Heim
Frambjóðendur
Nefndarfólk
Stefnuskrá
Myndir
Aðsendar greinar
Eldri fréttir 2010
Eldri fréttir 2009 2/2
Eldri fréttir 2009
Eldri fréttir2/2 2008
Eldri féttir 2008
Eldri fréttir 2007 2/2
Eldri fréttir 2007 1/2
Eldri Fréttir 2/2 2006
Eldri fréttir 2006
Eldri fréttir 2005 2/2
Eldri fréttir 2005 1/2
Eldri fréttir 2004
Eldri fréttir 2003
Eldri fréttir 2002
Blöð
Áhugaverðir tenglar
Salurinn

 

„Mínar bestu minningar eru í framtíðinni.“
Erró

                                Eldir fréttir 2010

30. maí
Þakkir til bæjarbúa
Frambjóðendur B-Listans vilja þakka bæjarbúum fyrir þann stuðning sem að þeir fengu í nýafstöðnum kosningum svo og þeim mikla fjölda flokksmanna og sjálfboðaliða sem koma að kosningastarfinu á liðnum mánuðum en listinn fékk 11,2% greiddra atkvæða og því engan mann kjörinn.  Úrslitin verða að teljast vonbrigði þar sem aðeins örfáum atkvæðum munaði að flokkurinn héldi sínum bæjarfulltrúa.

29.maí
Á kjördag.

Í dag verður kosið til sveitastjórnar Mosfellsbæjar til næstu fjögurra ára.

28.maí
Tækifærið er núna!
eftir: Kristbjörgu Þórisdóttur 
Þann 1. janúar 2011 verða málefni fatlaðra flutt yfir til sveitarfélaganna.
Við það skapast langþráð tækifæri til breytinga, ekki ósvipað þeim tímapunkti þegar altækar stofnanir voru lagðar niður að mestu og sambýli reist. Fatlað fólk á sama rétt og annað fólk á því að lifa eðlilegu og góðu lífi og blómstra í samfélaginu.
Þessi réttindi eru tryggð í Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem undirritaður var af fulltrúum Íslands þann 30. mars 2007. Nýverið kynnti félagsmálaráðherra þá fyrirætlun að fullgilda samninginn. Meðal annars þarf að ráðast í heildarendurskoðun á lögum um málefni fatlaðra nr.59/1992 og er lagt til að þau muni þá nefnast lög um réttindi fatlaðs fólks.
Meira....

27.maí 
Framsókn og kraftur í íþróttamálum Mosfellinga
Eftir Snorra Hreggviðsson 
Innan íþróttafélaga í Mosfellsbæ er unnið frábært og óeigingjarnt starf sjálfboðaliða, foreldra, þjálfara, stjórnenda og starfsmanna. Starf félaganna er að mestu í miklum blóma og ætlum við framsóknarmenn að tryggja að svo verði áfram. Á krepputímum þarf að leggja megináherslu á að innra starf félaganna haldist blómlegt og vilja framsóknarmenn samráð við félög um rekstur og uppbyggingu íþrótta- og tómstundastarfs. Skuldir á íbúa Mosfellsbæjar hafa tvöfaldast á síðustu tveimur árum og nema um 800þús. á íbúa, veltufjárhlutfall var 0,7% 2009 en þarf að vera 8% ef vel á að vera.  Fara verður mjög varlega í nýframkvæmdir því búið er að skuldbinda bæjarsjóð fyrir ýmsum framkvæmdum og fyrirhugaðar framkvæmdir gera það að verkum að skuldir stefna í ríflega 1 milljón á íbúa.  Þessar áætlanir sníða rekstri íþróttamannvirkja og uppbyggingarstarfi mjög þröngan stakk. Meira...

26.maí
Sameiginlegur framboðsfundur í Mosfellsbæ

Framboðin til bæjarstjórnarkosninganna í Mosfellsbæ boða til sameiginlegs framboðsfundar með íbúum bæjarins. 
Fundurinn verður haldinn í Hlégarði fimmtudaginn 27. maí og hefst kl. 20:00. 
Að loknum framsöguræðum gefst bæjarbúum tækifæri til spurninga og viðræðna við frambjóðendur við borð framboðanna í sölum Hlégarðs.

Fundinum lýkur kl. 22:00


26.maí
Fundur Öryrkjabandalagsins og frambjóðenda á höfuðborgarsvæðinu.
Fulltrúar B-listans í Mosfellsbæ þáðu boð Öryrkjabandalagsins um fund vegna yfirfærslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga. Kristbjörg Þórisdóttir fulltrúi B-listans  í Mosfellsbæ flutti þar tölu. B-listinn hefur markað sér stefnu þegar kemur að yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitafélaganna. Þann 22.mars sl. sátu fulltrúar framboðsins fund með Þroskahjálp um sama málefni. Svaraði framboðið spurningum Þroskahjálpar en svarið má sjá hér.......

 
24.maí
Gaman hjá Framsókn
Fulltrúar B-listans hafa verið í ferð og flugi um bæinn. Rætt við kjósendur umbæjarmálin, gefið börnunum blöðrur og fullorðnum Framsóknarkaffi. Þá hafa frambjóðendur verið í vinnustaðheimsóknum. Hér eru  myndir sem teknar hafa verið....... 
 






22.maí
Kosning utan kjörfundar
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga þann 29. maí nk. fer fram í Laugardalshöll og er opið alla daga frá kl. 10:00 -22:00.
Lokað verður hvítasunnudag þann 23. maí nk.
Á kjördag verður opið frá kl. 10:00 – 18:00 fyrir kjósendur sem búa utan höfuðborgarsvæðisins.
Símanúmer í Laugardalshöll: 860-3380 og 860-3381.


21.maí
Svör við algengum spurningum og staðhæfingum..
Hver styrkir kosningabaráttuna hjá B-listanum í Mosfellsbæ?
Frambjóðendur vinna við framboðið ásamt ættingjum og vinum í sjálfboðavinnu. Útgáfa bæklinga og annað er hannað af okkur sjálfum og kostað með auglýsingum.
Enginn er á launaskrá hjá framboðinu.  Kosningastjóri fær greiddan útlagðan kostnað og bensínpening.
Meira....


