Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró

                                               Eldri fréttir 2007  2/2

31.desember
Gleðilegt nýtt ár! 
Þökkum árið sem er að líða!
Áramótabrennu og flugeldasýningu frestað til kl.18:00 nýjársdag.

 

          

30.desember
Vatnsflaumur í Mosfellsbæ.
Gríðarlegir vatnavextir eru í Mosfellsbæ í dag vegna veðurofsans.  Úrkoman hefur brætt umtalsvert magn snjós sem orsakar mikinn vatnsflaum. Lækir hafa breyst í stórfljót og Klappahlíðin er umflotin vatni. Lögregla hefur stöðvað alla umferð um nærliggjandi götur. Starfsmenn áhaldahús bæjarins eru önnum kafnir við að gera ráðstafanir s.s. eins og að veita vatninu um nýja skurði út á Blikastaðarland.
Reykjavegurinn er á kafi í vatni, túnin við Teig eru að breytast í stöðuvötn og vatn fossar fram af hitaveitustokkum eins og ef um stíflumannvirki væri að ræða.
Eins og sjá má á myndunum hér að neðan er erfitt að lýsa vatnsmagninu en myndirnar segja meira en þúsund orð.

 

24.desember
Mosfellsfréttir óska þér og fjölskyldu þinni friðsældar á jólahátíðinni og farsældar á komandi ári.
 

 

 

 

20.desember
Fjárhagsáætlun 2008. Síðari umræða.
Á 481. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar sem haldinn var miðvikudaginn 19. desember sl. var síðari umræða fjárhagsáætlunar 2008.  Helstu niðurstöður áætlunar eru eftirfarandi í þús. kr tekjur: 4.065.323 gjöld: 3.798.642 fjármagnsgjöld: 175.097 rekstrarniðurstaða: 736.584,  eignir í árslok: 7.088.313, eigið fé í árslok: 3.420.956, fjárfestingar: 1.131.000.   Fjárhagsáætlun 2007 var borin upp og samþykkt með fjórum atkvæðum D og V-lista, fulltrúar B og S-lista sáttu hjá.

Eftirfarandi er bókun B-lista við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar.

Undanfarin ár hafa verið afar hagstæð fyrir rekstur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Hækkun fasteignamats, kauphækkanir umfram verðlag, sala byggingarréttar og íbúafjölgun hafa skilað bæjarfélaginu hærri tekjum og styrkt alla uppbyggingu og rekstur langt umfram það sem áætlanir gerðu ráð fyrir. Slíkur vöxtur og útþensla hefur líka skapað mikið vinnuálag á starfsfólk sveitarfélagsins og vil ég nota tækifærið til að þakka starfsmönnum bæjarins fyrir mjög gott starf oft við erfiðar aðstæður.
Fjárhagsáætlun sveitarfélags hverju sinni er stefnumörkun meirihluta bæjarstjórnar. Stefnumörkun um rekstur, framkvæmdir, uppbyggingu og þjónustustig á komandi árum.
Áætlunin fyrir árið 2008 er um margt ágæt og ber hún með sér aðhald og hagkvæmni á mörgum sviðum en einsýnt er að ekki er um bætta þjónustu og aukin gæði að ræða.

Framsóknarmenn hefðu viljað sjá meiri metnað í fjárhagsáætluninni og m.a. viljað sjá meiri fjármunum veitt til skólamála, uppbyggingu sem reksturs. Við minnum á framlagðar tillögur okkar undanfarin ár um fríar skólamáltíðir svo og ritföng að ákveðnu marki sem ekki er að sjá í þessari fjárhagsáætlun. Við bendum á að samkvæmt upplýsingum úr árbók sveitarfélaga má sjá að útgjöld Mosfellsbæjar á hvern nemenda í grunnskóla er nokkuð undir meðaltali hvort sem litið er á landsmeðaltal eða meðaltal höfuðborgarsvæðis.

Gríðarleg fólksfjölgun er áætluð á árinu 2008 eða um 11% og er því mikilvægt að sveitarfélagið kappkosti að fylgja eftir þjónustu við þessa nýju bæjarbúa. Það er gagnrýnivert hversu seint uppbygging skólamannvirkja er áætluð með tilliti til þessarar miklu fjölgunar.

20.desember
Jólaball 
Hið árlega jólaball Mosfellsbæjar verður haldið í Hlégarði þann 


17.desember
Einkunnir hæstar í SV-kjördæmi
Nemendur í Suðvesturkjördæmi koma best út í samræmdum prófum í íslensku og stærðfræði í fjórða og sjöunda bekk. Námsmatsstofnun kynnti í dag niðurstöður úr samræmdum könnunarprófum 2007 en um 8 þúsund börn þreyttu prófin í ár. Meðaltalið er lægst í öllum greinum í Suðurkjördæmi. Frá þessu segir á visir.is og mbl.is. 

17.desember

Orgel-jól

Þriðjudaginn 18.desember mun Douglas Brotchie organisti í Háteigskirkju í Reykjavík spila ljúfa og skemmtilega orgeltónlist fyrir jólahátíðir.  Þetta er í þriðja skipti sem Douglas heldur Orgeljól í lágafellskirkju við góðar undirtektir. Á tónleikunum kemur Sigrún Jónsdóttir mezzosópran fram sem gestasöngvari. Dr. Douglas Brotchie er fæddur í Skotlandi og orðinn Íslendingur eftir 25 ára dvöl hér á landi og er stoltur Mosfellingur. Hann hefur komið fram á einleikstónleikum á Íslandi, Skotlandi, Ungverjalandi og í Þýskalandi.

Aðgangur er ókeypis en tónleikarnir eru styrktir af menningarmálanefnd Mosfellsbæjar

 

17.desember
World Class hefur opnað nýja heilsuræktarstöð við Lágafellslaug
World Class opnaði á laugardaginn 15.desember sl. nýja 1.000 fermetra heilsuræktarstöð World Class í nýju húsnæði við Lágafellslaug í Mosfellsbæ. Opnun stöðvarinnar er liður í átaki World Class þar sem markmiðið er að færa heilsuræktarstöðvar nær íbúum höfuðborgarsvæðisins og auðvelda þannig fleirum að stunda reglulega heilsurækt.
Í nýju heilsuræktarstöðinni er fullkominn tækjasalur, leikfimisalur, barnaleikherbergi auk aðgangs að Lágafellslaug og þeirri aðstöðu sem laugin býður upp á. Dansstúdíó World Class verður með danskennslu fyrir alla aldurshópa í vetur í stöðinni. Þá mun heilsuræktin Toppform flytja alla starfsemi sína frá Varmá í nýju World Class stöðina við Lágafellslaug.

Um leið og nýja heilsuræktarstöðin var tekin í notkun var undirritaður samningur um að World Class styrki fimleikadeild Aftureldingar.


14.desember
Makalaust og marklaust blaður

Samkvæmt fréttastofu Ríkisútvarpsins verður þetta loforð svikið og helsti þröskuldur í veginum er samgönguráðherrann Kristján Möller, flokksbróðir Guðbjarts, en þeir félagarnir eru oddvitar fylkingarinnar sinn í hvoru kjördæmi. Nú verður að gera þá kröfu til stjórnmálamanna að þeir gefi kjósendum skýrt til kynna hvort loforð þeirra séu persónuleg eða gefin fyrir hönd flokksins. Af því tilefni má spyrja, voru frambjóðendur Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi umboðslausir í loforðaaustri sínum gagnvart saklausum kjósendum í kjördæminu? Hvort eru svikin Guðbjarts eða flokksins? Óumdeilanlega hljóta Guðbjartur og Samfylkingin að vera í þeirri aðstöðu nú að hafa völd og áhrif til að uppfylla þetta loforð sitt. Það ætti því að vera hægðarleikur fyrir Guðbjart að efna þessi orð sín úr grein í Morgunblaðinu 12. febrúar sl.: „Að vel athuguðu máli þá hef ég ákveðið að beita mér fyrir því að veggjaldið verði fellt niður sem fyrst ef ég fæ til þess völd og áhrif á Alþingi Íslendinga.“ Hvernig var tillögu Guðbjarts um að fella niður gjaldið tekið í fjárlaganefnd, þar sem hann er nefndarmaður og situr á eigin ábyrgð en ekki á ábyrgð Möllers? Hafi hann enga tillögu gert þar um niðurfellingu gjaldsins er þetta tal hans marklaust og makalaust blaður.

13.desember
Jólablað Mosfellsfrétta
Mosfellsfréttir 23. árg, 2. tbl. 2007 kemur út á morgun. Blaðinu verður dreift frítt inn á öll heimili í bænum og á vinnustaði. Einnig er hægt að nálgast blaðið á bensínstöðvum bæjarins.  Í blaðinu eru fjölmargar greinar og viðtöl, m.a. hugleiðing eftir Sr.Kjartan Jónsson, bernskuminningar eftir Maríu S. Gísladóttur og margt fleira.



13.desember
Síðasti upplesturinn á aðventunni
Næsta sunnudag 16. desember klukkan 16 er komið að síðustu upplestrum þessarar aðventu. Segja má að hefð sé komin á lestur rithöfunda úr nýjum bókum fyrir jólin á Gljúfrasteini. Upplestrarnir hafa mælst vel fyrir enda andrúmsloftið í stofunni einstakt og tilvalið að gleyma jólastressinu og njóta upplestra í kyrrðinni í sveitinni.
Dagskráin er eftirfarandi:
Jón Kalman Stefánsson– Himnaríki og helvíti
Vigdís Grímsdóttir - Sagan um Bíbí Ólafsdóttur
Pétur Gunnarsson - ÞÞ Í fátæktarlandinu
Ólafur Ragnarsson - Til fundar við skáldið Halldór Laxness
Guðmundur Ólafsson leikari les
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.  

