Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2010
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró

31.desember
Mosfellsfréttir óska öllum gleðilegs nýs árs með þakklæti fyrir allt gamalt og gott í gegnum tíðina.

Megi komandi ár veita ykkur gæfu og gleði




24.desember
Mosfellsfréttir óska þér og fjölskyldu þinni friðsældar á jólahátíðinni og farsældar á komandi ári.

14.desember
Félagsfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Félagsfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn 18. janúar 2010 í sal félagsins að Háholti 14. 2.hæð.

Fundarefni:
• Sveitastjórnarkosningar 2010
• Ákvörðun um val á framboðslista
• Kosningabaráttan í vor
 
Áhugasamir frambjóðendur hafi samband við Óðinn Pétur Vigfússon í síma 868-1313 fyrir 1. janúar 2010.
Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar

11.desember
 
Mosfellsfréttum verður dreift í hús í dag.
Mosfellsfréttir 25. árg, 1. tbl. 2009 kom úr prentun í gærkvöldi. Blaðinu verður dreift frítt inn á öll heimili í bænum og vinnustaði í dga.  Í blaðinu eru fjölmargar fréttir,vinningsuppskrift,  greinar og viðtöl m.a. við Guðna Ágústson grein eftir Jónínu Benediktsdóttur, Eggert Sólberg og Snorra Hreggviðsson.
Eintak (Pdf) af blaðinu má sjá hér...



10.desember
Bókun bæjarráðs vegna greinar DV verður birt í Mosfellsfréttum
Í Mosfellsfréttum sem dreift verður um helgina verður birt niðurstaða bæjarráðs vegna fréttar DV frá því í sumar. En í bókun bæjarráðs segir m.a. 
Þessi skoðun bæjarráðs hefur leitt í ljós að ekki var rétt staðið að málum við uppskiptingu lands samkvæmt deiliskipulagi á þessu svæði. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum er ekki að sjá að málsaðilar hafi haft af því ávinning né Mosfellsbær orðið fyrir tjóni vegna þessa.

Greinina DV frá því í sumar má lesa í heild sinn hér.....


9.desember
Jólasýning Fimleikadeildar Aftureldingar

Jólasýning Fimleikadeildar Aftureldingar veriður haldin sunnudaginn 13. desember n.k. kl 11-13 í íþróttahúsinu að Varmá. 
Andi kvikmyndanna svífur yfir vötnum í atriðum frábærra fimleikabarna.
Jólasveinninn stórkostlegi frá því í fyrra kemur aftur og skemmtir börnunum.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

6.desember
Afturelding gefur út veglegt afmælisrit .
Þann  10. desember n.k. kemur út veglegt afmælisrit í tilefni 100 ára afmælis ungmennafélagsins Aftureldingar.
Ritið, sem er fagurlega framsett og myndskreytt bók um 380 bls.sem hefur að geyma sögu þessa merka menningar- og íþróttafélags frá stofnun þess, frá 11. apríl 1909 til dagsins í dag. Bókin hefur hlotið nafnið Dagrenningur og dregur þannig nafn sitt af eldri ritum, sem gefin voru út af félaginu á fyrri hluta aldarsögu félagsins. Höfundar ritsins eru Bjarki Bjarnason og Magnús Guðmundsson.
Í tilefni útgáfunnar mun félagið efna til hátíðarkvöldvöku í hátíðarsal Lágafellsskóla í Mosfellsbæ að kvöldi útgáfudagsins, 10. desember klukkan 20:00.

3.desember
Einar Skúlason nýr oddviti framsóknarmanna í Reykjavík

Á laugardaginn var valið í efstu sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík til borgarstjórnarkosninganna 29. maí 2010.
Einar Skúlason verður í 1. sæti en hann hlaut 298 atkvæði eða 62% gildra atkvæða. Óskar Bergsson hlaut 182 atkvæði eða 38%. Auðir og ógildir seðlar voru 8.
Röð listans í fyrstu tólf sæti í kosningunum var þessi:

1.  Einar Skúlason, BA stjórnmálafræði og MBA
2.  Guðrún Valdimarsdóttir, hagfræðingur
3.  Valgerður Sveinsdóttir, lyfjafræðingur
4.  Zakaria Elias Anbari, þjálfari
5.  Ingvar Mar Jónsson, flugstjóri
6.  Kristín Helga Magnúsdóttir, verkfræðinemi
7.  Einar Örn Ævarsson, viðskiptafræðingur
8.  Þórir Ingþórsson, viðskiptafræðingur
9.  Sigurjón Kjærnested, verkfræðinemi
10. Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri
11. Þuríður Bernódusdóttir, þjónustufulltrúi
12. Agnar Bragi Bragason, laganemi

26.nóvember
Listaverk, ljóð og sögur á Gljúfrasteini: 
Spennandi dagskrá á aðventunni 
Það verður nóg um að vera á aðventunni á Gljúfrasteini. Næstkomandi sunnudag 29. nóvember klukkan 14.00 mun Halldór Björn Runólfsson safnstjóri Listasafns Íslands fjalla um verk Svavars Guðnasonar á Gljúfrasteini.
Samhliða verður kynning á nýrri bók Kristínar G. Guðnadóttur listfræðings um Svavar Guðnason.Sama dag klukkan 16.00 koma rithöfundar sér fyrir í stofunni. Þórarinn Eldjárn, Sindri Freysson, Ragna Sigurðardóttir og Kristín Ómarsdóttir ríða á vaðið og lesa úr nýjum verkum. Dagskráin hefst kl. 16:00, aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Nú um aðventuna er í sjötta sinn boðið til upplestra rithöfunda úr nýútgefnum bókum. Aðventuupplestrar hafa verið fastur punktur viðburðaflóru Gljúfrasteins frá opnun haustið 2004 enda andrúmsloftið í stofunni einstakt og tilvalið fyrir slíka andlega næringu í erli komandi vikna. Dagskráin í Heild

23.nóvember
Vígsla nýrrar reiðhallar hjá Hestamannafélaginu Herði
Ný og glæsileg reiðhöll hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ var vígð sl. laugardag. Reiðhöllin er ein sú stærsta á höfuðborgarsvæðinu eða 2400 fermetrar að stærð. Reiðhöllin er byggð með stuðningi Mosfellsbæjar og landbúnaðarráðuneytisins en fjölmargir félagar úr Herði hafa lagt til mikla sjálfboðavinnu svo ljúka mætti við höllina.
Ljóst er að þessi inniaðstaða á eftir að valda straumhvörfum í reiðkennslu barna og unglinga svo og við þjálfun fatlaðra en styrkur landbúnaðarráðuneytisins miðaðist við að aðstaða fyrir þjálfun fatlaðra væri með besta móti í höllinni.
Vígsluhátíðin var öll hin glæsilegasta og félaginu til mikils sóma.

22.nóvember
Ný stjórn Varmársamtakanna

Félagar í Varmársamtökunum kusu nýverið nýja stjórn á fundi í listasal Mosfellsbæjar. Í stað Freyju Lárusdóttur, sem flutt er til Danmerkur, kemur Birgir Þröstur Jóhannsson arkitekt en auk hans tekur Sigrún Guðmundsdóttir líffræðingur sæti í aðalstjórn. Sigrún kemur í stað Ólafs Ragnarssonar en hann tekur sæti í varastjórn. Úr varastjórn gengur Kristín Pálsdóttir.
Í stjórn sitja áfram Kolfinna Baldvinsdóttir, Páll Kristjánsson og Sigrún Pálsdóttir og í varastjórn Gunnlaugur B. Ólafsson. Frá þessu er sagt á heimasíðu samtakanna.

16.nóvember
Vel heppnaður haustfagnaður Framsóknarfélags Mosfellsbæja
Laugardagskvöldið 14 nóvember sl. var árlegur haustfagnaður félagsins haldinn, skemmtiatriði og veislukostur var að vanda í sérflokki.  Heiðursgestur kvöldsins var Vigdís Hauksdóttir alþingmaður og flutti hún stórskemmtilega ræðu.  Veislu stjóri var ný-endurkjörinn formaður félagsins Óðinn Pétur Vigfússon. Tenórarnir tveir litu við og gerðu stormandi lukku.

 

10.nóvember
Aðalfundur Varmársamtakanna
Aðalfundi Varmársamtakanna verður haldinn þriðjudaginn 17. nóvember kl. 19.30 í listasal Mosfellsbæjar í Kjarna. Fundurinn hefst á venjulegum aðalfundarstörfum þar sem m.a. verða lagðir fram reikningar og kosið í nýja stjórn samtakanna. Í framhaldi af aðalfundi verða flutt erindi um áhugaverð málefni og verður sú dagskrá auglýst innan tíðar.