19.maí
Ekki frítt fyrir 5. ára börnin!
Eitt helsta loforð VG fyrir síðustu kosningar var frítt fyrir 5.ára í leikskóla. Sé litið á leikskólagjöld Mosfellsbæjar og borið saman við Reykjavík sést að svo er ekki a.m.k. ef horft til foreldra með eitt barn. Þar kemur í ljós að vegna mismunar í gjaldskrá milli sveitarfélagana þá hefur foreldri með eitt barn í Mosfellsbæ greitt upp fimmta árið fyrirfram þar sem leikskólagjöld eru mun hærri í Mosfellsbæ en í Reykjavík. Munurinn á gjaldskrá Mosfellsbæjar og Reykjavíkur er rúmlega 5500kr á mánuði eða 62.000 á ári (m.v. 11 mán.). Því er ljóst að þegar barnið fer á fimmta árið eru foreldrarnir í raun búnir  að greiða það fyrirfram. Mosfellsfréttir greind  frá þessu í maí 2009 og er því ljóst að engin vilji er hjá meirihlutanum að bæta úr þessu en ný gjaldskrá tók gildi 1. október 2009 og hækkuðu gjöldin frá því sem var 1. janúar 2008.

Ekki kemur fram hverjir eru svokallaður forgangur hjá Mosfellsbæ og því var ekki hægt að miða við Flokk II og III hjá Reykjavíkurborg sem eru einhleypir foreldrar og námsmenn. Hjá Reykjavík telst forgangur vera fyrir börn með þroskafrávik, félagsleg vandamál eða börn starfsmanna .

19.maí
Nýjar bókhaldsreglur blása út eigið fé sveitarfélaganna
Gunnlaugur Júlíusson, sviðstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands sveitarfélaga, hefur sent stjórn sambandsins harða gagnrýni á vinnubrögð reikningsskila- og upplýsinganefndar sveitarfélaga. Nefndin ákvað 9. apríl síðastliðinn að breyta reikningsskilareglum hvað varðar lóðir og lönd sveitarfélaga.

Samkvæmt nýrri reglu ber sveitarfélögum að færa öll lönd sín og leigulóðir sem eignir í efnahagsreikningi. Heimilt er að gera það í ársreikningi 2009 en skylt í ársreikningi 2010.
Hafnarfjörður og Mosfellsbær hafa nýtt sér þessa heimild, sem reikningsskilanefndin samþykkti 29. apríl og hafa kynnt ársreikninga þar sem aðferðinni er beitt. Frá þessu segir á www.visir.is

16.maí
Opinn fundur með Sigmundi Davíð í Mosfellsbæ

Opinn fundur með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni Framsóknarflokksins verður haldinn þriðjudaginn 18.maí kl 20:00 Í listasalnum í Kjarna Þverholti.

Efni fundarins:
Horfum til framtíðar: Breytt stjórnmál, framtíðarlausnir 
fyrir heimilin og atvinnulíf


Allir velkomnir!


15.maí
Kvöldvaka Aftureldingar 
Þann 5. maí síðastliðinn hélt Afturelding kvöldvöku þar sem stjórn félagsins kynnti metnaðarfulla áætlun fyrir framtíðina. Afturelding á að vera athvarf fyrir alla Mosfellinga hvort sem áhuginn liggur í að iðka íþróttir, styðja liðið eða vera sjálfboðaliðar. Stefnan er sett á að helmingur bæjarbúa verði virk í félagsskapnum.  Sjá þeir fyrir sér að 80% barna í Mosfellsbæ verði í íþróttum til 12 ára aldurs og brottfall verði í lágmarki eftir það. Tekið verður upp ný stefna í félaginu þar sem Uppeldisstefnan (barna og unglingastarfið) verði grunnurinn.  Utan um það verði svo tveir valmöguleikar þegar fólk eldist innan félagsins. Annars vegar afreks- og keppnisíþróttir og hins vegar lýðheilsustefna þar sem boðið verður uppá íþróttaiðkun og stuðlað að heilbrigðu líferni án keppnisáherslu.  Ysta lagið er svo félagsstefna þar sem unnið er með Aftureldingarhjartað og félagsstarfið (sjá meðfylgjandi mynd). 

Eftir kynningu stjórnar var svo boðið upp á umræður ásamt spurningatíma með frambjóðendum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.  Mættir voru tveir fulltrúar Framsóknar, Samfylkingar og Sjálfstæðismanna en enginn kom frá Vinstri grænum.

14.maí 

Mosfellsfréttir er komið út
 Mosfellsfréttir 26. árg, 1. tbl. 2010 er komið út. Blaðinu var dreift frítt inn á öll heimili í bænum og vinnustaði.  Í blaðinu eru fjölmargar greinar og viðtöl m.a. við Martein Magnússon sem skipar 1.sætið. Þá eru greinar um ýmis bæjarmál og uppskrift að girnilegum núðlurétti. 
Hér má skoða blaðið í pdf





13.maí
Eiga Sjálfstæðismenn Skátana og Mosfellsbæ?

Í Uppstigningardag auglýsti Sjálfstæðisflokkurinn útivistardag á heilsíðu í Mosfellingi sem í sjálfum sér væri í góðu lagi ef ekki væri fyrir undarlega tengingu Skátanna, Mosfellsbæjar og flokksins.
Í auglýstri dagskrá stendur Skátarnir og Mosfellsbær vígja gönguleiðir sem sagt vígsla Skátanna og Mosfellsbæjar orðin dagsráliður hjá Sjálfstæðisflokknum.  Ekki segir hversu margir mættu í vígsluna en sagan segir að fátt hafi mætt í aðra dagsráliði. 
Hér áður fyrr hefði svona verið kallað þetta að skreyta sig með stolnum fjöðrum.

