Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró

                                                2007  1/2 

30.maí
Vorferð Sögufélags Kjalarnesþings 
Vorferð Sögufélags Kjalarnesþings í Elliðaárdal verður Laugardaginn 2. júní n.k. milli kl. 10:00 til 11:00.  Lagt verður af stað frá Árbæjarsafni (kirkjunni) kl. 10,00 og gengið um Elliðaárdal sem áður tilheyrði Mosfellshreppi. Leiðsögumaður: Árni Hjartarson jarðfræðingur.  Allir eru velkomnir, ekkert þátttökugjald.



29.maí
Björn Ingi Bloggar:

Draumaríkisstjórn blaðamannsins

Heitustu draumar blaðamanna um nýja ríkisstjórn og yfirlýsingagleði ráðherra rætist fyrr en nokkurn grunar. Miðað við yfirlýsingarnar í kvöld, verður þetta ansi skemmtileg snerra innan veggja Stjórnarráðsins.

Tvö dæmi:
Nýr utanríkisráðherra sagði í fyrstu frétt Stöðvar 2 í kvöld að með hvalveiðum Íslendinga væri verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni. Á sama tíma ver sjávarútvegsráðherra veiðarnar með kjafti og klóm og sendinefnd Íslands talar fyrir sjónarmiðum veiða á ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðsins. Hvernig eiga þeir að haga málflutningi sínum ef ríkisstjórnin er klofin í málinu?

Síðar í sama fréttatíma var viðtal við nýjan viðskiptaráðherra. Hann fór mikinn og taldi vel koma til greina að skylda einkafyrirtæki til að hafa jafnt hlutfall karla og kvenna í stjórnum. Alveg er ég viss um að hvínandi ánægja hafi verið með þessar yfirlýsingar hjá samstarfsflokknum og atvinnulífinu almennt. Skilaboðin eru þessi: Það getur vel verið að þið eigið þessi fyrirtæki ykkar, en þið ráðið engu um það hverjir eru í stjórn!

Fleiri dæmi væri eflaust hægt að taka, t.d. um þrjár ólíkar skoðanir sem komnar eru fram hjá þremur ráðherrum um Norðlingaölduveitu, en látum það nú vera. Nýtt fólk verður að fá tíma til að fóta sig í nýjum verkefnum.

En fyrir stjórnarandstöðuna og vökula blaðamenn verður þetta bara gaman.

25.maí
Ársreikningur Mosfellsbæjar 2006.
Ársreikningur Mosfellsbæjar var til síðari umræðu á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 23maí sl. eins og fram hefur komið í fréttatilkynningum þá rekstrarniðurstaðan all góð eða jákvæð um 129,6mkr. Ársreikningurinn var staðfestur með sjö atkvæðum.
Minnihluti B og S lista lögðu fram eftirfarandi bókun vegna ársreiknings 2006.

Það ber að gleðjast yfir jákvæðri afkomu sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningnum. Jafnframt ber að þakka forstöðumönnum sviða og stofnana hversu vel þeir halda sig innan ramma fjárhagsáætlunar þó naumt sé skammtað.
Ytri efnahagslegar aðstæður hafa verið rekstri sveitarfélaga afar hagstæðar á undanförnum árum. Jákvæð niðurstaða ársreikningsins skapast að stærstu leyti af auknum skatttekjum, þjónustutekjum, framlögum úr jöfnunarsjóði og sölu byggingaréttar.
Vegna ört batnandi fjárhagsstöðu bæjarfélagsins m.a. af ofantöldum ástæðum er það löngu tímabært að slaka á klónni gagnvart fjárveitingum til stofnanna bæjarins einkum hvað varðar grunnskólana sem og að huga að lækkun þjónustugjalda sérstaklega hvað varðar barnafólk og elli- og örorkulífeyrisþega.
Fulltrúar minnihlutans vísa að öðru leyti til bókunar við endurskoðun fjárhagsáætlunar ársins 2006 á fundi bæjarstjórnar 20. september 2006.

Helstu niðurstöðutölur úr samanteknum reikningi fyrir A og B hluta eru þessar í millj. kr. :

Rekstrarreikningur 1. 1. – 31. 12. 2006
Rekstrartekjur: 3.207,6 mkr.
Rekstrargjöld: 2.793,7 mkr.
Fjármagnsliðir: 279,6 mkr.
Rekstrarniðurstaða: 129,6 mkr.

Efnahagsreikningur 31. 12. 2006
Eignir: 6.048,2 mkr.
Eigið fé: 1.969,8 mkr.
Skuldir og skuldbindingar: 4.078,4 mkr.

24.maí
Deiliskipulag Helgafellsvegar auglýst.
467.fundur bæjarstjórnar Mosfellsbæjar sem haldinn var í gær miðvikudaginn 23. maí staðfesti með sjö atkvæðum ákvörðun Skipulags- og byggingarnefndar Mosfellsbæjar um að auglýsa deiliskipulag tengibrautar.
En nefndin lagði til að deiliskipulagstillagan, með þeim breytingum á texta sem ræddar voru á fundinum, yrði  auglýst til kynningar ásamt umhverfisskýrslu, í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og 7. gr. laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.

24.maí
Verk mánaðarins á Gljúfrasteini
Haukur Ingvarsson spjallar um Guðsgjafaþulu
Á hvítasunnudag klukkan 16.00 fer fram síðasta stofuspjallið um verk mánaðarins á Gljúfrasteini í bili. Að þessu sinni mun Haukur Ingvarsson skáld og útvarpsmaður spjalla við gesti um Guðsgjafaþulu Halldórs Laxness. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir. 
Í spjalli sínu á sunnudaginn mun Haukur Ingvarsson beina sjónum að Guðsgjafaþulu sem er síðasta eiginlega skáldsaga Halldórs Laxness. Haukur mun rýna í áhugaverða kafla í skáldsögunni og leitast við að varpa ljósi á samtímaviðtökur bókarinnar sem og síðari tíma rannsóknir. Þá verður þeirri spurningu velt upp hvort hér sé á ferðinni lítt dulbúin ævisaga höfundarins eða Óskars Halldórssonar útgerðarmanns.
Allar nánari upplýsingar:
www.gljufrasteinn.is

22.maí
Atvinnu og ferðamálanefnd hélt fund!
Atvinnu- og ferðamálanefnd Mosfellsbæjar hélt sinn fyrsta fund á árinu. En fyrir 65. fundi atvinnu- og ferðamálanefndar Mosfellsbæjar lágu aðeins tvö erindi annarsvegar erindi Handverksfélags Mosfellsbæjar varðandi aðstoð í húsnæðismálum og hinsvegar erindi um fræðslugöngur um Mosfellsbæ sumarið 2007.  Síðan árið 2002 hefur atvinnu- og ferðamálanefndin fundað að meðaltali fjórum sinnum á ári og því ljóst hvaða sess þessi málaflokkur skipar eins og við höfum margsinnis fjallað um hér á síðunni á undanförnum árum.
Það verður að teljast nokkuð sérstakt að á tímum uppgan
gs og hagsældar í íslensku atvinnulífi hefur sáralítið af nýjum fyrirtækjum flutt starfsemi sína í Mosfellsbæ rétt eins og bæjarfélagið hafi farið sofandi í gegnum þetta tímabil á meðan nágrannasveitarfélögin hafa laðað til sín fjölda fyrirtækja og þar af leiðandi fjölda nýrra starfa. 

21.maíHvítasunnuganga að kirkjustöðum Mosfellsbæjar
Fréttatilkynning
Laugardaginn 26. maí kl. 10-13 verður Hvítasunnuganga að kirkjustöðum Mosfellsbæjar. Lagt verður af stað frá Lágafellskirkju kl. 10, gengið að Varmá og Hrísbrú og endað á Mosfelli. Sagt verður frá fornum og nýjum kirkjustöðum sveitarfélagsins. Frá Mosfelli verður ekið tilbaka að Lágafelli. 
Leiðsögumaður: Magnús Guðmundsson sagnfræðingur.



16.maí
Vinnuvélar skemmdar 
Skemmdir voru unnar í nótt á fjórum eða fimm vinnuvélum á vegum verktakans Magna sem vinnur að skólplagnagerð í Álafosskvos í Mosfellsbæ. Að sögn Harða Gauta Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Magna, var búið að brjóta rúður í jarðýtu og þremur gröfum og spreia X-D á vélarnar. Lögregla var kvödd á vettvang í morgun og tók skýrslu vegna málsins en ekki liggur fyrir hver var þarna að verki. Frá þessu segir á www.visir.is

16.maí
Nýr bæjarstjóri í Mosfellsbæ seinni part sumars.
Voru kjósendur sviknir fyrir bæjarstjórnarkosningarnar?
Haraldur Sverrisson, formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar, tekur við af Ragnheiði Ríkharðsdóttur sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar í lok sumars.
Ákveðið var eftir bæjarstjórnarkosningarnar í fyrra að Haraldur tæki við af Ragnheiði á miðju kjörtímabilinu árið 2008. Ragnheiður sagðist í samtali við fréttastofu Útvarps nú á dögunum hlakka til að setjast á þing og hún gerði ráð fyrir að bæjarstjóraskiptin yrðu um mánaðamótin ágúst september.
Athygli vekur að kjósendum var ekki gerð grein fyrir því fyrir bæjarstjórnarkosningarnar að Ragnheiður hygðist hætta, en skemmst er að mynnast sambærilegra umræðna þegar slíkt hefur komið upp á í öðrum sveitafélögum og spyrja menn þá eðlilega hvor um svik við kjósendur Mosfellsbæjar hafi verið að ræða og hvort þeir hafi ekki átt rétt á upplýsingum þar um.
Ragnheiður hefur verið bæjarstjóri í Mosfellsbæ frá árinu 2002. Sjálfstæðismenn eru í meirihlutasamstarfi við Vinstri græna í Mosfellsbæ eins og víðfrægt er orðið. 

16.maí
Fulltrúar B og S lista í fræðslunefnd áhyggjufullir.
Fulltrúar B og S listalögðu fram eftirfarandi bókun í fræðslunefnd í gær:
"Grunnskólar Mosfellsbæjar hafa lagt fram vel ígrundaðar starfsáætlanir fyrir starfsárið 2007-2008 sem bera vott um mikinn vilja til metnaðarfulls skólastarfs.
Athygli og áhyggjur vekur þó að skólastjóri Varmárskóla lýsir áhyggjum vegna skertra rekstrarframlaga. Yfirvofandi sé að færa þurfi fé af launaliðum yfir á rekstrarliði, m.a. vegna viðhalds tækja og áhalda, en ekkert var áætlað fyrir þann lið.
Er vandséð hvaða rök hafa legið þar að baki.
Ennfremur er það sérstakt áhyggjuefni að símenntun stjórnenda grunnskóla Mosfellsbæjar virðist ekki uppfylla þær þarfir sem þar eru fyrir hendi varðandi nýsköpun og þróunarstarf."
Skemmst er mynnast bókunar B og S lista  við seinni umræðu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2007 í bæjarstjórn en hún laut einmitt að þessu máli og hljóðaði hún svo:
“Ekki er þó tekið mark á varnaðarorðum minnihlutans hvað varðar starfsumhverfi grunnskólanna þar sem langvarandi aðhald er farið að koma niður á möguleikum grunnskólanna til sjálfstæðis og þróunar á skólastarfi. Nú er enn lengra gengið í þessum efnum en oft áður með því að kvótasetningin sem átti að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði grunnskólanna er að hluta til skorin niður.
Tölur úr árbók sveitafélaga 2006 sýna með óyggjandi hætti að framlög á nemanda eru mun lægri hér í Mosfellsbæ en í nágrannasveitarfélögunum.
Sem dæmi má nefna að væri sömu upphæð á hvern nemanda varið til grunnskóla í Mosfellsbæ og gert er í Garðabæ þá þyrfti að hækka framlag til rekstrar grunnskóla um það bil 200 milljónir króna en rétt er að fara í saumana á þessu.
Fullt svigrúm ætti því að vera til að auka enn við gæði þjónustunnar.
Það er mat minnihlutans að langvarandi aðhald sé farið að koma niður á möguleikum grunnskólanna til þróunar á skólastarfi.”

15.maí
Veituframkvæmdir eða veglagning við Álafossveg.
Framkvæmdir eru í gangi við Álafosskvos í Mosfellsbæ og segir bæjarstjóri þær framkvæmdir á engan hátt tengjast lagningu tengibrautar á svæðinu sem hefur verið harðlega mótmælt. Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri segir að verið sé að leggja vatnslagnir í jörð sem eigi að tengjast veitukerfi bæjarfélagsins. Frá þessu segi á www. mbl.is
Á heimasíðu Varmársamtakanna http://www.varmarsamtokin.blog.is/  segir hinsvegar að um valdníðslu sé um að ræða og  að ljóst sé að þessu sinni  sé verið að framkvæma undir því yfirskyni að verið væri að koma fyrir skolplögnum en þessi ofaníburður er í engu samræmi við venjulegan frágang slíkra lagna. Búið er að leggja nokkurra metra þykkt malar- og grjótlag ofan á lagnirnar og þétta ofaníburðinn með valtara. Að sögn sérfræðinga sem Varmársamtökin leituðu til er deginum ljósara að venjuleg lagnagerð krefst engan veginn slíks frágangs og að þarna er verið að gera undirlag fyrir breiðan veg sem þola á mikla umferð.
 

