Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró


                           Eldri fréttir 2/2  2006
 

22.desember
Mosfellsfréttir óska þér og fjölskyldu þinni friðsældar á jólahátíðinni og farsældar á komandi ári.

 

22.desember
Seinni umræða um fjárhagsáætlun 2007 í bæjarstjórn
.
Á 457. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar sem haldinn var miðvikudaginn 20. desember sl. var til umræðu síðari umræða fjárhagsáætlunar 2007.  Helstu niðurstöður áætlunar eru eftirfarandi í þús. kr.:Tekjur: 3.274.758.  Gjöld: 3.045.803.  Fjármagnsgjöld: 150.370.  Rekstrarniðurstaða: 78.585
Fjárhagsáætlun 2007 var borin upp og samþykkt með fjórum atkvæðum D og V-lista, fulltrúar B og S-lista sáttu hjá.
Eftirfarandi er bókun B- og S-lista við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar.
Fjárhagsáætlun bæjarins hverju sinni er stefnumörkun meirihlutans um rekstur og framkvæmdir og þjónustustig gagnvart bæjarbúum. Megin einkenni fyrirliggjandi fjárhagsáætlunar eru einkum eftirfarandi.
Á undanförnum árum hefur rekstur bæjarfélagsins notið góðs af því hagvaxtarskeiði og þenslu sem ríkt hefur almennt í samfélaginu í formi aukinna tekna. Jafnframt hafa hækkandi gjaldskrár bæjarfélagsins lagt bæjarfélaginu til auknar tekjur. Í því ástandi er ljóst að auðveldara er að ná hagstæðari rekstrarniðurstöðu en þegar kreppir að. Afkoma bæjarfélagsins mun verða lakari á þessu ári en árin á undan og sama má segja um næsta ár miðað við fjárhagsáætlunina fyrir árið 2007. Nú leggur meirihluti D og V lista fram sína fyrstu fjárhagsáætlun og vekur hún nokkra athygli. Í fjárhagsáætlun má sjá fyrirheit um að hrinda í framkvæmd tillögum sem minnihlutinn lagði til á síðasta ári. Rifja má upp að þá felldi meirihlutinn þær tillögur og bókaði að þær væru óábyrgar. Ekki er þó tekið mark á varnaðarorðum minnihlutans hvað varðar starfsumhverfi grunnskólanna þar sem langvarandi aðhald er farið að koma niður á möguleikum grunnskólanna til sjálfstæðis og þróunar á skólastarfi. Nú er enn lengra gengið í þessum efnum en oft áður með því að kvótasetningin sem átti að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði grunnskólanna er að hluta til skorin niður.
Tölur úr árbók sveitafélaga 2006 sýna með óyggjandi hætti að framlög á nemanda eru mun lægri hér í Mosfellsbæ en í nágrannasveitarfélögunum.
Sem dæmi má nefna að væri sömu upphæð á hvern nemanda varið til grunnskóla í Mosfellsbæ og gert er í Garðabæ þá þyrfti að hækka framlag til rekstrar grunnskóla um það bil 200 milljónir króna en rétt er að fara í saumana á þessu.
Fullt svigrúm ætti því að vera til að auka enn við gæði þjónustunnar.
Það er mat minnihlutans að langvarandi aðhald sé farið að koma niður á möguleikum grunnskólanna til þróunar á skólastarfi.
Minnihlutaflokkarnir lögðu fram fjölmargar tillögur við fyrri umræðu fjárhagsáætlunarinnar nú og er meirihlutanum velkomið að nýta sér þær hugmyndir við næstu fjárhagsáætlanagerð
.

21.desember
Afmælismerki flokksins kynnt
Forysta Framsóknar, þau Jón Sigurðsson, Guðni Ágústsson og Sæunn Stefánsdóttir kynntu nýtt afmælismerki flokksins.  Merkið er í sömu litum og aðalmerkið okkar og voru blaðamenn og afmælisgestir hrifnir af merkinu, sem notað verður samhliða merki flokksins á afmælisárinu.

19.desember
Knattspyrnudeild Aftureldingar fyrirmyndarfélag!
Laugardaginn 16.desember s.l. útskrifaði Ólafur Rafnsson forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands Knattspyrnudeild Aftureldingar sem fyrirmyndarfélag innan ÍSÍ.  Athöfnin fór fram í sal framsóknarfélags Mosfellsbæjar í Þverholti. Við þetta tilefni kynntu yngri flokkar knattspyrnudeildar nýjan og glæsilegan keppnisbúning sem ráðgert er að nota fram til ársins 2009.


15.desember
Tímamótum fagnað laugardaginn 16. desember
Í tilefni af 90 ára afmæli flokksins, laugardaginn 16. desember n.k. verður opið hús á flokksskrifstofunni, Hverfisgötu 33 frá kl. 14-17.  Er það von okkar að sem flestir gefi sér tíma til að líta upp úr jólaönnum og  koma við til að eiga góða stund með flokksbræðrum og –systrum í nýuppgerðum og glæsilegum húsakynnum flokksins. Forysta flokksins verður að sjálfsögðu á staðnum í hátíðarskapi og boðið er upp á veitingar.

Þennan sama dag verður jafnframt kynnt á blaðamannafundi, hátíðardagskrá næstu vikna og mánaða.

15.desember
Áskorun vegna Vesturlandsvegar
Áskorun bæjarstjórnar Mosfellsbæjar frá 456. fundi þann 13. desember 2006. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar fagnar þeirri umræðu sem átt hefur sér stað um umferðaröryggi á þjóðvegum út frá höfuðborgarsvæðinu og jafnframt þeirri ákvörðun ríkistjórnarinnar að leggja til aukið fjármagn í þá veru. Sérstaklega er þetta nauðsynlegt í ljósi þeirra alvarlegu slysa sem orðið hafa að undanförnu á þessum vegum. Í ljósi þessa skorar bæjarstjórn Mosfellsbæjar á samgönguyfirvöld að hrinda í framkvæmd hið fyrsta árangursríkum aðgerðum í þágu aukins umferðaröryggis á Vesturlandsvegi frá Skarhólabraut í Mosfellsbæ að Hvalfjarðargöngum hið minnsta. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar leggur áherslu á að aðskilja þurfi akstursstefnur á Vesturlandsvegi þar sem aðstæður leyfa og breikka veginn þar sem brýnast er. En ekki þurfi síður að huga að gatnamótum á Vesturlandsvegi sem mörg hver eru hættuleg og ógni öryggi vegfarenda.


15. desember
Í fótspor listamanna
Í dag opnar málverkasýning nemenda í 9.og 10.bekk Varmárskóla og Lágafellsskóla í Listasal Mosfellsbæjar. Nemendur settu sig í fótspor myndlistamanna með því að kynna sér listamenn og verk þeirra. Síðan völdu þeir sér eitt málverk til að endurmála. Nemendurnir þurftu að finna út rétta liti og áferð svo endurgerðin líkist frummyndinni sem allra mest.
Nemendur Lágafellsskóla völdu sér popplistamenn til að vinna með en nemendur Varmárskóla einbeittu sér að íslensku meisturunum.
Myndlistakennarar í skólunum eru í Lágafellsskóla Arna Björk Birgisdóttir og í Varmárskóla Elísabet Stefánsdóttir.
Sýningin stendur yfir til 15. janúar. 