8.nóvember
Ummæli vikunnar
Vigdís Hauksdóttir á ummæli vikunnar að þessu sinni. Sigurður Ingi Jóhannsson átti frumkvæði að umræðum um rafmagnskostnað grænmetisbænda undir liðnum „störf þingsins“ á þingfundi þann 3. nóvember. Nokkrir þingmenn tóku til máls um málið áður en kom að Vigdísi, en hér á eftir fer hluti ræðu hennar:  
„Það er orðið tímabært að vekja athygli á rafmagnsmálum garðyrkjubænda. Nú hafa stjórnarliðar talað hér og svarað fyrir þetta og það er eins og gerist ætíð, það er eins og þeir séu ekki sjálfir í ríkisstjórn. Samfylkingin hefur setið í ríkisstjórn í tæp þrjú ár, Vinstri grænir í tæpt ár og þeir tala hér alltaf eins og stjórnarandstæðingar.  Þið eruð með það vald í ykkar höndum að gera eitthvað í þessum málefnum garðyrkjunnar. Það var á stefnuskrá Vinstri grænna fyrir kosningar að hér yrði gerðar róttækar breytingar á rafmagnsmálum garðyrkjubænda — og það er ekkert búið að gera. Þið verðið að bera ábyrgðina á þessu atriði, aðilar þessara flokka sem sitja hér í ríkisstjórn. Það er mjög óábyrgt að koma hér og tala með þessum hætti eins og það sé jafnvel á ábyrgð stjórnarandstöðunnar að hér sé ekkert gert.“
Hægt er að ná umræðunum í heild með því að smella á þennan tengil: http://www.althingi.is/altext/138/f018.sgml

6.nóvember
Haustfagnaður Framsóknarfélags Mosfellsbæjar

Laugardagskvöldið 14.nóvember verður haldinn hinn árlegi haustfagnaður Framsóknarfélagins í  sal félagsins  að

Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar

6.nóvember
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn í sal félagsins að
Háholti 14, laugardaginn 14. nóvember kl. 10,00

Dagskrá:
Skýrsla stjórnar.
Reikningar félagsins.
Kosningar
Formann félagsins
Fjóra aðalmenn í stjórn og tvo til vara
Tvo skoðunarmenn reikninga
Önnur mál

5.nóvember
Fjölskylduguðsþjónusta 8. nóvember í Lágafellskirkju
Sunnudaginn 8. nóvember kl. 11:00 er fjölskylduguðsþjónusta í Lágafellskirkju. Fermingarbörnin Ólafur, Þórhildur, Íris Una og Andrea aðstoða við bænagjörð. Lestur ritningartexta er í höndum Jónínu Sigurgeirsdóttur og Svavars Kristinssonar. Prestur er sr. Ragnheiður Jónsdóttir. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur og Organisti er Jónas Þórir.
Sunnudagaskóli er kl. 13:00. Barnakór Lágafellskirkju kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Berglindar Björgúlfsdóttur. Umsjón með sunnudagaskóla hafa Hreiðar Örn, Jónas Þórir og Arndís Linn. Allir velkomnir!

3.nóvember
Opinn fundur verður haldinn með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni,


2.nóvember
Fjármálaeftirlitið sektar Mosfellsbæ!
Fimm sveitar- og bæjarfélög og tvö hlutafélög sektuð af FME

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sektað fimm sveitar- og bæjarfélög og tvö hlutafélög vegna brota gegn lögum um verðbréfaviðskipti. Í öllum tilvikum er um að ræða að viðkomandi skilaði listum yfir frumherja og fjárhagslega tengda aðila mörgum mánuðum of seint.
Sveitarfélögin sem hér um ræðir eru Norðurþing, Mosfellsbær, Ísafjarðarbær, Fljótdalshérað og Fjarðarbyggð. Hlutafélögin eru CCP hf. og Hekla fasteignir hf. Tekið er fram í úrskurðinum um síðasta félagið að það er ótengt bílasölunni Heklu.
Sektirnar sem hér um ræður eru á bilinu 350.000 til 650.000 kr. Sú lægsta var hjá Mosfellsbæ en sú hæsta hjá Ísafjarðarbæ.
Á vefsíðu FME segir að fyrrgreindir aðilar hafi sem útgefandi skráðra skuldabréfa brotið gegn lögum um verðbréfaviðskipti með því að hafa skilað listum yfir fruminnherja og aðila fjárhagslega tengda fruminnherjum mörgum mánuðum of seint til Fjármálaeftirlitsins.
Í lögunum er kveðið á um skyldu útgefenda til að senda Fjármálaeftirlitinu, í því formi sem
eftirlitið ákveður, upplýsingar um fruminnherja, tímabundna innherja og aðila fjárhagslega tengda
innherjum. Endurskoðaðan lista yfir innherja skal senda Fjármálaeftirlitinu eigi sjaldnar en á sex
mánaða fresti.
Frá þessu segir á visir.is


30.október

Sigmundur á siglingu

Tæp fimmtán prósent landsmanna treysta Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, best til að leiða þjóðina út úr kreppunni. Þetta kemur fram í könnun sem Viðskiptablaðið birtir í dag og unnin var af markaðsrannsóknarfyrirtækinu MMR.  Fyrir ofan hann eru Davíð Oddsson, Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur J. Sigfússon, en öll eiga þau áratuga feril að baki í stjórnmálum.  Stjórnmálaferill Sigmundar Davíðs spannar hins vegar innan við ár!

Bjarni Benediktsson, formaður þess stjórnmálaflokks sem mælist með mest fylgi um þessar mundir, kemur næstur á eftir Sigmundi Davíð með 11,5% og þar fyrir neðan eru m.a. þeir Gylfi Arnbjörnsson og Vilhjálmur Egilsson.

29.október
Fréttir frá SUF - Jólakort SUF

Samband ungra framsóknarmanna hefur látið framleiða jólakort í fjáröflunarskyni. Kortin prýða hugljúfar teikningar sem ættu að geta yljað hverju hjarta um jólin. Eru þau seld 10 stk í pakka ásamt umslögum og kostar pakkningin 1.000 kr.
Hægt er að nálgast kortin á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hverfisgötu 33, sími 540 4300 eða senda tölvupóst á suf@suf.is. Möguleiki er að fá kortin send heim að viðbættum 250 kr sendingakostnaði. Einnig er hægt að kaupa þau hjá fulltrúum SUF sem koma til með að mæta á flesta viðburði á vegum flokksins sem framundan eru í nóvember. 

23.október
Undirbúningur jólanna hafinn hjá Menningamálanefnd

Staðfest var á fundi bæjarstjórnar sú ákvörðun Menningamálanefndar að kveikt verið á jólatré bæjarins á miðbæjarsvæðinu laugardaginn 28.nóvember n.k. sem jafnfram er fyrsti sunnudagur í aðventu.
Aðventutónleikar verða með hefðbundnum hætti og fara fram þann 15.desember og þá verður Jólaballið haldið þriðjudaginn 29.desember.

 

22.október
Ummæli vikunnar

Ummæli vikunnar á Gunnar Bragi Sveinsson, formaður þingflokks framsóknarmanna og þingmaður Norðvesturkjördæmis. Hann lét þau falla um persónukjör í umræðu um störf þingsins á miðvikudaginn.

