vesturlandsvegar frá Skarhólabraut að Langatanga verði flýtt og hún unnin í beinu framhaldi af þeirri tvöföldun sem nú er í gangi.


25.ágúst
400 nýjar íbúðir í landi Leirvogstungu á næstu fjórum árum.
Mosfellsbær og fyrirtækið Leirvogstunga ehf. undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um byggingu 400 íbúða í landi Leirvogstungu í Mosfellsbæ. Upppbygging hverfisins verður sveitarfélaginu að kostnaðarlausu þar sem framkvæmdaaðili tekur að sér lagningu vegar, brúargerð og fjármagnar byggingu skóla og leikskóla á svæðinu, en þetta mun vera nýjung í uppbyggingu á Íslandi.
Í tilkynningu frá bæjarfélaginu kemur fram að gert sé ráð fyrir að áætlana-, skipulags- og byggingarkostnaður, ásamt vegagerð og fleira sem tengist framkvæmdinni, muni nema ríflega tveimur milljörðum króna. Stefnt er að því að framkvæmdin hefjist í vor og er gert ráð fyrir að uppbyggingin taki fjögur ár.
Leirvogstunga er nálægt bæjarmiðju Mosfellsbæjar. Þær 400 íbúðir sem ráðgert er að byggja munu skiptast í einbýlishús, parhús og raðhús. Eigendur og framkvæmdaaðilar eru hjónin Bjarni Sv. Guðmundsson og Katrín Sif Ragnarsdóttir sem reka fyrirtækið Leirvogstungu ehf. en fjölskylda Bjarna hefur átt jörðina Leirvogstungu í sex ættliði. Frá þessu segi á visir.is í dag


22.ágúst
Leikskólarnir sprungnir.

Til þess að redda biðlistum leikskólanna var lagt til við fræðslunefnd þann 30. júní  að byggja færanlega kennslustofu við Lágafellsskóla. Kennslustofa  þessi á að hýsa leikskóladeild n.k. skólaár og vera einungis fyrir fimm ára börn eins og gert er við Varmárskóla. Leikskóladeildinni verður stýrt frá Leikskólanum Huldubergi  í samvinnu við Lágafellsskóla.
Menn skýla sér á bakvið það að þessi deild eiga að vera í líkingu við leikskóladeild í Varmárskóla en sú deild er inni í skólabyggingunni og börnin eru hluti af nemendum skólans. Starfsmenn þar hafa nefnt að ef  deildin væri í seli hefði ekki tekist eins vel upp, þrátt fyrir það á að setja fimm ára deild í sel við Lágafellsskóla.
Þetta eru vægast sagt ótrúleg vinnubrögð hjá meirihlutanum. Þegar þetta var ákveðið 30. júní s.l. voru flestir farnir í frí sem hlut eiga að máli bæði börn, foreldrar og starfsmenn.
Meirihlutanum hefði átt að vera það ljóst löngu fyrr í hvert stefndi. Það er stórt skref að færa börn á milli stofnana, að ógleymdri mikilli skipulagsvinnu sem þarf að eiga sér stað hjá skóla og leikskóla.
Það má hrósa stjórnendum stofnana bæjarins fyrir að geta tekið við slíkum óvæntum uppákomum yfirvalda í Mosfellsbæ,  en eftir á að koma í ljós hver viðbrögð barna og foreldra verða.


22.ágúst
Af framboðsmálum í Mosfellsbæ.
Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 16.8 s.l. að skipa nefnd sem skal skoða hvernig staðið verður að framboðsmálum félagsins fyrir næstu sveitastjórnarkosningar. Nefndin mun leggja fram tillögur á aðalfundi félagsins sem verður haldinn þann 8. okt. n.k.

19.ágúst
Jón Kalman og Bjarki Bjarnason lesa í lautinni

Næstkomandi laugardag 20. ágúst kl. 14.00 heldur upplestrardagskrá ágústmánaðar áfram á Gljúfrasteini.