          

14.desember
Lesið úr jólabókunum á Gljúfrasteini
Sunnudaginn 17. desember klukkan 16.00 er komið að síðasta upplestrinum í stofunni á Gljúfrasteini að sinni, sem fyrr er aðgangur ókeypis og allir velkomnir. Dagskráin er sérlega fjölbreytt í þetta skiptið og samanstendur af skáldsögu, ljóðabókum og ævisögum.
Bragi Ólafsson les úr skáldsögunni Sendiherrann, Kristín Ómarsdóttir úr ljóðabókinni Jólaljóð, Ingunn Snædal úr ljóðabókinni Guðlausir menn – hugleiðing um jökulvatn og ást, Sigríður Dúna Kristmundsóttir les úr ævisögu Ólafíu Jóhannsdóttur og Þórunn Valdimarsdóttir les úr ævisögu Matthíasar Jochumssonar, Upp á sigurhæðir.
Gljúfrasteinn er kominn í hátíðarbúning, búið að dekka borðstofuborðið að hætti Auðar Laxness og litla dúkkuhúsið komið á sinn stað í borðstofunni. Safnið er opinð alla daga nema mánudaga frá 10.00-17.00
.

13.desember
Hamingjuóskir 
Það er full ástæða til að óska atvinnu- og ferðamálanefnd Mosfellsbæjar til hamingju með fjórða fund nefndarinnar á árinu. Sennilega eru atvinnumál áherslumál hjá bæjarfélaginu þetta árið, eða hvað?
Það hefur lengi verið von Mosfellsfrétta að meirihluti bæjarstjórnar vaknaði af værum svefni og að við tæki uppbyggingarstarf í atvinnumálum sveitarfélagsins en það virðist allt vera við sama heygarðshornið í þessum málaflokki, góðærið virðist ekki ætla að staldra við í Mosfellsbæ. Ritstjórn Mosfellsfrétta vill minna bæjarstjórnarmeirhlutann á að það felast mikil lífsgæði í öflugu atvinnulífi í sveitarfélaginu og hvetur hún núverandi meirihluta til dáða. 
Fátt er jákvæðara en sterkt og gott atvinnulíf í heimabyggð.

13. desember
Jólabingó

Jólabingó grunnskólanna voru haldin á dögunum. Foreldrafélög  skólanna hafa veg og vanda af þessum bingóum og hjá báðum skólunum voru glæsilegir vinningar m.a. utanlandsferðir. Bingóið í  Lágafellsskóla var haldið 26. nóv en Varmárskóli hélt sitt bingó um síðustu helgi. Mæting á bingóin hefur verið mjög góð undanfarin ár og er óhætt að segja að jólabingó skólanna séu orðin fastur liður í aðventunni hjá mörgum.

 

 

 

12. desember
Grænt ljós á umhverfisslys í hjarta Mosfellsbæjar
Grein Sigrúnar Pálsdóttur
Umhverfisráðuneytið hefur nú eftir hálfs árs umhugsun fellt þann úrskurð að tengibraut úr Helgafellslandi um Álafosskvos inn í miðbæ Mosfellsbæjar skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Umhverfisráðuneytið gefur með úrskurði sínum grænt ljós á áframhaldandi bútasaum bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ í skipulagsmálum. Engin krafa er gerð um að tengibrautin sé skoðuð í heildarsamhengi eða ruðningsáhrif hennar á nærliggjandi svæði metin. Skipulagsyfirvöld  í Mosfellsbæ þurfa skv. þessu hvorki að gera grein fyrir þeim skipulagsbreytingum sem tengibrautin kallar á né afleiðingum þeirra fyrir íbúa Mosfellsbæjar.

Lesa grein sjá: http://blog.central.is/varmarsamtokin

8. desember

Tengibraut við Helgafellsland ekki háð mati á umhverfisáhrifum
Umhverfisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 22. maí sl. þess efnis að tengibraut frá Vesturlandsvegi um Álafossveg og inn í fyrirhugaða íbúðarbyggð í Helgafellslandi í Mosfellsbæ sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Einstaklingar og samtök kærðu ákvörðun Skipulagsstofnunar til umhverfisráðuneytisins og kröfðust þess að hún yrði ómerkt og að umhverfisráðherra úrskurðaði framkvæmdina matsskylda. Einstök kæruatriði vörðuðu m.a. hljóðvist, sjónræn áhrif vegarins og áhrif hans á Varmá.
Í niðurstöðu ráðuneytisins kemur m.a. fram að hljóðvist, sjónræn áhrif og áhrif tengivegarins á vistkerfi Varmár geti ekki haft í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif í skilningi 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum og eru því ekki þess eðlis að meta þurfi umhverfisáhrif framkvæmdarinnar á grundvelli laganna.
Gert er ráð fyrir að umrædd tengibraut verði ein akrein í hvora átt og er heildarlengd brautarinnar 2.340 m. Frá þessu segir á mbl.is

7. desember
 
Mosfellsfréttir 22. árg, 5. tbl. 2006 kemur út í dag. Blaðinu verður dreift frítt inn á öll heimili í bænum og á vinnustaði. Einnig er hægt að nálgast blaðið á bensínstöðvum bæjarins.  Í blaðinu eru fjölmargar greinar og viðtöl, m.a. opnuviðtal við Siv Friðleifsdóttur, verkstæði jólasveinsins og svo er jólahugvekjan er á sínum stað. Vefútgáfa Mosfellsfrétta pdf


7.desember
Lesið úr jólabókunum á Gljúfrasteini
Líkt og síðustu ár verður lesið úr nýútkomnum bókum alla sunnudaga í desember í stofunni á Gljúfrasteini. Dagskráin hefst klukkan 16.00 og er aðgangur ókeypis og öllum opinn.
10. desember n.k. kl.16.00
Eiríkur Guðmundsson: Undir himninum
Stefán Máni: Skipið
Óskar Árni Óskarsson: Loftskip
Yrsa Sigurðardóttir: Sér grefur gröf 

7.desember

Orgel-jól
Þriðjudaginn 19 desember  mun Douglas Brotchie organisti í Háteigskirkju í Reykjavík spila ljúfa og skemmtilega orgeltónlist fyrir jólahátíðir. Einnig kemur Sigrún Jónsdóttir mezzosópran fram. Dr. Douglas Brotchie er fæddur í Skotlandi og orðinn Íslendingur eftir 25 ára dvöl hér á landi og er stoltur Mosfellingur. Hann hefur komið fram á einleikstónleikum á Íslandi, Skotlandi, Ungverjalandi og í Þýskalandi. Tónleikarnir eru styrktir af Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar

6.desember
Jólatrjásala í Hamrahlíð
Jólatrjáasala Skógræktarfélags Mosfellsbæjar verður með svipuðu sniði og verið hefur undanfarin ár en hún hefst laugardaginn 9. des. og stendur til jóla.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu félagsins, www.internet.is/skogmos/
Laugard. og sunnud.          9. og 10. des.   kl  12 - 16
Laugard. og sunnud.         16. og 17.des.   kl  10 - 16
Miðvikudag.                      20. des.     kl  13 - 16
Fimmtudag.                      21. des.     kl  13 - 16
Föstud. Þorláksm.             22. des.     kl  13 - 16
Laugardag, Þorláksmessa  23. des.     kl  10 - 16


6.desember
Aðventutónleikar í Mosfellskirkju
Sigrún Hjálmtýsdóttir ásamt blásarasextett halda sína árlegu aðventutónleika í Mosfellskirkju í kvöld, miðvikudaginn 6. desember kl 20.30.  Efnisskrá er að þessu sinni helguð Moszart en 200 ár eru liðin frá fæðingu hans. Miðasala er þjónustuveri Mosfellsbæjar  sími 525-6700

1.desember
Mosfellskórinn heldur tónleika og gefur út nýjan geisladisk
Mosfellskórinn verður með útgáfutónleika í Bæjarleikhúsinu  laugardaginn 2. desember klukkan:17:30. Tónleikar Mosfellskórsins eru í tilefni útgáfu geisladisksins, Jólaljósin ljóma og er aðgangur ókeypis.
JÓLALJÓSIN LJÓMA er frábær geisladiskur með 18 völdum og vinsælum jólalögum sem Mosfellskórinn hefur flutt á 20 ára ferli sínum. Jens Hansson saxafónleikari Sálarinnar ásamt félögum sjá um undirleik.  Stjórnandi er Páll Helgason.