 „Málið er í sjálfu sér mjög gott, ég held að það sé mjög mikilvægt að þessi umræða fari fram og að málið fari á endanum í gegnum þingið. Það þarf hins vegar að vanda það mjög vel, það þarf að vanda alla umræðu um þetta og það þarf líka að standa þannig að málinu að vel sé hægt að koma því í framkvæmd og með eðlilegum fyrirvara. Mín skoðun er sú að það eigi að taka af skarið með að segja að það sé of stuttur tími til að láta á þetta reyna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Ég veit nefnilega líka að mjög margar sveitarstjórnir hafa miklar áhyggjur af því hvernig eigi að útfæra þetta á þessum tíma. Ég segi ekki að þetta mál eigi ekki að ná fram að ganga en ég held að það sé illa gert gagnvart sveitarstjórnarstiginu í raun að gera þessa tilraun á því núna. Ef menn koma með útfærða lausn sem hægt er að vinna á stuttum tíma skoðum við það auðvitað en ég held að sé hreinlegra og betra fyrir alla að segja að málið haldi áfram innan þingsins, það verði búin til lög og reglur um það hvernig eigi að standa að persónukjöri og síðan verði látið á það reyna hvernig virknin og annað er á réttum tíma. Við skulum ekki gera þetta í einhverjum flaustursskap.“

18.október
Sjálfstæðismenn í prófkjör
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Mosfellsbæ ákvað á fundi sínum s.l. þriðjudag að efna til prófkjörs fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara í maí. Gert er ráð fyrir því að prófkjörið fari fram í lok janúar eða byrjun febrúar en skipa á kjörnefnd sem tekur endanlega ákvörðun um dagsetningu og fyrirkomulag prófkjörs.
Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri hefur lýst því yfir að hann gefi kost á sér í 1. sæti listans. Jafnframt hafa bæjarfulltrúarnir, Herdís Sigurjónsdóttir og Hafsteinn Pálsson sem og nokkrir varabæjarfulltrúar lýst því yfir að þau muni gefa kost á sér til áframhaldandi setu.
Frá þessu er skýrt á heimasíðu sjálfstæðisflokksins.

17.október
Fámennt skipulagsþing

Fámennt var á annars ágætu skipulagsþingi sl. laugardag sem skipulagsnefnd boðaði til. Aðeins voru mættir tæplega 40 manns og langflestir annaðhvort pólitískt tengdir eða starfsmenn bæjarfélagsins. Sárlega vantaði fulltrúa almenna íbúa á þingið.
Þingið sem var mjög vel skipulagt og stjórnað af röggsemi var því lítið annað en spegilmynd af pólitískri sýn fjórflokkana í Mosfellsbæ.


15.október
Mosfellsbær býður íbúum til Skipulagsþings.

Þingstaður Lágafellsskóli laugardaginn 17. október kl 9.30 – 13.00
Á þinginu verður fjallað um skipulagsmálin í bænum með sérstöku tilliti til endurskoðunar aðalskipulags, sem nú stendur yfir. Tilgangurinn er að leita eftir skoðunum og hugmyndum íbúa og hafa þær til hliðsjónar við endurskoðunina.

Dagskrá:
9:00 Morgunkaffi
9:30 Inngangur og kynning
9:50 Mat þátttakenda á mikilvægustu
þáttum skipulagsmála
10:50 Kaffihlé
11:00 Hópavinna
12:30 Samantekt

9.október
Sveltur sitjandi kráka fljúgandi fær

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum, þá eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins og Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður Framsóknar og fulltrúi í fjárlaganefnd Alþingis staddir í Osló í viðræðum við norska stjórnmála- og embættismenn um stöðu efnahagsmála á Íslandi.

Ferð Sigmundar Davíðs og Höskuldar til Noregs hefur gengið með miklum ágætum. Gærdagurinn var notaður til að undirbúa fundarhöld dagsins og voru félagar okkar í norska Miðflokknum boðnir og búnir að aðstoða, þrátt fyrir að hafa verið að mynda ríkisstjórn nóttina á undan. Nú þegar hafa Höskuldur og Sigmundur hitt nánast alla þingmenn Miðflokksins, þar með talda ráðherra. Einnig hafa þeir gengið á fund fulltrúa Sósíalíska Vinstriflokksins (Vinstri-grænna) í fjárlaganefnd og gekk sá fundur afar vel. Ráðgerður er fundur með formanni fjárlaganefndar og einnig með fulltrúa frá norska seðlabankanum ásamt nokkrum öðrum fundum. Að sjálfsögðu er alls óvíst hvað kemur að lokum út úr heimsókninni, en svo mikið er víst, að sveltur sitjandi kráka, en fljúgandi fær.

9.október

Er lognið að flýta sér í Mosfellsbæ?
Óveður á Kjalarnesi!

snælduvitlaust veður er í Mosfellsbæ og á  Kjalarnesi og þangað ætti enginn að leggja leið sína á meðan svo er.  Björgunarsveitarmenn í  Kili hefur verið upptekin við muna menn þar ekki eftir öðru eins annríki við björgunarstörf. Útköllin hafa verið vegna foks á þakplötum, lausamunum og fleiru. Þá hefur fokið grjót á bíla og rúður í þeim brotnað.

7.október
Loftorka átti lægsta tilboðið í undirgöng
Undirgöngin eiga eftir að auka umferðaröryggi við Grundarhverfi á Kjalarnesi
Tilboð voru opnuð í gær hjá Vegagerðinni í gerð undirganga við Grundarhverfi á Kjalarnesi. Um er að ræða gerð stálbogaundirganga undir hringveginn ásamt lagningu göngustíga við göngin að Klébergsskóla.
Lægsta tilboðið var frá Loftorku ehf., rúmar 35 milljónir. Hæsta tilboð átti Kraftlind ehf., 58,3 milljónir. Áætlaður verktakakostnaður var tæpar 44 milljónir.
Umferð skal vera kominn á hringveginn að nýju 15. desember nk. og verkinu á að vera að fullu lokið 1. maí 2010. frá þessu var sagt á mbl.is


3.október

Mosfellsbær, PrimaCare og Ístak rita undir viljayfirlýsingu
Mosfellsbær, Primacare ehf og Ístak undirrituðu á föstudaginn viljayfirlýsingu um byggingu einkasjúkrahúss og hótels í Mosfellsbæ sem mun sérhæfa síg í mjaðmaliða- og hnjáaðgerðum fyrir útlendinga. Um er að ræða allt að 20-30 þúsund fermetra byggingu og munu skapast 600-1000 störf í bæjarfélaginu. Gert er ráð fyrir að verkefnið kosti 13-20 milljarða króna en fjármögnun þess er í höndum svissneska fjármögnunarfyrirtækis, Opperheimer Investments AG. 
Samkvæmt áætlunum fyrirtækisins er gert ráð fyrir að fyrstu sjúklingarnir verði komnir í aðgerð í lok árs 2011.

2.október
Bæjarráð tekur fyrir erindi Varmársamtakanna

Varmarsamtökin kvarta undan ósæmilegum skrifum Karls Tómassonar forseta bæjarstjórnar.

Bæjarráð Mosfellsbæjar tók fyrir erindi Varmarsamtakanna þar sem samtökin kvörtuðu undan ósæmilegum skrifum Karls Tómassonar forseta bæjarstjórnar á bloggsíðu sinni. En þar hefur að sögn Varmársamtakanna forsetinn farið mikinn í því m.a. að níða niður samtökin og pólitíska andstæðinga.
Bæjarráð fjallaði um máið á 951.fundi sínum og komst að eftirfarandi niðurstöðu
“Þar sem það er ekki á valdsviði bæjarstjórnar Mosfellsbæjar að fjalla um erindið er því vísað frá stjórnsýslu bæjarins.”
Gera má ráð fyrir að ofangreind niðurstaða sé m.a. vegna þess að bæjarstjórn getur ekki vítt bæjarfulltrúa nema þeir gerist brotlegir í starfi með athöfnum sínum. Lesa má meira um málið inná heimasíðu Varmársamtakanna
http://varmarsamtokin.blog.is/blog/varmarsamtokin/.

 

1.október
Kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi
Kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi verður haldið í Hafnarfirði laugardaginn 24. október kl. 11.00. Þingið fer fram í safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Nánari upplýsingar um dagskrá þingsins verða birtar síðar en gert er ráð fyrir að þingið standi til kl. 17 eða 18.

1.október
Ummæli vikunnar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins á ummæli vikunnar að þessu sinni. Í fréttum í vikunni kom fram að Per Olav Lundteigen þingmaður Miðflokksins í Noregi, sem er systurflokkur Framsóknar, er tilbúinn að hafa milligöngu um lán að upphæð rúmlega 2000 milljarðar íslenskra króna.  Sigmundur Davíð tjáði sig um þennan möguleika í tíufréttum RÚV í gærkvöldi:
„Þetta væri lang æskilegasta niðurstaðan og í rauninni held ég að við þurfum nú ekki alla þessa upphæð en ef þetta er lánalínan þá gerir það miklu meira en að nægja okkur. Það myndi leysa fjölmörg vandamál og til að mynda gætum við þá þakkað Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir komuna og losnað við hann og allar þær kvaðir sem honum fylgja. Jafnframt myndi þetta að sjálfsögðu styrkja stöðu okkur hvað Icesave málið varðar ef að raunverulega er verið að blanda Alþjóðagjaldeyrissjóðnum stöðugt inn í það. Svoleiðis að þetta leysir ýmis mál.“

 

30.september
Nýr formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur 
Guðmundur Gíslason sölumaður hlaut yfirburðakosningu í kjöri til formanns Framsóknarfélags Reykjavíkur í gærkvöldi. Hann fékk 36 atkvæði, en mótframbjóðandi hans, Björn S. Lárusson, 15 atkvæði. Guðlaugur Sverrisson fráfarandi formaður gaf ekki kost á sér til endurkjörs.