15.maí
Vortónleikar Reykjalundarkórsins
Vortónleikar Reykjalundarkórsins verða haldnir fimmtudaginn 17 maí n.k. uppstigningardag kl. 17.00. í Laugarneskirkju. Á efnisskrá eru m.a. Íslensk þjóðlög í útsetningu Jóns Ásgeirssonar, íslensk og erlend sönglög ásamt kórum úr Töfraflautunni eftir Mozart.
Einsöngvari er Guðbjörg Björnsdóttir, píanóleikari er Anna Rún Atladóttir, stjórnandi kórsins er Írís Erlingsdóttir
.


15.maí
Vorsýning Fimleikadeildar Aftureldingar

Fimleikadeildar Aftureldingar heldur vorsýningu deildarinnar í íþróttahúsinu að Varmá 20. maí n.k. frá kl. 11:00-13:00.  Börn á aldrinum 3—15 ára sýna afrakstur vetraræfinganna. Einnig munu Norðurlandameistarar í hópfimleikum koma og sýna listir sínar.


13.maí
Ríkisstjórnin heldur velli!
Ríkisstjórn Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna heldur naumlega velli samkvæmt niðurstöðum kosninganna  þrátt fyrir slæma útkomu Framsóknarflokksins. Formenn stjórnarflokkanna eru að ræða saman um möguleikana á áframhaldandi samstarfi.
Framsóknarflokkurinn tapaði 5 þingsætum og er með 7 þingmenn en Sjálfstæðismenn bæta við sig 3 sætum og eru með 25 þingmenn. Saman er stjórnin því með 32 þingmenn og aðeins eins sætis meirihluta á þingi í stað þriggja áður.
Ríkisstjórnin hefur setið í þrjú kjörtímabil eða tólf ár og ef hún heldur áfram annað kjörtímabil verður þetta sú ríkisstjórn sem setið hefur lengst hér á landi
Naumur meirihluti skapar nokkra óvissu um stjórnarframhaldið.

11.maí
Alþingiskosningar – Kjörstaður í Mosfellsbæ

Kjörstaður vegna alþingiskosninganna 12. maí er í Lágafellsskóla við Lækjarhlíð.
Kjörfundur stendur frá kl. 09:00 - 22:00.  Aðsetur yfirkjörstjórnar, á kjördag þann 12. maí, er á sama stað.
Fyrir þá sem eru að kjósa í fyrsta skipti er mikilvægt að hafa í huga að eingöngu má setja einn kross framan við B-ið á seðlinum, öðruvísi er hann gerður ógildur. Með öðrum orðum, ekki má teikna broskalla, skrifa vísur eða pára annan glaðning á seðilinn en X-ið góða.

11.maí
Kosningakaffi á kjördag.

Opið hús allan laugardaginn (kjördag) á kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ við Háholt 14.

Allir hjartanlega velkomnir.

                         Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar


11.maí
Kosningavaka
Eins og venja er á kosningakvöld og -nótt verður haldin kosningavaka.  Kosningavakan í Kraganum verður að Bæjarlind 2.
Að sjálfsögðu er allt framsóknarfólk og aðrir velunnarar velkomnir til að fylgjast með talningu og gera sér glaðan dag með frambjóðendum og öðru stuðningsfólki. Áfram árangur, áfram Framsókn
.



10.maí

Fyrsti leikur sumarsins Afturelding - Völsungur

Fyrsti leikur meistaraflokks verður að Varmá á sunnudag kl 14:00  gegn Völsungi.
Öllum Mosfellingum er boðið frítt á völlinn í boði Fasteignasölu
Mosfellsbæjar.
Sýnum stuðning okkar myndum alvöru heimavallar stemningu.


10.maí
Kolviður – umhverfisverkefni

Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á 466. fundi sínum að taka þátt í Umhverfisverkefninu Kolviður fundi sínum að taka þátt í Umhverfisverkefninu Kolviður. Kolviður hefur það að markmiði að hvetja Íslendinga til þess að hafa frumkvæði að því að verða fyrsta þjóð heims til að kolefnisjafna útblástur samgöngutækja sinna með skógrækt.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar ákvað að leggja sitt af mörkum í átakinu og samþykkir að allar bifreiðar og tæki í eigu Mosfellsbæjar verði kolefnisjafnaðar.



10.maí

Mosfellsbær tekur tilboði Íslenska Gámafélagsins
Grænar tunnur í skoðun
Bæjarstjórn samþykkti á 466.fundi sínum að staðfesta afgreiðslu bæjarráðs um að taka tilboði lægstbjóðanda, Íslenska Gámafélagsins ehf, í sameiginlega sorphirðu til þriggja ára fyrir Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnes.
Bæjarráð staðfesti jafnframt að fela bæjarverkfræðingi í samráði við umhverfisnefnd að koma með tillögu um útfærslu á notkun grænnar tunnu fyrir íbúa.


10.maí
Úthlutun styrkja til efnilegra ungmenna í Mosfellsbæ

Úthlutun styrkja til efnilegra ungmenna í Mosfellsbæ
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær úthlutun styrkja til efnilegra ungmenna sem leggja stund á íþróttir, tómstundir eða listir og fer formleg úthlutun fram í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna mánudaginn 14. maí kl: 17:00.
Eftirtaldir hlutu styrk til að stunda íþrótta-, tómstunda- og listgreinar sínar sumarið 2007:
Árni Már Árnason, sundmaður
Gréta Salóme Stefánsdóttir, fiðluleikari
Guðný Björk Óðinsdóttir, knattspyrnukona.
Kristján Þór Einarsson, golfari.

Laugardaginn 12. maí n.k. verður opið hús á Vinnustofum Skálatúns og Skjóli. Opið verður frá klukkan 11-17
Kynntar verða nýjungar í dagþjónustunni ásamt handverkssýningu og -sölu
Verið hjartanlega velkomin
Handverk – kaffihús



 

 

7.maí

Fulltrúar Kiwanisklúbbsins Geysis í Mosfellsbæ komu færandi hendi 
með hjólreiðahjálm handa öllum nemendum í 1.bekk Lágafellsskóla.  Þetta er árlegur viðburður í starfi þeirra Kiwanismanna, hreyfingin gefur öllum börnum í fyrsta bekk grunnskólana í bænum slíka öryggishjálma. Börnin voru að sjálfsögðu mjög ánægð og tóku vel á móti gestunum, voru mjög þakkát og glöð með nýja öryggistækið sitt. Frá þessu segir á heimasíðu Lágafellsskóla. www.lagafellsskoli.is 


6.maí

Íslandshreyfingin vill minnka velferðina um 51 milljarð !

Stjórnmálaályktun Íslandshreyfingarinnar sannar að hreyfingin aðhyllist raunverulega öfgahægristefnu. Tillögur þeirra um lækkaða skattbyrði allra, sem ég get ekki skilið annað en að halda eigi sömu skattprósentu og 142.600 kr skattleysi, kostar ríkissjóð 51 milljarð í beina tekjulækkun, mv tekjur 2006. Á móti kæmi einhver tekjuaukning í veltuskattsaukningum, mv. að virðisaukaskatturinn er 7% og 24,5% má áætla að það sé um 10-15%, sem er 5-7 milljarðar, en þar sem einnig á að taka af allar tekjutengingar bóta, er alveg ljóst að það kostar meira en sú aukning.
Þeirri tekjuminnkun þarf að mæta með útgjaldaminnkun, en til samanburðar kostar Háskóli Íslands 6,5 milljarða á ári, lífeyristryggingar 41 milljarð og sjúkratryggingar 17 milljarða. Rekstur Landspítalans kostar 31 milljarð og heildarskatttekjur ríkisins eru 343 milljarðar.
Við þetta bætist að þeir ætla að taka í handbremsuna og leggja til að finnska leiðin í nýsköpun verði farin, sem reyndar var í lög færð fyrir 2 árum á Íslandi. Það stendur greinilega ekki steinn yfir steini hjá þeim og ekki hægt að treysta þeim fyrir atkvæði sínu. .

1.maí
Aðal-kosningamiðstöð Framsóknarflokksins í SV er í Bæjarlind 
Aðal-kosningamiðstöð Framsóknar í suðvesturkjördæmi er í Bæjarlind 2 í Kópavogi.  Nánar til tekið á hæðinni fyrir ofan bílaþvottastöðina Löður.  Síminn er 544 4430, Kosningastjóri er Pétur Christiansen GSM: 893 1137
petur@framsokn.is  og honum til aðstoðar er m.a. Styrmir Þorgilsson GSM: 697 4952 styrmir@framsokn.is
Kosningaskrifstofan í Mosfellsbæ er að Háholti 14. sjá opnunartíma hér á síðunni.
 


 

1.maí
Eggert bloggar:
http://truflun.net/eggert/2007/04/27/dv-politik-helga-seljan/
Grímulaus árás Helga Seljan, fyrrverandi kosningastjóra Samfylkingarinnar, nú spyrils í Kastljósi RÚV á Jónínu Bjartmarz er hreint út sagt ótrúleg. Í gær hélt hann langa einræðu í Kastljósinu þar sem hann fjallar um veitingu ríkisborgaréttar til tengdadóttur ráðherrans. Ég vona að þjóðin fái að heyra sögu stúlkunnar frá Guatemala. Það verður hún hins vegar að gera þegar henni hentar, ekki í tengslum við æsifréttamennsku eða pólitískar árásir Helga. Allir aðrir nefndarmenn í allsherjarnefnd hafa sagt ekkert óeðlilegt vera við málið.  Meira.....

30.apríl.
Munið 1. maí kaffið. Formleg opnun kosningarskrifstofu!
Þann 1. maí kl. 15.00 ætlum við að opna formlega
munu frambjóðendur Framsóknarflokksins reiða fram góðgjörðir og spjalla við gesti og gangandi. 
Allir hjartanlega velkomnir 

Stjórn Framsóknarfélags 
Mosfellsbæjar

30.apríl
Blogg Varmársamtakana
Orð bæjarstjórans vekja furðu Varmársamtakana. 

Í Morgunblaðinu á mánudag birtist stutt viðtal við Ragnheiði Ríkharðsdóttur bæjarstjóra Mosfellsbæjar sem tekið var í kjölfar kynningar Varmársamtakanna á nýjum tillögum að legu Helgafellsbrautar sl. laugardag. Inntak viðtalsins var að samtökin hefðu ekki kynnt tillögur sínar að nýrri legu Helgafellsbrautar fyrir bæjarstjórn með formlegum hætti. Nú bregður svo við að það er varla vika liðin síðan Ragnheiður sendi samtökunum bréf þess efnis að hún teldi tillögugerðina vera einkamál bæjaryfirvalda og samstarf við íbúasamtökin um úttekt á nýjum leiðum því útilokað. Kemur þessi ádrepa bæjarstjórans um skort á formlegri kynningu því okkur í stjórn samtakanna afar spánskt fyrir sjónir.
Ennfremur lét Ragnheiður í ljós þá skoðun sína að hún teldi að tillögur samtakanna hefðu meiri umhverfisáhrif í för með sér en fyrirhuguð lega tengibrautarinnar um Álafosskvos. Nefndi hún sérstaklega þá tillögu að leggja veg inn í Helgafellshverfi við Álanes ofan Álafosskvosar. Nú bregður aftur svo við að það eru aðeins örfáir dagar síðan að Varmársamtökunum barst bréf frá bæjaryfirvöldum í Mosfellsbæ þess efnis að óráðlegt væri að taka þessa þverun Varmár ofan Álafosskvosar út af skipulagi en þá tillögu bárum við upp í athugasemdum við það deiliskipulag Helgafellslands sem liggur að Varmá. Lega vegarins byggir því ekki á frumkvæði.
Meira.....

30.apríl
Björn Ingi “Bloggar”
Hver vildi ritskoða?

Reykjavíkurbréf Morgunblaðsins skýrir frá athyglisverðum hugmyndum fólks í Samfylkingunni um hlutverk fjölmiðla:

Haft hefur verið orð á því, að grundvallarmunur hafi verið á landsfundum Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Á landsfundi Sjálfstæðisflokks hafi verið lögð áherzla á, að hinn almenni landsfundarfulltrúi gæti tjáð sig og komið sjónarmiðum sínum á framfæri, hversu erfitt, sem það kunni að hafa verið fyrir flokksforystuna á köflum. Hins vegar hafi landsfundur Samfylkingar augljóslega verið skipulagður með þeim hætti, að sem minnstur tími væri til almennra umræðna. Þessi sýn á landsfundi þessara tveggja flokka er í samræmi við þá athyglisverðu lífsreynslu mbl.is, netútgáfu Morgunblaðsins, að ritstjórn netútgáfunnar varð fyrir þrýstingi af hálfu samfylkingarmanna um að taka út frétt um þær fátæklegu opnu umræður, sem þó fóru fram á landsfundi Samfylkingar! Undan þeim þrýstingi var ekki látið enda tilefnislaus en segir óneitanlega skrýtna sögu um flokkinn, sem boðar samræðustjórnmál.

Nú hlýtur að verða spurt: Hverjir voru það sem vildu ritskoða?

 

28.april
Vaffin þrjú!  Vviljum völd 

Athygli vakti grein sem Hrafn Jökulsson, fyrrverandi krati og íhald (og kannski eitthvað fleira) í Viðskiptablaðið í dag. Þar fjallar hann um mögulega ríkisstjórn Kaffibandalagsins alveg án þess að lýsa hrifningu sinni. Miklu fremur virðist sem Hrafn hafi verið með óbragð í munni þegar hann skrifaði pistilinn því hann spyr hvort ekki sé kosið um nokkurn skapaðan hlut og hvort Kaffibandalagið sé ekki bara sami grautur í sömu skál.  Reyndar kemst hann að þeirri niðurstöðu að það sé eingöngu eitt sem Kaffibandalagið snúist um þ.e. næstu ríkisstjórn.  Hrafn bætir um betur og spyr lesendur um það hvort það séu til þeir kjósendur sem vilji - í alvöru- ríkisstjórn sem skipuð er Samfylkingu, VG og Frjálslyndum. Einnig segir Hrafn að stefna Samfylkingarinnar rúmist í þremur orðum: Við viljum völd. Og Hrafn bætir um betur og spyr lesendur hvort þeir vilji sjá Magnús Þór Hafsteinsson sem félagsmálaráðherra í ríkisstjórn Ingibjargar Sólrúnar, þar sem Steingrímur J. fengi að leika lausum hala í fjármálaráðuneytinu. Um það verði kosið 12. maí.   Meira....