30.nóvember
Loksins opnar pósturinn aftur!
Föstudaginn 1. desember nk. verður pósthúsið í Mosfellsbæ opnað á nýjum stað að Háholti 14. Afgreiðslutími er alla virka daga frá kl. 9.00-18.00  en eins og menn muna þá flutti afgreiðslan tímabundið í Grafarvog við litla ánægju Mosfellinga.


30.nóvember
Upplestur á jólabókum á Gljúfrasteini
alla sunnudaga á aðventu
Sunnudaginn 3. desember kl. 16.00
Einar Már Guðmundsson: Ég stytti mér leið framhjá dauðanum
Kristín Steinsdóttir: Á eigin vegum
Sölvi Björn Sigurðsson: Fljótandi heimur
Steinar Bragi: Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis
Dagskrána í heild má sjá á heimasíðu Gljúfrasteins.


29.nóvember
Jólasýning Fimleikadeildar Aftureldingar

Jólasýning Fimleikadeildar Aftureldingar verður haldin laugardaginn 2. desember kl 14:00 í Íþróttahúsinu að Varmá í Mosfellsbæ. Sýningin verður með glæsi-legasta móti og mun andi Disney svífa yfir vötnum. Á sýningunni mun “Boris”, STERKASTI MAÐUR ÍSLANDS, reyna að lyfta hálfu tonni af fimleikabörnum.
Lyftan er liður í áheitasöfnun keppnishópa sem næsta sumar ætla í æfingabúðir til Danmerkur. Mosfellingar og aðrir geta því skorað á Boris að lyfta eins mörgum fimleikabörnum á jólasýningunni og kraftar hans leyfa

 

28.nóvember
Kveikt á jólatrénu.
Kveikt verður á jólatrénu á torginu við Kjarna á laugardaginn kl 16.00. Bæjarstjóri tendrar ljósin að vanda. Barnakór Varmárskóla syngur og  Skólahljómsveit Mosfellsbæjar spilar. Jólasveinar koma í heimsókn. Dagskrá fyrir alla fjölskylduna.  

28.nóvember
Nýr gervigrasvöllur ónothæfur.
Ekki er hægt að nota nýjan gervigrasvöll við Varmá þar sem bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur ekki komið upp flóðlýsingu og hita þrátt fyrir ítrekuð loforð nú síðast að lýsingin skyldi koma fyrir 20.nóvember s.l. Heitu vatni hefur heldur ekki verið hleypt á völlinn þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir og hefur völlurinn verið einn svellbunki og stórhættulegur ungum sem öldnum.
Iðkendur eru orðnir langþreyttir á þessu ástandi og hafa engan stað til að æfa á. Geta má til gamans að í nýafstaðinni prófkjörsbaráttu bæjarstjórans Ragnheiðar Ríkharðsdóttur gat hún um í blaðinu Séð & heyrt að íþróttaáhugi hennar væri mikill og jafnaðist við að hafa “viðhald”. Ekki er áhugi hennar né meirihlutans mikill að koma 140 milljóna mannvirki í gang og jafnast þetta á við að byggja sundlaug og hafa ekkert vatn í henni fyrir sundiðkendur. Búið er að keyra inn á völlinn þar sem girðingar eru foknar niður og frosnar niður í svellið og virðist sem engin stofnun bæjarins beri ábyrgð á þessu mannvirki, né hugsi um það.


24.nóvember
Mislæg gatnamót opnuð.  

Mislæg gatnamót Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar voru opnuð aðfaranótt fimmtudagsins 23. nóvember þrem vikum á eftir áætlun en áætluð verklok voru 1. nóvember sl.
Ekki er þó búið að ganga að fullu frá öllu hvað varðar gatnamótin enn vantar t.d. lýsingu á nokkra ljósastaura, vegvísa og umferðarmerki.  Eftir er að ganga frá afrein upp á Suðurlandsveg til austurs. Vissara er því að fara varlega þarna á næstunni en mannvirkið er hin mesta samgöngubót fyrir okkur Mosfellinga.

24.nóvember
LFK 25 ára.
21. nóvember árið 1981 komu um 140 konur saman á hótel Heklu við Rauðarárstíg í Reykjavík til að stofna Landssamband framsóknarkvenna, LFK. Margir samverkandi þættir urðu til þess að LFK var stofnað.  Konur voru mjög meðvitaðar um stöðu sína á þessum tíma. Margir stórir atburðir sem áttu þátt í því að efla jafnréttisvitund kvenna á þeim tíma það og má nefna kvennafrídaginn og kjör frú Vigdísar Finnbogadóttur sem forseta lýðveldisins
Það voru konur í Félagi framsóknarkvenna í Reykjavík sem áttu frumkvæðið að stofnun sambandsins. Meira......


17.nóvember
Fíkniefnamilljarðurinn-sannleikurinn
Rétt eina ferðina sitja Framsóknarmenn og svara fyrir löngu frágengna hluti sem stjórnarandstaðan reynir að snúa út úr og breyta í sannleika í hugum kjósenda með því að nefna þá nógu oft. Nýjasta útspilið birtir Fréttablaðið af heimasíðu Björgvins G. Sigurðssonar, nýkjörins oddvita Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Við skulum gefa okkur það að Björgvin hafi litið eitthvað skakkt á loforð Framsóknarmanna fyrir þingkosningarnar 1999 en ekki að hann hafi vísvitandi snúið út úr málinu þegar hann heldur því fram að Framsóknarmenn hafi svikið loforð um milljarð í forvarnarsjóð í þágu baráttunnar gegn fíkniefnum. Gárungarnir segja að það væri eins og Framsókn hefði lofað 12000 nýjum störfum í einu einasta fyrirtæki, fyrir þingkosningarnar 1995. En það er önnur saga. Lítum á staðreyndir. meira.....

16.nóvember
Haustfagnaður Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Haustfagnaður Framsóknarfélags Mosfellsbæjar var haldinn föstudaginn 3. nóvember s.l. í sal félagsins .    Þema kvöldsins var Asía. Á boðstólnum  voru veitingar frá Veitingahúsinu Asíu  nokkrir gestanna mættu í asískum klæðnaði. Heiðursgestur kvöldsins var Björn Ingi Hrafnsson formaður borgarráðs. Veislustjóri var Ingi Már Aðalsteinsson formaður Framsóknarfélagsins

         


Framsókn 90ára 16.desember.