 

 

28.september
Mikill áhugi á hundarækt
Hundasýning í reiðhöll Fáks í Víðidal

Helgina 3.- 4. október mæta yfir 750 hreinræktaðir hundar af yfir 80 hundakynjum í dóm á hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands. Sýningar félagsins hafa stækkað ár frá ári sem endurspeglar mikinn áhuga Íslendinga á hundum og hreinræktun þeirra.  Megintilgangur hundasýninga er að meta hundana út frá ræktunarmarkmiði hvers kyns og leiðbeina ræktendum þannig í starfi sínu. 
Sýningin verður haldin í reiðhöllinni í Víðidal og hefjast dómar kl. 9:00 árdegis báða daga og standa fram eftir degi. Fimm dómarar frá þremur löndum, Belgíu, Danmörku og Írlandi dæma í fimm sýningarhringjum samtímis. Úrslit á sunnudegi hefjast upp úr kl. 14:00 og kemur þá í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara. Á laugardag verða heiðraðir stigahæsti hundur og öldungur ársins ásamt afreks- og þjónustuhundi ársins 2009.

 

 

17.september
Ummæli vikunnar
Vigdís Hauksdóttir alþm. og fulltrúi Framsóknar í allsherjarnefnd á ummæli vikunnar að þessu sinni. Hún fór fram á fund í nefndinni vegna ástands í fangelsismálum eins og kemur fram í annarri frétt hér í fréttabréfinu.
Í viðtali við Fréttablaðið í vikunni sagði hún m.a. eftirfarandi:  

„Að láta dæmda brotamenn bíða eftir að geta afplánað refsingu svo árum skiptir, er ekkert annað en mannréttindabrot."

Formaður nefndarinnar féllst á beiðni Vigdísar og stóð til að halda fund um málið í lok vikunnar. Í millitíðinni steig dómsmálaráðherra fram og sagði að húsnæði yrði tekið til leigu á næstunni til að fjölga rýmum fyrir fanga. Málið er því komið í farveg og ástæða til að hrósa Vigdísi fyrir skeleggan málflutning í vikunni í þessu máli.  


13.september
Bryndís endurkjörin formaður SUF
Á 35. sambandsþingi SUF sem fram fór í Mosfellsbæ um helgina var Bryndís Gunnlaugsdóttir endurkjörin formaður sambandsins. Bryndís var ein í kjöri og er þriðja konan sem gegnir formennsku í sambandinu, á eftir Siv Friðleifsdóttur og Dagnýju Jónsdóttur. Hún tók við sem formaður á 34. sambandsþingi sem fram fór á Hótel Heklu 7.-8. júní 2008. Bryndís er 28. ára lögfræðingur, fædd og uppalin í Grindavík. 
Bryndís Gunnlaugsdóttir er barnabarn Hreins í Helgadal og þess vegna að nokkru leyti Mosfellingur.


11.september
Bæjarstjórn samþykkir hækkanir.

Á fundi bæjarstjórnar 9.september sl. samþykkti meirihluti bæjarstjórnar hækkun á gjaldskrá mötuneyta í grunn- og leikskólum og gjaldskrá Listaskóla haustið 2009 en hækkanirnar eru á bilinu 3,5% til 5,5% . 
Hækkunin er mest eða 5,5% fyrir grunnskóla- mötuneyti og frístundarsel en 3,5% fyrir gjaldskrá listaskóla og leikskóla
Hækkanirnar voru samþykktar með sex atkvæðum. 


4.september
Ummæli vikunnar

Gestur Guðjónsson á ummæli vikunnar. Hann setti þau fram í pistli á vefsíðu sinni og umfjöllunarefnið var sala Orkuveitu Reykjavíkur á hlut sínum í HS orku til Magma.

Ummælin eru eftirfarandi: “Steingrímur J veit sem er að það er vita vonlaust fyrir ríkið að leggja pening í svona verkefni núna, hver ætti að lána ríkinu fyrir slíkum fjárfestingum, auk þess sem hann hefur ekki stuðning Samfylkingarinnar í sinni vegferð, en fulltrúar hennar, þar á meðal iðnaðarráðherra hafa sagt málið allt hið besta. Steingrímur J hefur einfaldlega mislesið eigin flokk og er að reyna að ganga í augun á honum með ómerkilegum hráskinnaleik, sem er honum til mikillar minnkunar.”

4.september
Bæjarstjóri Seltjarnarnes lækkaði laun sín
DV.is sagði frá því í dag að laun Ásgerðar Halldórsdóttur, bæjarstjóra Seltjarnarnesbæjar, hafa verið lækkuð um 100 þúsund krónur að kröfu hennar sjálfrar. Ástæða þessarar kröfu Ásgerðar er sú að henni fannst hún þurfa að axla sína ábyrgð í því erfiða efnahagsárferði sem nú ríkir. Skemmst er að minnast umræðu um laun bæjarstjórans í Mosfellsbæ en hann er sagður þriðji hæst launaðasti bæjarstjórinn. Nú vilja kjósendur væntanlega vita hvað ætlar hann að gera í launamálum sínum? Mun bæjarstjórinn krefjast lækkun launa? 

2.september

Rjúkandi heitur málefnafundur laugardaginn 5. sept. frá 11-13
Málefnafundur verður haldinn í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu 33 laugardaginn 5. september frá 11-13.
Efni fundarins eru ályktanir um velferð, mannréttindi og lýðræði sem leggja á fyrir Sambandsþing SUF 12. -13. september n.k. Þetta er þitt tækifæri til þess að hafa bein áhrif á mikilvægar ályktanir og taka þátt í góðri umræðu og léttu spjalli til að hita upp fyrir Sambandsþingið.

Allir velkomnir!
Hlökkum til að sjá þig og lofum að rjúkandi heitt verður á könnunni! J

Kær kveðja,
Kristbjörg Þórisdóttir og Einar Gísli Gunnarsson hópstjórar hóps 4.

31.ágúst
Ummæli vikunnar

Ummæli vikunnar koma að þessu sinni úr nefndaráliti því sem Höskuldur Þórhallsson fulltrúi þingflokks Framsóknar í fjárlaganefnd lagði fram á þingi í dag, sem 2. minnihluti nefndarinnar.

Ummæli vikunnar eru lokaorðin í skjalinu:
„Þegar litið er á málið í heild sinni er ljóst að hagsmunum Íslendinga hefði verið betur borgið ef staðið hefði verið á þeim rétti sem hún nýtur sem fullvalda þjóð. Þá er ljóst að skynsamlegast hefði verið að leggja samningana til hliðar og freista þess að ná fram sanngjörnum samningum við Breta og Hollendinga þar sem réttarstaða Íslands yrði ekki fyrir borð borin. Að þeirri tillögu felldri og að því gefnu að ekki verði tekið tillit til breytingartillagna 2. minnihluta liggur fyrir að hagsmunum þjóðarinnar er ekki nægilega vel borgið með samþykkt þessa frumvarps. Leggur 2. minni hluti því til að frumvarpið verði fellt.“


30. ágúst
14. landsþing LFK
Landsþing Landssambands framsóknarkvenna, laugardaginn 26. september 2009, í Framsóknarhúsinu að Hverfisgötu 33 í Reykjavík.
Dagskrá:
 
Þingið hefst kl: 10.00
1.  Þingsetning. Kosning starfsmanna þingsins.
2.  Skýrsla stjórnar og reikningar lagðir fram – umræður.
3.  Ávörp gesta.
4.  Erindi: Siðferði í stjórnmálum og viðskiptum. Fyrirlesari Stefán Einar Stefánsson siðfræðingur – umræður.
- Hádegisverður -  Súpa og brauð kr. 500,-
5.  Ályktanir lagðar fram – umræður.
6.  Stjórnarkjör.
7.  Önnur mál.
8.  Þingslit.
 