10.desember
Viðtalstímar bæjarfulltrúa
í Mosfellsbæ
Bæjarfulltrúarnir Marteinn Magnússon og Karl Tómasson verða með viðtalstíma miðvikudaginn 12. desember 2007 á bæjarskrifstofunni Þverholti 2,  4.hæð kl 17:00 til 1800.

9.desember

Folaldasýning í Kjós
Hestamannafélagið Adam stóð fyrir folaldasýningu um helgina. Sýningin fór fram í Laxárnesi og var þátttaka mjög góð, en alls voru sýnd 16 folöld og yfir 40 manns komu til að fylgjast með. Dómari var Magnús Lárusson og var sýningin mjög skemmtileg og lífleg undir hans stjórn.
Hestamenn í Kjós hafa unnið að gerð reiðvega um sveitina og hyggja á að gera stórátak í þeim efnum
Úrslitin voru eftirfarandi:

1. sæti.     Lokkur frá Laxárnesi. Eigandi og ræktandi: Fínafl ehf
                 Móðir: Alsæla frá Vogum. Faðir: Keilir frá Miðsitju.
2. sæti.     Flóki frá Flekkudal.   Eigandi og ræktandi: Sigurður Guðmundsson
                 Móðir:  Björk frá Vindási. Faðir:  Dynur frá Hvammi.
3. sæti.     Kóróna frá Þúfu. Eigendur og ræktendur: Guðríður Gunnarsdóttir
                og Björn Ólafsson . Móðir. Brynja frá Feti. Faðir: Hróður frá Refsstöðum.

Dómarinn Magnús Lárusson valdi Lokk frá Laxárnesi “stjörnu mótsins”.

6.desember
Fyrir hvað standa vinstri grænir í Mosfellsbæ?
Það vekur óneitanlega athygli þegar vinstri grænir leggjast svo lágt að ríða á vaðið með hækkun leigu á félagslegt húsnæði en þetta gerðist í fjölskyldunefnd þriðjudaginn 27.nóvember sl. þegar meirihluti nefndarinnar sem er undir forustu vinstri grænna samþykkti hækkun húsaleigu gegn atkvæðum fulltrúa framsóknarmanna og samfylkingar.

Að þessu tilefni bókaði bæjarfulltrúi framsóknarmanna Marteinn Magnússon eftirfarandi í bæjarstjórn miðvikudaginn 5.desember sl.

"Það vekur athygli og undrun að fjölskyldunefnd undir forystu vinstri grænna skuli leggja til allt að 9% hækkun umfram neysluvísitölu á húsaleigu á félagslegum íbúðum.  Þessi ákvörðun meirihlutans í Mosfellsbæ eru kaldar kveðjur til þess hóps sem hefur sannanlega þörf fyrir ódýrt félagslegt húsnæði og vafasamt að benda á þenslu á húsnæðismarkaði sem rökstuðning fyrir þessari gríðarlegu hækkun. "

Segja má að almennt séu bæjarbúar farnir að velta því fyrir sér hvað vinstri grænir standi fyrir í  Mosfellsbæ!

4.desember
Jólatrjáasala að Fossá í Hvalfirði

Einstaklingum sem og starfsmannahópum gefst nú eins og undanfarin ár frábært tækifæri til að ná sér í jólatré að Fossá í Kjós. Opið er fyrir almenning helgarnar 1. og 2. desember, 8. og 9. desember, 15. og 16. desember auk 22. desember, frá kl. 11:00 til 15:00. 
Með því að velja íslenskt jólatré styrkir þú skógræktarstarfið í landinu. Fyrir hvert selt jólatré geta skógræktarfélögin gróðursett 30 - 40 ný tré.
Skógræktarfélögin í Mosfellsbæ, Kópavogi, Kjalarnesi og Kjós eiga svæðið að Fossá og hafa plantað í það í um 35 ár.
Nánari upplýsingar um séróskir s.s. eins og t.d. aðra daga veitir:
Eiríkur Páll Eiríksson sími 554-4236, Gsm 864-9246  
eirikp@fa.is
http://www.skogkop.net/   http://www.kjos.is/   http://www.skog.is

30.nóvember
Jól á Gljúfrasteini
Rithöfundar munu lesa úr nýútkomnum bókum sínum á Gljúfrasteini þrjá fyrstu sunnudaga á aðventu. Segja má að það sé komin hefð á upplestra úr nýjum bókum fyrir jólin á Gljúfrasteini.  Upplestrarnir hafa mælst vel fyrir enda andrúmsloftið í stofunni einstakt og tilvalið að hlýða á upplestra í kyrrð og friði.
Á sunnudaginn kemur lesa Einar Kárason, Gerður Kristný, Einar Már Guðmundsson og Árni Þórarinsson úr bókum sínum. Upplestrarnir hefjast klukkan 16.00 og er aðgangur ókeypis og öllum opinn.

Dagskráin á aðventunni:

2. desember
Einar Kárason - Endurfundir
Gerður Kristný - Höggstaður
Einar Már Guðmundsson - Rimlar hugans. Ástarsaga

9. desember
Kristín Marja Baldursdóttir - Óreiða á striga
Þórarinn Eldjárn - Fjöllin verða að duga
Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir  - Kalt er annars blóð 
Sigurbjörg Þrastardóttir - Blysfarir

16. desember
Jón Kalman – Himnaríki og helvíti
Vigdís Grímsdóttir - Sagan um Bíbí Ólafsdóttur
Pétur Gunnarsson - ÞÞ Í fátæktarlandinu
Ólafur Ragnarsson - Til fundar við skáldið Halldór Laxness
Guðmundur Ólafsson leikari les

 

29.nóvember
Jólasöngur Kammerkórs Mosfellsbæjar 1. des í Kjarnanum
Jólasöngur og vöfflu sala Kammerkórs Mosfellsbæjar verður laugardaginn 1. des. í Kjarnanum kl. 16:20. Söngurinn  hefst í beinu framhaldi af dagskrá sem er utan dyra við Kjarna þar sem kveikt verðu á jólatrénu kl. 16:00. Jólasöngurinn hefst með því að Kammerkór Mosfellsbæjar syngur nokkur jólalög ásamt Barnakór Varmárskóla. Síðan verður dansað í kringum jólatréð, seldar verða vöfflur, kaffi og kakó. Þá koma Grýla og börnin hennar í heimsókn og taka þau þátt í dansinum. Kammerkór Mosfellsbæjar syngur síðan nokkur lög eftir að grýla hefur kvatt og allt er komið í eðlilegt horf á ný.  
Stjórnandi Kammerkórs Mosfellsbæjar er Símon H. Ívarsson og stjórnandi Barnakórs Varmárskóla er Guðmundur Ómar Óskarsson og meðleikari er Arnhildur Valgarðsdóttir. 

28.nóvember
Ísland best í heimi.
Það sem bar hvað hæst í fréttum vikunnar var útkoma nýrrar skýrslu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í skýrslunni er þjóðum heims raðað upp á lista eftir því hversu góð lífskjör íbúar þeirra eru taldir njóta. Nú bar svo við að Ísland er komið í efsta sæti listans en í fyrra vorum við í öðru sæti á þessum sama lista. Það er ekki hægt að segja annað en að framsóknarmenn skili því af sér góðu búi þegar úr ríkisstjórn er farið. 
Til gamans má geta þess að árið 1990 var Ísland í 3. sæti á listanum, við duttum niður í 12. sætið árið 1995 eftir ríkisstjórnarsamstarf krata og íhalds, fórum aftur upp í 4.-5. sæti árið 2005 og erum nú á toppnum. Stóra spurningin er svo hvert kratar og íhald munu leiða okkur að þessu sinni
?


23.nóvember

Ungir álykta um húsnæðismál
Sambands ungra Framsóknarmanna sendi frá sér ályktun um húsnæðismál í vikunni þar sem stjórnvöld eru hvött til þess að taka til hendinni og gera ungu fólki aftur kleift að eignast þak yfir höfuðið. Ályktunin er svohljóðandi:
Stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna lýsir yfir þungum áhyggjum yfir stöðu mála á húsnæðismarkaði.
Verðmyndun á markaðnum sem og aðstæður á lánamarkaði gera það nú að verkum að ungu fólki er nánast ómögulegt að eignast sína fyrstu íbúð. Þá er leigumarkaðurinn ekki valkostur til lengri tíma enda leiguverð á íbúðarhúsnæði nú einnig í sögulegu hámarki.
Ungt fólk krefst raunverulegra aðgerða af hálfu stjórnvalda, enda ekki boðlegt að einu viðbrögð forsætisráðherra þjóðarinnar, séu að segja fólki að kaupa sér ekki húsnæði. Þörf fólks fyrir húsnæði hverfur ekki þó forsætisráðherra kunni að óska sér þess.
Stjórnvöld verða að stemma stigu við villtum dansi bankanna á markaðnum og standa vörð um Íbúðalánasjóð sem tryggir aðgang allra landsmanna að ódýru lánsfé, óháð búsetu

22.nóvember
GljúfrasteinnKvikmyndin Sjálfstætt fólk
Sunnudaginn 25. nóvember kl. 16:00 fer fram þriðja stofuspjall vetrarins um verk mánaðarins en að þessu sinni verður skáldsagan Sjálfstætt fólk í öndvegi.
Þá kemur Snorri Þórisson kvikmyndagerðamaður í heimsókn og ræðir um kvikmynd sem stendur til að vinna upp úr bókinni. Snorri á kvikmyndaréttinn að Sjálfstæðu fólki og hefur handritshöfundurinn Ruth Prawer Jhabvala þegar skrifað handrit eftir bókinni. Meistaraverkið Sjálfstætt fólk kom fyrst út á árunum 1934-35 og er líklega sú bók Halldórs sem borið hefur hróður hans víðast. Það er því verðugt verkefni sem býður Snorra og hans fylgdarliði, en Snorri hefur komið víða við í íslenskri kvikmyndagerð og hefur meðal annars komið að kvikmyndunum Blóðbönd, Ungfrúin góða og húsið og Agnes. Því má búast við fjörugum umræðum um skáldverkið, Bjart í Sumarhúsum og íslenskar kvikmyndir á sunnudaginn 25. nóvember. Að venju er aðgangur að stofuspjallinu ókeypis og allir velkomnir.