28.apríl
Ný tengibraut veldur hatrömmum deilum!
Hart deilt um Tungubraut.

Í Blaðinu í dag segir frá mótmælum sem hópur bæjarbúa hefur skipulagt gegn fyrirhugaðri tengibraut sem liggja á í framhaldi af Skeiðholti og frá Skólabraut út í Leirvogstungu.
Samtökin sem sendu póst til allra foreldra frá póstlista Varmárskóla hvetja m.a. foreldra að til að kynna sér málið enda kemur fyrirhuguð tengibraut til með að auka á umferð um Skeiðholt, Bogatanga og Baugshlíð en um þessar umferðagötur þurfa flest öll skólabörn bæjarins að fara um á leið sinni til skóla. Skólastjóri Varmárskóla sendi afsökunarbréf til foreldra og harmar að mótmælendur hafi notað póstlista skólans.  Áætla má að umferðaraukningu á þessari leið sé á bilinu 1400-2000 bílar á sólahring en jafnframt er benda mótmælendur á að þessi óþarfa tengibraut fari þvert í gegnum útivistarsvæði Mosfellsbæinga.  

Mosfellsfréttir sögðu frá því nýlega að Félag Hesthúseigenda hafi nýlega mótmælt fyrirhugaðri tengibraut á fjölmennum aðalfundi félagsins.

 

 

27.apríl
Allir velkomnir í kaffispjall á Laugardegi
Framsóknarfélag Mosfellsbæjar býður til kaffifundar á morgun laugardaginn 28.apríl kl. 11,00 í sal félagsins að Háholti 14. Gestur fundarins verður Siv Friðleifsdóttir Heilbrigðisráðherra og 1. maður á B-lista í Suðvesturkjördæmi.
Allir velkomnir, heitt á könnunni.
Stjórnin



27.apríl

Formleg opnun kosningarskrifstofu!
Þann 1. maí kl. 15.00 ætlum við að opna formlega kosningarskrifstofuna okkar að Háholti 14.  Að því tilefni munu frambjóðendur Framsóknarflokksins reiða fram góðgjörðir og spjalla við gesti og gangandi. 
Allir hjartanlega velkomnir 

Stjórn Framsóknarfélags 
Mosfellsbæjar


27.apríl
“Fingraför á blogginu" !
Bloggið tekur á sig ýmsar myndir!
Nýjasta tískubólan er að halda úti bloggsíðu og er þar oft um að ræða mjög lifandi og skemmtilega umræðu en því miður er ekki alltaf vönduð umræða  í gangi.  Í því sambandi má nefna bloggstríð ýmissa aðila í Mosfellsbæ. Segja má að  mest umræða  þessa dagana sé  um síður Varmársamtakana http://www.varmarsamtokin.blog.is/blog/varmarsamtokin/  og Karls Tómassonar http://www.ktomm.blog.is/blog/ktomm/ en svo mikið hefur gengið á að það hefur orðið að umtalsefni langt út fyrir bæjarfélagið.  En þar má nefna grein Péturs Gunnarsson á bloggsíðu sinni http://www.hux.blog.is/blog/hux/entry/185022/  Fingraförin á blogginu . Saga úr Mosfellsbæ. En saga sú segir frá frekar óskemmtilegu bloggi héðan úr bæjarfélaginu þar sem ósæmileg ummæli eru send úr sömu tölvu undir mismunandi nöfnum en þegar IP talan er skoðuð kemur í ljós að hin fjölmörgu dulnefni koma úr sömu tölvunum. Saga Péturs segir að Sama IP-tala birtist við komment sem Karl Tómasson, forseti bæjarstjórnar Mosfellsbæjar og 8. maður á sæti VG í Kraganum, skrifar óskráður í eigin nafni á eigin bloggsíðu og birst hefur á svívirðinga kommentum á bloggsíðum Varmársamtakanna og annarra Mosfellinga.

27.apríl.
Kaffi Kind og www.kind.is
SUF-arar láta ekki sitt eftir liggja í baráttunni fyrir komandi þingkosningar. Á Laugavegi 33 í Reykjavík er opin kosningaskrifstofa Kaffi Kind alla daga frá 10-22. Þar er boðið upp á Internet aðgang, síma, meistaradeildina, bíórásina, hádegis- og kvöldverði og aðstöðu og búnað fyrir þá sem vilja búa til barmmerki sem gagnast okkur í kosningabaráttunni.  Fanný Guðbjörg, kosningastjóri ungra framsóknarmanna í Reykjavík er staðarhaldari á Kaffi Kind en Fanný er með síma 663-5913. 

Svo er líka um heimasíðu sem ungir framsóknarmenn halda úti www.kind.is en þar má finna skemmtiefni af ýmsu tagi, aðallega framsóknarbrandara o.þ.h.

23.apríl
Hörð gagnrýni á Vinstri græna á fundi Varmársamtakana.
Sjálfstæðismenn mættu ekki!
Varmársamtökin héldu fund sl. Laugardag þar sem kynntar voru tillögur að nýrri leið til og frá Helgafellshverfi að Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ.  Hörð gagnrýni kom fram í garð Vinstri grænna á fundinum en þar voru þeir m.a. sakaðir um aðgerðarleysi í umhverfismálum en flokkurinn er í oddastöðu í bæjarstjórn Mosfellsbæjar. 

Yfirskrift fundarins var : Heildarsýn: Mosfellsbær-Vesturlandsvegur og var markmið hans að ýta undir opna umræðu milli íbúa bæjarfélagsins. Fimm flokkar tóku þátttöku í pallborði á íbúaþingi Varmársamtakanna en það voru: Gunnar Svavarsson fyrir Samfylkinguna, Jakob Frímann Magnússon fyrir Íslandshreyfinguna, Kristbjörg Þórisdóttir fyrir Framsóknarflokkinn, Valdimar Leó Friðriksson fyrir Frjálslynda flokkinn og Ögmundur Jónasson fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð. 

Það vakti sérstaka athygli að frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins mættu ekki og varð það að umræðuefni.

23.apríl
Opinn kosningafundur Félag aldraðra í Mosfellsbæ og nágrenni boðar til kosningafundar í dag.
 

Fulltrúar framboðanna mæta. 

Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki
Kolbrún Stefánsdóttir, Frjálslyndum
Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki.
Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingunni.

Framsögur, fyrirspurnir.
Fundarstjóri Birgir D. Sveinsson.

Fundurinn er öllum opinn – aldur skiptir ekki máli!  Þátttaka í FaMos er öllum opin sem orðnir eru 60 ára

23.apríl
Aðalfundur skógræktarfélags Mosfellsbæjar
Aðalfundur skógræktarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn miðvikudaginn 25.apríl n.k.  kl.20:00.

1. Almenn aðalfundarstörf
2. Önnur mál
3. Erindi Einars Gunnarssonar skógfræðings, sem hann nefnir:Grisjun og nýting útivistarskóga.
 


18.apríl 
Sumarblað Mosfellsfrétta kemur út í dag.
Sumarblað Mosfellsfrétta 23. árg, 1. tbl. 2007 kemur út í dag. Blaðinu verður dreift frítt inn á öll heimili í bænum og á vinnustaði. Einnig er hægt að nálgast blaðið á bensínstöðvum bæjarins.  Í blaðinu eru fjölmargar greinar m.a. grein eftir  Siv Friðleifsdóttur sem skipar 1. sætið og Samúel Örn Erlingsson sem skipar 2.sæti listans. Ennfremur er gein eftir frambjóðenda okkar Mosfellinga Kristbjörgu Þórisdóttur en hún skipar 4 sæti listans.  

Vefútgáfa Mosfellsfrétta pdf





16.apríl
Ný heimasíða Kjósarhrepps www.kjos.is
Kjósarhreppur hefur opnað nýja heimasíðu er ber yfirskriftina "Kjósin perlan í Hvalfirði" síðan var tekin í notkun 13 apríl sl.



16.apríl
Hátíðarhöld á sumardaginn fyrsta.
Hátíðarhöld Mosfellinga á Sumardaginn fyrsta verða við Lágafellsskóla tengslum við vígslu nýrrar sundlaugar. Skátafélagið Mosverjar sjá um hátíðarhöldin að þessu sinni.

Dagskrá dagsins
13:00 Skrúðganga leggur af stað frá Kjarnanum
13:30 Skrúðganga kemur að Lágafellsskóla, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tekur á móti hópnum
13:40 Ávarp Bæjarstjóra.
Vígsla sundlaugar. Helgistund Lúðraþytur.
14:15 Gleði, grín og gaman og kaffisala í matsal Lágafellsskóla.
Tívolí, hoppukastali og margt fleira
14:30 Fjölskyldutónleikar í matsal Lágafellsskóla.
  Diddú ásamt Hljómskálakvintettinum.
16:00 – 16:30 Hátíðarhöldum líkur við Lágafellsskóla.

15.apríl
Opnun kosningaskrifstofu 
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins í Suðvestur kjördæmi var opnuð formlega laugardaginn 14. Apríl. Margt var um manninn, þeirra á meðal efstu menn á lista flokksins fyrir komandi kosningar. Kosningaskrifstofan í Mosfellsbæ er í húsnæði félagsins við Háholt 14.

 

 

11.apríl
Kaffifundur næsta laugardag


Kaffifundur næsta laugardag kl. 10:30 í salnum við Háholt. 
Efstu menn á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi mæta og markar þetta upphaf kosningabaráttunnar og opnun kosningaskrifstofu í Mosfellsbæ. Opnunartímar kosningaskrifstofu verða kynntir síðar. Framsóknarfólk er hvatt til að mæta vel á laugardaginn og taka með sér félaga.
Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar



10.apríl
Íþróttamaður Harðar

Nýlega var Halldór Guðjónsson útnefndur íþróttamaður Harðar fyrir árið 2006. Halldór stundar í vetur nám við Reiðkennaradeild Hólaskóla. 

 

 

6.apríl
Mosfellsfréttir óska lesendum
  sínum gleðilegra páska!



5.apríl
Og það tókst!

Í fréttum í fyrradag var sagt frá því að aðgerðir ríkisstjórnarinnar um lækkun virðisaukaskatts á matvæli, hafa nú að fullu skilað sér út í vöruverð. Og það þrátt fyrir að stjórnarandstöðuflokkarnir hafi keppst við að reyna að telja fólkinu í landinu trú um annað. Reyndar kom það ekki fram í fréttum, en þannig er það nú samt. 
Meira....
 

 

 

 


3.apríl
Blogg Varmársamtakana
Þingað um manneskjulegra bæjarumhverfi.

Það mun innan tíðar heyra sögunni til að almenningur á Íslandi fái ekki að hafa áhrif á mótun nærumhverfis síns, - sagði norski arkitektinn Audun Engh á fundi með Varmársamtökunum í Álafosskvos í gær. Í Evrópu og sér í lagi Skandínavíu þykir orðið sjálfsagður hlutur að fólk komi að skipulagsvinnu strax á byrjunarstigi. Enda gefur auga leið að mikilvæga hlekki vantar í það skipulag sem eingöngu er hannað út frá sjónarmiði byggingarverktakans sem oftast á mikilla fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Meira....


30.mars
Árshátíðir Varmár- og Lágafellsskóla voru haldnar í gærkvöldi
Árshátíð 8. til 10. bekkja Varmárskóla var haldin í Hlégarði og árshátíð sömu árganga í Lágafellsskóla var haldin í sal skólans. Hljómsveitin BUFF lék fyrir dansi fyrir Varmárskóla og er óhætt er að segja að unglingarnir í “Gaggó Mos” hafi skemmt sér konunglega og verið sér og skólanum sínum til mikils sóma. Hljómsveitin Bermúda skemmti Lágafellsskólaunglingum og má það sama segja um þau, allir skemmtu sér vel og allt fór mjög vel fram.

30.mars
Þróunarsjóður á sviði innflytjendamála
Félagsmálaráðherra hefur ákveðið að stofna þróunarsjóð á sviði innflytjendamála. Árlega verða veittar 10 milljónir króna úr sjóðnum samkvæmt reglum sem Innflytjendaráði verður falið að móta. Háskólasetur Vestfjarða hefur fallist á að annast umsýslu þróunarsjóðsins.
Jafnframt hefur verið ákveðið að efla starfsemi Fjölmenningarseturs og Alþjóðahúss.
Til Fjölmenningarseturs, sem starfrækt er á Ísafirði, verður ráðinn upplýsingafulltrúi en miðlun upplýsinga er mikilvægur þáttur í aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi. Staða upplýsingafulltrúa Fjölmenningarseturs verður auglýst innan skamms en stefnt er að því að hann hefji störf eigi síðar en um mitt ár 2007.
Ráðgjafar- og lögfræðiþjónusta Alþjóðahúss vegna innflytjenda alls staðar á landinu verður styrkt sérstaklega.
Félagsmálaráðuneytið mun enn fremur styðja aðlögunarverkefni á tveimur stöðum á landinu í tilraunaskyni árin 2007 og 2008. Um er að ræða verkefni í Bolungarvík og Fjarðabyggð sem unnin verða í nánu samstarfi við Fjölmenningarsetrið. Þau byggjast á tillögum sveitarfélaganna og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Þau byggjast á þeirri meginforsendu að fulltrúar sveitarfélaganna nálgist innflytjendur, myndi við þá tengsl og upplýsi um margvíslega starfsemi og þjónustu af hálfu hins opinbera. Með því verði skapað samfélag sem býður nýja íbúa velkomna.