Uppstillingarnefnd landssambandsins hefur tekið til starfa en þar eru í forsvari: Þuríður Jónsdóttir, thuridur@verslo.is og thura@itn.is, og Svafa Hinriksdóttir, berger27@gmail.com. Konur eru hvattar til að bjóða sig fram í trúnaðarstöður fyrir Landssamband framsóknarkvenna, í stjórn, varastjórn, landsstjórn eða sem endurskoðendur reikninga. Senda þarf framboð á netföng uppstillingarnefndar fyrir 16. september nk. eða 10 dögum fyrir landsþing.


7.júní
Ummæli vikunnar
Ummæli vikunnar á hæstvirtur fjármálaráðherra. Á miðvikudegi svarar hann spurningu Sigmundar Davíðs á Alþingi um stöðu Icesave-deilunnar og fullyrðir að ekki séu formlegar samningaviðræður við bresk og hollensk stjórnvöld um lyktir deilunnar. Á föstudagsmorgni eru drög að samningi við umræddar þjóðir kynnt utanríkismálanefnd og þingflokkum.
Ummælin fara hér:
„Fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):  Frú forseti. Eins og þingmönnum er kunnugt var afgreidd ályktun um það á þingi þar sem stjórnvöldum var falið það verkefni að ræða við bresk og hollensk stjórnvöld um lyktir þessarar deilu og síðan hefur með reglubundnum hætti verið skýrt frá því hvað aðhafst hefur verið í þeim efnum og m.a. utanríkismálanefnd verið haldið upplýstri um það. Viðræður eða þreifingar milli aðila hafa gengið hægar en ætlunin var, m.a. vegna þess að Bretar hafa ítrekað óskað eftir frestun á fundum sem fyrirhugaðir voru. Það er verið að reyna að koma í gang formlegum samningaviðræðum en þær eru ekki hafnar heldur eru könnunarþreifingar eða könnunarviðræður í gangi. Ég held að ég geti fullvissað hv. þingmann um að það standi ekki til að ganga frá einhverju samkomulagi á morgun eða einhverja næstu daga og áður en til slíks kæmi yrði að sjálfsögðu haft samráð við utanríkismálanefnd og aðra þá aðila sem þingið hefur haft til að fylgjast með framvindu þessara mála. Staða málsins er sú að það eru könnunarviðræður eða könnunarþreifingar í gangi.“

4.júní
Tónskáld og sellóleikari á Gljúfrasteini
Stofutónleikaröð Gljúfrasteins hefst sunnudaginn 7. júní kl. 16:00 en þá mun Chrichan Larson sellóleikari og tónskáld koma sér fyrir í stofu nóbelsskáldsins og leika verk eftir Bach og Zimmermann. Aðgangseyrir er aðeins 500 krónur og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Chrichan Larson starfar sem sellóleikari og tónskáld. Hann lærði í Stokkhólmi en einnig í Basel í Sviss og París, þar sem hann varð síðar meðlimur í Ensemble InterContemporain (EIC). Starf hans í EIC og samvinnan með stjórnanda þess hóps, Pierre Boulez, hafði mikil áhrif á Chrichan, jafnt sem tónlistarmann og tónskáld.
Chrichan hefur áður haldið tónleika á Íslandi. Það var sumarið 1982, en þá lék hann í Norræna húsinu ásamt bróður sínum, Staffan Larson fiðluleikara og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur, píanóleikara.
Stofutónleikar Gljúfrasteins verða alla sunnudaga í sumar kl.16, nánar má lesa um dagskrána hér. Gljúfrasteinn er opinn alla daga í sumar frá kl. 9–17

30.maí
Ummæli maí mánaðar.....
Ummæli sl. mánaðar  falla í skaut félags- og tryggingamálaráðherra Árna Páls Árnasonar, sem hann lét falla í viðtali við Fréttablaðið laugardaginn 23. maí.
Í viðtalinu sagði hinn nýbakaði ráðherra orðrétt:
„Blessunarlega er það ekki þannig að þorri heimila geti ekki staðið í skilum þótt skuldabyrði hafi aukist. Ef þú horfir á verðtryggðu lánin, þá er næstum enginn að verða fyrir meiri hækkun afborgana en sem nemur fimmtíu þúsund krónum.“
Það er merkilegt að ráðherranum þyki það ekki stórmál að heimilin þurfti að greiða fimmtíu þúsund krónum hærri afborganir á mánuði en þau þurftu að gera fyrir hrunið. Þessi ummæli eru til marks um þær skýjaborgir sem sumir ráðherrar ríkisstjórnarinnar virðast hafa búið um sig í og hafa um leið misst tengslin við venjulegt fólk sem er að sligast undan aukinni greiðslubyrði og auknu atvinnuleysi.
Eflaust er þess ekki langt að bíða að mótmæli fari aftur af stað á Austurvelli, ekki síst vegna skorts á skilningi hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar á aðstæðum almennings.

29.maí
Sérlega óvinsælar og ósanngjarnar aðgerðir ríkistjórnarinnar!
Almenningur borgar 12 milljarða þegar tekið er tillit til vísitöluhækkana!
Gjöld hækka á áfengi, tóbak, bensín og olíu samkvæmt frumvarp Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Gjöld á áfengi og tóbak hækka um 15%, bensíngjald hækkar um 10 krónur á lítrann en olíugjaldið um fimm krónur. Þá hækka bifreiðagjöld um 10%. Áætlað er að þetta skili 4,4 milljörðum í ríkissjóð á ári. Áhrif skattahækkana geta leitt til frekari erfiðleika heimilanna og enn frekari samdráttar í þjóðfélaginu sem aftur leiðir til  minnkandi tekna ríkissjóðs og sveitarfélaga þar með bítur aðgerðin í skottið á sjálfri sér!.

28.maí
Ársreikningur 2008 samþykkur
Mikil frávik frá áætlun ársins
var einkennandi fyrir reikninginn.

Rekstrar- og fjárhagsáætlun A og B hluta Mosfellsbæjar fyrir árið 2008 gerði ráð fyrir rekstrarafgangi eftir fjármagnsliði upp á 736 millj. Hinsvegar varð niðurstaða ársreiknings  neikvæð um 168 millj.
Seinni umræða um ársreikning 2008 var til umræðu í bæjarstjórn á 513. fundi.  
Hér er bókun fulltrúa B-lista vegna ársreiknings Mosfellsbæjar árið 2008:
Bókunin......


27.maí
Há leikskólagjöld í Mosfellsbæ.
Gjaldskrá leikskóla umtalsvert dýrari í Mosfellsbæ en í Reykjavík.

Þegar bornar eru saman gjaldskrár leikskólanna í Reykjavík og Mosfellsbæ kemur eitt og annað ótrúlegt í ljós. Það er u.þ.b. 5000,-kr dýrara á mánuði  fyrir hjón að vera með barn á leikskóla í Mosfellsbæ en í Reykjavík eða 55þúsund á ári ef reiknað er með því að barnið sé 11 mánuði í leikskóla og mánuð í frí með foreldrum. Ef hinsvegar annað foreldrið er í námi lækkar gjaldið í Reykjavík í kr. 16799,- og þá er munurinn kr. 95þúsund ef árið er tekið saman.
Þegar barn í Mosfellsbæ hefur verið í leikskóla í Mosfellsbæ frá 2ára aldri til fimmára aldurs eru foreldrar þess búnir að greiða fyrir “fría vistun 5.ára" ef borið er saman við Reykjavík. 

Taka verður fram að samanburðurinn nær eingöngu til verðs en ekki þeirrar þjónustu sem veitt er. 
Gjaldskrá Mosfellsbæjar: http://www.mos.is/Files/Skra_0033624.pdf     Gjaldskrá Reykjavíkur: http://www.rvk.is/Portaldata/1/Resources/leikskolasvid/gjaldskrar/n_gjaldskra_LR_010108.pdf

18.apríl
Allt um20% leiðrétting

Þið talið um að það sé eðlismunur en ekki stigsmunur á því að afskrifa skuldir í eðlilegu árferði og núna. Í hverju felst sá munur? Í fyrsta lagi mun afskriftin fækka þeim sem fara í þrot. Í öðru lagi skiptir máli að fólk geti greitt af lánunum sínum, þó það sé minna en gert...

17.apríl
Annað tölublað Tímans komið út!
Dagblaðið Tíminn var um áratugaskeið gefinn út af Framsóknarflokknum og verður nú gefinn út nokkrum sinnum í aðdraganda kosninga. Fyrsta blaðinu var dreift með Fréttablaðinu sl. laugardag. Nú er annað tölublað komið út og verður dreift með Fréttablaðinu í dag og með pósti til þeirra sem ekki fá Fréttablaðið reglulega. Blaðið verður einnig aðgengilegt hér á heimasíðu flokksins.
Meðal efnis eru fréttaskýring um atvinnumál, kynning á frambjóðendum, upplýsingar um viðburði framundan, auk greina eftir frambjóðendur og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, Ingibjörgu Pálmadóttur.