 

12.maí
Myndlistarsýning Elísabetar Stefánsdóttur
Föstudaginn 14. maí kl. 17 - 19 er opnun sýningar Elísabetar Stefánsdóttur / Betu Göggu, Handföng, í Listasal Mosfellsbæjar.
Sýningin stendur til 29. maí.Verkin á sýningunni eru unnin með blandaðri tækni, akrílmálun, áferðarþrykki og olíupastelkrít.Þau eru unnin útfrá upplifun íslenskra kvenna á eigin líkama, fallegar mjúkar fellingar sem myndast við þétt grip eða smá klípu
sem er ýmist framkvæmt í ergelsi eða losta.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma Bókasafns Mosfellsbæjar. Aðgangur ókeypis

11.maí
Atvinnuleysi minnkar ekkert í Mosfellsbæ 
416 atvinnulausir þar af 245Karlar og 171 kona.
Atvinnuleysi í apríl síðastliðnum mældist 9,0% og minnkar því nokkuð yfir landið, eða um 0,3 prósentustig frá fyrri mánuði. Er þetta í lægri mörkum þess sem reiknað var með,    en Vinnumálastofnun hafði fyrir um mánuði síðan áætlað að atvinnuleysi yrði á bilinu 9,0%-9,4% í mánuðinum. Að meðaltali voru 14.669 manns án atvinnu í apríl og fækkaði þeim um 390 manns milli mánaða. Í sama mánuði árið 2009 voru að meðaltali 14.814 manns án atvinnu, eða um 9,1% af vinnuafli. Meira um stöðu málsins á vef vinnumálastofnunar.  Hér......

4.maí
Mosfellsbær tapar í Hæstarétti

Hæstiréttur dæmdi Kaupfélagi Kjalarnesþings í vil sl. föstudag í máli vegna tilraunar Mosfellsbæjar til útburðar af leigulóðum þess síðarnefnda. Meirihlutinn er búinn að vera í  þriggja ára deilu vegna hlutaðeigandi  lóða í miðbænum. Mosfellsbær ætlaði að taka lóðir lögaðilans án bóta og ganga þannig í raun gegn stjórnarskrá vörðuðum rétti lögaðilans.  
Fulltrúi Framsóknarmanna reyndi að telja bæjarstjórn hughvarf með tillögu um að draga áfrýjunina til baka en meirihluti bæjarstjórnar felldi tillöguna á 534 fundi sínum þann 21.apríl sl. 

Þetta er fjórða skiptið sem bærinn tapar í þessu máli gegn Kaupfélaginu. Fyrst tapaði Mosfellsbær einhliða riftun lóðarleigusamnings sem hafnað var af Sýslumanni, síðan staðfesti Héraðsdómur höfnun sýslumanns, þá fór Mosfellsbær í útburðarmál fyrir Héraðsdómi sem tapaðist og nú síðast tapaði Mosfellsbær málinu fyrir Hæstarétti. 

Þessi skrípaleikur og málaferli hafa kostað Mosfellsbæ og skattgreiðendur milljónir króna sem farið hafa í að greiða m.a.
fyrir málskostnað, lögfræðikostnað og dómkvadda matsmenn. Það verður fært á spjöld sögunnar hvernig meirihluti Sjálfstæðismanna og Vinstri-Grænna ætlaði sér að valtra yfir lögaðila með lögbundinn rétt sinn.

3.maí
Hjólað í vinnuna er frábært tækifæri

Taktu þátt í Hjólað í vinnuna á þínum vinnustað og bættu heilsuna og taktu upp hollari lífsstíl og bættu umhverfið í kringum þig. Færri bílar í umferðinni þýða minni hættu fyrir börnin á leið í skólann.
Mosfellsbær stóð sig vel í lífshlaupinu. Nú er komin tími til að toppa hina bæina í  Hjólað í vinnuna.
Nánar á vef verkefnisins
: http://hjoladivinnuna.is/
Strætó er góður valkostur
Þjónusta strætó við Mosfellsbæingar er góð. Á annatíma er leið 15 á kortersfresti og leið vagnsins liggur meðfram helstu skiptistöðvum og stórum vinnustöðum í Reykjavík. Ef þú vinnur niðri í bæ, eða átt heima niðrí bæ og vinnur í Mosfellsbæ, getur þú tekið strætó og verið með í Hjólað í vinnunna og lagt þínum vinnustað lið og jafnframt sparað bensín og aukið hreyfingu þína. 


 


2. maí
Kosningarskrifstofa B-listans opnuð
Laugardaginn 1.maí sl. opnaði kosningarskrifstofa B-listans að Háholti 14. Fullt var út úr dyrum og mjög gaman.  Sigmundur Davíð formaður flokksins leit við  og flutti skemmtilegt og snjallt ávarp við mikla ánægju gesta.  veður opin alla virka daga frá kl 16:00 -1900 og á Laugardögum frá kl 11:00 – 14:00. fram að kosningardegi 29.maí n.k.  
Allir velkomnir í kaffi.

 

 

 

 

28.apríl
Kosningarskrifstofa Framsóknar ,
Framsóknarflokkurinn opnar kosningaskrifstofu laugardaginn 1.maí n.k. að Háholti 14 2.hæð.  Kaffi og veitingar. Frambjóðendur verða á staðnum.  Mosfellingar eru hvattir til að koma. Opið er milli 15-17:00.  

sjá kynningaplagat. 

25.apríl

Mosfellsfréttir er komið út
Mosfellsfréttir 26. árg, 1. tbl. 2010 er komið út. Blaðinu var dreift frítt inn á öll heimili í bænum og vinnustaði.  Í blaðinu eru fjölmargar greinar og viðtöl m.a. við Bryndísi Bjarnarson sem skipar 2.sæti B-listans og Snorra Hreggviðsson sem er í 3.sæti. Þá er kynning á frambjóðendum í miðopnu blaðsins. Vef útgáfu (Pdf) má lesa hér.





23.apríl
Umhverfisdagur Hestamannafélagsins  

Sumardaginn fyrsta 22. apríl sl. klukkan 10:00 blés beitar- og umhverfisnefnd Hestamannafélagsins Harðar til hins árlega hreinsunardags  þar sem gæðingarnir fengu frí en þess í stað tóku knaparnir sér hrífu og/eða plastpoka í hönd og hreinsuðu til í nánasta umhverfi félagsins. Reiðvegir voru rakaðir og allt rusl tínt meðfram þeim auk þess sem hesthúsahverfið og nágrenni þess var hreinsað.