29.mars
Sundlaugin Lækjarhlíð verður opnuð á morgun! 
Sundlaugin við íþróttamiðstöðina við Lækjarhlíð verður opnuð á morgun föstudag kl. 8:00. Formleg vígsla og verður síðan á sumardaginn fyrsta. 
Mosfellsfréttir sögðu frá því fyrr í vetur að ekki væri til nóg heitt vatn til að opna sundlaugina en margir Mosfellingar hafa beðið óþreyjufullir eftir nýju lauginni en innisundlaugin og íþróttasalurinn hefur verið opin fyrir skólabörn frá því í haust. Útisundlaugin er 25 x 12,5 metra sundlaug. Laugin er 1,8 metra djúp við startpalla en að stærstum hluta 1,1 metri. Tröppur í laugina að norðanverðu. Barnalaug er 20 - 60 cm að dýpt en vaðlaug 20 cm. Í barnalaug er eyja með leikstækjum.
Gert er ráð fyrir þrem vatnsrennibrautum á svæðinu, 12m, 33m og 43m löngum sem allar hafa aðgengi um glerjaðan tröpputurn. Þær enda allar í sömu lendingarlaug. Á útisvæðinu er tveir 10 manna pottar, 38-40° og 40-42° heitir og einn 15 manna nuddpottur.
Sjá nánari upplýsingar:
www.laekjarhlid.is

 

28.mars
Varmársamtökin hvetja íbúa í Mosfellsbæ til að mæta á fund VG á Draumakaffi í kvöld kl 20 til að krefjast skýringa á þeirri kúvendingu sem orðið hefur á umhverfisstefnu VG eftir að þeir tóku sæti í núverandi bæjarstjórnarmeirihluta. Til undirbúnings fyrir fundinn benda samtökin á tilvitnanir í yfirlýsingar frambjóðenda VG fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar á blogginu:  http://varmarsamtokin.blog.is

28.mars
Lágafellsskóli vann Stóru upplestrarkeppnina 2007
Lágafellsskóli vann Stóru upplestrarkeppnina 2007 í Mosfellsbæ. Systurnar Dagrún Björk og Ásrún Dóra Sigurðardætur úr 7-GG Lágafellsskóla voru í tveimur efstu sætunum í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar sem fram fór í sal Varmárskóla 26. mars. 3 sætið hlaut Lára Kristín Pedersen nemandi úr Varmárskóla.  Allir keppendur stóðu sig mjög vel og var því verk dómnefndar mjög erfitt

 

27.mars
Lokað fyrir athugasemdir vegna eineltis!
Varmársamtökin haf neyðst til að loka fyrir að fólk geti gert athugasemdir á blog síðuna sína í bili http://varmarsamtokin.blog.is . Hér eftir munu aðeins skráðir notendur geta gert athugasemdir. Þeir sem vilja hafa aðgang að athugasemdum eru vinsamlegast beðnir að senda samtökunum póst á varmarsamtokin@gmail.com
Ástæða þessa er að síðan hefur verið lögð í einelti en það hefur komið í veg fyrir málefnalega umræðu.


23.mars

Silja Aðalsteinsdóttir spjallar um Sölku Völku við gesti á Gljúfrasteini
Sunnudaginn 25. mars klukkan 16.00 mun Silja Aðalsteinsdóttir spjalla um Sölku Völku við gesti á Gljúfrasteini í tengslum við opna leshringinn Verk mánaðarins. Aðgangur er sem fyrr ókeypis og allir velkomnir.
Útgangspunktur Silju í spjallinu á sunnudaginn er kvikmyndahandrit sem Halldór Laxness skrifaði veturinn 1927-1928 þegar hann dvaldi í Hollywood. Handritið, sem hafði vinnutitlana Salka Valka, Kona í síðbuxum og Íslenska svipan, er frumgerð skáldsögunnar um Sölku Völku sem kom út í tveimur hlutum fáum árum síðar. Handritið birtist upphaflega á prenti í Tímariti Máls og menningar árið 2004 en á dögunum birtist það einnig á heimasíðu Gljúfrasteins og er aðgengilegt undir sérstökum nýjum efnisflokki á heimasíðunni sem kallast Kvikmyndadraumar.
Gestir og aðrir áhugasamir eru hvattir til að kynna sér þessa skemmtilegu hlið á tilurðarsögu Sölku Völku, en á heimasíðu Gljúfrasteins má bæði nálgast handritið í ensku frumgerðinni og á íslensku.

23.mars
Breytingar á gjaldskrá skólamáltíða

Vegna þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar að lækka virðisaukaskatt á matvælum úr 14% í 7%  1. mars sl. staðfesti bæjarstjórn Mosfellsbæjar á 462 fundi sínu þann 14 mars sl. þá ákvörðun fræðslunefndar að lækka verð á skólamáltíðum í leik- og grunnskólum Mosfellsbæjar um 5%. Lækkunin er byggð á raunlækkun máltíða að teknu tilliti til rekstrar- og launakostnaðar. Bæjarstjórn samþykkti að lækkunin miðist við 1. mars og var  fjármáladeild bæjarins falin nánari útfærsla á endurgreiðslum til þeirra sem keyptu skólamáltíðir frá og með 1. mars. 
Matur í grunnskólum Mosfellsbæjar lækkar því úr 240kr. í 228 kr. vegna lækkunar á virðisaukaskatti.


 27.mars
Jafnréttisfrumvarpið í umsagnarferli
Frumvarp nefndar um endurskoðun laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er komið í opið umsagnarferli og birt á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins og samskiptatorgi þess .
Þar gefst öllum tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri um það frumvarp til nýrra jafnréttislaga sem nefndin vann undir forystu Guðrúnar Erlendsdóttur, fyrrverandi hæstaréttardómara.
Félagsmálaráðherra skipaði nefndina sumarið 2006 í tilefni af því að 30 ár voru liðin frá því að jafnréttislög voru fyrst sett. Nefndina skipuðu auk Guðrúnar Erlendsdóttur Margrét María Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, tilnefnd af Jafnréttisstofu, Bjarni Benediktsson alþingismaður, tilnefndur af þingflokki Sjálfstæðisflokksins, Bryndís Bjarnarson nemi, tilnefnd af þingflokki Framsóknarflokksins, Daníel Helgason húsasmiður, tilnefndur af þingflokki Frjálslynda flokksins, Mörður Árnason alþingismaður, tilnefndur af þingflokki Samfylkingarinnar, og Valgerður H. Bjarnadóttir ráðgjafi, tilnefnd af þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs.
Fréttabréf félagsmálaráðuneytisins þar sem finna má yfirlýsingar ráðherrans um að kynbundinn launamunur sé ólíðandi, er að finna hér. 


22.mars

Björn Ingi “Bloggar”

Sigurður Kári flettir ofan af VG

Eins og margir höfðu spáð, er Sjálfstæðismönnum alveg hætt að finnast velgengni Vinstri grænna í skoðanakönnunum fyndin og nú taka þeir á flokknum með öðrum hætti en áður. Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður flettir ofan af VG í nýjum pistli og segir þá í raun vinstri rauða, gamalt afturhald í fallegum dularklæðum.

 


20.mars
Í Kjarna, Þverholti 2
Bæjarfulltrúar í Mosfellsbæ, þeir Karl Tómasson og Marteinn Magnússon, verða með viðtalstíma miðvikudaginn 21. mars, kl. 17:00 til 18:00.


20.mars
Gervigrasið enn ónothæft.
Enn hafa bæjaryfirvöld ekki komið hita á völlinn og geta ungir sem aldnir geta ekki spilað fótbolta þessa dagana á nýjum gervigrasvelli þar sem hann er þakinn snjó og klaka. Meistaraflokkur karla sem er um þessar mundir að taka þátt í deildarbikarnum þarf að keyra út fyrir bæinn og leita á náðir annarra félaga og sveitarfélaga til að æfa. Ástandið og aðstaðan í knattspyrnumálum Mosfellsbæjar er ekki upp á marga fiska sagði heimildarmaður Mosfellsfrétta. Að hafa gervigrasvöll án heits vatns er sama og að hafa fullbúna sundlaug án vatns. Bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ þurfa að skoða frekar við byggingu og hönnun íþróttamannvirkja þannig að heitt vatn komi nógu tímanlega að mannvirkjunum þegar þau eru komin á notkunarstig, en því miður virðist þessu vera ábótavant á þeim bænum.

16.mars

Falleg skýja mynd frá lesenda.
Mosfellsfréttum barst þessi fallega mynd nýlega myndin var tekin 7.mars sl. í Mosfellsbæ en ljósmyndarinn er Sigrún Eiríksdóttir. Við látum lesendum eftir að spá í skýin en sumir telja sig sjá engil en aðrir hest með vængi.

 

16.mars
Allir velkomnir í kaffispjall á Laugardegi
Framsóknarfélag Mosfellsbæjar býður til kaffifundar laugardaginn 17. mars kl. 10,30 í sal félagsins að Háholti 14. Gestur fundarins verður Bjarni Harðarson, 2. maður á B-lista í Suðurkjördæmi.
Allir velkomnir, heitt á könnunni.
Stjórnin



16.mars

Varmársamtökin fagna sigri í þriðja sinn á mánuði
Varmársamtökin fagna þeirri ákvörðun bæjarstjórnar Mosfellsbæjar að setja tengibraut úr Leirvogstungulandi yfir Köldukvísl og Varmá að Skeiðholti í mat á umhverfisáhrifum. Er þetta þriðji sigur Varmársamtakanna í umhverfismálum í Mosfellsbæ á innan við mánuði. Meira.......

15.mars
ALLIR VELKOMNIR Í ÁLAFOSSKVOS Á LAUGARDAGINN
Laugardaginn 17. mars kl. 14-17 standa íbúar, listamenn og vinnustaðir í Álafosskvos í Mosfellsbæ fyrir skemmtilegum uppákomum í Kvosinni gestum og gangandi til fróðleiks og yndisauka. Álfyssingar hafa sett saman fjölbreytta dagskrá en hún verður sem hér segir:
Kl. 14.00 syngur Álafosskórinn nokkur lög.
Kl. 15.00 verður Bjarki Bjarnason, sagnfræðingur með leiðsögn um svæðið sem hefur að geyma merka iðn- og menningarsögu Mosfellsbæjar. Meira.......


15.mars

Tónleikar Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar verður með tónleika í Íþróttamiðstöðinni að Varmá sunnudaginn 18.mars n.k. kl.16.00.  Aðgangseyrir kl 1000.- (frítt fyrir börn). Hljómsveitin mun m.a. spila verk eftir Richard Strauss, j.Strauss,Charlie Caplin og fl.   Stjórnendur  og kennarar: Birgir D. Sveinsson, Daði Þór Einarsson,
Daníel Friðjónsson, Jón Guðmundsson, Karen Erla Karólínudóttir, Kristjón Daðason, Sveinn Birgisson og Þorkell Jóelsson.

 

 

15.mars
Afkomubati sveitarfélaga

Heildartekjur sveitarfélaganna námu 150 mö.kr. og heildargjöld 144,5. Tekjujöfnuður þeirra var því 5,4 ma.kr. sem er 3,6% af heildartekjum og 0,5% af VLF. Þetta er betri afkoma en reiknað var með og samkvæmt nýjum tölum fyrir árið 2005 var afkoman einnig jákvæð það ár. Jafnframt er þetta besta afkomuár sveitarfélaga frá 1984 sé horft á afkomu sem hlutfall af VLF. Frá árinu 1980 hefur afkoma sveitarfélaga aðeins verið jákvæð í sjö ár. (Greining Glitnis)

15.mars
Tengibraut í umhverfismat!
T
Tunguvegur að Skeiðholti fer í umhverfismat.
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti á fundi sínum í morgun eftirfarandi:
Bæjarráð samþykkir að Tunguvegur, tengivegur frá Leirvogstungu og Tungubökkum að Skeiðholti skuli fara í formlegt umhverfismat skv, lögum nr.106/2000 um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Þetta er gert þrátt fyrir að niðurstöður Umhverfisstofnunar og Skipulagsstofnunar þar sem segir að framkvæmdin sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Þetta er gert m.a. vegna þess að ný lög um umhverfismat áætlana kalla á að gerð sé umhverfisskýrsla og vilja bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ í góðri sátt við umhverfi og íbúa ganga lengra en lagaskyldan býður. Bæjarverkfræðingi og skipulagsfulltrúa er falin umsjón með framkvæmd umhverfismatsins.

14.mars
Björn Ingi “Bloggar” http://bingi.blog.is/blog/bingi/entry/145741/
Hvað hefur breyst?
Ég tók þátt í að skrifa stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar eftir alþingiskosningarnar 2003. Þar er skýrt kveðið á um að binda skuli í stjórnarskrá að auðlindir sjávar séu sameign íslensku þjóðarinnar. Stjórnarsáttmálinn var samþykktur af báðum stjórnarflokkum og eftir honum hefur verið unnið síðan.
Ég man ekki eftir efasemdarröddum um þetta ákvæði þá. Ég man ekki til þess að einstakir þingmenn eða forsvarsmenn Sjálfstæðisflokksins hafi lýst efasemdum um þetta ákvæði eða haft við það fyrirvara.
Þvert á móti hefur Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, staðfest að innan Sjálfstæðisflokksins hafi aldrei staðið til annað en efna þetta ákvæði stjórnarsáttmálans.