Eins og öllum góðum Framsóknarmönnum ætti að vera kunnugt verður flokkurinn 90 ára þann 16. desember n.k. Um þessar mundir stendur yfir veruleg andlitslyfting á skrifstofum flokksins við Hverfisgötuna og aðstöðu bæði starfsmanna og félagsmanna. Hafa praktískir velunnarar flokksins haft samband að undanförnu í þeim tilgangi að hlera hvort afmælisbarnið vantar eitthvað. Í framhaldi af því kom upp sú hugmynd að bjóða öðrum velunnurum flokksins að taka þátt í því að gera aðstöðuna sem besta og fallegasta. Allir stærri munir s.s. stólar í fundarherbergi, flatskjáir, fundarborð, húsgögn og tæki í eldhús o.fl. verða merktir gefandanum og standa sem minnisvarði um þann hlýhug sem að baki stendur gjöfinni, um langan tíma.   Þeir sem geta og vilja láta eitthvað af hendi rakna mega góðfúslega hafa samband við Sigurð Eyþórs, t.d. með tölvupósti á sigey@framsokn.is eða í síma 540-4300. 

16.nóvember
"Tæknileg mistök"?
Árni Johnsen, verðandi alþingismaður, hefur sagst iðrast og biðst
fyrirgefningar á mistökum sínum, annars væri hann gerður úr steini. Hann segist hafa gert "tæknileg mistök" sem enginn hafi tapað á. Margir hafi gert mistök í því máli en enginn hafi sem betur fer verið sóttur til saka nema hann.  Nú nýlega kallaði Ehud Olmert árásina á Gaza "tæknileg mistök"  Er allt í sómanum að brjóta af sér ef það eru "tæknileg mistök"?  Eru það  bara "tæknileg mistök" ef upp kemst?  Voru það KANNSKI "tæknileg mistök" hjá sjálfstæðismönnum á suðurlandi að kjósa Árna Johnsen í 2.sætið.

15.nóvember
Sannleikurinn er sagna bestur              http://bingi.blog.is/blog/bingi/
Björgvin G. Sigurðsson, nýr oddviti Samfylkingarinnar, telur það málstað sínum til framdráttar að halda því fram að kosningaloforð Framsóknarflokksins frá kosningum 1999, um að milljarði skyldi varið í baráttuna gegn fíkniefnum, hafi verið svikið. Þessu hefur Björgvin haldið fram ítrekað lengi.
Samt veit þingmaðurinn að þetta er rangt. Hann hefur fengið svör við því á þingi, í greinum og ræðum á opinberum vettvangi. Það er búið að fara yfir það lið fyrir lið, í hvað peningarnir hafa farið, en það skiptir engu máli. Sannleikurinn skiptir engu máli í þeirri pólitík sem Björgvin G. Sigurðsson ætlar að leika í sínu oddvitahlutverki, aðalatriðið er að brýna raustina og komast í fréttirnar.
Björgvin er þannig ekki að segja satt, þegar hann talar um svikin kosningaloforð. En hvað gerist svo á þingi þegar þingmenn og ráðherrar koma upp í ræðustól og setja ofan í þingmanninn fyrir að segja ekki satt?
Þá er brugðist ókvæða við og sagt að það geti svo sem vel verið að hægt sé að týna til einhverjar tölur, en ljóst sé að miklu fleira þurfi til svo unnt sé að berjast gegn fíkniefnavánni.
Bíddu, er einhver að efast um það? Er það orðið Framsóknarflokknum að kenna að hér á landi og víðar í heiminum geysi fíkniefnavandi? Er við hæfi að ræða svo viðkvæmt og sorglegt samfélagsmál af slíkri yfirborðsmennsku?

15.nóvember
Sigurpáll var í sérflokki á úrtökumótinu í Svíþjóð
Sigurpáll Geir Sveinsson, kylfingur úr GKj, lék best allra á úrtökumótinu fyrir Telia mótaröðina. Hann sigraði með yfirburðum á Kävlinge-vellinum – lék hringina þrjá á samtals 7 höggum undir pari. Alls tóku 360 kylfingar þátt í úrtökumótinu sem fram fór á fjórum völlum; Eslövs GC, Kävlinge GC, Kristianstads GC og Degeberga/Widtsköfle GC.
Besta skorið á Kristianstad-vellinum, þar sem Stefán Már Stefánsson og Magnús Lárusson léku, var 2 högg yfir pari.
Besta skorið á Eslov-vellinum var 4 högg yfir pari.
Besta skorið á Dageberga-vellinum var par.
Besta skorið á Kävlinge-vellinum var 7 högg undir pari (Sigurpáll).
Sigurvegarinn á hverjum velli fær fullan keppnisrétt á mótaröðina á næsta ári, fer í category 9. Þeir sem lentu í 2.-10. sæti fara í category 12 og eru nánast með fullan keppnisrétt, aðeins stærstu mótin sem þeir komast ekki inn á. Þeir sem komust í gegnum niðurskurðinn (eins og Stefán Már, Magnús og Auðunn) fá að taka þátt í 1-3 mótum.
Heiðar Davíð Bragason sigraði með miklum yfirburðum á  úrstökumótinu fyrir sænsku atvinnumannamótaröðina, Telia Tour,  í fyrra. Hann lék á  Degeberga-Wedtsköfle-vellinum og spilaði samtals á  6 höggum undir pari og var þá  sjö höggum á undan næsta keppenda.   Frá þessu segir á
www. kylfingur.is

10.nóvember
Yfirlýsing frá Gísla Tryggvasyni
Á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi sl. laugardag var valið í sex efstu sæti á lista flokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Náði ég ekki því sæti sem stefnt var að en fyrir áeggjan gaf ég kost á mér í sæti neðar á lista. 
Hlutverk talsmanns neytenda felst m.a. í því að setja fram tillögur um úrbætur á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum. Er talsmanni neytenda í lögum tryggt sjálfstæði og kveðið á um hlutleysi hans í lögskýringargögnum. Þegar til kosningabaráttu kæmi stóð því til að gera frekari ráðstafanir í því skyni að trúverðugleiki embættisins biði ekki hnekki. Í sama tilgangi leitaði ég að eigin frumkvæði þegar í kjölfarið eftir viðhorfum víða – m.a. hjá óháðum lögfræðingum – hvort það verkefni að taka þátt í framboði til Alþingis gæti talist ósamrýmanlegt óbreyttum störfum talsmanns neytenda. Tel ég rétt að ekki leiki vafi á því. 
Með vísan til framangreinds og fordæma í stjórnmálum, sem mér hafa verið tjáð, tel ég að nánar athuguðu máli ekki rétt að taka sæti á framboðslista til þingkosninga í vor en mun þess í stað helga mig því mikilvæga verkefni að móta áfram nýtt embætti talsmanns neytenda þar sem fjölmörg brýn og krefjandi verkefni eru óleyst. 
Þessi ákvörðun tek ég sjálfur og í fullri sátt við oddvita flokksins í kjördæminu.

Virðingarfyllst,
Kópavogi, 8. nóvember 2006,
Gísli Tryggvason.

5. nóvember.
Kjördæmisþing Framsóknarmanna.

Mosfellingurinn Kristbjörg Þórisdóttir í 5.sæti

Fjölmennt var á tvöföldu kjördæmisþingi sem framsóknarmenn í Suðvesturkjördæmi héldu í félagsheimili Seltjarnarness laugardaginn 4. nóvember.  Fjöldi manns mætti til að taka þátt í að velja í sex efstu sæti listans. Fyrst voru framsögur en síðan kosið í hvert sæti fyrir sig.  Þingið var mjög vel skipulagt og kjörið gekk hratt og vel fyrir sig.
Sex efstu sæti listans eru eftirfarandi: 1.Siv Friðleifsdóttir, 2. Samúel Örn Erlingsson, 3. Una María Óskarsdóttir, 4. Gísli Tryggvason, 5. Kristbjörg Þórisdóttir, 6. Hlini Melsteð Jóngeirsson.