Hreinsuðu hestamenn svæðið frá Mosfellsdal og meðfram ströndinni allt að bæjarmörkum. Það voru milli 60 og 70 hestamenn sem tóku þátt í átakinu og var stemmningin mjög góð eins og sjá má á myndunum. 
Að lokinni hreinsun bauð félagið hreinsunarmönnum upp á grillaða hamborgara og pulsur.
Þetta er í ellefta skipti sem beitar-og umhverfisnefnd félagsins stendur fyrir þessum skemmtilega viðburði en mikið rusl virðist fjúka inn á svæðið t.d. frá byggingarsvæðunum. Fyrsta árið sem hreinsað var afreksturinn fjórir fullir gámar en nú voru það tveir kúfullir gámar. Fjölgun þátttakenda í hreinsunardeginum er  til marks um aukna umhverfisvitund hestamann.

 

 

 

22.apríl
Sumardagurinn fyrsti

Skrúðgangan hélt frá miðbæjartorginu stundvíslega kl 1300. Gengið var niður í Lágafellsskóla þar sem skemmtidagskrá og leiktæki tóku við. Trúðar glens og grín, barna- og unglingakórinn ásamt skólahljómsveit Mosfellsbæjar, Birgir Haraldsson, Bryndís Rut Óskarsdóttir og Bryndís Gunnarsdóttir skemmtu gestum. Fjöldi manns nutu veðurblíðunnar og skemmtiatriðanna,eins og myndirnar bera með sér. 

 

 

8.apríl
Framboðslistinn samþykktur samhljóða
Marteinn og Bryndís leiða nýsamþykktan lista Framsóknarmanna
Á fjölmennum félagsfundi Framsóknarfélaganna í Mosfellsbæ miðvikudaginn 31.mars s.l. var nýr framboðslisti fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 29.maí n.k. samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.

Efstu sex sætin eru samkvæmt bindandi niðurstöðu fyrsta prófkjörs framsóknarmann í Mosfellsbæ. Næstu sæti eru samkvæmt niðurstöðu uppstillingarnefndar félagsins.  Mikil endurnýjun er á listanum eða níu af fjórtán. Inn kemur nýtt og kraftmikið fólk með víðtæka reynslu. Mikil ánægja og einhugur var meðal fundarmanna með framboðslistann.

Þröstur Karlsson atvinnurekandi og f.v. bæjarfulltrúi skipar heiðursæti listans. Alþingismennirnir Siv Friðleifsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson voru sérstakir gestir fundarins.

Marteinn Magnússon                          1. sæti
Bryndís Bjarnarson                            2. sæti
Snorri Hreggviðsson                           3. sæti
Björg Reehaug Jensdóttir                    4. sæti
Linda Björk Stefánsdóttir                     5. sæti
Sveinbjörn Ottesen                             6. sæti
Ásta Björk Benediktsdóttir                   7. sæti
Óli Kárason Tran                                8. sæti
Guðni Þorbjörnsson                            9. sæti
Eggert Sólberg Jónsson                      10. sæti
Vigdís Beck                                        11. sæti
Kristbjörg Þórisdóttir                            12. sæti
Níels U. Hauksson                               13. sæti
Þröstur Karlsson                                 14. sæti

 

7.apríl
Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta boð í tvöföldun Vesturlandsvegar
Íslenskir aðalverktakar áttu lægsta boð í tvöföldun Vesturlandsvegar milli Hafravatnsvegar og Þingvallavegar í Mosfellsbæ, upp á 75,8 prósent af kostnaðaráætlun en næstlægsta boð var aðeins einu prómilli hærra. Þetta er fyrsta stóra útboðið hjá Vegagerðinni í nærri heilt ár.

Tíu verktakar buðu en kostnaðaráætlun var upp á 339 milljónir króna. Íslenskir aðalverktakar reyndust lægstir, buðu 256,9 milljónir króna, eða 75,8 prósent af kostnaðaráætlun en aðeins munaði 270 þúsund krónum á þeim og Loftorku, sem átti næstlægsta boð, upp á 75,9 prósent af áætlun, og einnig var stutt í þriðja lægsta boð, frá Háfelli. Búið er við að framkvæmdir hefjist á næstu vikum en verkinu á að ljúka að fullu haustið 2011. Frá þessu sagði á www.visir.is

29.mars
Almennur félagsfundur Almennur félagsfundur verður haldinn í Framsóknarfélagi Mosfellsbæjar miðvikudaginn 31 mars n.k. og hefst kl 17.00. Sérstakur gestur fundarins verður alþingismaðurinn Sigurður Ingi Jóhannsson.  

Fundarefni:
Framboðslisti vegna sveitarstjórnarkosninganna verður borinn upp til samþykktar. 

Framsóknarfélag Mosfellsbæjar 


26.mars
Meirihlutinn hafnaði íbúalýðræði í tvígang!
Það ótrúlega gerðist á bæjarstjórnarfundi miðvikudaginn 24.sl., meirihluti Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna höfnuðu í tvígang tillögu minnihlutans um íbúakosningu samhliða sveitarstjórnarkosningum þann 29.maí n.k..   Tillögurnar gengu út á að íbúar yrðu spurðir um staðsetningu kirkju og hvort kirkja og menningarhús ættu að vera sambyggð eða ekki. Þetta verður að teljast merkilegt í ljósi þess að þessir sömu flokkar hafa reynt slá ryk í augu bæjarbúa með því að skreyta sig með íbúalýðræði þótt framkvæmd þess hafi þótt lítt sannfærandi til þessa. Með þessu telst það full sannað að íbúalýðræði er ekki ofarlega á forgangslista þessar flokka. Bókanir gengu á víxl en þær má sjá í heild sinni inn á vef bæjarins www.mos.is en hér á eftir fer bókun fulltrúa B-lista. Meira.....