16.apríl
Bæjarstjórn styrkir efnileg ungmenni!

Bæjarstjórn ákvað á síðasta fundi sínum að samþykka tillögu íþrótta-og tómsstundanefndar um að styrkja eftirtalin ungmenni sumarið 2009 með þeim hætti að styrkþegar fái sambærilegan vinnutíma og laun og öðrum unglingum í Vinnuskóla og ungmennum í sumarvinnu stendur til boða. 
Lára Kristín Pedersen, Kristrún Halla Gylfadóttir, Sigríður Þóra Birgisdóttir og Alda Snorradóttir til að iðka knattspyrnu.  Sævar Baldur Lúðvíksson til að iðka skylmingar.  Arnar Logi Lúthersson til að iðka hestaíþróttir.  Ragnheiður Erla Björnsdóttir til að stunda söngnám.  Gísli Gylfason til að iðka taekwondo.  Páll Theódórsson til að iðka golf.  Dagný Ágústsdóttir til að iðka badminton.  Halldóra Þóra Birgisdóttir til að iðka knattspyrnu og stunda píanóleik.  Sigrún Jarlsdóttir til að stunda fiðluleik.


20.mars
Opinn fundur með Sigmundi Davíð!

SAMVINNA – SAMSTARF – SAMRÆÐUR
í Framsóknarsalnum 
Meðal annars verður fjallað um efnahagstillögur flokksins og hugmyndir um 20% niðurfellingu skulda kynntar.

Allir velkomnir
Framsóknarfélag Mosfellsbæjar

 

 

19.mars
ASKA Í ÖSKJU – sýning Leirlistarfélags Íslands á duftkerjum.
Laugardaginn 21. mars kl. 14.00 er opnun sýningar Leirlistarfélags Íslands í Listasal Mosfellsbæjar og stendur sýningin til 18. apríl. Sýningin ber heitið Aska Í Öskju og viðfangsefni sýnendanna eru duftker.
Duftker eru ker með ösku fólks eftir bálför. Einn af hverjum fimm Íslendingum láta brenna sig eftir andlát en erlendis er sú tala mun hærri. Meðlimir Leirlistarfélagsins hafa reynt sig við að búa margvíslegar útgáfur af duftkerum og er sjón sögu ríkari. Á sýningunni eru bæði duftker fyrir fólk og gæludýr. Þeir leirlistamenn sem taka þátt í sýningunni eru, Anna S. Hróðmarsdóttir, Bjarnheiður Jóhannsóttir, Bjarni Sigurðsson, Erna Jónsdóttir, Guðrún Indriðadóttir, Hafdís Brandsdóttir, Halla Ásgeirsdóttir, Dóra Árna, Helga (Gegga) Birgisdóttir, Hrefna Harðardóttir, Inga Elín, Ingibjörg Þ. Klemensdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Ragnheiður Ingunn Ágústsdóttir, Rannveig Tryggvadóttir, Sigríður Ágústsdóttir, Steinunn Marteinsdóttir og Svafa Björg Einarsdóttir.

17.mars
Mikil fjölgun flokksbundinna félaga í Framsóknarflokknum
Frá því um áramót hefur verið mikil fjölgun flokksbundinna félaga í Framsóknarflokknum. Fjölgað hefur í flokknum um 20% á þessum tíma. Nokkrar skýringar eru á þessu miðað við ummæli sem nýir flokksmenn hafa látið í ljósi. Öll forysta flokksins var endurnýjuð á flokksþingi flokksins í janúar. Ljóst er að veruleg endurnýjun er á framboðslistum flokksins sem nýverið hafa verið ákveðnir í prófkjörum og með forvali. Síðast en ekki síst hefur flokkurinn kynnt ítarlega áætlun í efnahagsmálum sem kemur fyrirtækjum og heimilum til góða auk þess sem hún gerir ráð fyrir að greiðslu- og efnahagskerfi landsins verði styrkt. Nú er unnið að stefnumótun á grundvelli samþykkta flokksþings þar sem tekið verður á öðrum brýnum málum svo sem atvinnumálum.

27.febrúar
Framboðsfundur í Framsóknarsalnum kl 20.00 n.k. þriðjudag
Boðað er til framboðsfundar meðal frambjóðenda í 5 efstu sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi til Alþingis vorið 2009.

Fundarefni:
Frambjóðendur kynna sig og stefnumál sín og
fundarmönnum er gefinn kostur á að bera fram spurningar.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta á fundinn.

Allir skráðir félagsmenn (2. mars nk.) sem eiga kosningarétt í kjördæminu geta tekið þátt í prófkjörinu sem fer fram laugardaginn 7. mars nk. kl. 9:00 - 18:00 í Félagsheimili framsóknarmanna við Digranesveg 12 í Kópavogi.    Stjórn KFSV

26.febrúar
Helga Sigrún Harðardóttir sækist eftir 1. sætinu 
Tilkynning til fjölmiðla
SS-12Að vandlega yfirlögðu ráði og fyrir hvatningu og stuðning fjölmargra framsóknarmanna í SV kjördæmi hef ég nú ákveðið að sækjast eftir  1. sæti á lista þeirra í kjördæminu. Byggir sú ákvörðun á eindreginni áskorun grasrótar framsóknarmanna, kalli hennar eftir nýliðun og breytingum á forystu flokksins og er hún jafnframt í samræmi við þær miklu breytingar sem orðið hafa um land allt og einkenna lista framsóknarmanna fyrir komandi alþingiskosningar.  Meira.....


25.febrúar

Faglegum vinnubrögðum í skipulagsmálum hafnað !
Meirihluti Vinstri Grænna og Sjálfstæðismanna í bæjarstjórn hafnaði tillögu um  fagleg vinnubrögð!
 Á 506. fundi bæjarstjórnar bar bæjarfulltrúi Framsóknar bar upp tillögu um að fresta afgreiðslu á deiliskipulagstillögu fyrir tengiveg um Skeiðholt og út í Leirvogstungu þar sem ekki hafði verið gert ráð fyrir fullnægjandi texta um hljóðvarnir í tillögunni en vísa henni þess í stað aftur til skipulags-og byggingarnefndar til faglegrar umfjöllunar. Þessu hafnaði meirihlutinn gegn atkvæðum minnihluta Framsóknarflokks og Samfylkingar.

Meirihlutinn hafnaði tillögunni en lét bóka að í deiliskipulagsskilmálana komi eftirfarandi texti:"Bæjarstjórn lýsir sig reiðubúna að koma til móts við húseigendur þeirra húsa við Skeiðholt, þar sem umferðarhávaði reiknast rétt undir viðmiðunarmörkum, með viðeigandi hávaðavörnum annað hvort í göturýminu, á lóðarmörkum eða við hús”. 

24.febrúar
Mikill áhugi á hundarækt-
Met þátttaka á hundasýningu Hrfí

Helgina 28.febrúar - 1. mars mæta yfir 800 hreinræktaðir hundar af yfir 90 hundakynjum í dóm á hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands. Sýningar félagsins hafa stækkað ár frá ári sem endurspeglar mikinn áhuga Íslendinga á hundum og hreinræktun þeirra.  
Sýningin verður haldin í Reiðhöllinni í Víðidal og hefjast dómar kl. 9:00 árdegis báða daga og standa fram eftir degi. Fimm dómarar frá fimm löndum, Bretlandi, Hollandi, Írlandi, Sviss og Svíþjóð dæma í fimm sýningarhringjum samtímis. Úrslit á sunnudegi hefjast upp úr kl. 14:00 og kemur þá í ljós hvaða hundar bera af að mati dómara.
Í anddyri reiðhallarinnar verða glæsilegir kynningarbásar um ólík hundakyn. 