20.nóvember
Sævar Baldur Lúðvíksson Íslandsmeistari í flokki 17ára og yngri
Helgina 17 og 18 nóvember s.l. var Íslandsmeistaramótið í skylmingum haldið í nýrri glæsilegri skylmingamiðstöð í Baldurshaga sem er undir stúku Laugardalsvallarins. Mikill fjöldi skylmingarmanna tóku þátt í mótinu í að þessu sinni.
Sævar Baldur Lúðvíksson ( 17 ára) brást okkur Mosfellingum ekki frekar en fyrri daginn þegar hann sigraði í flokknum 17 ára og yngri og hlaut þar með Íslandsmeistaratitilinn 2007 í skylmingum með höggsverði. Sævar hlaut einnig silfur eða annað sætið í flokknum 20 ára og yngri eftir afar eftirminnilegan úrslitaleik við Harald Hugóson (20 ára) sem sigraði með minnsta mögulegum mun 15:14 eftir geysi spennandi, átakamikinn og hnífjafnan leik.Stóri sigur Sævars á mótinu var þó sá þegar hann hlaut bronz eða þriðja sætið í opnum flokki fullorðinna.


19.nóvember
TRÍLOGÍA 10.-24.nóvember
Laugardaginn 10.nóv. sl. opnaði sýningin Trílogía í Listasal Mosfellsbæjar, en síðastliðin þrjú ár hafa Grunnskólarnir í Mosfellsbæ verið þátttakendur í mjög spennandi grafíklistaverkefni í samvinnu með Billedskolen í Kaupmannahöfn. Nafn sýningarinnar Trílogía stendur fyrir þeim þrem árþúsundum sem verkefnin túlka í sögunni.
Yfirumsjón með Trílogíu-verkefninu hafa grafíklistakonan Inger Winther frá Kaupmannahöfn og Björn Þráinn Þórðarson sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, fyrir hönd Mosfellsbæjar. Þessi verkefnavinna var nemendum og kennurum mjög lærdómsrík og afar eftirminnileg.
Endilega farið og sjáið þessa stórglæsilegu sýningu, en hún stendur yfir til 24. nóvember 2007 Kennarar sem unu að þessu verkefni heita:
Inger Winther, Billedskolen Kaupmannahöfn,Arna Björk Birgisdóttir, Lágafellskóla, Elísabet Stefánsdóttir, Varmárskóla, Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Lágafellskóla. Meira...www.varmarskoli.is


19.nóvember
Aðalfund Varmársamtakanna
Aðalfund Varmársamtakanna verður haldinn í Varmárskóla kl. 20.15 í kvöld, mánudag. Fundarefni venjuleg aðalfundarstörf. Mikilvægt að Varmárvinir mæti.

18.nóvember
Haustfagnaður Framsóknarmanna í Mosfellsbæ 
Hin árlegi haustfagnaður fór fram laugardaginn 17.nóv. sl. Birkir Jón Jónsson alþingismaður var heiðursgestur kvöldsins fór hann með gamanmál og tók lagið eins og honum einum er lagið. Veislustjórn var í höndum formanns félagsins  Inga Már Aðalsteinssonar. 

Marteinn Magnússon bæjarfulltrúi heiðrar Þröst Karlsson fyrir öflugt framlag hans í starfi flokksins um langt skeið. Kvöldið fór vel fram og við gamansögur og söng.

14.nóvember
Viðtalstímar bæjarfulltrúa 
Bæjarfulltrúar Mosfellsbæjar verða með eftirtalda viðtalstíma fram til áramóta.
Miðvikudaginn 14. nóvember kl 1700 Herdís Sigurjónsdóttir og Jónas Sigurðsson
Miðvikudaginn 28. nóvember kl.1700 Karl Tómasson og Hanna Bjartmar
Miðvikudaginn 12. desember kl.1700 Hafsteinn Pálsson og Marteinn Magnússon

12.nóvember
Haustfagnaður framsóknarmanna í Mosfellsbæ 
Árlegur haustfagnaður framsóknarmanna í Mosfellsbæ verður haldinn laugardaginn 17.nóvember að Háholti 14.
Heiðursgestur verður Birkir Jón Jónsson alþingismaður, Veislustjóri Ingi Már Aðalsteinsson.  Húsið opnar kl 19.00.
Vinsamlegast tilkynnið Þátttöku í síma 8966462 eða með því að senda e-mail á markholt@hive.is fyrir 15. nóvember n.k.



12.nóvember
Nína Björk kylfingur ársins hjá GKJ.


11.nóvember
Oddviti Kjósarhrepps vændur um ólögmæta ráðstöfun óskilafjár!
Fyrir hefur verið tekið bréf Guðnýjar Guðrúnar Ívarsdóttur í Flekkudal til hreppsnefndar Kjósarhrepps varðandi meinta ólögmæta ráðstöfun óskilafjár, oddvita hreppsins.
Í bréfinu kemur m.a. fram, að svo virðist sem oddviti hafi sent til slátrunar sauðfé sem hún telur sig vera eigandi af að líkindum. Tilteknir eru einstaklingar sem töldu sig hafa handsamað umrætt fé sl. vor , sem væri útigengin veturgömul ær með tilteknu merki, og tveimur lömbum nýbornum. Telja þeir einstaklingar að um sama fé sé um ræða.
Þá er vitnað í 13. gr. fjallskilasamþykktar fyrir Landnám Ingólfs nr. 401/199, þar sem segir; að ómerkingum og óskilafé, sem ekki finnst eigandi að, skuli þegar lógað í sláturhúsi og sér réttarstjóri eða hreppsstjóri um að svo sé gert.
Síðan eru rakin hegningarákvæði 16.greinar fjallskilasamþykktarinnar, en að ekki er vilji undirritaðar að kæra mál þetta a.m.k. að svo stöddu.
Þá kemur fram að oddviti sé hvorki hreppsstjóri né réttarstjóri en svo virtist að hann hafi tekið ákvörðun um að lóga fénu, þrátt fyrir ábendingu um eiganda þess.
Bréfritari telur að auðvelt hefði verið fyrir sig að sanna eignarhald sitt á fénu m.a. með DNA rannsókn.
Að lokum er þess óskað að kannað verði hvort rétt sé að búfé í eigu hennar hafi verið fært til slátrunar og  fjármunum fyrir þær ráðstafað í sveitarsjóð.  Sjá meira á www.kjos.is...
 

4.nóvember
Ganga Hundaræktarfélags Íslands
Laugardaginn 3. nóvember sl. stóð Hundaræktarfélag Íslands fyrir árlegri göngu með hunda niður Laugaveginn í Reykjavík.  Gengið var frá Hlemmi og niður Laugaveg og endað í Hljómskálagarðinum þar sem eigendur hundanna reyndu þá í hundafimi og fl..
Lögregluhundar, björgunarsveitar- og tollleitarhundar leiddu gönguna..




26.október
Gljúfrasteinn
Spjallað um leið Brekkukotsannáls í sjónvarpið
Sunnudaginn 28. október kl. 16:00 fer fram annað stofuspjall vetrarins um verk mánaðarins en að þessu sinni verður rætt um kvikmyndun sjónvarpsmyndarinnar Brekkukotsannáll. Þá munu Sveinn Einarsson leikstjóri, Björn G. Björnsson og Jón Þórisson leikmyndahönnuðir rifja upp ævintýrið um gerð kvikmyndarinnar. Að venju er aðgangur að stofuspjallinu ókeypis og allir velkomnir.
Árið 1972 var ráðist í það stórvirki að kvikmynda skáldsöguna Brekkukotsannál sem kom út 1957, eða tveimur árum eftir að Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin. Það var sjónvarpsstöðin NDR í Hamborg sem hafði frumkvæði að því að kvikmynda söguna í samvinnu við allar sjónvarpsstöðvar Norðurlandanna eftir handriti Rolfs Hädrichs. Var þetta stærsta kvikmynd sem ráðist hafði verið í hér á landi og fengu ýmsir af okkar fremstu listamönnum dýrmæta skólun. Myndin var sýnd í tveimur hlutum í ríkissjónvarpinu á sínum tíma og var síðar sýnd í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Vestur-Þýskalandi og víðar en hefur ekki verið gefin út fyrir almenning.

24.október
Bæjarráð heimsækir stofnanir
Árlegar heimsóknir bæjarráðs til stofnana í tengslum við fjárhagsáætlanagerð standa yfir þessa dagana.  Í heimsóknunum ræða bæjarráðsmenn við yfirmenn stofnana og deilda um rekstur ársins og framtíðina.  Á myndinni má sjá bæjarráð funda á Reykjakoti.