 

23.mars
Framsókn í Mosfellsbæ svarar spurningum Þroskahjálpar
Fulltrúar á framboðslista Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ svaraði í gær spurningum Þroskahjálpar en Landssamtökin Þroskahjálp óskuð því eftir að fá skoðun  framboðsins á því hvaða möguleika það sæi í fyrirhuguðum breytingum og hvernig staðið verði sem best að yfirfærslunni. Þá kölluðu samtökin eftir svari við því hvort framboðið hafi kynnt sér samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og áhrif þess samnings á þjónustuna. 
Samtökin lýstu einnig yfir því að þau eru hvenær sem er fús til skrafs og ráðgerða um þetta mikilvæga verkefni. 
Svarið má sjá hér.....

 

22.mars
Málefnafundir Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Málefnafundir Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verða haldnir dagana 23,24 og 29 mars n.k. fundarstaður salur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar Háholti 14 2.hæð.

Þriðjudagur 23. mars kl. 20:00      Umhverfis og skipulagsmál,  fundarstjórar: Marteinn og Bryndís
Miðvikudagurinn 24 mars. kl: 17:00  Menningar- íþrótta og tómstundamál,  fundarstjórar: Eggert og Óli
Miðvikudaginn  24. mars kl. 20:00   Fjölskyldu og fræðslumál,  fundarstjórar: Björg,Helga og Ingi Már 
Mánudagurinn 29. mars kl . 17:45    Atvinnu-þróunar og ferðamál,   fundarstjórar: Snorri og Marteinn

Allir velkomnir     

Byggjum betri bæ saman!


16.mars
Mosfellsbær á eldrauðu ljósi
Sérstakt í ljósi stóraukinna tekna sveitarfélagsins undanfarin ár.
Í samantekt Morgunblaðsins núna um helgina kom m.a. fram að flest sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafi farið yfir á eldrauðu ljósi eins og  það er orðað. Í greininni kemur meðal annars fram að engin ákvæði eru í lögum um hversu miklum heildarskuldum sveitarfélögin mega safna. Þá er það sérstakt að skuldir sveitarfélaganna skuli vera svo miklar sem raun ber vitni í ljósi gríðarlegra tekjuaukningar sem sveitarfélögin hafa fengið á tímum góðæris.  
Athygli vekur að samkvæmt samantekt Morgunblaðsins þá er skuldarstaða Mosfellsbæjar mjög alvarleg eða 171% af heildartekjum sveitarfélagsins og skuldir pr. íbúa 923.605,-kr.   Greinina má sjá hér.....


12.mars
Afmælistónleikar karlakórsins Stefnis
Karlakórinn Stefnir hélt 70 ár afmælistónleika í Guðríðarkirkju
Karlakórinn Stefnir er 70 ár og af því tilefni voru tónleikar í Guðríðarkirkju 10,11,og 12 mars. Á efnisskrá kórsins voru nítján lög sem kórinn hefur flutt á tónleikum í gegnum tíðina. Stjórnandi kórsins er Gunnar Ben, undirleikari á tónleikunum var Judith Þorbergsson en einsöngvari var Kristinn Sigmundsson sérstakur gestur var Þórunn Lársdóttir.
Tónleikarnir voru hin besta skemmtun og ljóst að kórinn hefur sjaldan eða aldrei verið betri. Kristinn Sigmundsson kryddaði tónleikanna með einstökum og gefandi flutningi. Þórunn Lárusdóttir flutti mjög fallega “Sofðu unga ástin mín” og með tilþrifum“ I got rhythm”.
Gaman verður að fylgjast með öldruðum (70) kórnum á næstunni undir stjórn hins unga stjórnanda.
 

9.mars
Heilsuvika í Mosfellsbæ 3. - 8. maí 2010
Heilsuvika verður í Mosfellsbæ vikuna 3-8. maí n.k. Mosfellsbær er aðili að lýðheilsuverkefni sem ber yfirskriftina"Allt hefur áhrif, einkum við sjálf" sem Lýðheilsustöð stendur fyrir. Alls eru 25 sveitarfélög þátttakendur í verkefninu.
Síðustu 2 ár hefur heilsuvikan einkum verið sniðin að leik- og grunnskóla bæjarins. Heilsuvikan hefur endað á laugardegi með heilsuhlaupi og kynningum á ýmsu heilsutengdu efni. Einnig hefur verið boðið upp á blóðþrýstings- og beinþéttnimælingar.
Í ár verður heilsuvikan dagana 3. – 8. maí. Stefnt er að frekar þátttöku og virkni allra Mosfellinga í heilsuvikunni og ekki síður að hvetja til þátttöku í heilsuhlaupinu þann 8. maí sem verður á Varmársvæðinu. 
Heilsuvikan er því kjörið tækifæri fyrir Mosfellinga til að efla hreyfingu og útivist, borða hollan mat og fara þannig heilbrigð inn í sumarið.

3.mars
Fámennt á samráðsfundi
Skipulags- og byggingarnefnd boðaði til samráðsfundar með íbúum um umræðu efnið nýtt hesthúsahverfi í Mosfellsbæ. Frummælendur voru Gylfi Guðjónsson arkitekt og Guðjón Magnússon formaður hestamannafélagsins Harðar.  Fámennt var á fundinum og fáir aðrir en embættismenn nefndarmenn og frambjóðendur auk örfárra hestamanna.  Líflegar umræður sköpuðust og margar góðar hugmyndir vöknuðu. Farið var í SVOT greiningu á einum átta mögulegum staðsetningarmöguleikum að nýju hesthúsahverfi.

3.mars
Ragnheiður Ríkharðsdóttir fékk fjórar milljónir í framlög vegna prófkjörs.
Í Fréttablaðinu í dag kom fram að Ragnheiður Ríkharðsdóttir fékk hálfa milljón frá Baugi vegna prófkjörs 2006 og í heildina fjórar milljónir og 250 þúsund krónur vegna prófkjörs fyrir alþingiskosningarnar 2007. Önnur framlög lögaðila námu 2.750.000 krónum, undir hálfri milljón hvert og eitt. Ein milljón kom frá einstaklingum. Þá kom fram að  Ragnheiður reiddi sjálf fram tæpar 2,5 milljónir. Ragnheiði bar ekki skylda til að birta þessar upplýsingar. Þó nokkrir þingmenn sjálfstæðisflokksins hafa þegið fjárframlög frá Baugi og fyrirtækjum tengdum þeim.
Ragnheiður ein hæst launaða alþingiskonan! Skemmst er að minnast umfjöllunar DV um laun sveitarstjórnamanna sem tóku sæti á alþingi eftir alþingiskosningarnar 2007 en þar kom fram að laun Ragnheiðar voru tæplega ein og hálf milljón á mánuði. Ragnheiði lét af störfum 31.ágúst 2007 eftir rúmlega fimm ára starf sem bæjarstjóri. 