14.mars
Kaffispjall á Laugardegi
Framsóknarfélag Mosfellsbæjar býður til kaffifundar laugardaginn 17. mars kl. 10,30 í sal félagsins að Háholti 14. Gestur fundarins verður Bjarni Harðarson, 2. maður á B-lista í Suðurkjördæmi.
Allir velkomnir, heitt á könnunni.
Stjórnin




14.mars
Eins og fram hefur komið hér áður skiluðu fulltrúar sjálfstæðismanna og VG sameiginlegri bókun í Evrópunefnd undir stjórn Björns Bjarnasonar.  En að auki gera fulltrúar flokkanna tveggja sérbókun, hvor fyrir sig. 
Sérálit Ragnars Arnalds og Katrínar Jakobsdóttur felur í sér grímulausa einangrunarhyggju þar sem kemur fram sú stefnumörkun að það geti þjónað hagsmunum Íslands til framtíðar að þróa samstarf við Evrópu í átt frá EES-samningum og að einfaldara tvíhliða samstarfi.

9.mars
Hesthúsaeigendur mótmæla tengibraut.
Á aðalfundi hesthúsaeigenda á Varmárbökkum 7.mars sl. var lögð fram tillaga um mótmæli gegn lagningu tengibrautar frá Þverholti um Skeiðholt og út að Leirvogstungu. Mikill meðbyr var með tillögunni og var hún samþykkt með öllum greiddum atkvæðum gegn fjórum.
Miklar umræður voru um fyrirhugaða tengibraut og lýstu fundarmenn almennt yfir áhyggjum vegna fyrirhugaðra framkvæmda.



8.mars

Nýr forstjóri Reykjalundar 
Stjórn Reykjalundar hefur, að höfðu samráði við stjórn SÍBS, ákveðið að ráða Birgi Gunnarsson sem forstjóra Reykjalundar.  Birgir hefur gegnt starfi sem framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Skagfirðinga á Sau

8.mars
Þjóðareign í stað sameignar þjóðarinnar.
Frumvarp þeirra Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, og Jóns Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, um breytingu á stjórnskipunarlögum, var lagt fram á Alþingi síðdegis. Í greinargerð með frumvarpinu kemur m.a. fram, að hugtakið „sameign þjóðarinnar“ sem notað sé fiskveiðistjórnarlögum, hafi verið gagnrýnt fyrir að vera villandi þar sem það gefi um of til kynna að um hefðbundinn einkaeignarrétt sé að ræða. Af þeim sökum sé farin sú leið í frumvarpinu að nota orðið „þjóðareign“
.
mbl.meira.....

8.mars
Deiliskipulag Helgafellsvegar verður auglýst að nýju!
Þann 21. febrúar óskaði Mosfellsbær eftir því við Skipulagsstofnun að hún skæri úr um það hvort deiliskipulag Helgafellsvegar félli undir ný lög um umhverfismat áætlana sem tóku gildi á miðju síðasta ári. 
Stofnunin hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að svo sé. Í framhaldi af því var ákveðið á fundi bæjarráðs í morgun að deiliskipulagsgögnin yrðu endurskoðuð með hliðsjón af niðurstöðu stofnunarinnar og skipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu síðan auglýst að nýju skv. skipulags- og byggingarlögum og nýju lögunum. Meira á www.mos.is

 

8.mars
Ákvörðun Skipulagsstofnunar 
Ákvörðun um að deiliskipulag tengibrautar í Helgafellslandi falli undir ákvæði laga um umhverfismat áætlana
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að deiliskipulag tengibrautar í Helgafellslandi falli undir ákvæði laga nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 10. apríl 2007. Sjá nánar á
www.skipulag.is

 

8.mars
Auðlindir þjóðarinnar

Mikið hefur verið rætt og ritað um s.k. auðlindamál að undanförnu, þó oftast hafi það nú kannski verið stormur í vatnsglasi fjölmiðlamegin með tilheyrandi of- og vantúlkun á því hver sagði hvað hvenær og hvers vegna.  Framsóknarmenn settu á stefnuskrá sína fyrir fjórum árum að setja ætti í Stjórnarskrá að auðlindir þjóðarinnar væru í þjóðareigu. Stefnan rataði svo inn í ríkisstjórnarsáttmálann þegar ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks gerðu samkomulag um störf sín næstu fjög

 

8.mars
Nýtt lagafrumvarp um jafna stöðu og rétt kvenna og karla
Á blaðamannafundi nýlega, kynnti Magnús Stefánsson, ráðherra jafnréttismála, nýtt lagafrumvarp um jafna stöðu og rétt kvenna og karla.  Frumvarpið markar tímamót í sögu jafnréttismála hérlendis.  Þar eru þyngri áherslur lagðar í jafnréttismálum en nokkru sinni fyrr. Femínistar um land allt hafa lýst mikilli ánægju með frumvarpið og Samfylkingin hefur boðið fram aðstoð sína við ná málinu í gegnum þingið strax, svo mikilvægt og gott mál er um að ræða. 
Helstu atriði frumvarpsins eru þessi: Meira.....


6.mars
Kerrum stolið frá Bæjardekk!

Kerrunum á myndunum var stolið af planinu hjá Bæjardekki og Shell Grafarvogi,en . mikil hefur verið um þjófnað á kerrum frá Bæjardekk upp á síðkastið. Skemmst er að minnast frétta hér á síðunni þegar kerru var stolið en hún fannst í Hafnarfirði full af þýfi.  Kerrurnar sem nú um ræðir eru var stolið sl. sunnudagskvöld- og mánudagskvöld.  Yfirbyggða kerran ber skráningarnúmerið  FM – 450  og er merkt Shell leigu en hin kerran er ekki á númerum.
Þeir sem geta gefið upplýsingar vinsamlegast hringja í 566-8188 Bæjardekk eða Lögregluna í Reykjavík 444-1000
.




5.mars

“Blogg” Varmársamtakana
Kynning á tengibraut – Misskilningur leiðréttur
Mótmæli við lagningu tengibrautar um Álafosskvos hófust við endurskoðun á aðalskipulagi Mosfellsbæjar árið 2002. Sú söguskýring að mótmæli hafi fyrst hafist þegar verkið var komið á framkvæmdastig á því ekki við rök að styðjast. Engin skipulagsáætlun á að hafa verið betur kynnt íbúum. Sé málið skoðað kemur í ljós að ekki er heldur fótur fyrir þeirri staðhæfingu.
Það er sérkennileg staða að íbúar í Mosfellsbæ skuli hvað eftir annað þurfa að upplýsa fulltrúa bæjarstjórnarmeirihlutans í Mosfellsbæ um lagaumhverfið sem þeir eiga að vinna eftir. Ennfremur óþolandi að þeir skuli endurtekið halla réttu máli til að afvegaleiða heilbrigða umræðu um málið meðal íbúa
. Meira.....

5.mars
Hafa ekki orðið við tilmælum um að lækka verð á skólamáltíðum 

Neytendastofa segir marga grunnskóla ekki hafa lækkað verð á skólamáltíðum, í samræmi við virðisaukaskattslækkanir sem gengu í gildi 1. mars síðastliðinn. Foreldrar grunnskólabarna hafa tilkynnt Neytendastofu um þetta og á þetta við um grunnskóla um allt land. Þá hefur fólk einnig kvartað yfir því að mötuneyti vinnustaða hafi ekki lækkað verð á sínum mat.
Anna Birna Halldórsdóttir hjá Neytendastofu segir tilkynningar streyma inn frá fólki um staði sem ekki hafi lækkað matarverð og þá veitingastaði, bensínstöðvar, skóla mötuneyti og aðra þar sem matur er seldur. Hægt er að senda inn nafnlausa ábendingu á vefsíðu Neytendastofu og með því að senda Neytendasamtökunum tölvupóst á
ns@ns.is. Frá þessu segir á mbl.is




3.mars
Bjartsýnisverðlaun Framsóknar
Samtökin ´78 fengu bjartsýnisverðlaun Framsóknar í dag fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum.  Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður samtakanna veitti verðlaununum viðtöku fyrir fullu húsi og risu menn úr sætum og klöppuðu vel og lengi fyrir þessari sómakonu sem svo sannarlega hefur lagt sitt lóð á vogarskálarnar fyrir baráttunni fyrir mannréttindum fólks.  Hrafnhildur þakkaði sérstaklega fyrir þann stuðning sem samtökin hafa notið meðal framsóknarmanna og minnti fólk á að baráttunni væri ekki lokið, þó mannréttindum væri náð, þeim þyrfti einnig að viðhalda.  Jón Sigurðsson, formaður Framsóknar afhenti verðlaunin.

 



3.mars
Yfirlitsræða formanns Framsóknar, Jóns Sigurðssonar,

í Borgarleikhúsinu 2. mars 2007

Ágætu samherjar, framsóknarmenn, kæru vinir

Ég býð ykkur hjartanlega velkomin til 29. flokksþings framsóknarmanna sem er framhald frá fundum flokksþingsins á síðastliðnu sumri. Þetta flokksþing er málefnaþing til að fjalla um og ákvarða kosningastefnu framsóknarmanna fyrir alþingiskosningarnar á vori komanda. Sérstaklega þakka ég ykkur sem komið til þings um langan veg.

Við héldum upp á níutíu ára afmæli Framsóknarflokksins í desember með veglegum hætti. Og vissulega lítum við með stolti yfir farinn veg og minnumst vel unninna verka. 

Forysta flokksins hefur farið á hátt í þrjátíu góða fundi með flokksmönnum um land allt, enda sækir forystan þróttinn til grasrótarinnar. Fundarsókn var góð og góður andi og samstaða meðal flokksmanna.
Meira...

1.mars
Kidda bloggar http://www.kidda.blog.is/blog/kidda/
"G
ott framtak"
Þetta er gott framtak að minu mati hjá Magnúsi Stefánssyni félagsmálaráðherra. Það hefur borið á því að efnalítið og ungt fólk hefur verið í stökustu vandræðum með húsnæðiskaup eftir að bankarnir lokuðu að miklu leyti á sín lán sem komu þó því miður verulega aftan að mörgum. Fólk jafnvel búið að fá lán fyrir nær öllu og svo hafa lánin hækkað í þokkabót og fólk jafnvel lent í að missa húsnæði sitt. Þetta eru jákvæðar fréttir.
sjá frétt mbl.is Lánshlutfall Íbúðalánasjóðs hækkar úr 80% í 90%



1.mars
Helgafellsvegur: Ákvörðun um deiliskipulag afturkallað.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti einróma í gær að taka aftur deiliskipulag um umdeilda tengibraut við Álafosskvos. Ákvörðunin var tekin með tilliti til ábendinga úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála.
Með bráðabirgðaúrskurði nefndarinnar voru framkvæmdir við tengibrautina stöðvaðar. Nefndin skoðar hvort að vinna þurfi umhverfisskýrslu. Þá vantaði í skipulagið að gert væri ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna mengunar.
Fyrirtækið Helgafellsbyggingar hefur í hyggju að reisa íbúðahverfi á svæðinu en lögðu í dag inn framkvæmdaleyfi fyrir 500 metra kafla tengibrautarinnar í þeim tilgangi að skapa sátt um framkvæmdina og að í nýju framkvæmdaleyfi verði með skýrari hætti gerð grein fyrir mótvægisaðgerðunum.


1.mars 
Breytt kosningakerfi, ráðherrar án þingmennsku, gjaldfrjáls leikskóli og margt fleira gott
Ríkið kemur að kostnaði við gjaldfrjálsan leiksskóla hjá sveitarfélögunum, ef drög að ályktun þar að lútandi verða samþykkt á flokksþingi Framsóknarflokksins sem hefst á morgun. Þar er einnig að finna byltingarkenndar hugmyndir um nýtt kosningakerfi hér á landi, áréttingu um þrískiptingu ríkisvaldsins með því að ráðherrar gegni ekki samhliða þingmennsku, svo aðeins fátt eitt sé nefnt.

 


28.febrúar

Fréttatilkynning
Alþjóðleg hundasýning í reiðhöll Fáks í Víðidal
Árleg vorsýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram nú um helgina 3.- 4. mars, í reiðhöll Fáks í Víðidal og hefst klukkan kl. 9.00 árdegis laugardag og kl.8.30 sunnudag.
Sýningin er sú langstærsta sem haldin hefur verið á Íslandi og eru yfir 700 hundar skráðir til leiks af 75 tegundum. Fimm erlendir dómarar frá Finnlandi, Danmörk, Írlandi og Slóveníu koma til landsins til að dæma hundana. En tilgangur hundasýninga er að dæma hundana út frá ræktunarmarkmiði hverrar tegundar.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Hundaræktarfélags Íslands,
www.hrfi.is.


23.febrúar
Heilbrigðisráðherra lætur verkin tala

Í síðustu viku sögðum við frá skóflustungu sem  heilbrigðisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, tók að nýju hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut.  Í þessari viku tók hún svo skóflustungu að langþráðri stækkun Barna- og unglingageðdeildar Landspítala-háskólasjúkrahúss (BUGL) við Dalbraut.  Undirritaðir voru samningar um framkvæmd verksins við Framkvæmd ehf. sem mun skila húsinu fullbúnu í maí á næsta ári.  Verkið verður unnið í fjórum áföngum: 

1.  Nýbygging göngudeildar
2.  Nýbygging iðjuþjálfunar og skóla
3.  Viðbygging og endurbygging innlagnardeilda
4.  Endurinnrétting sameiginlegs hluta göngu- og innlagnadeilda 

Hið nýja húsnæði mun stórbæta aðstæður sjúklinga og starfsfólks BUGL en viðbyggingin er 1244 fermetrar. 