22.október

Útsvar spurningakeppni sveitarfélaganna!
Mosfellsbær mætir Vestmannaeyjum í beinni útsendingu í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna föstudagskvöldið 26. október.  Þeir sem mæta fyrir okkar hönd eru Diddú söngkona, Bjarki Bjarnason sagnfr. og Höskuldur Þráinsson prófessor og óskum við þeim góðs gengis.


21.október

Ragnheiður hættir sem bæjarfulltrúi.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir fyrrverandi bæjarstjóri mun kynna bæjarstjórn n.k. miðvikudag að hún hyggist segja sig úr bæjarstjórn Mosfellsbæjar en hún var fyrst kjörin bæjarfulltrúi í sveitarstjórnarkosningum 2002 og á ný 2006 en sóttist síðan eftir þingmennsku vorið 2007. Ragnheiður lét af starfi bæjarstjóra í lok ágúst sl.. Varamaður Ragnheiðar er Hafsteinn Pálsson og tekur hann því sæti hennar sem bæjarfulltrúi.

20.október
Meira af íhaldinu / Magnús Stefánsson

Það er að mörgu leyti athyglisvert að fylgjast með sjálfstæðismönnum og forystufólki þeirra þessa dagana.  Margir hafa haft á orði undanfarin ár að sjálfstæðismenn séu eins og teflon húðaðir, það klínist ekkert á þá og þeir hafi yfirleitt lag á því að láta allt líta út eins og slétt og fellt.   Þetta hefur aðallega verið vegna þess að þeir hafa borið gæfu til að halda öllum vandamálum í  flokknum innan veggja Valhallar og lítil sem engin opinber umræða hefur verið um annað en að allt sé svo æðislegt og í svo góðu lagi í Sjálfstæðisflokknum.  Svo hafa þeir notað smjörklípuaðferðina og sífellt bent á að aðrir flokkar séu svo hallærislegir og þeir logi stafna milli í glundroða, allt til að beina athyglinni frá þeim sjálfum. Meira.....


12.október

Kjördæmisþing Suðvesturkjördæmis
Kjördæmisþing var haldið  í Suðvesturkjördæmi í Kirkjulundi í Garðabæ 10. október sl. Ríflega 100 manns sóttu þingið. Fyrir utan venjuleg aðalfundarstörf  ávörpuðu gestir þingið, en þeir voru: Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, formaður LFK, Hlini Jóngeirsson, ritari SUF, Sæunn Stefánsdóttir, ritari Framsóknarflokksins og Sigfús Ingi Sigfússon, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins. Þá fjallaði Siv Friðleifsdóttir um stjórnmálaviðhorf. 

Í hópavinnu ræddu menn um hverjar væru þær helstu áherslur sem Framsóknarflokkurinn ætti að leggja áherslu á á komandi vetri. Hópstjórar voru Marteinn Magnússon, Óðinn Pétur Vigfússon, Hlini Jóngeirsson og Eggert Sólberg Jónsson og verður niðurstöðum hópanna vísað í þá málefnahópa sem starfa nú á vegum flokksins. 

Góðar umræður urðu á þinginu. 

Í varastjórn KFSV tók sæti Sigrún Þorgeirsdóttir í stað Þórarins Einarssonar, að öðru leyti var stjórnin endurkjörin undir formennsku Hildar Helgu Gísladóttur.

Á þinginu voru kosningastjóra og formanni kosninganefndar þökkuð vel unnin störf í kosningabaráttunni í Suð-vesturkjördæmi í vor og þeim færð blóm.  Á myndinni, sem fengin var að láni hjá www.siv.is má sjá Pétur Christiansen, Hansínu Björgvinsdóttur og Hildi Helgu Gísladóttur


9.október
Uppsagnir á Reykjalundi
Nokkuð hefur verið um uppsagnir á Reykjalundi og hefur m.a. vaktmönnum og starfsfólki í þvottahúsi verði sagt upp störfum. Uppsagnirnar eru tilkomnar vegna viðvarandi rekstrarvanda stofnunarinnar og hefur yfirstjórn fyrirtækisins gripið til þess ráðs að segja upp starfsfólki til hagræðingar auk annarra aðgerðir sem yfirstjórnin hefur grípið til til þess að taka á rekstrarvandanum. Margir af þeim sem sagt var upp hafa unnir fyrir Reykjalund í mörg ár og ríkir talsverð óánægja með þessar ráðstafanir meðal starfsfólks Reykjalundar. 

4.október
Uppskeruhátíð Aftureldingar 2007
Uppskeruhátíðar Aftureldingar verður laugardaginn 6. október.  Kl. 10-12 er íþróttahátíð fyrir iðkendur 10 ára og yngri en kl. 14 hefst verðlaunaveiting þar sem m.a. eru valinn íþróttakarl og íþróttakona Aftureldingar 2007. sjá nánar á www.afturelding.is

 

28.september
Hvað veist þú um þrískiptingu ríkisvaldsins?
Af hverju er talað um þrískiptingu ríkisvaldsins? Er ríkisvaldið þrískipt á Íslandi í dag? Er eðlilegt að ráðherrar sitji á þingi? Er eðlilegt að framkvæmdavaldið skipi dómara? 
SUF stendur fyrir opnum fræðslufundi um þrískiptingu ríkisvaldsins fimmtudaginn 4. október kl. 20:00 á Hverfisgötu 33. Siv Friðleifsdóttir formaður þingflokks Framsóknarflokksins og Guðmundur Ómar Hafsteinsson lögmaður og stjórnarmaður í SUF leiða okkur í allan sannleikann um þrískiptinguna og svara spurningum á eftir.
Hlökkum til að sjá sem flesta!

Fræðslu- og kynningarnefnd SUF

27.september
Guðný Halldórsdóttir, Úngfrúin góða og húsið
Fyrsta stofuspjall vetrarins um verk mánaðarins fer fram á Gljúfrasteini sunnudaginn 30. september klukkan 16.00.
Að þessu sinni verður Úngfrúin góða og Húsið í brennidepli. Guðný Halldórsdóttir mun fjalla um samnefnda kvikmynd sína sem byggir á smásögu föður hennar. Sjónum verður beint að gerð handrits, undirbúningi og tökum myndarinnar. Myndin er nú fáanleg á DVD-diski í búðum og á VHS á flestum betri vídeóleigum.

Smásagan Úngfrúin góða og Húsið birtist fyrst í Fótatak manna árið 1933. Hún fjallar um fólkið í Húsinu sem er annt um mannorð sitt og grípur til örþrifaráða svo blettur falli ekki á heiður fjölskyldunnar.
Mynd Guðnýjar kom út árið 1999 og sópaði að sér Edduverðlaunum sem haldin voru í fyrsta sinn það árið. Meðal annars var Guðný Halldórsdóttir valin leikstjóri ársins, myndin valin besta kvikmyndin og Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona ársins fyrir leik sinn í myndinni.
Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá haustsins má sjá í heild sinni á heimasíðu Gljúfrasteins.
Opið er á safninu frá kl. 10 – 17 alla daga nema mánudaga yfir vetrarmánuðina.

25.september
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn í sal félagsins að Háholti 14, laugardaginn 6. október n.k. kl. 10,00.
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar.
Reikningar félagsins.
Kosningar 
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing Suðvesturkjördæmis. 
Önnur mál.
Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar


18.september

Dagblaðið fjallar um framkomu Karls Tómassonar!
DV fjallaði um bókun minnihlutans vegna framkomu forseta bæjarstjórnar á 473 fundi bæjarstjórnar. Fram kemur á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is að  minnihlutinn lagði fram eftirfarandi bókun í framhaldi af ósk fulltrúa B-lista Marteins Magnússonar um utandagskrárumræðu um fundarstjórnun bæjarstjórnar: Lögð var fram eftirfarandi bókun frá Marteini Magnússyni, Jónasi Sigurðssyni og Hönnu Bjartmars: "Við undirritaðir bæjarfulltrúar hörmum það að forseti bæjarstjórnar Karl Tómasson hafi ekki þegið boð okkar um að leggja fram afsökunarbeiðni vegna framkomu sinnar úr forsetastóli á 473. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 29. ágúst síðastliðinn. Með ummælum sínum úr forsetastóli brást hann hlutverki sínu. Ósk um formlega afsökunarbeiðni var sett fram svo trúnaður og virðing geti áfram ríkt á milli forseta bæjarstjórnar og allra bæjarfulltrúa."  Meira um frétt DV.....

18.september
Tekjuafgangur sveitarfélaga áfram góður

Árið 2006 var besta afkomuár sveitarfélaga frá 1984 og bráðabirgðatölur fyrir fyrri helming þessa árs benda til að afkoma sveitarfélaga á ár verði svipuð og í fyrra. Tekjuafgangur sveitarfélaga hefur batnað til muna frá árinu 2004 en þá var afkoma sveitarfélaga neikvæð um 5,8 ma.kr. Á fyrri helmingi þessa árs nam tekjuafgangur sveitarfélaga 5,8 mö.kr. samanborið við 11 ma.kr. afgang allt árið í fyrra. Sveitarfélögin virðast því hafa nokkuð góð tök á fjármálum sínum á heildina litið þó að eflaust megi finna minni sveitarfélög sem eigi erfiðara uppdráttar. Tekjugrunnur sveitarfélaga er ekki eins hagsveifluháður og tekjugrunnur ríkissjóðs sem bendir til að tekjuafgang þeirra megi skýra með hagkvæmum rekstri frekar en að rekja megi góða afkomu til hagsveiflunnar. Greining Glitnis segir frá þessu.