27.febrúar
Marteinn Magnússon í 1.sæti
Marteinn Magnússon bæjarfulltrúi fékk 68,7% atkvæða í fyrsta sæti í prófkjörinu í dag.
en prófkjörið var það fyrsta í sögu félagsins. Mikil endurnýjun var á listanum. Tíu frambjóðendur tóku þátt í prófkjörinu og varð röð sex efstu manna sem hér segir:
1. Marteinn Magnússon
2. Bryndís Bjarnarson
3. Snorri Hreggviðsson
4. Björg Reehaug Jensdóttir
5. Linda Björk Stefánsdóttir
6. Sveinbjörn Ottesen

26. febrúar
Fundur með frambjóðendum prófkjörs Framsóknarmanna.
Fundur með frambjóðendum sem taka þátt í prófkjöri Framsóknarmanna var haldinn í gærkvöldi. Frambjóðendur fluttu framsögu og þá var opnað fyrir spurningar. Mest


26.febrúar
Valdimar Leó í þriðja sætið
Sigurvegari prófkjörs Samfylkingarinnar Valdimar Leó hafnaði í þriðja sæti eftir að kjörnefnd hafði breytt listanum í kjölfar mikillar óánægju í herbúðum Samfylkingarinnar. Óánægjan beindist m.a. að því að hafa tvo karla í efstu sætunum og töldu sumir að um óeðlilega mikla smölun hefði verið að ræða meðal frambjóðenda í prófkjörinu. Í prófkjörinu hlaut enginn frambjóðenda 50% atkvæða og því ekki bindandi sæti. Athygli og undrun vekur að Valdimar sem aðeins var tveimur atkvæðum frá því að fella sitjandi oddvita til 16 ára sé settur í þriðja sætið. 
Fleyg eru orð Hönnu Bjartmas í Fréttablaðinu en þar gagnrýndi hún að tveir miðaldra karlmenn leiddu listann.  
1.   Jónas Sigurðsson
2.   Hanna Bjartmars Arnardóttir
3.   Valdimar Leó Friðriksson
4.   Anna Sigríður Guðnadóttir


25.febrúar
FUNDUR MEÐ FRAMBJÓÐENDUM
Kynningarfundur með frambjóðendum prófkjörsins verður haldinn fimmtudaginn 25. febrúar klukkan 20:00 í sal Framsóknarfélags Mosfellsbæjar að Háholti 14. 2.hæð. frambjóðendur.


25.febrúar
Mikil ólga innan Samfylkingar!

Athygli hefur vakið sú mikla ólga sem er innan Samfylkingar í kjölfar þess að Valdimar Leó var rétt búinn að fella sitjandi oddvita í prófkjöri flokksins.

Sérstaka athygli vekur fullyrðing oddvita Samfylkingarinnar í  www.vísi.is í dag að ekki komi til greina að hafa karla í tveimur efstu sætum listans. Í svipaðan streng tók Hanna Bjartmars í Fréttablaðinu nýlega en þar gagnrýndi hún að tveir miðaldra karlmenn leiddu listann. Samkvæmt www.visir.is þá er haft eftir Valdimar að “hæpið sé gagnvart kjósendum að færa sig neðar þar sem hann hafi í raun unnið kosningasigur en einungis einu atkvæði munaði á honum og Jónasi” en Jónas fékk aðeins 38% atkvæða til að leiða listann. 

Þess má geta að Jónas hefur verið í forystu G-listans og síðar Samfylkingar í sextán ár. Kjörnefndinni bíður því vandasamt verkefni enda ljóst að til klofnings gæti komið líkt og gæti verið uppi hjá Sjálfstæðismönnum í Kópavogi.


22.febrúar
Mosfellsbær og Álftanes skulda rúma 7 milljarða
Dv skrifaði á dögunum ágæta grein um skuldastöðu sveitarfélaganna en í henni kemur m.a. fram samanburður á skuldum nokkurra af stærstu sveitarfélögunum.  Í greininni er sýndar heildarskuldir og skuldir pr. mann en þar má sjá að skuldir í Mosfellsbæ eru 827þúsund pr. mann á meðan Reykjavík er með 361þúsund pr.mann. Álftanes tæpar þrjár milljónir á mann og Kópavogur með rúma milljón á hvern íbúa. Þessar tölur eru miðaðar við langtíma og skammtímaskulda auk skuldbindinga. Ekki var tekið tillit til eignarstöðu sveitarfélaganna. Ef þú vilt skoða greinina í heild sinni þá getur þú skoðað hana hér.....


19.febrúar
Kynning á frambjóðendum vegna prófkjörs Framsóknarmanna.
Framsóknarfélögin í Mosfellsbæ hafa gefið út kynningarrit vegna prófkjörs sem fer fram 27.febrúar n.k. 

Prófkjörið fer fram laugardaginn 27. febrúar 2010 frá klukkan 10.00 til 15.00 í sal Framsóknarfélags Mosfellsbæjar að Háholti 14 í Mosfellsbæ.  Prófkjörið er öllum opið sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn og eru með kosningarétt og lögheimili í Mosfellsbæ á kjördegi.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram á skrifstofu Framsóknarflokksins að Hverfisgötu 33 í Reykjavík  dagana 22.-26. febrúar nk. á milli klukkan 13 og 17.
sjá pdf eintak af blaðinu hér...