4. nóvember
Viðtal við Siv Friðleifsdóttir, Heilbrigðisráðherra.
Algerlega ljóst að í Mosfellsbæ mun bráðlega rísa nýtt hjúkrunarheimili.
Á þeim stutta tíma sem Siv hefur verið ráðherra heilbrigðismála hefur hún látið hendur standa fram úr ermum í sínum málaflokk, ekki síst varðandi málefni aldraðra.    Mosfellsfréttir hafði samband við ráðherrann og fékk að spyrja Siv nokkurra spurninga:

Nú hafa húsnæðismál aldraðra verið baráttumál framsóknarmanna í bæjarstjórn Mosfellsbæjar um árabil.    Hvernig standa mál varðandi húsnæðismál aldraðra í Mosfellsbæ?  
Meira.....


31. október

Póstafgreiðslan flytur í Grafarvog.
Póstafgreiðslan flytur tímabundið í Hverafold 1-3, Grafarvogi en þann 2. nóvember lokar Nóatún verslun sinni og leggst því póstafgreiðslan af.  Pósturinn leitar nú að hentugu húsnæði fyrir nýja póstafgreiðslu í bæjarfélaginu. Ný staðsetning afgreiðslunnar verður tilkynnt þegar að hún liggur fyrir.
Mosfellsfréttum.is þykir það mjög dapurt að ekki hafi verið búið að leysa þessi húsnæðismál í tíma en í Mosfellsbæ búa rúmlega 7.000 íbúar og eru þeir án póstafgreiðslu og jólin á næsta leyti.

31. október
Ferðaþjónusta fatlaðra
Nokkrar umræður urðu um ferðaþjónustu fatlaðra í Mosfellsbæ á 70. fundi fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar þriðjudaginn 24.október, en fulltrúi B-lista Kristbjörg Þórisdóttir lagði til talsverðar breytingar, sjá bókun tillögunar hér að neðan.

Fulltrúi B-lista leggur til eftirfarandi breytingar á viðmiðunarreglum Mosfellsbæjar fyrir ferðaþjónustu fatlaðra og þjónustu bæjarfélagsins á ferlimálum við íbúa þess sem skilgreindir eru fatlaðir. Markmið tillagna þessara er að bæta þjónustuna og bjóða íbúum Mosfellsbæjar upp á sambærilega eða betri þjónustu og íbúum nærliggjandi sveitarfélaga býðst.

1) Þjónustukönnun á ferðaþjónustu fatlaðra verði unnin af félagsþjónustu Mosfellsbæjar annað hvert ár til að stuðla að sem mestum gæðum þjónustunnar og leggja grunn að breytingum komi fram óánægja hjá notendum.
2) Ferðum til einkaerinda verði fjölgað úr 12 í 20 ferðir á mánuði. Heimilt verði að veita þeim er nota þjónustuna daglega vegna vinnu eða skóla kost á fleiri ferðum.
3) Gjaldskrá og aðrar viðmiðunarreglur verði skýrar og aðgengilegar og miði við hálft strætógjald. Farþegum verði heimilt að hafa með sér annan farþega enda greiði hann sama gjald. Þurfi farþegi aðstoðarmann ferðast aðstoðarmaður frítt með farþega.
4) Tekið verði við pöntunum frá 8-17 í stað 9-16 og einnig verði hægt að panta ferðir frá 9-13 á laugardögum. Kvöldferðir verði hægt að panta samdægurs til klukkan 16 á virkum dögum.
5) Í janúar 2007 verði mögulegt að panta ferðir samdægurs með að minnsta kosti 3. klst. fyrirvara.

Upphafleg tillaga var lögð fram fyrir 69. fund fjölskyldunefndar 10.10. 2006 og umræðum og afgreiðslu um hana frestað til næsta fundar. Ofangreind tillaga er lögð fram á 70. fundi fjölskyldunefndar 24.10. 2006 til umræðu og afgreiðslu.

Fjölskyldunefnd felur starfsmönnum að framkvæma þjónustukönnun meðal þeirra sem nota ferðaþjónustu fatlaðra á vegum bæjarfélagsins. Ákveðið að önnur atriði sem fram komu í umfjöllun um tillögurnar verði komið á framfæri við samstarfsnefnd fulltrúa sveitarfélaganna þar sem rætt er um fyrirkomulag ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Öðrum atriðum tillögunnar er vísað til árlegrar endurskoðunar á reglum Mosfellsbæjar um ferðaþjónustu fatlaðra.

30.október
Asískt kvöld

Haustfagnaður Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn föstudaginn 3. nóvember 2006, kl.19.00 að Háholti 14, 2. hæð.  Að þessu sinni verður þema kvöldsins Asía.  Á boðstólnum verða veitingar frá veitingahúsinu Asíu og eru gestir hvattir til að taka þátt í keppni um besta Asíska búning kvöldsins.
Heiðursgestur kvöldsins verður:
Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs

Veislustjóri verður:
Ingi Már Aðalsteinsson, formaður Framsóknarfélagsins
Verð á mann er kr 2.500,-
Heimatilbúin skemmtiatriði, tónlist og dans fram eftir nóttu. 


25.október
Þingmenn kjördæmisins í heimsókn

Þingmenn suðvesturkjördæmis funduðu með bæjarstjórn Mosfellsbæjar í Hlégarði þriðjudaginn 24. október sl.  Á fundinum fóru bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ yfir helstu áhersluverkefni ss. eins og samgöngumál, framhaldsskóla, hjúkrunarheimili auk annarra brýnna verkefna sem snerta opinberar fjárveitingar.  Á myndinni má sjá fundarmenn þ.e. þingmenn kjördæmisins auk bæjarstjórn Mosfellsbæjar.
 

13.október
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Aðalfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar var haldinn 5. október s.l.  Góð mæting var á fundinn.
Helga Jóhannesdóttir fráfarandi formaður flutti skýrslu stjórnar.  Fram kom að blómlegt starf hafi verið á síðasta starfsári stjórnar enda bæjarstjórnarkosningar.  Í máli gjaldkera Elís Jónssonar kom fram að félagið hafi ekki safnað skuldum á kosningaári og að fjárhagurinn sé með ágætum. 
Á fundinum var kosin ný stjórn fyrir félagið.
Helga Jóhannesdóttir og Kolbrún Haraldsdóttir gáfu ekki kost á sér sem stjórnarmenn áfram.
Nýja stjórn skipa:
Ingi Már Aðalsteinsson, formaður.
Aðrir í stjórn eru Elís Jónsson, Kristbjörg Þórisdóttir, Magnús Jósefsson og Margrét Þóra Baldursdóttir.
Varamenn voru kosin: Helga Jóhannesdóttir og Marteinn Magnússon.
Kosnir voru fulltrúar á kjördæmisþing Framsóknarmanna sem fram fer 14. október 2006.
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra mætti á fundinn og hélt stutta tölu.  Í framhaldinu komu fram margar fyrirspurnir og umræður.
Fjörugar umræður voru undir liðnum önnur mál með þátttöku fjölmargra fundarmanna og góð samstaða ríkti.

