Stjórnsýsla
/ íbúalýðræði
Skilvirk
og réttlát stjórnsýsla
B-listinn
vill að Mosfellsbær sé þekktur fyrir persónulega þjónustu, bær fyrir
alla án þröskulda þar sem jafnréttis er gætt og tækifæri eru fyrir alla.
B-listinn
leggur mikla áherslu á að stjórnsýslan sé gagnsæ, fagleg, skilvirk og að
stjórnkerfi bæjarins verði endurskoðað með það að markmiði að auka sjálfstæði
stofnana hans. Valddreifing og aukin rekstrarábyrgð forstöðumanna er eitt af
lykilatriðum til að ná hámarksárangri í rekstri. Ráðinn verður
ópólitískur bæjarstjóri.
B-listinn
mun taka stjórnkerfið til endurskoðunar með hliðsjón af yfirfærslu
verkefna frá ríki til sveitarfélaga s.s. málefnum fatlaðra og aldraðra.
Kjörnir fulltrúar vinna í þjónustu bæjarbúa.
Mikilvægt
er að Mosfellsbær móti skýra starfsmannastefnu þar sem jafnrétti og
endurmenntun verði höfð að leiðarljósi. Ábyrgð og skyldur hvers
starfsmanns séu skýrar. Lögð verður
sérstök áhersla á að embættismenn starfi í anda stjórnsýslulaga.
Upplýsingamiðlun
til bæjarbúa um þá þjónustu sem þeim stendur til boða verður aukin
komist B-listinn til áhrifa. Það verður gert með eflingu hverfasamtaka, öflugum
íbúaþingum og aðgengilegri heimasíðu / íbúagáttar.
B-listinn
vill auka íbúalýðræði. Óski 25% kosningabærra íbúa eftir kosningum
eiga íbúar að fá að kjósa um þau mál sem brenna á þeim hverju sinni.
Mikilvægt er að bæjarstjórn virki íbúagátt bæjarins þannig
að íbúar geti haft áhrif á ýmis mál sem koma þeim við. Ef íbúar
hafa ekki möguleika á að nýta sér íbúagáttina fái þeir aðstoð í þjónustuveri
bæjarins. Kosningar um íbúagátt væru leiðbeinandi fyrir bæjarstjórn.
Íbúaþing
verði haldið í upphafi hvers kjörtímabils og svo annað hvert ár.
Niðurstöður þess verði leiðbeinandi fyrir mótun stefnu bæjarins.
Hverfasamtök verði endurvakin og stutt verði við bakið á þeim.
Mikilvægt
er að Mosfellsbær geti státi að góðri og jafnri þjónustu fyrir alla bæjarbúa
svo lífsgæði íbúanna verði sem mest á hverjum tíma.
B-listinn
mun tryggja fjölskylduvæna fjármálastefnu þar sem álögum og gjaldtöku er
stillt í hóf og manngildi verði ofar auðgildi. Byrðunum verður jafnað út
með almennum álögum frekar en með sértækum gjaldskrárhækkunum á
einstaka hópa.
B-listinn mun koma á aðhaldi, hagkvæmni og góðu skipulagi í rekstri bæjarins
þar sem eiginhagsmunapot verður ekki liðið. Af gefnu tilefni mun B-listinn gæta
hagsmuna Mosfellsbæjar í hvívetna.
Mikilvægt
er að endurskoða rekstur bæjarins til að ná fram meira hagræði svo að
skatttekjur bæjarins nýtist íbúum sem best. Nauðsynlegt er að
forgangsraða verkefnum þannig að grunnþjónusta njóti forgangs.
B-listinn
telur afar mikilvægt að farið verði með aukinni varfærni í einkaframkvæmdarsamninga
um almannaþjónustu og þeir aðeins gerðir séu kostir þeirra ótvíræðir
fyrir bæjarfélagið.
B-listinn
vill að Mosfellsbær sé samfélag án þröskulda. Mosfellsbæ viljum við sjá
sem fjölskylduvænan bæ þar sem þjónustan tekur mið af þörfum
einstaklinganna hverju sinni.
B-listinn
vill að mótuð verði heildstæð fjölskyldustefna þar sem málefni fjölskyldunnar
í sinni víðustu mynd njóta forgangs. Mikilvægt er að Mosfellsbær
komi til móts við börn og unglinga og fjölskyldur þeirra með félagsleg
vandamál og útvegi þeim úrræði og ráðgjöf við hæfi.