23.febrúar

Kerru stolið frá Bæjardekk!

Að kvöldi 21.febrúar var þessari hvítu yfirbyggðu kerru stolið frá Bæjardekk í Mosfellsbæ.Kerran er með bremsubúnaði og skráningarskyld, en ekki á númerum.
Þeir sem geta gefið upplýsingar vinsamlegast hringja í 566-8188 Bæjardekk eða Lögregluna í Reykjavík 444-1000


22.febrúar
Stofuspjall um Kraftbirtingarhljóm guðdómsins með Steinunni Sigurðardóttur
Sunnudaginn 25. febrúar kl. 16.00 er komið að öðru stofuspjalli ársins í tengslum við verk mánaðarins á Gljúfrasteini sem að þessu sinni er skáldsagan Heimsljós. Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur stýrir spjallinu og mun hún einkum beina sjónum sínum að Kraftbirtingarhljómi guðdómsins, fyrsta hluta sögunnar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Sjá nánar á www.gljufrasteinn.is 




21.febrúar
Íþróttamiðstöðin Dropinn?

Á heimasíðu Mosfellsbæjar er auglýst eftir nafni á nýju sundlaugina og íþróttamannvirkin við Lækjarhlíð og spurt hvað barnið ætti að heita. 
Einn lesandi hafði samband við síðuna og benti á að besta nafnið væri örugglega "Dropinn" en eins og fram hefur komið hér á síðunni og á öðrum fréttamiðlum hefur vatnsleysi háð sundlaugaropnun. 
Fyrirhugað er að opna sundlaugina formlega á sumardaginn fyrsta sem er 19.apríl.  Búið er að koma á búnaði við sundlaugina sem á að varna því að þrýstingstap verði í hverfinu vegna heitavatnsþörf sundlaugarinnar, en dæmi eru um að íbúar í nágrenni laugarinnar hafa komið hlaupandi úr köldum sturtunum þegar verið var að prófa rennsli í sundlaugina.


20.febrúar
Brotlending í vændum?
Flug Vinstri Grænna mælist hátt þessi misserin í skoðanakönnunum. Umhverfismál á umhverfismál ofan eru það sem efst og helst er á baugi á þeim bænum með háværum mótmælum án þess að lagt sé upp með aðrar lausnir eða málin reifuð í heild sinni. Sannarlega þörf umræða en heldur einsleit og ofsafengin á köflum. Þá hafa ýmsir brestir gert vart við sig á þeim bænum að undanförnu, sem rétt er að halda til haga.  
Í Mosfellsbæ samþykkti bæjarfulltrúi VG óafturkræfar vegaframkvæmdir í Álafosskvosinni. Þessi sami bæjarfulltrúi felldi tillögu um að framkvæmdin væri send í umhverfismat. Bæjarfulltrúi þessi skipar 6. sæti á lista VG í Sv.-kjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar
Meira....

20.febrúar
Hækkun tekjuviðmiðs vegna afsláttar fasteignagjalda.
Mosfellsfréttir bentu á 6. febrúar sl. að afsláttur á fasteigna-og holræsagjöldum væri umtalsvert meiri í Reykjavík en í Mosfellsbæ og birti samanburðartöflu sem sýndi að samkvæmt því væri mun betra fyrir elli- og örorkulífeyrisþega að búa í Reykjavík. 
Á fundi bæjarráðs 15 febrúar sl. var tekin fyrir tillaga að breytingu á afsláttum vegna fasteigna- og holræsagjalda til handa tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum. Bæjarráð samþykkti að hækka afsláttinn um u.þ.b. 35% og er hann nú meira til samræmis við þann afslátt er veittur er í Reykjavík.


19.febrúar
Helgafellsvegsklúður?
Jón Baldvin telur á illu von frá bæjaryfirvöldum í Mosfellsbæ í deilum um tengibraut við Varmá á meðan Haraldur Sverrisson telur málið snúast um minniháttar lagatæknilega annmarka.
En ruv .is segir m.a. svo frá: Haraldur Sverrisson, formaður skipulags- og bygginganefndar Mosfellsbæjar, segir úrskurð um að annmarkar hafi verið á málsmeðferð bæjarins varðandi umdeilda tengibraut koma á óvart. Formaðurinn segir málið snúast um minniháttar lagatæknileg atriði.
Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála telur tvo annmarka á málsmeðferð bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ. Annars vegar snýst málið um það hvort bæjarstjórnin hefði átt að taka afstöðu til laga um umhverfismat áætlana og láta vinna umhverfisskýrslu um nýtt deiliskipulagið. Hins vegar um það hvort deiliskipulagið hafi verið nógu ítarlegt en á því er ekki gert ráð fyrir mótvægisaðgerðum vegna mengunar
Haraldur sagði að þegar Skipulagsstofnun afgreiddi deiliskipulagið hafi hún í umsögn sinni til umhverfisráðherra sagt að Mosfellsbær hefði uppfyllt skyldur nýrra laga um umhverfismat áætlana og þyrfti ekki að skila sérstakri umhverfisskýrslu.
Haraldur sagði bæjarstjórnina skoða úrskurðinn á næstu dögum og það hvort hún þurfi að gefa út nýtt framkvæmdaleyfi sem taki til þeirra atriða sem úrskurðarnefnd gerir athugasemdir við.

16.febrúar
Magnús Stefánsson leiðréttir útreikninga fæðingarorlofssjóðs

Með breytingu á reglugerð nr. 1056/2004 um greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og greiðslu fæðingarstyrks sem Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra undirritaði í febrúar 2007 var horfið frá því að greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði vegna fyrra fæðingarorlofs yrðu lagðar til grundvallar við útreikning greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði í síðara fæðingarorlofi.
Þeir foreldrar sem fengið hafa greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði á framangreindum forsendum frá 1. janúar 2005 skulu senda Fæðingarorlofssjóði beiðni um að fæðingarorlofsgreiðslur þeirra verði endurákvarðaðar á grundvelli breyttra reglna.
Í framhaldi af endurskoðun Fæðingarorlofssjóðs munu foreldrar fá leiðréttingu á umræddum greiðslum komi í ljós að viðkomandi hafi orðið fyrir skerðingu á þeim vegna fyrra fæðingarorlofs.
Beiðni um endurákvörðun greiðslna skal senda til Vinnumálastofnunar - Fæðingarorlofssjóðs, Strandgötu 1, 530 Hvammstanga, sími: 582 4840. Eyðublað merkt „Beiðni um endurupptöku máls“ er að finna á heimasíðunni www.faedingarorlof.is (/Kæruréttur/Eyðublað endurupptaka).

Foreldrar eru hvattir til að óska endurupptöku máls sem allra fyrst.

16.febrúar
Siv tekur skóflustungu að nýju hjúkrunarheimili
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri í Reykjavík tóku fyrstu skóflustunguna að nýju hjúkrunarheimili við Suðurlandsbraut í vikunni.  Á hjúkrunarheimilinu verða 110 hjúkrunarrými. Af þeim eru 40 rými ætluð fyrir heilabilaða. Einnig verður þar 10 rýma deild fyrir geðsjúka aldraða og er það fyrsta hjúkrunardeildin hér á landi sem er ætluð þessum hópi. 
Um leið og við óskum Reykvíkingum til hamingju með hjúkrunarheimilið bíða Mosfellingar  spenntir eftir því að Siv taki fyrstu skóflustunguna að fyrirhuguðu hjúkrunarheimili í Mosfellsbæ.
 

15.febrúar
Þriggja ára áætlun M
osfellsbæjar!
Þriggja ára áætlun 2008-2010 var til síðari umræðu í bæjarstjórn í gær.
Megin niðurstöðutölur þriggja ára áætlunar bæjarsjóðs og stofnana hans fyrir árin 2008-2010, samantekinn A og B hluti er svohljóðandi.
Rekstrarniðurstaða:          Eigi fé:
2008: 481 m.kr.                2008: 2.461 m.kr.
2009: 526 m.kr.                2009: 2.987 m.kr.
2010: 557 m.kr.                2010: 3.544 m.kr

Bókun B og S lista vegna afgreiðslu þriggja ára áætlunar Mosfellsbæjar fyrir árin 2008 til 2010 var sem hér segir:
Þriggja ára áætlunin sem hér liggur fyrir er stefnumörkun um rekstur og framkvæmdir í bæjarfélaginu á næstu árum og lýsir áherslum meirihlutans í þeim efnum.
 Mosfellsbær er ört stækkandi sveitafélag og er gríðarleg fjölgun íbúa fyrirhuguð samkvæmt áætluninni fram til ársins 2010 eða u.þ.b. 50%. Slík fjölgun hefur í för með sér þörf fyrir gríðarlega uppbyggingu þjónustumannvirkja á skömmum tíma og að sama skapi aukningu á þjónustu við bæjarbúa og óttumst við að hvoru tveggja verði ekki í takt við íbúaþróunina. Jafnframt er ljóst að nauðsynlegt er að gera ráð fyrir því að almenn stjórnsýsla verði efld í takt við þessa þróun svo bærinn geti mætt henni á öflugan og vandaðan hátt. Gert er ráð fyrir að gjaldskrár og álögur á bæjarbúa verði með sama hætti og á þessu ári en það ásamt framlagi byggingarsvæða skýrir að mestu jákvæða afkomu í rekstri bæjarins samkvæmt áætluninni.
Þetta er að okkar mati megin einkenni þessarar áætlunar.


15.febrúar
Bænum ber að stöðva.

Með tilvísun í frétt á visir.is frá í dag, en hann segir svo frá
Mosfellsbæ ber að stöðva framkvæmdir sem hafnar eru við lagningu Helgafellsbrautar. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála kvað í gær upp bráðabirgðaúrskurð þessa efnis og hefur nefndin nú frest til loka aprílmánaðar til að úrskurða um lögmæti framkvæmdanna.
Nokkrar deilur hafa staðið um lagningu brautarinnar. Samþykkt Mosfellsbæjar um deiliskipulagið og framkvæmdaleyfið var kærð til úrskurðarnefndar skiplags- og byggingarmála í lok janúar af nítján íbúum og eigendum fasteigna við Brekkuland og Álafossveg. Hópurinn telur að ekki hafi verið gerð grein fyrir áhrifum framkvæmdarinnar á umhverfi og náttúruauðlindir á svæðinu.


12.febrúar
OPINN KYNNINGARFUNDUR
ath. breyttan fundarstað

Tækni- og umhverfissvið Mosfellsbæjar  boðar til opins kynningarfundar í Hlégarði þriðjudaginn 13. febrúar kl. 17 n.k.  um hönnun og útfærslu Helgafellsvegar.
Á fundinum munu Pétur Jónsson landslagsarkitekt og Júlíus Júlíusson byggingarverkfræðingur gera grein fyrir hönnun og útfærslu vegarins. Allir  velkomnir. 

12.febrúar
Fjölsóttur framsóknarfundur á Klörubar
Um 360 manns mættu á fund framsóknarmanna í Syðsta kjördæmi, sem svo nefnir sig og starfar á Kanaríeyjum. Fundurinn var að venju haldinn á Klörubar og ræðumaður dagsins var að þessu sinni Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins, sérstakur gestur fundarins.
Í tilkynningu frá Syðsta kjördæmi segir að á fundinum hafi verið rætt um flest milli himins og jarðar. Inngangsræðuna hafi Guðni haldið með sínu lagi, hann ræddi þingmálin og sló á létta strengi inni á milli.
Þeim hjónum Guðna og Margréti Hauksdóttur var boðið til hátíðarkvöldverðar kvöldið eftir á Klörubar. Þar hélt Guðni einnig smá tölu og féllst á að vera aðstoðarmaður fjöllistamanns, sem skemmti á eftir.

12.febrúar
Fullt út úr dyrum hjá Varmársamtökunum
Húsfyllir var á opnum borgarafundi Varmársamtakanna í Álafosskvos á laugardag.
Á fundinum héldu Jón Baldvin Hannibalsson og Sigrún Pálsdóttir erindi um þær tillögur sem samtökin hafa komið á framfæri við bæjarstjórn Mosfellsbæjar í tengslum við skipulagsmál á Varmársvæðinu undanfarin misseri. Ennfremur var fjallað um mikilvægi þess að íbúar komi að ákvarðanatöku í skipulagsmálum á vegum sveitarfélagsins.
Eftir kaffihlé hófust pallborðsumræður þar sem fulltrúum allra flokka var boðið að taka þátt en aðeins mættu þar fulltrúar Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar en Ögmundur sem var fundargestur tók sæti Vinstri grænna. 
Eftirfarandi ályktun var samþykkt í fundarlok: 

Opinn borgarafundur Varmársamtakanna, haldinn í Þrúðvangi 10. febrúar 2007, skorar á meirihluta bæjarstjórnar Mosfellsbæjar að stöðva þegar í stað allar framkvæmdir innan hverfisverndaðra svæða meðfram Varmá uns fram hefur farið mat á umhverfisáhrifum allra fyrirhugaðra framkvæmda á svæðinu í heild sinni.