Jón Kalman Stefánsson mun lesa úr glænýrri skáldsögu sinni sem kemur út með haustinu. Sannarlega forskot á sæluna fyrir aðdáendur Jóns Kalmans og aðra unnendur góðs sagnaskáldskapar. Einnig les Bjarki Bjarnason, kennari og rithöfundur, Söguna af brauðinu dýra eftir Halldór Laxness sem gerist einmitt hér í dalnum og á Mosfellsheiði. Bjarki er hafsjór fróðleiks um Halldór Laxness og sveitina þar sem skáldið ólst upp og bjó mestan hluta ævi sinnar. Þetta er því sérstakt tækifæri fyrir fróðleiksfúsa til að kynnast skáldinu og verkum hans í samhengi við sveitina sem var honum svo kær.

Líkt og fyrr er ókeypis á upplesturinn en aðgangseyrir greiddur inn á safnið. Kaffi og ljúffengar kleinur verða til sölu.
Sjá nánar á heimasíðu safnsins: www.gljufrasteinn.is

17.ágúst  
 Afturelding - ÍR 
Afturelding - ÍR á Varmárvelli fimmtudaginn 18. Ágúst  kl 19.00
Nú er að duga eða drepast fyrir okkar menn og því ekkert nema sigur kemur til greina!   Nú ættu
allir að fara á völlinn og hvetja strákana áfram í erfiðri lokabaráttu.

 

17.ágúst
Karlasveit GKJ Íslandsmeistari í Sveitakeppni
Karlasveit Golfklúbbsins Kjalar náði þeim frábæra árangri að verða Íslandsmeistarar í Sveitakeppni GSÍ 1. deild,  en þeir háðu úrslitaleik við Golfklúbb Reykjavíkur.
Davíð Már Vilhjálmsson og Arnar Sigurbjörnsson töpuðu 7/6.  Kristján Þór Einarsson  tapaði fyrir  Haraldi Heimissyni4/3, Sigurpáll Geir  Sveinsson vann Pétur Óskar Sigurðsson 3/1, Heiðari Davíð Bragason sigraði Ólaf Má Sigurðsson 3/2 og Magnúsi Lárusson vann Stefán Má Stefánsson eftir hetjulega baráttu á 19. holu, eftir að hafa verið mestallan leikinn 1-3 holur niður.  Meðal annars náði Magnús erni á 17 holunni.  Aðrir í sveitinni sem hvíldu eru þeir Guðjón Karl Þórisson og Ingi Rúnar Gíslason, liðsstjóri Haukur Hafsteinsson.  Þetta er fyrsti Íslandsmeistarartitill Kjalar í Sveitakeppni Karla en áður höfðu þeir náð 3. sætinu í fyrra.  Mosfellsfréttir óskar Gólfklúbbnum til hamingju með þennan glæsilega sigur. 
 Sjá nánar www golf.is

15.ágúst
Skólasetning þriðjudaginn 23. ágúst 2005
2. bekkur kl. 9:00 við aðalinnganginn í yngri deild
3. bekkur kl. 9:30 við aðalinnganginn í yngri deild
4. bekkur kl. 10:00 við aðalinnganginn í yngri deild
5. bekkur kl. 10:30 við aðalinnganginn í yngri deild
6. bekkur kl. 11:00 við aðalinnganginn í yngri deild
7. og 8. bekkur kl. 10:00 á sal eldri deildar
9. bekkur kl. 9:30 á sal eldri deildar
10. bekkur kl. 9:00 á sal eldri deildar
Nemendur 1. bekkja eru boðaðir skriflega til viðtals við kennara þriðjudaginn 23. og miðvikudaginn 24. ágúst.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá hjá 2. - 10. bekk miðvikudaginn 24. ágúst.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá hjá 1. bekk fimmtudaginn 25. ágúst.
(sjá meira á heimasíðu Varmársskóla www.varmarskoli.is)


15.ágúst
Skólasetning Lágafellsskóla

Nemendur mæti þriðjudaginn 23. ágúst

Nemendur mæti í sal skólans þriðjudaginn 23. ágúst sem hér segir:
2. bekkur kl. 09:30
3. bekkur kl. 10:00
4. bekkur kl. 10:30
5. bekkur kl. 11:00
6. og 7. bekkur kl. 11:30
8.,9. og 10. bekkur kl. 12:00
Starfsmenn mæti til starfa mánudaginn 15. ágúst og hefst starfsmannafundur í sal skólans kl. 09:00.
Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir bréflega til viðtals við umsjónarkennara þriðjudaginn 23. ágúst og miðvikudaginn 24. ágúst.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 24. ágúst hjá nemendum í 2. – 10. bekk en fimmtudaginn 25. ágúst hjá nemendum í 1. bekk.  
(sjá meira á heimasíðu Lágafellsskóla www.lagafellsskoli.is)