B-listinn
er framsækinn í málefnum fatlaðs fólks. Breyttar samfélagsaðstæður
kalla á breytta þjónustu. Mikilvægt
er að Mosfellsbær sýni metnað í yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki
til sveitarfélaga. Með yfirfærslunni skapast tækifæri til bættrar þjónustu
og aukinna lífsgæða fatlaðra og fjölskyldna þeirra.
Mikilvægt er að allir bæjarbúar fái jafnan aðgang að allri félagsþjónustu.
Skoða skal hvort bæjarfélagið geti stutt unga einstaklinga til framhaldsskólanáms.
B-listinn
vill stuðla að stofnun byggingarsamvinnufélags ungs fólks.
Mikilvægt
er að hlúa vel að eldri borgurum. B-listinn hefur fullan hug á að auka
framboð búsetuúrræða fyrir aldraða og kynna nýjar leiðir í þessum málum.
Góð heimaþjónusta er mikilvæg þannig að þeir bæjarbúar sem það kjósa
geti búið sem lengst á eigin heimili. Samþætta þarf heimahjúkrun og félagslega
heimaþjónustu enn meir.
B-listinn
mun byggja upp hjúkrunarheimili og
tómstundaaðstöðu að Hlaðhömrum í samstarfi við Eir ásamt aðstöðu
fyrir félagsstarf aldraðra.
B-listinn
vill samstarf við félag aldraða í Mosfellsbæ um að efla tómstundastarfið
og sníða það að þörfum karla jafnt sem kvenna.
Á
kjörtímabilinu vill B-listinn að viðmið vegna lækkunar fasteignaskatts verði
endurskoðuð til hagsbóta fyrir tekjulægri öryrkja og eldri borgara.
Mikilvægt
er að Mosfellsbær sýni metnað í yfirfærslu málefna aldraðra frá ríki
til sveitarfélaga.
Jafnréttismál
B-listinn
vill stuðla að því að íbúum verði ekki mismunað eftir kyni, stöðu, fötlun,
litarhætti eða trúarbrögðum...
B-listinn
vill auka vægi jafnréttismála að nýju innan bæjarfélagsins, að jafnréttissjónarmið
verði í heiðri höfð og unnið verði eftir jafnréttisáætlun Mosfellsbæjar.
Launamisrétti verður ekki liðið meðal starfsmanna bæjarins.
Jafnréttisviðurkenningar
verði veittar til þeirra fyrirtækja og stofnana sem hafa staðið fyrir auknu
jafnrétti.
Við setjum manngildi ofar auðgildi og viljum að hver og einn hafi sama rétt
til menntunar, þroska og grundvallarlífskjara óháð uppruna, kyni, heilsu og
efnahag.
B-listinn
gerir kröfu um aukna löggæslu í Mosfellsbæ og að lögregla sé við störf
í bæjarfélaginu allan sólarhringinn, allt árið um kring, án
undantekninga. Einnig er mikilvægt að lögreglan sé sýnileg og að auðvelt
aðgengi sé að lögreglustöð á miðbæjarsvæðinu.
B-listinn
vill efla vægi forvarna í Mosfellsbæ. Lögregla og forvarnarfulltrúar vinni
með bæjarbúum og þá sérstaklega skólum og tómstundafélögum bæjarins.
B-listinn
vill að Mosfellsbær verði í fararbroddi í fræðslustarfi á öllum skólastigum.
Skólastefnu
Mosfellsbæjar ber að endurskoða reglulega í samráði við starfsmenn og
foreldra með hliðsjón af ört stækkandi bæjarfélagi og breyttum áherslum
í þjóðfélaginu.
Húsnæði
og leiksvæði skóla bæjarins þarf að bæta og vill B-listinn sjá til að
svo verði gert á komandi kjörtímabili. Mikilvægt er viðhalda og endurnýja
húsnæði og leiksvæði skóla bæjarins betur en gert hefur verið.
Mikilvægt að aðhald og eftirfylgni sé með skólamáltíðum, framboði,
innihaldi og
verðlagningu þeirra
Listaskóla
Mosfellsbæjar ber að styðja áfram þannig að kostnaði bæjarbúa er sækja
nám í skólanum verði ávallt haldið í lágmarki.
Aðbúnaður
kennarar, starfsfólks og nemenda á alltaf til fyrirmyndar og skólar Mosfellsbæjar
eiga að vera eftirsóknaverðir vinnustaðir bæði fyrir börn og starfsmenn.
Kennarar og annað starfsfólk skólanna verði haft með í ráðum í auknum mæli
þegar breytingar eru gerðar t.d vegna rekstrar skólanna.
Lausum kennslustofum verði markvisst fækkað með uppbyggingu skólahúsnæðis.