23.febrúar
Styrktarkvöld á föstudaginn
Mosfellingur og Áslákur efna til styrktarkvölds föstudaginn 27. febrúar þegar nýr og breyttu Áslákur verður opnaður. Safnað er fyrir Rebekku sem var í viðtali í Mosfellingi fyrir nokkru. Hún lenti í hræðilegu slysi á Vesturlandsvegi fyrir sex árum. Rebekka er í dag fjölfötluð með ósjálfráðar hreyfingar og verður það líklega ævistarf hennar að vinna úr afleiðingum þessa slyss. Safnað er fyrir æfingahjóli, sem kostar um 800.000 kr., fyrir áframhaldandi endurhæfingu Rebekku
Allir listamenn sem fram koma gefa vinnu sína og söfnunarbaukar verða á staðnum. Allur ágóði af veitingum á bar fer í styrktarsjóðinn auk þess sem tekið er við frjálsum framlögum.

Frábær tónlistardagskrá sem hefst kl. 20 og stendur fram á nótt. Kynnir er Karl Tómasson forseti bæjarstjórnar.
Meðal flytjenda eru: Karlakór Kjalnesinga, Diddú, Jónas Þórir, Dúettinn Hljómur, Reynir Sig, Hreindís o.fl.
Bæjarrónafélag Mosfellsbæjar verður á staðnum og ýmsir kunnuglegir Mosfellingar afgreiða á barnum.


20.febrúar
Bryndís Bjarnarson býður sig fram í 2. sætið. 
Bryndís Bjarnarson býður sig fram í 2.sætið á lista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar 2009.Bryndís hefur mikla reynslu á vettvangi sveitarstjórnarmála, sat í bæjarstjórn Mosfellsbæjar á árunum 2002-2006 og einnig í nefndum á vegum Mosfellsbæjar frá 1998-2006.
Bryndís Bjarnason er 44 ára  Mosfellingur móðir þriggja barna á aldrinum 14-22 ára. Hún er með BA gráðu í Hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði frá  Háskólanum á Bifröst og er að ljúka meistaranámi í menningarstjórnun við sama skóla. 


16.febrúar
285 atvinnulausir í Mosfellsbæ. 
Fjöldi skráðra atvinnulausra einstaklinga eykst hratt í Mosfellsbæ eins og í öðrum sveitarfélögum.
En lok janúarmánaðar voru 285 atvinnulausir í bæjarfélaginu þar af voru 181 karlmaður og 104 konur en á sama tíma í fyrra voru aðein 46 á atvinnuleysisskrá hjá vinnumálastofnum. Tala atvinnulausra heldur því miður áfram að vaxa en í janúar var atvinnuleysi komið yfir 6,8% á landinu öllu og nú um miðjan febrúar er tala atvinnulausra komin yfir 15000 á en opinberar tölur gera ráð fyrir að 20000 manns geti orðið atvinnulausir með vorinu.

 

14. febrúar
Vel heppnað kjördæmisþing
Laugardaginn 14 febrúar sl. var haldið kjördæmisþing framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi í Lionssalnum í Kópavogi. Mikil og góð mæting var á þingið þar var ákveðið að prófkjör yrði við val á efstu sæta lista Framsóknarflokksins í kjördæminu fyrir komandi alþingiskosningar en prófkjörið verður 7.mars n.k.
Allir þeir sem ganga í flokkinn fram til 2. mars n.k. hafa rétt á að kjósa.
Kjörstaður verður að Digranesvegi 12 í Kópavogi.
Þeir sem búa í s.v kjördæmi og vilja ganga í Framsóknarflokkinn vegna prófkjörsins geta m.a. gert það á heimasíðu flokksins www.framsokn.is

11.febrúar
Opnun sýningar Birtu Guðjónsdóttur í Listasal Mosfellsbæjar
Laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00 – 16.00 opnar Birta Guðjónsdóttir sýninguna auður/hlutfall í Listasal Mosfellsbæjar.
Á sýningunni veltir Birta fyrir sér tengslum mannsins við rúmfræðilega, táknræna og huglæga mælikvarða velgengni, ríkjandi gildismat hvers tíma og manninum sem mælikvarða alls. Hún vinnur með ýmsa miðla, aðallega ljósmyndir. 
Birta hefur unnið jöfnum höndum sem myndlistarmaður og sýningarstjóri frá því að hún lauk námi í myndlist.
Allir velkomnir - aðgangur er ókeypis


5.febrúar
Kjördæmisþing laugardaginn 14 febrúar
Boðað til auka kjördæmisþings framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi. Þingið verður haldið í Lionssalnum Lundi, Auðbrekku 25-27, Kópavogi laugardaginn 14. febrúar nk. kl. 12:30  -  áætluð þingslit eru kl. 14.00
Vinsamlegast athugið að allir félagsmenn Framsóknarflokksins í kjördæminu eiga rétt á að sitja kjördæmisþing með málfrelsi og tillögurétt. Eina mál þingsins er undirbúningur Alþingiskosninganna 25. apríl nk. Þinggjald er kr. 500. 


28.janúar
Þorrablót framsóknarmanna 14. febrúar n.k.
14. feb.n.k. verður þorrablót framsóknarmanna.  Þetta er sameiginlegt blót fyrir félögin á höfuðborgarsvæðinu. Blótið verður haldið í Lionssalnum Lundi í Auðbrekku Kópavogi.
Þeir sem vilja tryggja sér miða geta pantað hann með tölvupósti á
olih@torg.is

 

 

27.janúar
Innbrot í hesthús - tvær konur handteknar
Lögreglan hefur upplýst innbrot í fjölda hesthúsa.
Lögreglan hefur haldlagt yfir þrjátíu hnakka sem stolið var í fjölda innbrota í hesthús á höfuðborgarsvæðinu fyrr í mánuðinum. Í gær voru tvær konur handteknar í þágu rannsóknarinnar og hafa þær báðar játað sök. Tveir aðilar til viðbótar tengjast þessum innbrotum sem eru að mestu upplýst. Þjófunum tókst að selja eitthvað af hnökkum en unnið er að því að endurheimta þá. Það eru lögreglumenn á svæðisstöðinni í Hafnarfirði sem fara með rannsókn málsins.  Ekki liggur fyrir hvort um sé að ræða hnakkarnir sem stolið var úr hesthúsum í Mosfellsbæ.


27.janúar

Heilsuræktarstyrkur starfsfólks felldur niður!
Mikillar óánægju hefur gætt meðal starfsfólks
Mosfellsbær hefur fellt niður heilsuræktarstyrk til starfsfólks en bjóða starfsmönnum nú að fá  áfram endurgjaldslaust árskort í sundlaugar bæjarins og stendur öllum fastráðnum starfsmönnum til boða eftir 4 mánaða starf.  Starfsmönnum bjóðast líka tilboð í líkamsræktarstöðvar bæjarins. 
Mikillar óánægju hefur gætt meðal starfsfólks vegna niðurfellingar heilsuræktarstyrkjanna en niðurfellingin er vegna sparnaðar bæjarstjórnar í ljósið efnahagsástandsins.
Efnt hefur verið til heilsuræktarhátíðar fyrir starfsmenn  n.k. laugardag kl.11 í íþróttamiðstöðinni við Lágafellsskóla þar sem kynning verður á hvað er í boði.

26.janúar
Mosfellsbær hafnar atvinnustarfsemi!
Bæjarráð hefur samþykkt umsögn skipulagsstjóra en hún er neikvæð gagnvart uppbyggingu N1 á lóðum þeirra við Langatanga en félagið hafði í hyggju að  færa út kvíarnar og byggja enn frekar upp smurstöð og viðgerðarþjónustu á óbyggðri lóð sinni á bak við dekkjaverkstæðið. Undrun sætir að félaginu skuli vera hafnað um uppbyggingu á lóðinni  og ekki hvað síst hvað varðar núverandi efnahagsástand. Reikna má með því að u.þ.b. 5-10 framtíðarstörf hefðu skapast auk annarra starfa á framkvæmdartímanum.

 


22.janúar
Framsókn sækir í sig veðrið 
Samkvæmt könnun MMR er Framsókn stærri en Samfylkingin.