12.febrúar
Kidda bloggar 
Mun Ögmundur finna týnda græna í Mosfellsbæ

Hvað gerir Ögmundur nú brennur eflaust á flestum sem fylgst hafa með tengibrautarmálinu í Mosfellsbæ.
Það verður spennandi að sjá hvernig Ögmundur efsti maður á lista vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi ætlar að leysa það mál sem vinstri grænir eru búnir að koma sér í hér í Mosfellsbæ. Fyrir kosningar töluðu efstu menn á lista vinstri grænna gegn fyrirhugaðri tengibraut en samþykkja hana svo þegar meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokk hefur verið landað og víkja þannig frá umhverfisstefnu sinnihttp://www.kidda.blog.is/blog/kidda/

12.febrúar
Baráttu- og styrktartónleikar
Baráttu- og styrktartónleikar verða haldnir til handa Varmársamtökunum í BaseCamp Verinu þann 18. febrúar 2007.
Hljómsveitirnar sem fram koma á tónleikunum eru: 
Sigur Rós
Bogomil Font & Flís
Pétur Ben
Amiina
Benni Hemm Hemm
Húsið opnar kl. 20.00.  Miðasalan fer fram á midi.is og hefst mánudag 12. febrúar. Miðaverð er 3200.- kr. –

9.febrúar
Kynningarfundur

Opinn kynningarfundur  um hönnun og útfærslu Helgafellsvegar  verður haldinn  í Listasalnum  þriðjudaginn 13. febrúar kl. 17:00
Pétur Jónsson, landslagsarkitekt og Júlíus Júlíusson, byggingarverkfræðingur kynna.

Í tengslum við kynningarfundinn verður efnið sett á heimasíðu Mosfellsbæjar.

9.febrúar

Kristinn Hæ. Gunnarsson yfirgefur Framsókn

Kristinn H. Gunnarsson tilkynnti í gær að hann segði sig úr Framsóknarflokknum og þingflokki framsóknarmanna. Ekkert liggur fyrir um framtíðaráform Kristins. Kristni óskum við gæfu og gengis í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.

9.febrúar
Athyglisverðar staðreyndir um framboðslista Framsóknarflokksins.
Nú hefur verið gengið frá öllum framboðslistum fyrir alþingiskosningarnar sem verða 12. maí 2007.  Eins og lög gera ráð fyrir skipa 126 manns listana.
Teknar hafa verið saman ýmsar gagnlegar og ekki síður skemmtilegar upplýsingar. 
Yngsti frambjóðandinn skipar 16. sætið í R-suður, Eva María Jónsdóttir Tölgyes sem verður 18 ára í mars. 
Elsti frambjóðandinn er gamalkunnur, Steingrímur Hermansson og skipar hann 24. sætið í SV kjördæmi, en hann verður 79 ára í júní. 
Listann skipa nákvæmlega jafn margir karlar og konur. Frambjóðendur á SUF aldri eru 45 talsins eða um 36%.
Þrjár konur og þrír karlar leiða lista. Í fjórum efstu sætunum sitja 10 karlar og 14 konur. Þar er prósentuhlutfall ungra um 38% sem hækkar í 42% ef skoðuð eru sex efstu sætin.  Það er því algerlega morgunljóst hvaða flokkur er jafnréttissinnaðastur af stjórnmálaflokkunum og sýnir það í verki en talar ekki bara um það á tyllidögum.


8.febrúar
Nýja sundlaugin vatnslaus!
Ekki hefur tekist að opna nýbyggða útisundlaug og heita potta við Lágafellsskóla í Mosfellsbæ vegna þess að ekki er nóg heitt vatn. Leiðslur að lauginni munu vera of litlar og fæða ekki vatnsþörf laugarinnar í þessari kuldatíð. Auðséð er að meirihlutinn hefur flýtt sér um of við byggingu sundlaugarinnar og skv. upplýsingum sem Mosfellsfréttir hefur aflað sér er ekki ljóst hvenær sundlaugin verður opnuð. Miklar deilur voru á sínum tíma um byggingu sundlaugarinnar og vildi þáverandi minnihluti ekki byggja á þessum stað heldur halda áfram uppbyggingu á Varmársvæði.

8.febrúar
Varmársamtökin í mál við Mosfellsbæ

Varmársamtökin eru enn ósátt við framgöngu bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ vegna fyrirhugaðra vegaframkvæmda í Helgafellshverfi en í gær var haldinn kynningarfundur um framkvæmdina sem aðeins var opinn íbúum í nágrenni við hana. Hvorki aðrir íbúar Mosfellsbæjar né fjölmiðlar fengu að vera á fundinum. Kynningarfundurinn snerist reyndar aðeins um hönnun á skjólveggjum þar sem búið er að ákveða akstursleiðina sjálfa. Berglind Björgúlfsdóttir, formaður Varmársamtakanna, spyr sig hvort bæjaryfirvöld hafi eitthvað að fela. Hún segir marga vankanta á framkvæmdinni. Til dæmis sé ekki búið að hanna framhaldið á þessari tengibraut og ekki sé vitað hvernig þessir 10.000 bílar eigi að tengjast Vesturlandsvegi. Berglind segir umhverfisráðherra sniðganga náttúruverndarlög og samtökin vilji láta reyna á það fyrir dómstólum.  Frá þessu segir á Rúv.is

8.febrúarSiv leiðir Framsókn í Suðvesturkjördæmi
Siv Friðleifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson og Una María Óskarsdóttir skipa þrjú efstu sæti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi. Þetta var niðurstaða aukakjördæmisþings sem haldið var í Mosfellsbæ í gær.  Þingið hófst kl. 20:00 en þar var tillaga kjörnefndar samþykkt.. Þess er gaman að geta að Steingrímur Hermannsson skipar heiðurssætið á listanum.  
Sjá listann í heild 


7.febrúar
Morgunspjall á Laugardaginn

Munið eftir morgunspjallinu á laugardagsmorguninn kl 10.30 í salnum að Háholti 14, 
Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra mætir á fundinn og ræðir stjórnmálaviðhorfið og svarar fyrirspurnum. Allir hjartanlega velkomnir. 



6.febrúar
Afsláttur af fasteignagjöldum hærri í Reykjavík

Um árabil hefur verið veittur afsláttur af fasteignagjöldum til elli- og örorkulífeyrisþega í Mosfellsbæ sem og í flestum sveitarfélögum og nokkur munur er á milli sveitarfélaga. Þannig veitir Reykjavík afslátt af fasteignagjöldum og holræsagjöldum á meðan Mosfellsbær veitir aðeins afslátt af fasteignagjöldum.
Tekjuviðmið eru einnig ólík þannig geta einstaklingar og hjón haft umtalsvert meiri tekjur og notið afsláttar ef búið er í Reykjavík. 
Mosfellsfréttir tóku saman eftirtaldar upplýsingar og settu upp í töflu til glöggvunar fyrir lesendur.  Af þessari samantekt má sjá að það getur verið betra fyrir elli- og örorkulífeyrisþega að búa í Reykjavík.

 

Einstaklingar

 

 

Mosfellsbær

Reykjavík

 

Afsl.

Frá

Til

Frá

Til

 

100%

0

1.399.999

0

1.870.000

 

80%

1.400.000

1.526.999

1.870.000

2.150.000

 

60%

1.527.000

1.652.999

2.150.000

2.500.000

 

40%

1.653.000

1.778.999

 

 

 

20%

1.779.000

1.905.000

 

 

 

 

 

Hjón

 

 

 

 

Mosfellsbær

Reykjavík

 

Afsl.

Frá

Til

Frá

Til

 

100%

0

2.031.999

0

2.620.000

 

80%

2.032.000

2.214.999

2.620.000

2.930.000

 

60%

2.215.000

2.396.999

2.930.000

3.490.000

 

40%

2.397.000

2.579.999

 

 

 

20%

2.580.000

2.763.000

 

 

 

* Reykjavík miðar við 50% lækkun 

 


6.febrúar
Yfirlýsing frá Mosfellsbæ vegna fréttar í RÚV þann 2. febrúar
Vegna fréttar í hádegisútvarpi RÚV þann 2. febrúar 2007 þar sem haft var eftir lögmanni Umhverfisstofnunar að Mosfellsbær hafi ekki leitað eftir umsögn stofnunarinnar vegna tengibrautar inn í Helgafellshverfi, þótt honum hafi verið það skylt, vill Mosfellsbær taka fram eftirfarandi: Meira......

6.febrúar
Fréttatilkynning frá Varmársamtökunum
Á flæmingi undan lögunum
Haft var eftir bæjarstjóra Mosfellsbæjar, Ragnheiði Ríkharðsdóttur í fréttum í gærkvöldi að lögmaður bæjarins hefði komist að þeirri niðurstöðu að þar sem umhverfisráðherra hafi úrskurðað að lagning tengibrautar um Álafosskvos "bryti ekki í bága við náttúruminjaskrá" hafi Mosfellsbæ ekki borið skylda til að óska eftir umsögn Umhverfisstofnunar um umhverfisáhrif framkvæmdarinnar. Meira.....


5.febrúar

Gjaldskrá Hitaveitu Mosfellsbæjar hækkar!
Gjaldskrá Hitaveitu Mosfellsbæjar hækkar á bilinu 5% til rúmlega 12% frá fyrra ári en á sama tíma hefur gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur ekki hækkað.  
Heitt vatn til húshitunar hækkar um rúm 5% en til annarra notenda hækkar það um rúmlega 12%.
Mosfellingar geta þó ennþá státað af lægra verði en Reykvíkingar en á Seltjarnarnesi greiða heimilin 25% lægra gjald eins og sjá má hér að neðan.
Seltjarnarnes     54,72 kr./tonn m/vsk
Mosfellsbær       68,40 kr./tonn m/vsk
Reykjavík          74,36 kr./tonn m/vsk

2.febrúar
Tekist á um staðsetningu nýrrar bensínstöðvar
Á 459. fundur bæjarstjórnar Mosfellsbæjar sem haldinn var s.l. miðvikudag var tekist á um breytt deiliskipulag Krikahverfis og þar með staðsetningu nýrrar bensínstöðvar. Lagði bæjarfulltrúi B-lista Marteinn Magnússon fram eftirfarandi bókun: "Það er fagnaðarefni að vilji sé til að finna Atlantsolíu staðsetningu í Mosfellsbæ en fulltrúi B-lista getur ekki fallist á að heppilegt sé að staðsetja hana við gatnamót Krikahverfis og Teigahverfis enda sé nálægð við íbúabyggð og fyrirhugaðra skólabygginga of mikil. Fulltrúi B-lista skorar á bæjarstjórn að endurskoða ákvörðun skipulags- og byggingarnefndar og fresta samþykktri kynningu og jafnframt vísa málinu til frekari athugunar og umfjöllunar".
Tillagan var felld með fjórum atkvæðum meirihluta V-Vinstri Grænna og D-Sjálfstæðismanna gegn þremur atkvæðum B-Framsóknar og S-Samfylkingar
.

2.febrúar
Aðsend grein frá Kristínu Pálsdóttur

Tengibraut og almenn tengsl í Mosó

Í útvarpsfréttum RÚV kl. 18.00 í gær sagði Ragnheiður Ríkharðsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ um stöðvun framkvæmda við tengibraut í Álafosskvos: "Bærinn vill vinna málið í sátt við íbúa". Í Blaðinu í morgun spilar hún svo út næsta spili og þá kemur í ljós að Varmársamtökin teljast ekki til þeirra íbúa sem hún vill vinna í sátt við. Þar að auki notar Ragnheiður persónulegan harm sem málinu er algjörlega óviðkomandi til að kasta rýrð á samtökin á svo ónærgætinn hátt að undirritaðri er um og ó. Meira.....

2.febrúar
Lækkun matarverðs
Iðnaðarráðherra boðaði til blaðamannafundar í gær, fimmtudaginn 1. febrúar, til að gera grein fyrir eftirfylgni við lækkun matarverðs.  
Á fundinum kom fram að ASÍ mun efla sitt verðlagseftirlit til muna, fjölga vörutegundum og matvöruverslunum sem gerðar verða kannanir í.  Neytendasamtökin munu hafa eftirlit með verðlagi á veitingastöðum og í öðrum verslunum.  Jafnframt halda samtökin lista yfir þá framleiðendur og birgja sem hækkað hafa vöruverð sitt að undanförnu.  Þar kemur fram hvaða vörur þeir selja, auk verðhækkana og einnig hvaða skýringar eru gefnar á hækkunum.  Þá hefur Neytendastofa einnig opnað vefgátt á heimasíðu sinni þar sem neytendum er gefinn kostur á því að senda inn nafnlausar ábendingar um óeðlilegar hækkanir og verðlag. 
Neytendur eru þannig gríðarlega mikilvægir við verðlagseftirlit og er fólk hvatt til þess að fylgjast vel með verðum og breytingum á þeim á komandi vikum og mánuðum.  Neytendavakt Neytendastofu, upplýsingaöflun Neytendasamtakanna og stóraukið verðlagseftirlit ASÍ munu auk virkrar aðkomu neytenda sjálfra munu þannig tryggja að aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem leiða eiga til 14-16% lækkunar á matvælalið vísitölu neysluverðs, skili sér að fullu í lægra matvöruverði til neytenda

2.febrúar
Aukakjördæmisþing í SV kjördæmi 

Miðvikudaginn 7. febrúar n.k. verður aukakjördæmisþing SV kjördæmis haldið að Háholti 14 í Mosfellsbæ. Þingið hefst kl. 20 en þar verður tillaga kjörnefndar að framboðslista fyrir þingkosningarnar borin upp til samþykktar

31.janúar
Fréttatilkynning:
Íbúar krefjast lögbanns og flagga í hálfa stöng til að andmæla 10 000 bíla tengibraut um Álafosskvos.
Miðvikudaginn 31. janúar, kl. 13.00 munu íbúar í Mosfellsbæ koma saman við brúna hjá gömlu ullarverksmiðjunni og flagga í hálfa stöng. Íbúar og unnendur náttúrustemningar í þéttbýli eru eindregið hvattir til að fjölmenna og sýna með því andstöðu sína við yfirstandandi eyðileggingu Álafosskvosar í verki. Lesa meira.....