11.október
Umhverfisverðlaun Mosfellsbæjar
Umhverfisverðlaun Umhverfisnefndar Mosfellsbæjar voru veitt föstudaginn 6. okt. sl. Umhverfisnefndar veitti eftirtöldum aðillum viðurkenningu: 
Fjóla Leósdóttir og Guðjón Þorvaldsson, Spóahöfða 19, fyrir vel hirtan og fallegan garð.
Esther Helga Guðmundsdóttir og Höskuldur Blöndal Kjartansson, Arnartanga 26, hvatningarviðurkenningu fyrir endurnýjaðan garð.
Björn Sigurbjörnsson Gróðurstöðinni Gróanda í landi Grásteina, Mosfellsdal, fyrir einstakt ræktunarstarf.
Guðrún Hafsteinsdóttir og Páll Aðalsteinsson, Bjarkarholti 1, fyrir störf í þágu skógræktar í Mosfellsbæ.



10.október
Leikskólinn Hlaðhamrar 30 ára
Sunnudaginn 8. október  varð leikskólinn Hlaðhamrar 30 ára og af því tilefni var börnum, foreldrum og öðrum gestum boðið til fagnaðar. Mikil og góð mæting var og skemmtu allir sér vel við söng og hljóðfæraleik.



10.október
Meirhlutinn tekinn í bólinu!
Meirihlutinn reyndi að þvinga illa undirbúið mál í gegnum bæjarstjórn, en um var að ræða svör við athugasemdum um breytingu á aðalskipulagi í Helgafellslandi en umrædd svör voru til meðferðar hjá embættismönnum bæjarins og enginn hinna kjörnu fulltrúa höfðu séð endanlega útgáfu. Minnihlutinn felldi að tekið yrði á dagskrá fundargerð 180. fundar skipulags- og byggingarnefndar. Tillagan var borin upp og voru greidd fjögur atkvæði með tillögunni og þrjú atkvæði á móti. Tillaga fékk því ekki tilskilinn 2/3 hluta atkvæða og var því ekki tekin á dagskrá.
Vegna þessa gengu bókanir á víxl á milli minni- og meirihluta bæjarstjórnar. Bókanirnar má sjá á heimasíðu Mosfellsbæjar
og hér af þeim má sjá að meirihlutinn áttaði sig ekki á slökum málatilbúnaði sínum.

9.október
Bæjarráð heimsækir stofnanir
Árlegar heimsóknir bæjarráðs til stofnana í tengslum við fjárhagsáætlanagerð voru í síðustu viku.  Í heimsóknunum ræddu bæjarráðsmenn við yfirmenn stofnana og deilda um rekstur ársins og framtíðina.  Á myndinni má sjá bæjarráð funda á Reykjakoti.
 

 

9.október
Viðtalstímar bæjarfulltrúa í Mosfellsbæ
Bæjarfulltrúar í Mosfellsbæ, þeir Karl Tómasson og Marteinn Magnússon, verða með viðtalstíma miðvikudaginn  11. október  2006  á bæjarskrifstofunni, Þverholti 2, 4. hæð kl. 17:00 til 18:00

4.október
Tekist á um félagslegt leiguhúsnæði.
Á 450. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar sem haldinn var miðvikudaginn 20.september sl. tókust fulltrúar B og D-lista á um félagslegar íbúðir í bæjarfélaginu en hér má lesa bókanir sem gengu á milli vegna málsins.
Fulltrúi B-lista fagnar breyttum hugsunarhætti í fjölskyldunefnd. Hugmyndir um að selja ekki fleiri félagslegar íbúðir er í anda þeirra tillagna og bókana sem fulltrúi B-listans hefur lagt til í fjölskyldunefnd undanfarin ár. Í ört vaxandi bæjarfélagi ber bæjarstjórn / fjölskyldunefnd að huga að því að auka framboð á félagslegu leiguhúsnæði er tekur mið af þörfum skjólstæðinga fjölskyldusviðs hverju sinni.
Bæjarfulltrúar D-listans mótmæla þeirri fullyrðingu fulltrúa B-listans að hér sé um að ræða breyttan hugsunarhátt í fjölskyldunefnd.
Á undanförnum árum hefur ásókn í félagslegt húsnæði verið í sögulegu lágmarki en teikn eru á lofti um að það kunni að vera að breytast. Fjölskyldunefnd er því að bregðast við breyttum aðstæðum í þjóðfélaginu.

2.október
Hátíðartónleikar
Listaskóli Mosfellsbæjar hélt hátíðartónleika sunnudaginn 1.október í tilefni af því að 40 ár eru liðin frá stofnun tónlistarskóla í Mosfellsbæ. Tónleikarnir voru haldnir í Hlégarði en fram komu nemendur og kennarar tónlistardeildar Listaskólans. Gestum var boðið upp á veitingar í boði Mosfellsbæjar eða eins og Atli Guðlaugsson skólastjóri skólans komst að orði “veitingar í boði hreppsnefndar” og vísaði þá til gamals siðar frá árum áður þegar tónlistarskólinn var í Mosfellssveit og hreppsnefnd var við líði.
 

27.september
Seinkun og tafir í Krikahverfi.

Mikil seinkun hefur verið á gatnagerð í Krikahverfi en verkið hefur tafist í tæpa þrjá mánuði. Mosfellsbær hefur ekki getað staðið við afhendingu á byggingarlóðum á réttum tíma í Krikahverfi vegna seinkunar á frágangi gatna ofl. frá hendi verktaka en Jarðvélar ehf. hafa séð um framkvæmdirnar. Hefur þetta haft talsverð áhrif á þá sem fengu úthlutaðar lóðir á svæðinu og máttu greiða með stuttum fyrirvara uppsett lóðaverð, en reikningar voru sendir út fyrir áramót eins og mönnum er í fersku minni. Mosfellsbær hefur ekki boðið neinum lóðarhafanum bætur að því sem mosfellsfrettir.is hefur komist að, en mosfellsfrettir.is hafa haft spurnir af einstaklingum sem hafa haft af þessu nokkur óþægindi og hafa hugsað sér að leggja fram bótakröfur.


26.september
Yfirfasteignamatsnefnd fellir nýgert endurmat úr gildi!
Í nýföllnum úrskurði Yfirfasteignamatsnefndar er ógild endurmatshækkun jarðarinnar  Elliðakots sem Fasteignamat ríkisins gerði að ósk Mosfellsbæjar í lok síðasta árs og taka átti gildi 1.desember s.l., en endurmatið átti að hækka úr kr.1.174.000 í kr.54.408.000.
Í niðurstaða úrskurðarins segir m.a. “Krafa um ómerkingu hins kærða endurmats er í fyrsta lagi byggð á því að eigendum hafi ekki verið gefinn kostur á að tjá sig um gögn málsins á meðan málið var til meðferðar hjá Fasteignamati ríkisins”. Ljóst þykir að í framhaldi af þessum úrskurði muni margur landeigandinn kæra sitt nýfengna háa endurmat, en lönd hafa hækkað mikið í Mosfellsbæ síðustu misseri.

25.september
Ályktun frá framkvæmdastjórn Landsambands framsóknarkvenna
Ályktun frá framkvæmdastjórn Landsambands framsóknarkvenna frá fundi framkvæmdastjórnar Reykjavík 22. september 2006
Áskorun til framsóknarkvenna:
Framkvæmdastjórn Landsambands framsóknarkvenna skorar á  framsóknarkonur að gefa kost á sér á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir komandi alþingiskosningar. Stjórnin leggur áherslu á að mikilvægi þess að auka hlut kvenna á Alþingi, þannig geta konur haft áhrif á samfélagið og áframhaldandi mótun þjóðfélagsins.
Landsamband framsóknarkvenna leggur áherslu á að í fjórum efstu sætum sé jafnt kynjahlutfall og þar verði tvær konur og tveir karlar, þar sem fjögur efstu sæti framboðslistanna hafa mest um það að segja hverjir fái sæti á Alþingi. Mikilvægt er að rétta hlut kvenna á Alþingi og auka þar með nútímalýðræði.