 

18.febrúar
Hildigunnur Birgisdóttir opnar sýningu í Listasal Mosfellsbæjar
Laugardaginn 20. febrúar kl. 14 - 16 er opnun sýningar Hildigunnar Birgisdóttur, Margt í mörgu, í Listasal Mosfellsbæjar. Hildigunnur sýnir teikningar og skúlptúra sem eru framhald af vangaveltum hennar um kerfi  og reglur - glundroða og útnára efnisheimsins.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma Bókasafns Mosfellsbæjar
Allir velkomnir - aðgangur ókeypis
Hildigunnur Birgisdóttir (f. 1981) lauk námi frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2003. Síðan þá hefur hún m.a. verið framkvæmdastjóri Skaftfells - miðstöðvar myndlistar á Austurlandi, á Seyðisfirði, kennt myndlist við Myndlistaskóla Reykjavíkur, starfað í I8 galleríi og setið í stjórn Nýlistasafns Íslands.

14.febrúar
Íslandsmet í faðmlögum sett í Mosfellsbæ

Mosfellingar reyndu í dag við heimsmetið í hópfaðmlögum en urðu að sætta sig við nýtt Íslandsmet. Þá komst Bandaríkjamaður í heimsmetabók Guinness í nótt fyrir að faðma meira en 7000 manns á einum sólarhring.

Kærleiksvika hófst í Mosfellsbæ í dag og af því tilefni var efnt til mikilla hópfaðmlaga á Miðbæjartorgi. Farið var nákvæmlega eftir reglum heimsmetabókar Guinness og lögregla aðstoðaði við að loka svæðið af. Alls föðmuðust 370 manns þegar mest var og hlýtur það að teljast nýtt Íslandsmet. Heimsmetið var sett í Lundúnum en þar föðmuðust 626 manns og Mosfellingar stefna að því slá það á næsta ári. Rúv sagði frá. meira


12.febrúar
Atvinnuleysi heldur áfram að aukast!

Skráð atvinnuleysi í janúar mældist 9% sem er 0,8 prósentustigum meira en það var í desembermánuði.  14.705 manns voru án atvinnu að meðaltali í janúar.  4þúsund manns hafa verið án atvinnu í meira en ár og þar af tæpur helmingur í sex mánuði eða lengur.   Líklegt er að atvinnuleysi muni haldast áfram mikið á árinu en samkvæmt könnun vildu fleiri fyrirtæki fækka starfsmönnum og færri höfðu í hyggju að fjölga þeim. Reiknar Seðlabankinn með að atvinnuleysi haldist mikið út árið, þ.e. á bilinu 9%-10%, og alveg fram á annan ársfjórðung 2010. Eftir það gerir bankinn svo ráð fyrir að atvinnuleysi fari minnkandi eftir því sem efnahags- umsvif aukast. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Morgunkorni Ísl.banka.


11.febrúar
Gljúfrasteinn tekur þátt í safnanótt
Gljúfrasteinn tekur þátt í safnanótt í fyrsta sinn í ár og verður með opið frá klukkan 19-24 föstudaginn 12. febrúar. Boðið er upp á hljóðleiðsögn um húsið og margmiðlunarsýningu í móttökuhúsi.
Klukkan 21 verður KK með tónleika í stofunni.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Aðgangur er ókeypis.
KK spilaði fyrir fullu húsi á stofutónleikum Gljúfrasteins síðasta sumar. Hér má finna tengil á upptöku frá þeim tónleikum.
Safnastrætó mun keyra frá Kjarvalsstöðum til Gljúfrasteins klukkan 20 og til baka klukkan 22.

2.febrúar
Prófkjör Framsóknarmanna í Mosfellsbæ
Frestur til framboðs vegna sveitarstjórnarkosninganna vorið 2010 rann út 1.febrúar sl.. Tíu gáfu kost á sér en kosið verður um sex efstu sæti listans þann 27.febrúar n.k.:

Marteinn Magnússon          sækist eftir 1.sæti
Bryndís Bjarnarson             sækist eftir 2. sæti
Snorri Hreggviðsson            sækist eftir 2. sæti
Björg Reehaug Jensdóttir     sækist eftir 2.-3.sæti
Ásta Björk Benediktsdóttir   sækist eftir 2.-3.sæti
Guðni Þorbjörnsson            sækist eftir 3.-5.sæti
Linda Björk Stefánsdóttir     sækist eftir 3.-4. sæti
Sveinbjörn Ottesen             sækist eftir 4.sæti
Óli Kárason Tran                sækist eftir 5.-6.sæti
Eggert Sólberg Jónsson      sækist eftir 5.-6.sæti 

Prófkjörið er opið öllum sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn, eru með kosningarétt og með lögheimili í Mosfellsbæ á kjördegi.
Formaður kjörstjórnar er Þröstur Karlsson.

22.janúar
Pistill frá ritara flokksins

Framsóknarmenn hafa miklar áhyggjur af atvinnuástandinu í landinu. Í ár stefnir í að atvinnuleysi verði um 10% og fjöldi fyrirtækja á eftir að hætta rekstri. Grunnur hagvaxtar í landinu átti að vera nýjar stórframkvæmdir, virkjanir á Suðurlandi og álver á Suðurnesjum. Ríkisstjórnin lofaði í stöðugleikasáttmálanum að engar hindranir yrðu í vegi þessara framkvæmda og á móti lofuðu aðilar vinnumarkaðarins að stöðugleiki yrði á vinnumarkaðnum.
Síðan þá hefur ríkisstjórnin gert sitt allra besta til að svíkja samkomulagið. Framkvæmdir á Bakka hafa verið blásnar af, umhverfisráðherra situr enn þá á aðalskipulagi sveitarfélaga við Þjórsá til að tryggja að ekki verið farið í virkjanir þar og tókst svo á ótrúlegan máta að tefja umhverfismat og skipulagsmál Suðvesturlínunnar. Meira.....

Meira.....

22.janúar
Björg Jensdóttir nýr jafnréttisfulltrúi Framsóknarflokksins
Á fundi landsstjórnar Framsóknarflokksins í gær, miðvikudag, var ákveðið að ráða Björgu Reehaug Jensdóttur sem jafnréttisfulltrúa Framsóknarflokksins. Björg er með dýplómagráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í uppeldis- og menntunarfræði við menntavísindasvið HÍ. Björg er í stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar, situr í miðstjórn flokksins og í framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna. Björg er boðin hjartanlega velkomin til starfa og er vænst mikils af störfum hennar nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna.