14. september
Gljúfrasteinn – hús skáldsins
Fréttatilkynning:
Í haust verða kvikmyndir byggðar á verkum Halldórs Laxness í öndvegi sem
Verk mánaðarins á Gljúfrasteini. Valin verk verða tekin til skoðunar. Skyggnst
verður á bak við tjöldin og fjallað um glímuna við að færa skáldverk á kvikmyndatjaldið.
Rætt verður um þann ótæmandi brunn sem skáldverk Halldórs Laxness eru til frekari
sköpunar og velt upp möguleikum til framtíðar. Eins og kunnugt er hafa mörg verka
skáldsins þegar ratað á hvíta tjaldið má þar nefna; Sölku Völku, Kristnihald undir jökli,
Ungfrúna góðu og húsið, Atómstöðina, Paradísarheimt og Brekkukotsannál.
sjá dagsskrá....

13.september
Til hvers er Róbert Marshall?
Greinin „Til hvers er Framsóknarflokkurinn?“ eftir Róbert Marshall, aðstoðarmann samgönguráðherra, hefði kannski skorað hátt í MORFÍS en hún fær ekki mörg stig á venjulegum siðferðiskvarða. Róbert þessi, helsta málpípa Kristjáns Möllers samgönguráðherra, kvartar sáran undan meintum dónaskap og gífuryrðum alþingismanns Framsóknarflokksins varðandi Grímseyjarferjuhneykslið í sömu andrá og hann lýsir þingmanninum sem tudda á velli, nauti í flagi, fíl í postulíni og grjótkastara í glerhúsi. Annað í greininni er eftir þessu, bæði um nafngreinda og ónafngreinda menn. Tilurð greinarinnar virðist sú að þingmaður Framsóknarflokksins dirfðist að setja fram skoðanir sínar á fyrrgreindu hneykslismáli á grundvelli minnisblaðs  þar sem skýrt og greinilega kemur fram að ráðherrar sem fram að því þóttust ekki kannast við málið, báru fulla ábyrgð á því og þeim til fulltingis voru svo eftirmenn þeirra, þ.m.t. núverandi samgönguráðherra sem var í lófa lagið að draga sannleikann í málinu fram í dagsljósið en kaus að gera það ekki. Meira....

10.september

Fræðslunefnd hefur áhyggjur af frístundarseljum bæjarins.
Foreldrar óánægðir með ástandið
Í fundagerð fræðslunefndar kemur eftirfarandi fram: “Rætt um starfsmannavanda í frístundaseljum nú á haustdögum. Ekki hefur tekist að ráða í allar stöður, verið er að auglýsa eftir fólki. Fræðslunefnd lýsir yfir áhyggjum sínum vegna starfsmannaeklunnar. Skólaskrifstofu er falið að vinna að lausn málsins í samvinnu við skólastjórnendur og ÍTOM. Meðal þess sem athuga þarf er hvort nauðsynlegt sé að takmarka fjölda barna meðan ekki næst að ráða í allar stöður.”  Mosfellsfréttir hafa spurnir af því að á haustdögum hafi frístundarselin verið rekin verulega undirmönnuð og því hafi fjöldi foreldra ekki séð sér annað fært en að taka börn sín úr frístundarseljunum a.m.k. þar til ástandið skáni.

7.september
Úrslitaleikur - Deildarmeistarar HK / Víkingur - Afturelding 
Til hamingju Mosfellingar – nú eigum við knattspyrnulið í EFSTU deild næsta sumar. Það er aðeins einn leikur eftir – úrslitaleikur um fyrsta sæti deildarinnar. Leikið verður til þrautar – og afhentur Deildarbikar í lok leiks. Komið og heiðrið stelpurnar fyrir frábæran árangur í sumar.
Áfram Afturelding!!
Landsbankinn býður öllum Mosfellingum frítt á völlinn!
Við viljum hvetja alla stuðningsmenn Aftureldingar til að koma og hvetja liðið.
Leikurinn fer fram á Varmárvelli kl. 14.00 – n.k. sunnudag, 9. sept.
Sýnum stuðning okkar í verki !
ALLIR á VÖLLINN!

7.september
Sprenghlægilegur viðskiptaráðherra
Geir og Björgvin ósammála um evru

Það læðist að mörgum sá grunur að stefna stjórnvalda í gjaldeyrismálum sé eilítið á reiki, líkt og raunar svo mörg önnur stefnumál sem hafa farið fyrir ofan garð og neðan í blíðviðrinu á Þingvöllum sl. vor.
Það sem helst hefur vakið athygli í umræðunni um gjaldeyrismál liðna daga eru ekki síst ábúðarfull orð viðskiptaráðherrans sem mætti fyrir skemmstu dimmraddaður og hátíðlegur í sjónvarp og talaði um mikinn þrýsting á að skoða möguleika á upptöku evru. Viðbrögð forsætisráðherra létu ekki á sér standa og opinberuðust skelegg og skýr að vanda svo sem við var að búast í Kastljósi Sjónvarps í gær. Sagði Geir þar að hann hefði ekki orðið var við sérstakan þrýsting í þessa veru en ákveðið hefði verið að ræða alla þætti málsins með opinskáum hætti í ríkisstjórninni enda bæri henni skylda til þess að hafa vakandi auga með því hvaða kerfi hentaði okkur best í okkar peningamálastjórn. Trúlega hefur forsætisráðherra á þessari stundu verið hugsað til yfirvaldsins í Seðlabankanum enda bætti hann því við að skynsamlegt væri nú samt að halda í krónuna því ekkert kallaði á gjaldmiðilsbreytingu akkúrat á þessari stundu. Þá varaði forsætisráðherra við of mikilli léttúð í umræðum um málið, svona eins og til að tryggja landsföðurlega ímyndina.
Meira......


31.ágúst
Bæjarstjóraskipti hjá Mosfellsbæ.
Í dag föstudaginn 31. ágúst verða bæjarstjóraskipti hjá Mosfellsbæ þegar Ragnheiður Ríkharðsdóttir hættir sem bæjarstjóri Mosfellsbæjar eftir rétt rúmlega fimm ára starf en eins og kunnugt er var Ragnheiður kjörinn alþingismaður í alþingiskosningunum síðast liðið vor. 
Við starfi Bæjarstjóra tekur Haraldur Sverrisson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Mosfellsbæjar.
 

30.ágúst
Ókeypis námsbækur!
Stjórn SUF samþykkti nýlega ályktun þar sem kallað er eftir ókeypis námsbókum fyrir framhaldsskólanema, líkt og Samfylkingin lofaði fyrir síðustu kosningar.  Í ályktuninni kemur m.a. fram að SUF telur það ábyrgðarlaust að fara fram með svona loforð fyrir kosningar ef ekki stendur til að standa við það. Skorar er á þingmenn Samfylkingarinnar að standa við gefin loforð.
Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) kallar eftir ókeypis skólabókum fyrir námsmenn í framhaldsskólum eins og Samfylkingin lofaði fyrir síðustu kosningar. Einnig lofaði Samfylkingin því að innritunar- og efnisgjöld yrðu felld niður.

28.ágúst
Frítt í strætó!
Á 838.fundi bæjarráðs fimmtudaginn 23 ágúst sl var lögð fram .


 

27.ágúst
Grillpartý framsóknarmanna í Heiðmörk
Fimmtudaginn 23. ágúst sl. héldu framsóknar menn í SV grillpartý í Grenilundi í Heiðmörk eftir matinn var farið í leiki m.a. stórskemmtilegt reiptog þar sem skipt var í lið þannig að í öðru voru keppendur fæddir á fyrri hluta árs, en í hinu þeir sem eru fæddir á seinni hlutanum. Hart var togast á í reiptoginu. Sigur úr býtum höfðu þeir sem fæddir eru á seinni hluta árs, enda nokkuð yngri eins og einn orðaði það. 

25.ágúst
Í túninu heima
Dagskrá bæjarhátíðarinnar var sérlega fjölbreitt í dag enda mikið til hennar vandað í tilefni 20 ára afmælis bæjarins  klúbbar, fyrirtæki, félagasamtök og fleiri kynntu starfsemi sína að íþróttahúsinu að Varmá, útimarkaðir í Mosfellsdal og Álafosskvos og hvarvetna fjölmenntu Mosfellingar, flugklúbburinn flaug lágflug yfir íþróttasvæðið og ólympísk keppni á milli fyrirtækja svo eitthvað sé nefnt af annar stútfullri dagsskrá.  Svipmyndirnar hér á síðunni segja þó meira en nokkur orð um þá hátíðarstemmingu sem ríkti í bænum.

 
 
 

24.ágúst
Mosfellingum var nokkuð létt þegar Stuðmenn spiluðu gömlu góðu lögin á tónleikunum í gærkvöldi en tónleikarnir voru í tilefni af 20 ára afmæli Mosfellsbæjar. Hljómsveitin hélt uppi miklu stuði hjá bæjarbúum. 
Eitthvað hafði þó kvisast út að Stuðmenn hefðu lofað því að spila sína frábæru músík en bæjarbúar höfðu haft af því  nokkrar áhyggjur hvort sagan frá Kaupþings tónleikunum endurtæki sig. 
Hermt er að bæjarbúar hafi skemmt sér vel

24.ágúst
Frægasti “ekki” vegur landsins?