20.september
Skólaakstur í Borgarholtsskóla
Bæjarráð Mosfellsbæjar ákveð 788 fundi sínum  á  að gera tilraun með morgunakstur í Borgarholtsskóla.
Forsaga málsins er að á vordögum var Korpúlfsstaðavegur opnaður og þar með styttist vegalengdin milli Mosfellsbæ og Borgarholtsskóla verulega þar sem að Strætó býður ekki upp á ferðir á þessari leið var talið raunhæft að gera tilraun með því að bjóða nemendum upp á akstur á morgnana.  
Morgunakstur hefst þriðjudaginn 19. september
07:45  Reykjavegur / Hafravatnsvegur 
07:49 Háholt á móti bæjarskrifstofum 
07:53 Lágafellsskóli / strætisvagnabiðstöð

14.september
Hestamannafélagið Hörður fær 25 milljóna styrk

Tekið úr fréttatilkynning frá landbúnaðarráðuneytinu nr. 4/2006
Nefnd sem landbúnaðarráðherra skipaði í mars síðastliðnum til þess að úthluta styrkjum til byggingar reiðhúsa hefur lokið störfum. Alls bárust 41 umsókn og úthlutað var styrkjum til byggingar 28 reiðhúsa víðs vegar um landið. Samtals var úthlutað 330 milljónum.
Hestamannafélagið Hörður, Mosfellsbæ, fær kr. 25 milljónir til byggingar reiðhallar í Mosfellsbæ þar sem gert er ráð fyrir sérstakri aðstöðu til þjálfunar fatlaðra og sjúkra í samstarfi við Reykjalund
.

25.ágúst.
Eru Vinstri- grænir í raun grænir?

Meirihluti sjálfstæðismanna og vinstri grænna í bæjarstjórn Mosfellsbæjar og fulltrúar Samfylkingarinnar eru komnir í hár saman vegna tengivegar að Leirvogstungu og gengu bókanir þeirra á milli á 448. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar sem haldinn var miðvikudaginn 23. ágúst sl..
Það er mat meirihluta sjálfstæðismanna og vinstri- grænna að hér sé um að ræða framkvæmd sem sé tilkynningarskyld til Skipulagsstofnunar en ekki matsskyld samkvæmt lögum.
Fulltrúar Samfylkingarinnar gerðu það að tillögu sinni að samþykkt verði af hálfu Mosfellsbæjar að fram fari mat á umhverfisáhrifum vegna framkvæmdarinnar óháð því hvort hún sé matskyld eða ekki. Eins og fram kemur í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar þá telja þeir að það sé áfellisdómur yfir núverandi meirihluta sjálfstæðismanna og vinstri grænna í umhverfismálum að hafa ekki vilja til að rannsaka til hlítar þau umhverfisáhrif sem umrædd framkvæmd hefur.

25.ágúst.
"Í túninu heima" dagskrá
Föstudagur 25. ágúst 2006

Kl. 10:00 Kjarni
dagskrá fyrir leikskólabörn í Bókasafni Mosfellsbæjar í Kjarna í samráði við leikskóla bæjarins. Myndlistarsýning í listasalnum í Kjarna.
Kl. 16:00 – 20:00 Íþróttamiðstöð/sýningarhöll opnuð
Fyrirtæki, klúbbar, félagasamtök og einstaklingar sýna starfsemi sína.
Kl. 17:00 Bæjarleikhúsið
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýnir leikritið Lion King.
Kl. 19:45 Íþróttamiðstöð/sýningarhöll
setning hátíðardagskrár: ragnheiður ríkharðsdóttir bæjarstjóri setur hátíðina.
dagskrá á hátíðarsviði í sýningarhöll:
Kl: 20:00 – 20:30 Vorboðarnir – stjórnandi: Páll Helgason
Kl: 20:30 – 21:00 reykjalundarkórinn – stjórnandi: Íris Erlingsdóttir
Kl. 20:00 Varmárskóli – hátíðarsalur
Bílskúrabönd stíga á stokk. söngkeppni 13 – 18 ára söngvara.
Kl. 21:15 Brekkusöngur, varðeldur, eldblástur og stomp við fótboltavöllinn í Ullarnesbrekku
Bílastæði við íþróttahús, Hlégarð og Brúarland. Göngustígur liggur meðfram Varmá, yfir göngubrú og að fótboltavelli. Félagar úr Leikfélagi Mosfellsbæjar hita upp með eldblæstri og stompi. dúettinn Hljómur leiðir fjöldasöng, starfsmenn áhaldahúss sjá um bálköst.
Engin umferð bíla er leyfð inn á svæðið.

Laugardagur 26. ágúst 2006
Kl. 10:00 – 16:00 Prófaðu að pútta hjá golfklúbbnum Kili
Púttflatir Hlíðarvallar opnar fyrir alla sem langar að prófa að pútta. Í klúbbhúsinu eru veittar nánari upplýsingar.
Kl. 10:00 – 18:00 Íþróttahús/sýningarhöll
Fyrirtæki, klúbbar, félagasamtök og einstaklingar kynna starfsemi sína.
dagskrá á hátíðarsviði í sýningarhöll:
Kl: 10:30 – 11:00 Karatesýning karatedeildar UMFA
Kl: 11:30 – 12:00 Fimleikasýning fimleikadeildar UMFA
Kl: 13:00 – 13:30 álafosskórinn – stjórnandi: Helgi R. Einarsson
Kl: 14:00 – 14:30 Kammerkór Mosfellsbæjar stjórnandi: Símon H. Ívarsson
Kl: 15:00 – 15:30 Mosfellskórinn – stjórnandi: Helgi R.Einarsson
Kl: 16:30 – 17:00 Leikfélag Mosfellsbæjar með dagskrá
Kl: 17:30 – 18:00 Karlakór Kjalnesinga – stjórnandi: Páll Helgason
Kl. 10:00 – 12:00 Íþróttasvæðið að Varmá
Ratleikur fyrir alla aldurshópa með léttum spurningum. Skátafélagið Mosverjar.
Kl. 11:00 - 17:00 Fló og fjör
Flóamarkaður í tjaldi við Varmá. Allt á að seljast, klinkið í fullu gildi.
Kl. 11:00 – 17:00 Álafoss/Stekkjarflöt
Útimarkaður í álafosskvosinni. Boðið upp á grænmeti frá reykjum, dalsgarði og sólheimum. Heimatilbúin matvara og handunnar vörur svo eitthvað sé nefnt. Skátafélagið Mosverjar með dagskrá, veitingar, grín og glens fyrir fólk á öllum aldri á Stekkjarflöt.
Kl. 14:00 Bæjarleikhúsið
Leikfélag Mosfellssveitar: Önnur sýning á Lion King.
Kl. 14:00 Íþróttasvæði hestamannafélagsins Harðar
Reiðsýning við Harðarból.
Kl. 14:00 Varmárvöllur
Knattspyrnuleikur í meistaraflokki karla í 2. deild Afturelding – Fjarðarbyggð.


22.ágúst
"Í túninu heima"
Stórdansleikur í Hlégarði

Laugardaginn 26.ágúst verðu stórdansleikur í Hlégarði í tengslum við hátíðina í túninu heima.