15.ágúst

LESIÐ Í LAUTINNI  Gljúfrasteinn – hús skáldsins

Laugardaginn 20. ágúst kl. 14.00
Jón Kalman Stefánsson rithöfundur les úr væntanlegri skáldsögu sinni.
Bjarki Bjarnason kennari og rithöfundur les Söguna af brauðinu dýra eftir Halldór Laxness.
Laugardaginn 27. ágúst kl. 14.00
Þórarinn Eldjárn rithöfundur les úr væntanlegri ljóðabók sinni Hættir og mörk.  
Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, sem í haust mun leika Sölku Völku í  Borgarleikhúsinu, les ljóð eftir Halldór Laxness.
Hægt verður að kaupa kaffi og kleinur á vægu verði.
Ókeypis er á upplestrana. Skoðunarferðir um Gljúfrastein kosta kr. 500,- fyrir fullorðna og kr. 250,- fyrir börn og eldri borgara. www.glufrasteinn.is

 

 Erum farin í sumarfrí frá og með 8.júlí til og með 15 ágúst.
 

7.júlí
Sumarleyfi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær að fara í sumarleyfi til og með 23. ágúst nk., en næsti fundur bæjarstjórnar er ráðgerður þann 24. ágúst nk.


 

7.júlí
Hörð átök vegna greinargerðar um sölu og leigu á Kjarna.

Á fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar í gær var tekist harkalega á um greinargerð KPMG endurskoðunar í sambandi við sölu og leigu á húsnæði í Kjarna að Þverholti 2, en fulltrúar B-listans lögðu fram tillögu á fundi bæjarstjórnar þann 30.mars s.l.um beiðni um úttekt og allir bæjarfulltrúar samþykktu.

Í úttektinni kemur m.a. fram staðfesting á að bókfært verð 2.hæðar Kjarna sem afhent var sem fyrirfram greidd leiga til leigusala var í reikningum 2004 um 65 milljónir, en hæðin var seld á kr.37 milljónir eða sölutap bæjarins um 27 milljónir.

Margt fleira kemur fram í greinargerðinni sem vekur upp hinar ýmsu spurningar og óskuðu fulltrúar B- og G lista eftir að fleiri atriði yrði útskýrð frekar af KPMG endurskoðun og að þessar upplýsingar liggi fyrir á næsta fundi bæjarstjórnar eftir sumarfrí.

1.                          Nánari grein verði gerð fyrir tölum í töflu 2 og 3 í greinagerð KPMG.

2.                          Kaupsamningar, eignaskiptasamningar og skráningar til Fasteignamats ríkisins verði skoðaðir með tilliti til eignarhalds á torgi frá upphafi og til dagsins í dag.

3.                          Fram verði lögð sundurliðun á greiðslu og hverjir hafa verið greiðendur fasteignagjalda af “Torgi” frá upphafi til dagsins í dag.

4.                          Ósamræmi er á milli kaupsamnings um 2.hæðina þar sem tilgreind stærð í samningnum frá 1994 er 429,3 fermetrar, en við sölu á eigninni 2004 er hún aðeins sögð 378,5 fermetrar. Óskað er eftir skýringum á þessu ósamræmi.
Minnihlutinn benti einnig á í málflutningi sínum að nýr samningur um kaup um “Torgið” í Kjarna var gerður í apríl 1994 þar sem fram kemur að Mosfellsbær kaupi yfirbyggt torg milli turns í Kjarna og verslunarhúsnæðis og eru engar stærðir tilgreindar. Ákvæði er í samningnum að fyrri samningur frá árinu 1991 falli þar með úr gildi.

Einnig benti minnihlutinn á að Mosfellsbær kaupir árið 1994 2.hæðina á kr.80.000 pr. fermeter óinnréttaða eða 429,3 fermetra á samtals kr.34,3 milljónir, en selur síðan sama aðila eignina árið 2004, sem 378,5 fermetra á 37,0 milljónir fullgerða eða kr.97.800 pr. fermeter, góð kaup það.