Daggæsla
barna skal vera tryggð frá lokum fæðingarorlofs.
Stefnt
verði að því að veita öllum foreldrum barna, er þess óska, möguleika á
daggæslu frá því að fæðingarorlofi lýkur. Foreldrar skulu hafa val um
leikskóla með hliðsjón af áherslum hvers skóla.
Í
kjölfar byggingar nýrra hverfa er nauðsynlegt að huga að byggingu leikskóla
með framtíðarsýn skipulags að leiðarljósi.
Grunnskólar
Mikilvægt
er við ákvarðanatöku um byggingu grunnskóla að horft sé til framtíðar
og þarfir barna hafðar að leiðarljósi.
B-listinn
vill tryggja að grunnskólar bæjarins geti unnið sjálfstætt og metnaðarfullt
starf. Mikilvægt er að grunnskólum bæjarins verði búnar aðstæður til þess
að þeir geti sem best komið til móts við þær þarfir og kröfur sem gerðar
eru til skólastarfs í dag.
Mikilvægt
er að styrkja nýjan framhaldskóla Mosfellsbæjar og hefja sem allra fyrst
byggingu hans svo ungmenni bæjarins sjái sér hag í að sækja skóla innanbæjar.
Mikilvægt
er að Mosfellsbær sameini alla menningarstarfsemi undir sama málaflokk en þar
telst menning m.a. vera tómstundir, íþróttir og félagsstörf, listir og
menningartengd ferðaþjónusta.
Saga hitaveitunnar verði gerð sýnilegri í bæjarfélaginu.
Samstarf
bæjarfélagsins við ríkið um rekstur Laxnessseturs þarf að efla og skoða
ber möguleika á að stofna til söguminja- og byggðasafns í Mosfellsbæ.
Stefnt skal að því að Brúarland verði skólaminjasafn.
Mosfellsbær
státar af ríkri menningar- og listasögu sem nauðsynlegt er að varðveita og
efla. Samstarf listamanna og skóla bæjarins má efla enn frekar svo fjölbreytt
flóra menningar og lista í grunnskólum og stofnunum bæjarins fái notið sín.
B-listinn vill að Mosfellsbær stuðli að hvatningarverðlaunum til handa
ungum listamönnum í grunnskólum bæjarins.
Gildi
íþrótta- og tómstundastarfs sem forvörn er ómetanlegt og því er mikilvægt
að allir bæjarbúar hafi sömu möguleika á að stunda og taka þátt í íþrótta-
og tómstundastarfi.
Mikilvægt
er að frístundagreiðslur vegna íþrótta-og tómstundastarfs verði í boði
fyrir öll börn á aldrinum 4-18 ára.
Efla þarf samráð við íþrótta- og tómstundafélög innan bæjarins um
forgangsröðun verkefna.
Uppbyggingu
þarf að ljúka við íþróttamiðstöðina að Varmá svo sem anddyri og félagsaðstöðu
eins fljótt og auðið er.
Hafravatnssvæðið
sér B-listinn sem tilvalið svæði fyrir útivistarparadís.
Átak verði gert í lagningu hjólreiða-, göngu- og reiðstíga, áningarstöðum
fjölgað og lýsing bætt. Leiðarlýsingar lagfærðar og umferðaröryggi
tryggt sem best.
B-listinn
telur mikilvægt að í sumarleyfum grunnskólabarna sé boðið upp á fjölbreytt
og spennandi leikja- og íþróttanámskeið.
Hlutverk
vinnuskóla bæjarins ber að endurskoða og þróa í takt við breyttar áherslur,
þarfir og kröfur. Vinnuskólinn á að vera aðlaðandi og þarf að bjóða
upp á lærdómsrík verkefni sem unglingar sækjast eftir að leysa.
Skipuleggja
þarf svæði fyrir skíðalyftu með sérstakri sleða- og brettabrekku.
Skíðasvæðið
í Skálafelli þarf að byggja betur upp og leggja áherslu á að kaupa og
reka snjógerðartæki. Stutt skal við byggingu skíðaskála í Skálafelli.
Aðstöðuna á brettasvæðinu við Völuteig þarf að bæta.
Frístundasel
Að
skóladegi loknum er mikilvægt að bæjarfélagið komi til móts við þarfir
foreldra með því að bjóða góða þjónustu við börnin. Góður
aðbúnaður og fjölbreytilegt starf skal vera í fyrirrúmi í öllum frístundaselum
bæjarins.