 

18.ágúst
Útimarkaður í Álafosskvos
"Í túninu heima"
Varmársamtökin standa fyrir útimarkaði í Álafosskvos í tengslum við hátíðina Í túninu heima laugardaginn 26. ágúst kl. 11-17.
Á boðstólum verður allt milli himins og jarðar svo sem ferskt grænmeti frá Dalsgarði, Reykjum og Sólheimum; heimalöguð sulta, chutney og kryddolíur; nýafskornar rósir, íslenskt te frá Hveragerði, söl, harðfiskur og glænýr Þingvallasilungur.
Handmálaður leir frá Portúgal, antikmunir frá Antikhúsinu, íslensk framleiðsla í Álafossbúð og barnafatnaður à la Sigur Rós (tannálfarnir). Kompudót og ótal margt fleira - bæði gamalt og nýtt.

Skátafélagið Mosverjar heldur lífi í mannskapnum með gómsætum veitingum og býður krökkunum í leiktæki. Hestar verða til reiðu fyrir börnin o.fl., o.fl.
Varmársamtökin hvetja Mosfellinga til að taka hraustlega til hendinni og stækka við sig með því að setja í verð það sem nýtilegt er í bílskúrum, fataskápum og öðrum skúmaskotum heimilisins.

Allir geta verið með og tekið þátt í að skapa sannkallaða sveitar- og markaðsstemningu í Álafosskvos. Verið með í að glæða Mosfellsbæ lífi!


5.júlí
Erum farin í sumarfrí frá og með 5.júlí til og með 17 ágúst.

 

 




30. júní
Styrkir til að stunda íþrótta-, tómstunda- og listgreinar.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar staðfesti með sjö atkvæðum á 446. fundi sínum miðvikudaginn 28. júní sl., afgreiðslu 112. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, en afgreiðsla nefndarinnar var að eftirtaldir hljóti styrki til að stunda íþrótta-, tómstunda- og listgreinar sínar sumarið 2006:

1) Ólafur Þór Arnalds, tónlist.
2) Kristján Þór Einarsson, golf.
3) Brynja Finnsdóttir, frjálsar.
4) Árni Már Árnason, sund.
5) Sigrún Harðardóttir, tónlist.
6) Embla Ágústdóttir, sund.

29. júní

Bach, Anna Guðný og Bryndís Halla í stofunni á sunnudag
Sunnudaginn 2. júlí heldur stofutónleikaröð Gljúfrasteins áfram. Að þessu sinni verður eftirlætis tónskáld Halldórs Laxness, Johann Sebastian Bach, í forgrunni. Um tónlist Bach sagði Halldór í útvarpserindi að það væri varla hægt að lýsa henni með orðunum einum saman.
Það eru þær Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Bryndís Halla Gylfadóttir sellóleikari sem flytja verk eftir J.S. Bach og Sergei Rachmaninov á sunnudaginn kemur.

Tónleikarnir hefjast kl. 16:00 og efnisskráin er sem hér segir:
J.S. BACH (1685-1750) ARÍA
J.S. BACH SÓNATA NR. 1 Í G DÚR BWV 1027
Adagio
Allegro ma non tanto
Andante
Allegro moderato
J.S. BACH ARIOSO
SERGEI RACHMANINOV VOCALISE OP. 34 NO 14
(1873-1943)

www.gljufrasteinn.is

23. júní
Ráðning nýs sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs Mosfellsbæjar.  
Tryggvi Jónsson forstöðumaður tækni- og umhverfissviðs Mosfellsbæjar hefur látið af störfum að eigin ósk, en hann hefur ráðið sig til ÍAV.

Bæjarráð samþykkti einróma á 778.fundi sínum að leggja til við bæjarstjórn að Jóhanna Björg Hansen verði ráðin næsti sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Mosfellsbæjar en starfið var auglýst laust til umsóknar þann 7. maí sl.


15. júní

Fulltrúar B- listans í nefndum bæjarins
Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin höfðu samvinnu um kjör í nefndir og fékk hvor flokkur einn fulltrúa í 5 manna nefndir. Í bæjarráð fékk Framsóknarflokkurinn áheyrnarfulltrúa.

Fulltrúar Framsóknarflokksins í nefndum: 
Atvinnu- og ferðamálanefnd:
Ingi Már Aðalsteinsson aðalmaður,  Sveingerður Hjartardóttir varamaður

Fjölskyldunefnd:
Kristbjörg Þórisdóttir  aðalmaður, Helga Jóhannesdóttir varamaður

Fræðslunefnd:
Helga Jóhannesdóttir aðalmaður, Bryndís Bjarnarson varamaður

Íþrótta- og tómstundanefnd:
Eva Ómarsdóttir aðalmaður, Halla Karen Kristjánsdóttir varamaður

Menningarmálanefnd:

Óli Kárason Tran aðalmaður , Halldóra M. Baldursdóttir varamaður

Skipulags- og byggingarnefnd:
Marteinn Magnússon aðalmaður  Þröstur Karlsson varamaður

Umhverfisnefnd:
Halldóra M. Baldursdóttir aðalmaður Eva Ómarsdóttir varamaður

15. júní
17.júní í Mosfellsbæ 2006
11:00 Hátíðarguðsþjónusta í Lágafellskirkju
Ræðumaður. Ásgeir Eiríksson. Einsöngur: Margrét Árnadóttir. Organisti: Jónas Þórir – kór: Kirkjukór Lágafellssóknar. Prestur: Sr Ragnheiður Jónsdóttir þjónar fyrir altari. Skátar standa heiðursvörð við kirkjudyr

13:00 Dagskrá í Bæjarleikhúsi 
Setning hátíðar.  Ávarp fjallkonu. Vorboðar kór eldri borgara Hátíðarræða. Bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2006 heiðraður.

14:00 Skrúðganga frá Bæjarleikhúsi að Hlégarðssvæði.
Skátar leiða gönguna Skólahljómsveit Mosfellsbæjar tekur á móti bæjarbúum.

14:30-16:00 Dagskrá á Hlégarðssvæði  
Leikskólabörn frá Reykjakoti skemmta fólki. Bjarni Töframaður.  Uppákoma frá Leikfélagi Mosfellssveitar.  Fimleikadeild UMFA . Íris Hólm idolstjarna tekur nokkur lög.  Ronja Ræningjadóttir

16:00 Sterkasti maður Ísland
8 sterkustu menn landsins keppa um titilinn sterkasti maður Íslands

Kökuhlaðborð í Hlégarði. Sölutjöld Andlitsmálun.  Tívolí, leikir, glens og gaman með félögum úr Mosverjum.

20:00-22:00Tónleikar á Hlégarðstúninu  
Bob Gillian og strandverðirnir.   Bríet Sunna idolstjarna.  Svitabandið.

6. júní
Vinstrigrænir tryggja áframhaldandi meirihluta sjálfstæðismanna
Viðræður Framsóknarflokks, Samfylkingar og Vinstrigrænna hófust að loknum kosningum um myndun nýs

 

 

 

 

 

 

Veljum íslenskt
Veljum X-B
FYRIR ALLA

 

 

 

To be is to do
Sokrates
Do bee do bee do
Frank Sinatra

 

Viltu koma skoðun  þinni á framfæri, viltu að við látum þig vita þegar nýtt efni er sett inn á síðuna eða óskar þú eftir upplýsingum?
Sendu okkur tölvupós
t:

frettir@mosfellsfrettir.is