Áhugavert verður að sjá hvernig þessu máli lyktar, en ljóst er að margt á eftir að líta dagsins ljós.

29.júní
Afturelding-Tindastóll
Nú mæta strákarnir okkar Tindastól föstudaginn 1.júlí. kl. 20.00 á Varmárvelli, við hvetjum bæjarbúa til að mæta á völlinn og hvetja okkar menn.
Áfam Afturelding.

 

20.júní
Tímafrek umferðarsulta
Íbúar Mosfellsbæjar hafa  þurft að búa við langan framkvæmdartíma við tvöföldun Vesturlandsvegar, en Mosfellingar eru seinþreyttir til vandræða og því hafa  menn hér í bæ bitið í skjaldarrendur og bölvað í hljóði í allan vetur en nú þegar vorar tekur steininn algerlega úr.
Langar biðraðir á Vesturlandsveginum sökum slæmrar forgangsröðunar á framkvæmdum hafa kostað okkur miklar tafir við að komast heim á daginn, sérstaklega er þetta nú slæmt þegar líða tekur undir helgar og má segja að á föstudögum geti það tekið hátt í klukkustund að komast neðan úr bæ og upp í Mosfellsbæ.  Ekki er óalgengt að 30-40 mínútur taki að komast frá Ártúnshöfða og upp í Mosfellsbæ á föstudögum milli 18 og 19,00.
Ef þetta ástand væri í Reykjavík eða annarsstaðar væri sennilega búið að gera heilmikið úr þessu ástandi í fjölmiðlum og hver veit nema að þetta væri búið að ræðast í bæjarstjórn og ljóst væri að mikil gagnrýni væri komin fram um málið.
En hvernig snýr þetta mál að bæjarstjórn Mosfellsbæjar?  Ekki höfum við séð þetta á dagskrá þar á bæ né heldur höfum við heyrt bæjarstjórann okkar gagnrýna þennan seinagang opinberlega.
Getur þetta gengið svona lengur? Er ekki kominn tími til að láta í sér heyra?

 

16.júní
Ný útkomið blað Mosfellsfrétta
Nýtt blað Mosfellsfrétta má lesa hér Mosfellsfréttir pdf skjal.


14.júní
Mosfellsfréttir
Blað Mosfellsfrétta kemur út og verður dreift þann 16.júní n.k. mikið er af fréttum úr bæjarfélaginu í blaðinu þ.m.t. fréttir af íbúaþingi svo og umfjöllun um íþróttamiðstöðina að Lækjarhlíð en blaðið verður sett  inn á heimasíðuna sama dag.








10.júní
Afturelding – Fjarðarbyggð
Laugardaginn 11 júni n.k. kl 16.00 á Varmárvelli mæta okkar menn dýróðir á völlinn og etja kappi við Fjarðarbyggð.
Síðasti leikur var útileikur við Njarðvík og fór hann 1-1. Þorvaldur Árnason skoraði okkar mark.  Nú þurfum við að bretta upp ermar og fara að vinna leiki.
Mætum öll og hvetjum okkar lið.

10.júní
Skóflustunga. 

Skóflustunga var tekin að nýrri íþróttamiðstöð við Lækjarhlíð í Mosfellsbæ laugardaginn 4.júní s.l.
Íþróttamiðstöðin mun efla alla þjónustu við bæjarbúa en þó sérstaklega grunnskólanemendur í Lágafellsskóla. Nokkuð skyggir þó á gleðina að deilur hafa verið þónokkrar um íþróttamiðstöðina og nú síðast tekist á um stærð íþróttahússins sjálfs en eins og menn muna þá ákvað meirihlutinn að minnka hann úr 22x44m í 18x33m og þótti mörgum sem til fortíðar væri farið með þessari ákvörðun.

9.júní
Bæjarlistamaður 2005

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum þann 8.júní tillögu menningarmálnefndar að bæjarlistamaður Mosfellsbæjar árið 2005 verði Símon H.Ívarsson gítarleikari.
Mosfellsfréttir.is óska honum innilega til hamingju með útnefninguna.