Efla
verður atvinnulíf í Mosfellsbæ þar sem framtak einstaklinga og fyrirtækja
fær að njóta sín. Þróunar- og ferðamálanefndina verður að virkja og
efla aftur til muna þannig að nefndin verði undirstaða eflingar og nýsköpunar
í atvinnu- og ferðamálum. Umfjöllun um atvinnumál verði færð frá bæjarráði
til nefndarinnar.
Nauðsynlegt
er að kynnast starfsemi Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samstarfi við
Frumkvöðlasetur Mosfellsbæjar og efla það t.d. með beinum fjárframlögum
og sérfræðiráðgjöf.
B-listinn
vill laða atvinnustarfsemi til bæjarins með góðri aðstöðu og þjónustu
en jafnframt styðja við þau fyrirtæki sem til staðar eru og efla samstarf
og samvinnu við þau og þeirra í milli.
Aðstöðu
fyrir ferðamenn og þjónustu þeim til handa verður að efla til muna. Nauðsynlegt
er að bærinn komi upp vel skipulögðu tjaldstæði með góðri og fjölskylduvænni
aðstöðu fyrir ferðamenn.
Ráðinn
verði atvinnumálafulltrúi í Mosfellsbæ til að styðja við og hrinda
atvinnumálaaðgerðum hratt og vel í framkvæmd.
Haldið verði íbúaþing um atvinnuuppbyggingu
strax að loknum kosningum.
B-listinn
vill tryggja aðgengi fyrir alla að ferðamannastöðum, náttúruperlum og
fornminjum í Mosfellsbæ og að stutt verði við fornleifarannsóknir, efla
heilsutengda ferðaþjónustu í bæjarfélaginu.
Skipulagsmál
Umhverfisvænt skipulag og framkvæmdir
B-listinn
vill lýðræðisleg vinnubrögð í skipulagsmálum í sátt við umhverfið og
í samvinnu við íbúana og við teljum nauðsynlegt að íbúar fái að kjósa
um stórar ákvarðanir.
Skipulag
Mosfellsbæjar
ber að sjá sem eina heild og byggðina vel skipulagða í kringum sterkan miðbæ.
Skipulagsmál þurfa að vera sífellt í mótun í stækkandi bæjarfélagi,
taka þarf sérstakt tillit til umhverfismála og taka mið af Staðardagskrá
21. Við viljum leggja áherslu á fallegt og öruggt umhverfi íbúum til
handa. Tryggja þarf aðgang að opinni ósnortinni náttúru við gerð
skipulagsáætlana.
Stuðla
þarf að uppbyggingu sterks
miðbæjar í Mosfellsbæ þar sem aðgengi fyrir alla er tryggt og aðstaða er
til menningarviðburða.
B-listinn
í Mosfellsbæ vill að í skipulagsmálum bæjarins verði horft betur til
framtíðar. Aðgengi að stofnunum bæjarins verður að vera gott fyrir alla bæjarbúa.
Vinna þarf að uppbyggingu ævintýragarðs.
Virk umhverfisstefna verði ávallt höfð að
leiðarljósi í Mosfellsbæ.
Við
viljum leggja mikla áherslu á virka umhverfisstefnu og að unnið sé eftir
markmiðum Staðardagskrár 21. Á öllum skólastigum ber að tryggja virka
umhverfisfræðslu og hvetja bæjarbúa til þátttöku í umhverfisvænum lífsháttum.
Stuðla þarf að bráðabirgðafrágangi opinna byggingasvæða, tryggja frágang
grunna og ófágenginna bygginga svo ekki stafi hætta af.
Stefnt skuli að flokkun alls heimilissorps í Mosfellsbæ.
Almenningssamgöngur
verði bættar frá því sem nú er og gerðar að raunhæfum samgöngukosti.
Umhverfi
og ásýnd bæjarins þarf að bæta á markvissan hátt og er æskilegt að
stofnanir bæjarfélagsins sýni þar fordæmi með góðri umgengni.
Átak
þarf í fegrun og hreinsun Leirvogs og strandlengjunnar og uppgræðslu á námusvæðum
innan bæjarmarkanna ásamt almennri uppgræðslu.
Álafosskvos
þarfnast fegrunar, endurbóta og umhverfi hennar ber að gera að aðlaðandi
útivistarsvæði fyrir alla bæjarbúa.
Göngustígar
verði merktir, hreinsaðir og lýsing bætt, bekkjum og ruslafötum fjölgað.
Mosfellsbær
fái úttekt á mengun frá Álfsnesi og geri ráðstafanir varðandi þær
Snyrtimennska
og virðing við umhverfið verði höfð að leiðarljósi í Mosfellsbæ.