Verulega dregur úr fylgi Samfylkingar og stuðningur við Framsóknarflokkinn eykst mikið. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Markaðs- og miðlarannsókna, MMR.
Stuðningur við Framsóknarflokkinn mælist nú 17,2%. Þetta er veruleg breyting frá síðustu könnun þegar rétt um 4,9% sögðust kjósa Framsóknarflokkinn væri gengið til kosninga í nú.
Stuðningur við Samfylkinguna minnkar mikið og fer úr 27,1% í 16,7%. Fylgi Sjálfstæðisflokksins heldur áfram að dala og mælist nú 24,3%. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna mælist nú í fyrsta skipti á kjörtímabilinu undir helmingi, eða 41%.
Vinstri grænir mælast enn stærsti flokkurinn, en 28,5% aðspurðra sögðust kjósa flokkinn væri gengið til kosninga í dag. Fylgi Frjálslyndra mælist nærri óbreytt í 3% og fylgi Íslandshreyfingar 2,2%. Tæp 8% sögðust vilja kjósa aðra stjórnmálaflokka en buðu fram síðast. Fram þessu er sagt á Vísir.is

22.janúar
Sunnudaginn 25. janúar næstkomandi hefst Verk mánaðarins á nýjan leik. Fyrsti gestur ársins er Jón Gnarr og mun hann fjalla um smásöguna og leikritið Dúfnaveisluna. Leikritið er skrifað í kringum samnefnda smásögu sem var prentuð í Sjöstafakverinu árið 1964. Verkið var frumsýnt hjá Leikfélagið Reykjavíkur 1966 og útgefið sama ár. 

Á sunnudaginn mun Jón fjalla um þessi umfjöllunarefni frá eigin brjósti auk þess að segja frá upplifun sinni sem lítill snáði þegar hann hlustaði á upptökur af Dúfnaveislunni af LR-plötu sem var til á ófáum heimilum.
Verk mánaðarins er haldið síðasta sunnudag í mánuði kl. 16:00. Ókeypis er inn á viðburðinn og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. 
Sjá nánar á heimasíðu Gljúfrasteins.


19.janúar
Íþróttafólk ársins 2008
Tveir golfíþróttamenn, Nína Björk Geirsdóttir og Kristján Þór Einarsson, bæði úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ, voru valin íþróttakona og íþróttamaður ársins 2008 í Mosfellsbæ. Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar velur verðlaunahafa eftir tilnefningar frá íþróttafélögum í Mosfellsbæ.
Nína hefur verið einn sigursælasti kvenkylfingur landsins seinustu ár.
Kristján keppti fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í sumar þar sem Kristján lék gott golf. Hann lék einnig á heimsmeistaramótinu í Ástralíu og átti góða spretti þar. Stærsti sigur Kristjáns á árinu var þegar hann landaði Íslandmeistaratitlinum í höggleik á eftirminnilegan hátt.

16.janúar
Mosfellingur velur Mosfelling ársins 2008
Mosfellingur ársins 2008 er athafnamaðurinn og hóteleigandinn Albert Sigurður Rútsson. Á árinu opnaði Albert glæsilegt hótel í Mosfellsbæ, Hótel Laxnes. Alli Rúts, eins og hann er oftast kallaður er landskunnur skemmtikraftur og rak á árum áður eina þekktustu bílasölu landsins. Hótel Laxnes er með glæsilegri byggingum í Mosfellsbæ en hótelið opnaði í byrjun septembermánaðar. Kemur þetta fram í bæjarblaðinu Mosfellingi sem veitir nafnbótina. Hótelið er búið 25 herbergjum og getur tekið á móti allt að 50 næturgestum. Það var Hilmar Gunnarsson ritstjóri Mosfellings sem afhenti Alberti viðurkenninguna.

15.janúar
Lögregla stöðvar kannabisræktun í Mosfellsbæ.
Lögreglan stöðvaði kannabisræktun í húsi við Bjarkarholt í Mosfellsbæ í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Jafnframt var lagt hald á búnað sem tengdist starfseminni sem og fjármuni sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Frá þessu segir á Visir .is

11.janúar
Lambið lék björgunarsveitina Kyndil grátt
Dv.is sagði frá viðureigninni í dag
Lambið lék sér aldeilis að björgunarsveitarmönnunum í Úlfarsfelli í dag og lét þá elta sig á milli kletta í Úlfarsfellinu. Nú hafa björgunarsveitarmenn gefist upp á að klófesta lambið og því ljóst að lambið sigraði þessa baráttu enda ekkert lamb að leika sér við.
Enn er ekki ljóst hver eigandi þessa sjálfstæða lambs er og óvíst hvort að björgunarsveitin muni hætta sér aftur upp á Úlfarsfell til að handsama kindina klóku.



10.janúar
Þjófnaður í Blesabakka Mosfellsbæ
Brotist inn í hesthús
Hnökkum og öðrum reiðtygjum var stolið aðfaranótt laugardags úr hesthúsi við Blesabakka að Varmárbökkum.
Um er að ræða vönduð reiðtygi en nokkuð hefur verið um að brotist er inn í hesthús og þar öllu stolið.  Hesthúseigendur eru í nokkrum vanda því oft skilja þeir eftir lykla eða útbúa útidyr þannig að tiltölulega auðvelt er að brjótast inn ef hætta stafar að hrossunum.  Skemmst er að minnast bruna í hesthúsi en þar tafðist björgunarstarf m.a. vegna læstra hurða.


8.janúar
Opnun sýningar Ásdísar Kalman  Lúmen
10. janúar 2009 - 7. febrúar 2009
Laugardaginn 10. janúar kl. 14.00 – 16.00 opnar Ásdís Kalman sýninguna Lúmen í Listasal
Mosfellsbæjar.
Ásdís hefur verið starfandi myndlistarmaður frá útskrift úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1988. Hún lauk kennslufræði við Listaháskóla Íslands árið 2004 og er nú starfandi listgreinakennari í Ingunnarskóla í Reykjavík. 
Ásdís hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hér á landi, í Frakklandi og í Danmörku.
Á sýningunni í listasalnum getur að líta olíumálverk og eins og nafn sýningarinnar, Lúmen, bendir til er ljós og birta viðfangsefni Ásdísar á þessari sýningu
.

Allir velkomnir - aðgangur er ókeypis


6.janúar

Höskuldur og Páll stóðu sig vel
Frábær fundur með frambjóðendum til formanns Framsóknarflokksins. 
Þeir Páll Magnússon og Höskuldur Þórhallsson stóðu sig mjög vel á fundi Framsóknarfélags Mosfellsbæjar í gærkvöld. Fjölmennt var á fundinum og stemmingin góð.  Var það mál manna  að í raun væri valið milli þeirra mjög erfitt þar sem frammistaða beggja hefði verið hreint frábær.
Þá virtust frambjóðendurnir hafa svipaða sýn á helstu málefni þó var Páll ákveðinn í að Ísland ætti að fara í Evrópubandalagið að uppfylltum ákveðnum skilyrðum en Höskuldur studdi aðildarviðræður en var mun gagnrýnni í garð þess. Báðir frambjóðendur vildu opna flokkinn og auka lýðræði innan hans til muna.

6.janúar
Sýktu hrossin flutt úr hesthúsahverfinu
Salmonellusýktu hrossin sem lifðu sýkinguna af hafa nú verið flutt úr hesthúsahverfinu. Þau eru nú í hesthúsi í nágrenni Reykjavíkur. 
Í gær höfðu 24 af 44 hrossum drepist úr sýkingunni. Eins og sag hefur verið frá í fjölmiðlum sýktust hrossin af yfirborðsvatni þar sem þau voru í hagagöngu.
Miklar annir hafa verið hjá dýralæknum við umönnun hrossanna.

5.janúar
Sigmundur boðar forföll
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson verður því miður ekki á fundinum í kvöld. Sigmundur boðaði forföll þar sem að hann er á fundi í Skagafirði í kvöld það lá ekki fyrir fyrr en í gærkvöld að Sigmundur gæti ekki mætt í Mosfellsbæ til fundarins. Páll Magnússon og Höskuldur Þórhallsson hafa báðir staðfest komu sína.  

2.janúar
Fundur með frambjóðendum
Frambjóðendur til formanns Framsóknarflokksins funda í Mosfellsbæ 5. janúar

Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar hefur boðið Höskuldi Þórhallssyni, Páli Magnússyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni frambjóðendum til formanns Framsóknarflokksins að kynna sig fyrir Mosfellingum og öðrum áhugasömum mánudaginn 5.janúar n.k.

Fundurinn hefst kl 20.00 fundarstaður er Háholti 14. 2.hæð, félagsheimili Framsóknarfélags Mosfellsbæjar.

Allir velkomnir.





 

 

 

 

 

 

Veljum íslenskt
Veljum X-B
FYRIR ALLA í Mosfellsbæ 

 

 

To be is to do
Sokrates
Do bee do bee do
Frank Sinatra

 

Viltu koma skoðun  þinni á framfæri, viltu að við látum þig vita þegar nýtt efni er sett inn á síðuna eða óskar þú eftir upplýsingum?
Sendu okkur tölvupós
t:

frettir@mosfellsfrettir.is