21.janúar
Prófkjör Framsóknarmanna í Mosfellsbæ
Prófkjör Framsóknarmanna í Mosfellsbæ vegna bæjarstjórnarkosninga í Mosfellsbæ vorið 2010.
Prófkjörið er opið öllum sem skráðir eru í Framsóknarflokkinn, eru með kosningarétt og með lögheimili í Mosfellsbæ á kjördegi. Tilkynning um þátttöku skilist til formans kjörstjórnar Þrastar Karlssonar tkarls@centrum.is eða í síma 8945111 fyrir 1.febrúar 2010 kl.12:00 á hádegi. Frambjóðandi skal skila mynd á tölvutæku formi og stuttu æviágripi.

Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar


16.janúar
Félagsfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar
Félagsfundur Framsóknarfélags Mosfellsbæjar verður haldinn 18. janúar 2010 í sal félagsins að Háholti 14. 2.hæð kl 20.00.

Fundarefni:
• Sveitastjórnarkosningar 2010
• Ákvörðun um val á framboðslista
• Kosningabaráttan í vor
 
Áhugasamir frambjóðendur hafi samband við Óðinn Pétur Vigfússon í síma 868-1313 fyrir 1. janúar 2010.
Stjórn Framsóknarfélags Mosfellsbæjar

15.janúar
Embla valin Mosfellingur ársins
Embla Ágústsdóttir hefur verið valin Mosfellingur ársins 2009 af bæjarblaðinu Mosfellingi í Mosfellsbæ. Embla lætur hreyfihömlun ekki hindra sig í að lifa lífinu og ná háleitum markmiðum sínum í námi og starfi. Með því að miðla af reynslu sinni og lífssýn hefur hún unnið að því að breyta viðhorfum til fatlaðra og fengið fólk til að skilja að þó hreyfihömlun sé áskorun þá sé hún ekki endilega afsökun. Embla hefur að undanförnu haldið fjölda fyrirlestra sem tengjast málefnum fatlaðra. Embla er nemandi á félagsfræðibraut í borgarholtsskóla og stefnir á háskólanám í fötlunar- og kynjafræðum. Embla er öflug sundkona og æfði í mörg ár með íþróttafélagi fatlaðra. Hún lék einnig á slagverk með Skólahljómsveit Mosfellsbæjar á sínum yngri árum. Þetta er í fimmta sinn sem Mosfellingur veitir þessa viðurkenningu.

 

 

10.janúar
Opinn fundur með þingmönnum Framsókna
Framsóknarfélag Reykjavíkur boðar til opins fundar með þingmönnum flokksins þeim Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni og Vigdísi Hauksdóttur, miðvikudaginn 13. janúar kl. 12:00 í Gyllta salnum á Hótel Borg. Umræðuefni: Icesave og staðan  í dag.

Dagskrá:
Fundur settur: Guðmundur Gíslason, formaður FR
Skipun fundarstjóra: Einar Skúlason
Framsaga: Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Vigdís Hauksdóttir
Fyrirspurnir úr sal
Áætluð fundarlok kl. 13:10
Súpa, fiskur og kaffi – 1.500 kr.
Allir velkomnir – stjórnin

9.janúar
Þorrablót framsóknarmanna haldið í Kópavogi
Hið árlega og vinsæla þorrablót verður haldið laugardaginn 16. janúar nk. Blótið verður haldið í Lionssalnum að Auðbrekku 25-27 Kópavogi.
Dagskrá verður með hefðbundnu sniði. Húsið opnar kl. 19:00 og blótað við bæjardyr. Um kl. 20:00 hefst borðhald og borð munu svigna undan þjóðlegu góðgæti.

Veislustjóri verður Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, sérstakur gestur er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins. Þá munu Níels Árni Lund og Guðmundur Steingrímsson fara með gamanmál að hætti framsóknarmanna.
Að loknu borðhaldi mun hljómsveitin Sælusveitin leika fyrir dansi og ná fram sælusvip á blótsgestum.
Miðaverð kr. 5.500,-
Upplýsingar og miðapantanir hjá Unu Maríu í s: 896-4189 eða Sveini í s: 821-1027.
MISSTU EKKI AF ÞORRABLÓTI ÁRSINS!

 

7.janúar
Aðaltún 10 og 12 fékk viðurkenningu Orkuveitu Reykjavíkur fyrir fallega skreytingu..
Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri  Orkuveitu Reykjavíkur, afhenti  viðurkenningar fyrir jólaljósaskreytingar á  veitusvæði fyrirtækisins fyrir rafmagn við athöfn í gær.  Hér fylgir listi yfir viðkomandi hús með umsögn dómnefndar. 

Reykjavík, Safamýri 18:  Jólalýsing sem fer afar vel í umhverfinu. Stílhrein og flott.
Garðabær, Súlunes 26:  Björt og lifandi skreyting sem leggur áherslu á samræmi í litavali og heildarsvip.
Kópavogur,  Ársalir 1 og 3:  Húsfélögin við Ársali, ljósaskreytingar sem mynda samstæða heild og færa götunni jólasvip.
Seltjarnarnes, Nesbali 106:  Stílhrein og falleg jólalýsing sem fer afar vel í umhverfinu.
Mosfellsbær, Aðaltún 10 og 12:  Fallega skreytt parhús sem mynda samstæða heild.
Akranes, Bakkatún 4:  Stílhrein og falleg jólalýsing með hvítum ljósum.

 

1.janúar
Mosfellsfréttir óska öllum gleðilegs nýs árs með þakklæti fyrir allt gamalt og gott í gegnum tíðina.

Megi komandi ár veita ykkur gæfu og gleði

 

 

 

 

 

 

Veljum íslenskt
Veljum X-B
FYRIR ALLA í Mosfellsbæ 

 

 

To be is to do
Sokrates
Do bee do bee do
Frank Sinatra

 

Viltu koma skoðun  þinni á framfæri, viltu að við látum þig vita þegar nýtt efni er sett inn á síðuna eða óskar þú eftir upplýsingum?
Sendu okkur tölvupós
t:

frettir@mosfellsfrettir.is