Sennilega hefur ekki verið deilt jafn mikið um nokkra framkvæmd eins og fyrirhugaða veglagningu Helgafellsvegar. Fjölmiðlar hafa farið mikinn og hafa bæjarbúar staðið nokkuð ráðvilltir um hvort veg sé að ræða eða ekki. Varmársamtökin hafa bent á að búið sé að leggja veginn áður en formlegum athugasemdum við deiliskipulagið sé lokið. Haraldur Sverrisson formaður skipulags- og byggingarnefndar og verðandi bæjarstjóri hefur lýst því yfir í fréttum að ekki sé um veg að ræða heldur aðeins um lagnaframkvæmd að ræða en á sama tíma hefur bæjarverkfræðingur gefið fyrirmæli um að girða skuli fyrir veginn samkvæmt fréttum Morgunblaðsins.  Þar segir bæjarverkfræðingur að um tímabundinn veg vegna lagnaframkvæmda sé um að ræða en í sömu frétt er haft eftir Haraldi að “Þörfin fyrir þennan vinnuveg er lokið”
Hvort um veg sé að ræða eða “ekki” veg látum við hjá Mosfellsfréttum ósagt að svo stöddu en eitt er víst að umræddur vegur er alla veganna frægast “ekki” vegur í Mosfellsbæ ef ekki á landinu! Og því flokkast fréttaflutningurinn okkar sennilega undir “ekki” fréttaflutning eða hvað?

24.ágúst
Fréttatilkynning
ÚTIMARKAÐUR VARMÁRSAMTAKANNA Í ÁLAFOSSKVOS 
Varmársamtökin, íbúa- og umhverfissamtök í Mosfellsbæ, standa fyrir útimarkaði í Álafosskvos í tengslum við bæjarhátíðina Í TÚNINU HEIMA, nk. laugardag, 25. ágúst , kl.12-16 . 
Samtökin stóðu fyrir útimarkaði í fyrra sem heppnaðist afar vel. Fór aðsóknin fram úr björtustu vonum en talið er að hátt í 5000 manns hafi komið á svæðið. Markaðurinn nú verður með svipuðu sniði og í fyrra. Að þessu sinni verður þó sérstök áhersla lögð á matvöru svo sem lífrænt ræktað grænmeti, kartöflur, allar tegundir tómata, söl, vestfiskan harðfisk, heimagerðar sultur og mauk o.fl., o.fl. Blóm og handverk verður til sýnis og sölu og kaffihús opið í Ásgarði þar sem boðið verður upp á gómsætar veitingar og lifandi tónlist.


23.ágúst

Sunnudaginn 26. ágúst er komið að síðustu stofutónleikum Gljúfrasteins í sumar. Á þessum lokatónleikum munu þau Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gerrit Schuil píanóleikari flytja verk eftir Ludwig van Beethoven og fiðluleikarann og tónskáldið Fritz Kreisler.
Líkt og áður hefjast tónleikarnir kl. 16.00 og aðgangseyrir er 500 krónur. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Gljúfrasteins.

23.ágúst

Stjórn SUF, Sambands ungra framsóknarmanna, harmar og fordæmir framgöngu ráðherra Sjálfstæðisflokks vegna kaupa á nýrri Grímseyjarferju og krefst stjórnsýsluúttektar á fjármála- og samgönguráðuneyti. 

Ályktunin í heild sinni:Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna harmar það ábyrgðar- og dómgreindarleysi sem ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa orðið uppvísir að í tengslum við kaup og endurbætur á nýrri Grímseyjarferju. Hundruðum milljóna króna af almannafé hefur verið sóað með slælegri verkstjórn og ákvarðanatöku. Ábyrgðin getur aðeins hvílt á herðum þess ráðherra sem réð ferðinni þegar ákvarðanirnar voru teknar.
.

20.ágúst
Skólabyrjun 2007
Skólasetning í grunnskólum Mosfellsbæjar verður miðvikudaginn 22. ágúst nk.
Tímasetningu á boðun árganga er að finna á vef skólanna (lagafellsskoli.is og varmarskoli.is) ásamt upplýsingum um upphaf kennslu, innkaupalista. skráningu í mötuneyti og frístundasel.

17.ágúst
Sjötta starfsár Kammerkórs Mosfellsbæjar að hefjast.
Kammerkór Mosfellsbæjar hélt tvenna athyglisverða tónleika í vor, þá fyrri í Bókasafni Mosfellsbæjar og síðari í Áskirkju í Reykjavík og voru það lok vetrarstafsins.Vetrarstarf Kammerkórs Mosfellsbæjar ‘07 er að hefjast í byrjun september. Æfingar fara fram í Listaskóla Mosfellsbæjar á miðvikudagskvöldum kl. 19:30 og aukaæfingar eru haldnar síðasta laugardag hvers mánaðar. Meðleikari kórsins er Arnhildur Valgarðsdóttir, raddþjálfun annast Ásdís Arnalds og kórstjóri er Símon H. Ívarsson. 
Kórinn hefur flutt fjölbreytt kórverk frá ólíkum tímabilum og stíltegundum.  Auk hefðbundinna kórverka eru sungnar  áhugaverðar tónsmíðar sem vakið hafa athygli víða um heim. Leitast er við að hafa verkefnavalið sem fjölbreyttast. Sungin eru lög allt frá endurreisnartímabilinu til dagsins í dag, gospel lög, afrísk lög, nútímalög, dægurlög og hvað eina sem vekur áhuga kórsins og veitir  ánægju í söng.
Meira.......

16.ágúst
Stofutónleikar á Gljúfrasteini á sunnudaginn!

Þrjú “B” og fjórir “#” er yfirskrift stofutónleikanna á Gljúfrasteini sunnudaginn 19. ágúst n.k. Peter Máté mun setjast við flygilinn og færa okkur verk eftir Bach, Beethoven og Brahms.
Peter Máté er fæddur í Roznava í Tékkóslóvakíu, hann lærði hjá Ludmilu Kojanová í Kosice og Valentinu Kameníková við Tónlistarakademíuna í Prag. Á námsárunum vann hann til margra verðlauna í heimalandi sínu og síðar í alþjóðlegum keppnum, svo sem í Vercelli og Enna á Ítalíu 1986 og 1989. Peter hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990 og kennir nú við Listaháskóla Íslands
og Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann hefur haldið einleikstónleika, leikið einleik með ýmsum sinfóníuhljómsveitum og tekið þátt í kammertónleikum víða í Evrópu og Bandaríkjunum.
Tónleikarnir eru næst síðustu stofutónleikar sumarsins og hefjast sem fyrr klukkan 16
.


15.ágúst
50 lyklakippur hafa ratað heim
Starfsfólk Atlantsolíu hefur á rúmu ári komið til skila 50 lyklakippum til viðskiptavina sinna. Lyklakippunum höfðu viðskiptavinirnir týnt á hinum ýmsu stöðum og skilvísir finnendur komið þeim til Atlantsolíu.
Í samantekt kemur í ljós að flestir týna þeim í miðbæ Reykjavíkur, því næst Smáralind og Kringlunni, og fast þar á eftir í skólabyggingum. Aðrir algengir staðir eru leigubílar, íþróttahús og bensínstöðvar.
Sem dæmi um óvenjulega staði má nefna hlíðar Esju en þar fundust tvær lyklakippur í júlí. Í síðara tilfellinu hafði göngumaður á niðurleið misst bíllyklana í miðju fjalli og komst því ekki til síns heima. Á endanum þurfti hann að fá far í bæinn. Aðeins liður tvær klukkustundir frá því lyklarnir týndust þar til þeim var skilað til Atlantsolíu. Eigandi kippunnar var að vonum mjög ánægður en ekki er óalgengt að greiða 30 til 40 þúsund krónur fyrir nýrri gerðir bíllykla.<

15.ágúst
Mosfellingar eignast tvöfaldan Norðurlandameistara

Sævar Baldur Lúðvíksson tæplega 17 ára innfæddur Mosfellingur gerði heldur betur viðreisn á  Norðurlandameistaramótinu skylmingum dagana 25. til  28. júní s.l. Sævar Baldur krækti sé í tvö gull og eitt silfur og er því tvöfaldur Norðurlandameistari í skylmingum með höggsverði árið 2007. 
Að þessu sinni var mótið haldið í Óðinsvé í Danmörku og var það stærsta Norðurlandamót í skylmingum sem haldið hefur verið frá upphafi enda 100 ára afmæli Danska Skylmingasambandsins og því mikið í lagt.

 

 

5.júlí
Erum farin í sumarfrí frá og með 5.júlí til og með 15 ágúst.







2.júlí

Óvæntar uppákomur í Álafosskvos
Þeir sem lögðu leið sína um Álafosskvosina í gær sunnudaginn 1. júlí, glöddust við óvæntar  uppákomur og hljóðfæraleik í Álafosskvos.  Þar voru á ferðinni Varmársamtökin, sem höfðu fengið listamenn til liðs við til að skemmta gestum og gangandi í góða veðrinu. Meira....



2.júlí
Dýrin í Hálsaskógi í Mosfellsbæ
Leikhópurinn Lotta er að koma í heimsókn í Mosfellsbæ með sýninguna Dýrin í Hálsaskógi en fimmtudaginn 5. júlí verður Hálsaskógur staðsettur á Hlégarðssvæðinu í Mosfellsbæ.
Í uppsetningu Lottu fá dýrin að komast í sitt rétta umhverfi en sýnt er undir berum himni. Leiksýningin er rúmlega klukkutíma að lengd og full af glensi og fjöri fyrir alla fjölskylduna. Sýningin hefst klukkan 18:00 og miðaverð er 1500 krónur fyrir fullorðna og 1000 krónur fyrir börn í fylgd með fullorðnum.