29.janúar
Fræðslunefnd fjallaði um Krikaskóla á fundi sínum 23 janúar sl.
Fulltrúar S og B í nefndinni lögðu fram eftirfarandi bókun vegna málsins:
Fulltrúar S og B lista vilja ítreka þá afstöðu að þeir styðja uppbyggingu heildstæðra hverfisgrunnskóla, sem gefa meiri möguleika til skólaþróunar og þar sem sinnt er allri kennslu á grunnskólastigi, þ.m.t. hefðbundinni íþróttakennslu. Samkvæmt fyrirliggjandi forsögn um Krikaskóla er ekki gert ráð fyrir rými sérstaklega ætluðu til hefðbundinnar íþróttakennslu. Tilvonandi nemendur Krikaskóla í 1. til 4. bekk munu því að öllum líkindum þurfa að sækja íþróttakennslu annað. Fulltrúar S og B lista vilja lýsa ánægju með áframhaldandi þróun á samstarfi leik- og grunnskóla sem eiga á sér stað í Krikaskóla. Ennfremur lýsa fulltrúar S og B lista ánægju með að fallið hafi verið frá þeim hugmyndum fyrri meirihluta um að Krikaskóli yrði einkarekinn hverfisskóli. Þar sem gera má ráð fyrir að stefna meirihlutans varðandi Krikaskóla verði samþykkt telja fulltrúar S og B lista eðlilegt að framkvæmd verði með þeim hætti sem fram kemur í minnisblaði VSÓ og forsögninni sem liggur fyrir á fundinum.

26.janúar
Vatnajökulsþjóðgarður-Jónína á heimsmælikvarða

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra mælti fyrir frumvarpi til laga um Vatnajökulsþjóðgarð á Alþingi í gær. Vatnajökulsþjóðgarður verður stærsti þjóðgarður í Evrópu og mun hafa mikla sérstöðu í náttúrufarslegu tilliti í heiminum. Ítarleg samantekt Náttúrufræðistofnunar Íslands á verndargildi svæðisins hefur leitt í ljós óvenjulegan fjölbreytileika og náttúrufar sem á óvíða sinn líka, ekki aðeins á Íslandi heldur einnig á heimsvísu. Hér er um að ræða lang stærsta verkefni sem íslensk stjórnvöld hafa ráðist í hvað náttúruvernd varðar og mun þjóðgarðurinn vekja heimsathygli og fjölga ferðamönnum til mikilla muna enda hafa alþjóðleg náttúruverndarsamtök lýst því yfir að um afar metnaðarfullt verkefni sé að ræða og stofnun þjóðgarðsins muni vekja heimsathygli. 

25.janúar
Atli Heimir flettir Kvæðakveri við flygilinn
Sunnudaginn 28. janúar kl. 16.00 er komið að fyrsta stofuspjalli ársins í tengslum við verk mánaðarins á Gljúfrasteini. Þá mun tónskáldið Atli Heimir Sveinsson setjast við flygilinn í stofunni og fletta Kvæðakveri Halldórs Laxness, spila tóndæmi og ræða lögin og ljóðin. Honum til fulltingis verður Bergþór Pálsson söngvari. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Nánari upplýsingar

www.gljufrasteinn.is
gljufrasteinn@gljufrasteinn.is


25.janúar
Íþróttarfólk Mosfellsbæjar 2006

Sunnudaginn 21.janúar sl. fór fram val á íþróttarmanni og íþróttarkonu Mosfellsbæjar 2006.   Í tilefni af þessu kjöri var haldin vegleg hátíð í Hlégarði þar sem viðurkenningar voru veittar til efnilegra íþróttarmanna og kvenna í Mosfellsbæ. Veittar voru viðurkenningar til íslandsmeistara, bikarmeistara og deildarmeistara, fyrir æfingar með landsliði og þátttöku í landsliði og einnig til efnilegra unglinga yngri en 16 ára í hverri íþróttagrein

Íþróttakona Mosfellsbæjar fyrir árið 2006 var kjörin Guðný Björk Óðinsdóttir knattspyrnukona úr Val og Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2006, Halldór Lárusson frjálsíþróttamaður úr Aftureldingu.  Mosfellsfréttir óska öllu því afreksfólki sem viðurkenningu og verlaun fékk innilega til hamingju með glæstan árangur. 

18.janúar
Nágrannavarsla

Góður granni er áhrifaríkasta afbrotavörnin”

Þjónustu- og rekstrarsvið Reykjavíkurborgar hefur ýtt úr vör tilraunarverkefni um nágrannavörslu.  Markmið verkefnisins er að aðstoða íbúa í að standa saman í að sporna gegn innbrotum og skemmdaverkum í sínu nánasta umhverfi.  

Ferli nágrannavörslu fellst í því að hverfislögreglumenn í samráði við starfsmenn þjónustumiðstöðva ganga í hús við nágrannavörslugötuna / hverfið með kynningagögn og fundarboð á kynningafund með öðrum íbúum götunnar / hverfisins.  Síðan er haldin kynningafundur þar sem farið er yfir tilgang og markmið nágrannavörslu. Á fundinum fá íbúar segul og límmiða  með merki nágrannavörslu. Skilti er síðan komið  fyrir í götunni og í framhaldinu er gert ráð fyrir árlegum fundi lögreglumanna og starfsmanna þjónustumiðstöðvar með íbúum götunnar / hverfisins.

Að sögn lögreglunnar í Reykjavík er um hugmyndir og framtak íbúa Reykjavíkur að ræða en ekki lögreglunnar.   Lögreglan hefur þó tekið vel í þetta verkefni og telur að með þessum aðgerðum sé komið sterkt afl geng innbrotum, afl sem megi etv. útvíkka síðar í fleiri samfélagsverkefnum

Góðir Mosfellingar, ég hvet ykkur til að skoða vef Reykjavíkurborgar  (www.rvk.is) og ef þið teljið að þetta geti komið  að gagni í ykkar götu / hverfi að hafa þá samband við bæjaryfirvöld og hvetja þau til samstarfs við lögregluna í Mosfellsbæ um verkefni sem þetta. 

Góður granni er áhrifaríkasta afbrotavörnin þegar kemur að innbrotum og skemmdaverkum í hýbýlum okkar.

17.janúar 
Ný þjónusta í hestadýralækningum

Dr. Björn Steinbjörnsson, dýralæknir, hefur opnað hestaspítala í
Mosfellsbæ, nánar tiltekið að Flugubakka 2a, Varmárbökkum, á svæði Harðar
í Mosfellsbæ.  Fastir opnunartímar á spítalanum eru á milli 17.00 og 19.00 mánudaga og fimmtudaga. Tímapantanir þess á milli í síma og með rafpósti.

Netfang: bjorn@hestalaeknir.is
Veffang: www.hestalaeknir.is
Sími: 892 4434


15.janúar
Samið um fyrstu skrefin að tvöföldun á Kjalarnesi og undir Hvalfirði

Fulltrúar Spalar og Vegagerðarinnar hafa undirritað samkomulag sem líta verður á sem fyrsta formlega skrefið að því marki að tvöfalda þjóðveginn um Kjalarnes og gera ný göng undir Hvalfjörð:
Í þessu samkomulagi frá 9. janúar 2007 er kveðið á um að Spölur og Vegagerðin séu sammála um nauðsyn framkvæmda við hringveginn á Kjalarnesi og við Hvalfjarðargöng til að auka afköst umferðarmannvirkjanna og auka jafnframt umferðaröryggi. Til grundvallar í viðræðum aðila var að tvöfalda veginn úr Kollafirði að Hvalfjarðargöngum og tvöfalda göngin. Frá þessu segir á
www.spolur.is

15.janúar
Íþróttakarl og íþróttakona Mosfellsbæjar útnefnd 21. janúar n.k.

Íþróttakarl og íþróttakona Mosfellsbæjar verða útnefnd í hófi sem Íþrótta- og tómstundanefnd bæjarins heldur í Hlégarði sunnudaginn 21. janúar.  Íþróttafólk sem hefur verið valið í landslið, slegið Íslandsmet, orðið Íslands-, deildar- eða bikarmeistarar verður sérstaklega heiðrað.  Einnig verða valin efnilegasti drengurinn og efnilegasta stúlkan 16 ára eða yngri í hverri íþróttagrein.

11. janúar
Nýárstónleikar í Mosfellskirkju
Tríó Artis heldur sína árlegu nýárstónleika í Mosfellskirkju sunnudaginn 14. janúar. Ljúf tónlist við kertaljós. Tríó Artis leikur ljúfa tónlist fyrir flautu, hörpu og víólu milli 17 og 18. Verk eftir Debussy, Bax, C.Ph.E. Bach og Devienne. Tríó Artis skipa Kristjana Helgadóttir flautuleikari, Gunnhildur Einarsdóttir hörpuleikari og Þórarinn Már Baldursson víóluleikari. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.

10. janúar
Fundur með Jóni Sigurðssyni
Fundur verður haldinn í sal Framsóknarfélags Mosfellsbæjar við Háholt 14, Laugardaginn 13. janúar kl. 10.00.
Jón Sigurðsson, Iðnaðar-og viðskiptaráðherra og formaður Framsóknarflokksins fjallar um stöðu Framsóknarflokksins og stjórnmálaviðhorfið.
Allir velkomnir, kaffi á könnunni.

Framsóknarfélag Mosfellsbæjar



5. janúar
Förgun jólatrjáa.
Nú þegar jólin eru á enda bíður Mosfellsbær nú sem endranær upp á þá þjónustu að taka jólatrén enda séu þau sett út fyrir lóðarmörk.
Sunnudaginn 7.janúar verða trén tekin norðan Vesturlandsvegar. 
Mánudaginn 8. janúar verða trén tekin sunnan Vesturlandsvegar.
Mikilvægt er að jólatréð sé komið út fyrir lóðarmörk fyrir kl.14.00 á sunnudag og fyrir kl.15.00 á mánudag.

5. janúar

Samkomulag ríkisins við eldri borgara
Landsamband eldri borgara gerði samning við fulltrúa ríkisstjórnarinnar s.l. sumar sem fól í sér töluverðar kjarabætur, ekki síst hjá þeim hópum sem minnst hafa. Ríkissjóður leggur tæplega 29 milljarða til hækkunar lífeyrisgreiðslna til ársins 2010. Var með samkomulaginu reynt að koma til móts við kröfur og þarfir ellilífeyrisþega....Meira

5. janúar
Mosfellsbær hækkar gjöld!
Verulegar hækkanir á gjaldskrám umfram verðbólgu.

Gjöld fyrir ýmiskonar þjónustu í gjaldskrá Mosfellsbæjar hækkaði frá og með áramótum.
Má þar nefna sorphirðugjald sem hækkar um rúm 11%. Gjaldskrá Hitaveitu Mosfellsbæjar hækkar allt að rúm 12% en heitt vatn til húshitunar hækkar um 5,5% og heimæðagjöld hitaveitu um rúm 12%.  Gjaldskrá Vatnsveitu Mosfellsbæjar vegna heimæða-, mæla- og graftrargjalda um u.þ.b. 12%.  Fullyrða má að þessar hækkanir eru langt umfram verðbólguspá og vandséð annað en að meirihlutinn sé að lauma hækkunum á bæjarbúa með þessum gjaldskrár hækkunum.

4. janúar
Flugeldar fara illa í hross og gæludýr

Nú þegar flestir hestamenn í Hestamannafélaginu Herði í Mosfellsbæ hafa tekið hross á hús berast sögur af hrossum sem fælst hafa vegna flugeldasprenginga. Dæmi er um að hross hafi rokið þegar sprengingar hafa drunið yfir utan hefðbundins tíma, en eins og flestum er kunnugt þá er einungis leyfilegt að sprengja flugelda á gamlárskvöld og á þrettándanum. Flestir hestaeigendur hafa það fyrir vana að hafa ljós í hesthúsinu og útvarpið í gangi, til að minnka áhrif sprengihljóða. Sumir líma svarta plastpoka fyrir glugga til að koma í veg fyrir ljósagang. Full ástæða er fyrir þá sem eiga gæludýr að huga vel að þeim meðan á þessum sprengingum stendur og reyna með öllum hætti að hlífa dýrunum við óþægindum sem sprengingunum fylgir. 
 

 


4.janúar

Þrettándabrennan í Mosfellsbæ

Hin árlega Þrettándabrenna Mosfellsbæjar verður laugardaginn 6. janúar n.k.  Blysför leggur af stað frá Nóatúns-planinu kl. 20:00 niður að Leiruvogi. 
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar leikur, fjöldasöngur undir stjórn Karlakórsins Stefnis, Álfakóngur, Álfadrottning, Grýla, Leppalúði og þeirra hyski verða á svæðinu.
Glæsileg flugeldasýning!
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar,
Leikfélag Mosfellssveitar,

Björgunarsveitin Kyndill og
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar


 

 

 

1.janúar 2007
Mosfellsfréttir óska lesendum sínum gleðilegs árs.  Þökkum öllum þeim sem sent hafa inn fréttir, fréttatilkynningar og ábendingar á liðnum árum.

 

 

 

 

 

 

Veljum íslenskt
Veljum X-B
FYRIR ALLA

 

 

 

To be is to do
Sokrates
Do bee do bee do
Frank Sinatra

 

Viltu koma skoðun  þinni á framfæri, viltu að við látum þig vita þegar nýtt efni er sett inn á síðuna eða óskar þú eftir upplýsingum?
Sendu okkur tölvupós
t:

frettir@mosfellsfrettir.is