1.júlí
Er verið að leggja lagnir eða veg?
Formaður Skipulags- og byggingarnefndar í bænum, segir að framkvæmdirnar tengist eingöngu fráveituframkvæmdunum
Varmársamtökin undrast að Mosfellsbær skuli komast upp með að leggja Helgafellsbraut áður en deiliskipulag, sem á að liggja til grundvallar framkvæmdinni, er samþykkt. Sérstaklega þar sem framkvæmdin fer um mjög umdeilt hverfisverndarsvæði og inn fyrir 50metra verndarbelti Varmár sem er á náttúruminjaskrá. Varmársamtökin harma að lög um náttúruvernd, skipulags- og byggingarlög og réttur íbúa til að gera athugasemdir við framkvæmdir eru virt að vettugi.
Það er augljóst að í hinu umdeilda vegastæði er búið að leggja veg, með tilheyrandi niðurföllum og undirlagi. Það eina sem vantar er malbikið.
Haraldur Sverrisson, formaður Skipulags- og byggingarnefndar í bænum, segir að framkvæmdirnar tengist eingöngu fráveituframkvæmdunum, vegarlagning sé alls ekki hafin.
Deiluskipulagið og umhverfisskýrsla eru enn í auglýsingu".


29.júní

Lög við ljóð Halldórs Laxness
Næstkomandi sunnudag, þann 1. júlí, verða ljóð Halldórs við lög eftir Jón Ásgeirsson og Atla Heimi Sveinsson í aðalhlutverki.
Flytjendurnir eru góðvinir Gljúfrasteins þau Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari sem er listrænn tónlistarráðgjafi safnsins og Bergþór Pálsson sem hefur sungið í stofunni á Gljúfrasteini við ólík tækifæri tvisvar áður á þessu ári.
Að venju hefjast tónleikarnir klukkan 16.00 og aðgangseyrir er 500 krónur. Nánari upplýsingar um tónleika sumarsins má nálgast á
vef Gljúfrasteins

28.júní
Mold- og sandrok í Mosfellsbæ
Íbúar Mosfellsbæjar hafa ekki farið varhluta af norðanáttinni og þurrkunum síðastliðnar vikur frekar en aðrir landsmenn. í gær miðvikudag náði norðanáttin sér vel upp og var þá eins og að mistur lægi yfir bænum eins og oft áður  við þessar aðstæður. Mold og sandrok gengur yfir bæjarfélagið m.a. af nýbyggingarsvæðum s.s. eins og í Leirvogstungu en einnig er um að ræða sand úr gryfjum á Leirvogstungumelunum og víðar.
Við þessu er fátt annað að gera en að græða upp malar og sandgryfjur í nágreni bæjarins eins og þegar unnið er að. En eitt er það sem verktakar á byggingarsvæðum gætu gert til að létta bæjarbúum lífið en það er að vökvar malargöturnar á nýbyggingarsvæðum. Slíkt ætti ekki að kosta mikið en gerði okkur íbúum bæjarins lífið ögn bærilegra meðan á framkvæmdum stendur.

28.júní
Þegar frjálslega er farið með sannleikann
Þegar nýir ráðherrar taka við embættum er þeim oft mikið í mun að gera sem mest úr sínum störfum og því miður hafa margir fallið í þann fúla pytt að ýkja töluvert til að þeirra verk sýnist stærri eða láta líta út fyrir að verk sem undirbúin hafa verið af öðrum séu þeirra eigin. Jóhanna Sigurðardóttir er ein þeirra.  
Í nýrri fréttatilkynningu um sérstakar aðgerðir til að ráðast gegn biðlistum hjá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins kemur fram að nú á að leggja 147 milljónir í sérstakt átak til að vinna gegn áðurnefndum biðlistum. Þar er hins vegar frjálslega farið með staðreyndir. Í fréttatilkynningunni eru börn sem bíða þjónustu Greiningarstöðvarinnar sögð 250...Meira.....


 

27.júní
Óleyfisakstur mótorhjóla á göngu og reiðstígum bæjarins
Slys hafa orðið á íbúum.

Mikið er um óleyfisakstur mótorhjóla (Krossara, fjórhjóla) á göngu- og reiðstígum Mosfellsbæjar og hafa þegar hlotist alvarleg slys af þessu athæfi.


27.júní
Ágreiningur á stjórnarheimilinu
Bullandi ágreinings hefur orðið vart að undanförnu um kvótakerfið og sýnist sitt hverjum. 
Sjálfstæðismennirnir Sturla Böðvarsson og Einar Oddur Kristjánsson eru sammála um að kvótakerfið sé mistök og að færa beri alla fiskvinnslu og útgerð úr Reykjavík í þeim tilgangi að efla sjávarbyggðir í landinu. 
Geir H. Haarde, formaður þeirra Sturlu og Einars Odds segir kvótakerfið svo það besta sem í boði er. Árni Mathisen flokksbróðir þeirra og fyrrum sjávarútvegsráðherra gagnrýnir Einar Odd og segir hann hafa borað göt á kvótakerfið í mörg ár með tillögum um ýmsum seinni tíma viðbótum til hliðar við kerfið. Það er því morgunljóst að Sjálfstæðismenn vita ekki í hvora löppina þeir eiga að stíga þegar kemur að kvótakerfinu. Meira.....


 

26.júní
Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2007
Ólöf Oddgeirsdóttir
Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar tilnefndi Ólöfu Oddgersdóttur sem bæjarlistamann Mosfellsbæjar ári 2007 við hátíðlega athöfn í bæjarleikhúsinu þann 17 júní sl. 
Ólöf Oddgeirsdóttir er fædd í Reykjavík 1953 og hefur verið búsett í Mosfellsbæ til fjölda ára. Vinnustofa hennar er í Þrúðvangi í Álafosskvos þar sem hún starfrækir einnig sýningarsal.
Ólöf lagði stund á myndlistarnám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og útskrifaðist þaðan 1994. Frá útskrift hefur hún verið ötul við sýningarhald og á að baki um tug einkasýninga. Eins hefur hún tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis. Hún er félagi í SÍM (Samtök íslenskra myndlistarmanna) og FÍM (Félag íslenskra myndlistarmanna) og var formaður sýningar-nefndar FÍM 1998-2000.
Ólöf hlaut listamannalaun 2002 og hefur einnig unnið ýmis störf tengd myndlist, s.s. við kennslu og sýningarstjórn. Ólöf hefur samhliða myndlist sinni m.a. kennt við Myndlistarskóla Mosfellsbæjar og verið einn af verkefnastjórum við alþjóðlega vinnusmiðju í Þrúðvangi, Mosfellsbæ. Hægt er að lesa meira um þennan frábæra listamann á www.mos.is og www.umm.is

22.júní
Ný þjóðhagsspá vekur ugg
Töluvert atvinnuleysi og samdráttur í efnahagslífi.
Ný þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins gerir ráð fyrir dökku útliti í efnahagsmálum hérlendis, töluverðu atvinnuleysi og samdrætti í efnahagslífi. Ný ríkisstjórn tekur því við þar sem fyrrverandi stjórn íhalds og krata sleppti, með vaxandi atvinnuleysi, minni hagvexti og meiri verðbólgu.  Þar er ekki tekið tillit til hugsanlegs samdráttar í kvótaúthlutunum sem þó verður að teljast líkleg niðurstaða og ef af honum verður má gera ráð fyrir enn verra ástandi. Reyndar er heldur ekki tekið tillit til hugsanlegra álversframkvæmda svo töluverð óvissa ríkir með þessa spá. Hagspá fjármálaráðuneytisins er í töluverðu ósamræmi við nýja spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem reyndar fékk vægast sagt falleinkunn í Markaðnum í gær þar sem Jóhann G. Jóhannsson hrekur forsendur sjóðsins í umfjöllun hans um Íbúðalánasjóð. En það er svo önnur saga
Meira....


 

21.júní
Bach á stofutónleikum Gljúfrasteins sunnudaginn 24. júní

Sigurgeir Agnarsson sellóleikari og Berglind Stefánsdóttir flautuleikari munu spila úrval úr verkum Bachs á stofutónleikum Gljúfrasteins sunnudaginn 24. júní. Er það einkar vel við hæfi því Halldór Laxness hafði einmitt sérstakt dálæti á tónsmíðum J.S. Bachs
Að venju hefjast tónleikarnir klukkan 16:00 og er aðgangseyrir 500 krónur. 

20.júní
Goggi Galvaski á Varmárvelli
Mótið hefst föstudaginn 22. júní 2007 

Goggi galvaski er frjálsíþróttahátíð fyrir 14 ára og yngri. Frjálsíþróttaiðkendur af öllu landinu taka þátt og von er hátt í 300 keppendum.
Hátíðin stendur yfir í 3 daga og er ein af stærri íþróttahátíðum Mosfellsbæjar.  
Bæjarbúar eru hvattir til að koma og sjá frjálsíþróttafólk framtíðarinnar og til að hvetja sitt fólk. Nákvæm dagskrá og tímasetning er á heimasíðu Aftureldingar. Sjá vefslóð:
http://www.afturelding.is/


20.júní

Siðanefnd blaðamannafélagsins úrskurðar í Jónínumálinu.
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur úrskurðað að Helgi Seljan og Kastljós hafi brotið alvarlega gegn siðareglum félagsins með umfjöllun sinni um veitingu ríkisborgararéttar til tengdadóttur Jónínu Bjartmarz.  Í úrskurðinum segir meðal annars að umfjöllunin hafi verið röng og meiðandi og til þess fallin að gera Jónínu tortryggilega. Nefndin segir jafnframt að Helgi hafi ekki aflað nægilegra upplýsinga til að gefa rétta mynd af málinu. 

20.júní
Árleg hundasýning í reiðhöll Fáks í Víðidal

Árleg sumarsýning Hundaræktarfélags Íslands fer fram nú um helgina 23.- 24. júní, í reiðhöll Fáks í Víðidal og hefst klukkan kl. 9.00 árdegis laugardag og sunnudag.
Sýningin er langstærsta sumarsýning sem haldin hefur verið á Íslandi þar sem um 640 hundar eru skráðir til leiks af 75 tegundum. Fjórir erlendir dómarar frá Svíþjóð, Portúgal, Rússlandi og Möltu koma til landsins til að dæma hundana. Þar að auki kemur frá dómari frá Danmörku sem mun dæma unga sýnendur. Öflugt barna- og unglingastarf er starfrækt innan félagsins og mikil gróska innan þess, að þessu sinni taka 39 ungir sýnendur þátt í keppni ungra sýnenda á aldrinum 10-17 ára.

 

 

19.júní
Ragnheiður ein hæst launaða alþingiskonan!
DV fjallar í dag um sveitarstjórnarmenn sem sæti tóku á alþingi nú við síðustu alþingiskosningar. Árni Þór hyggst hætta sem borgarfulltrúi líkt og Steinunn Valdís enda þingmennskan 100% starf að sögn Árna.
Í annars athyglisverðri grein DV kemur fram að laun Ragnheiðar séu tæplega ein og hálf milljón á mánuði. Ragnheiður hefur sagst ætla að láta af störfum sem bæjarstjóri með haustinu.

8.júní
Ríkisstjórnarsáttmáli

Þeir sem lesið hafa í gegnum nýjan ríkisstjórnarsáttmála sjá strax í hendi sér að í ýmsum málum á að halda áfram á sömu braut og verið hefur en í öðrum málum er þrettándinn heldur þunnur, óljós og loðinn. Fyrsta verkefni nýrrar ríkisstjórnar var að tilkynna um breytta verkaskiptingu ráðuneyta án þess að menn væru almennilega búnir að ljúka við að ákveða hver sú verkaskipting ætti að vera. Mikilvægara var að finna stóla fyrir 6 ráðherra Samfylkingar og 6 ráðherra Sjálfstæðisflokks. Ýmsir hafa þó bent á að þrátt fyrir að fjöldi ráðherra sé sá sami, sé ekki um helmingaskipta ríkisstjórn að ræða eins og þegar Framsókn sat í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki. Þvert á móti, séu tvö ráðuneyti, landbúnaðar- og sjávarútvegs sameinuð undir einum ráðherra Sjálfstæðisflokks og að tveir ráðherrar Samfylkingar skipti með sér iðnaðar- og viðskiptaráðuneytum.  Þá hefur einnig verið tilgreindur flutningur á nokkrum verkefnum, yfirleitt frá Samfylkingarráðuneytum yfir í Sjálfstæðisráðuneyti. Meira.....

 

7.júní
Atlantsolía vill selja litað bensín á 75-85kr 
Bensín gæti kostað 75 til 85 krónur fyrir sláttur véla- og skemmtibátaeigendur færi Fjármálaráðuneytið að áskorun Atlantsolíu og heimilaði fyrirtækinu að selja litað bensín.
Í svari fjármálaráðuneytisins kemur fram að ráðuneytið hafi skipað starfshóp sem gera á tillögur að heildarstefnu er varðar skattlagningu ökutækja og eldsneytis. Muni starfshópurinn taka til skoðunar erindi Atlantsolíu. Sala á lituðu bensíni er hagsmunamál fjölmargra svo sem eigendur sláttuvéla,skemmtibáta, snjósleða og rafstöðva.   Eigendur þessara tækja greiða auk virðisaukaskatts rúmar 30 krónur í bensíngjald sem ætlað er til vegaframkvæmda. Að sögn forsvarsmanna Atlantsolíu má ætlað að 3-4 vikur tæki að koma upp búnaði til sölu á lituðu bensíni.

5.júní
Er einkavæðing löggæslu lausnin á slakri löggæslu?
Frjálshyggjuhugmyndir sem skelfa!

Það er óumdeilt að íbúar Mosfellsbæjar hafa á ýmsan hátt búið við slakari löggæslu en búast hefði mátt við en nú gæti lausnin verið fundin eða hvað?  Í fréttum nýlega lýsti lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins sig hlynntan því að skoðaðar séu allar hugmyndir sem stuðla að því að öryggi borgaranna sé aukið og vísaði þar til hugmynda borgaryfirvalda í Reykjavík
um að kannað yrði hvort ástæða sé til að semja við einkafyrirtæki um að aðstoða við löggæslu í miðborginni um helgar. 
Ekki er víst að bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ séu tilbúin til að greiða fyrir  einkavædda  löggæslu á þeim tímum sem ekki er vakt í Mosfellsbæ. Það er hinsvegar öruggt að íbúar í Mosfellsbæ vildu gjarnan sjá aukna löggæslu í bæjarfélaginu og að staðsetning lögreglu væri alla dag og nætur í Mosfellsbæ. Óviðunandi er að 7500 manna bæjarfélag sé þjónustað með þeim hætti sem nú er.  Skemmst er að minnast að bæjarstjóri Mosfellsbæjar sat í samráðsnefnd um skipan löggæslumála á höfuðborgarsvæðinu. Varla hefur hún samþykkt núverandi fyrirkomulag löggæslumála í Mosfellsbæ.

4.júní
Gæsluvöllurinn opnaður
Gæsluleikvöllur Mosfellsbæjar við Njarðarholt (aðkoma frá Þverholti) var opnaður á ný 1. júní sl.og verður opinn til 31. ágúst nk. daglegur opnunartími er frá kl. 9:00 - 12:00 og kl. 13:00 - 16:00.
Gæsluvöllurinn er ætlaður fyrir  börn á aldrinum 20 mánaða  til 6 ára. Gjaldskrá gæsluleikvallar er 100 kr. á klukkustund. Símanúmer á gæsluleikvellinum er 566 6959.


1.júní
Tjaldstæði í Mosfellsbæ
Kallað er eftir stefnumótun bæjaryfirvalda í atvinnu- og ferðamálum.
Atvinnu- og ferðamálanefnd hefur haft til með ferðar tillögu starfshóps um bráðabirgða staðsetningu tjaldstæðis eftir að tjaldstæðið við Varmárvöll lagðist af við tilkomu gervigrasvallarins. Nefndin fundaði nú í vikunni um málið og samþykkti að tjaldstæði verði staðsett við Skólabraut stuðst verði við tillögur frá Landmótun um uppbyggingu þess..
Fulltrúi S lista kýs að sitja hjá við afgreiðslu málsins þar eð málið er
ekki nægilega vel undirbúið. Kallað er eftir stefnumótun bæjaryfirvalda í atvinnu- og ferðamálum.  Ítrekað hafa fulltrúar B-listans og gert athugsemdir við störf og áætlanir meirihlutans í atvinnu- og ferðamálum bæði í ræðu og í riti. 


1.júní

Gljúfrasteinn!
 
Latín stemmning í stofunni 
Stofutónleikaröð Gljúfrasteins hefst sunnudaginn 3. júní n.k. en þá mun Latíntríó Tómasar R. Einarssonar koma sér fyrir í stofu nóbelsskáldsins. Tónleikarnir hefjast klukkan 16.00 og er aðgangseyrir aðeins 500 krónur.
Auk tónskáldsins og forsprakkans Tómasar R. Einarssonar , sem leikur á kontrabassa skipa tríóið Óskar Guðjónsson á tenórsaxófón og Ómar Guðjónsson á gítar. Tómas R. hefur verið einn afkastamesti lagasmiður í íslenskri djasstónlist síðustu tvo áratugi og eru geisladiskar sem innihalda eingöngu eða aðallega tónlist eftir hann orðnir 14 talsins. Síðastliðið haust kom út diskurinn hans Romm Tomm Tomm , sem hlaut afbragðsdóma heima og erlendis. Á efnisskrá tónleikanna á sunnudaginn verða m.a. lög af Romm Tomm Tomm í bland við eldra efni.


1.júní
Fríar skóla máltíðir! 
Tveir skólar bjóða upp á ókeypis skólamáltíðir!
Ókeypis matur í Stóru Vogaskóla og Grunnskóla Skagastrandar.
Verð á hádegismáltíðum mötuneyta grunnskólana er mjög misjafnt samkvæmt nýlegri könnun Neytendastofu en könnunin var gerð í kjölfar kvartana um að ekki hefði verið lækkaður Vsk í skólamötuneytum. 

 

 

 

 

 

 

 

Veljum íslenskt
Veljum X-B
FYRIR ALLA

 

 

 

To be is to do
Sokrates
Do bee do bee do
Frank Sinatra

 

Viltu koma skoðun  þinni á framfæri, viltu að við látum þig vita þegar nýtt efni er sett inn á síðuna eða óskar þú eftir upplýsingum?
Sendu okkur tölvupós
t:

frettir@mosfellsfrettir.is